Morgunblaðið - 08.01.2004, Side 57
Á næsta ári fer fram Heimsmeist-aramót og Ólympíuleikar árið
2006 og þeir viðburðir hefðu verið
stóru póstarnir í markmiðssetningu
íslenskra skíðamanna.
„Það mun ekki hafa dramatísk
áhrif á starfsemi Skíðasambandsins
að einn af okkar fremstu skíðamönn-
um sé úr leik vegna meiðsla. Á þessu
ári sem er framundan eru engin stór-
mót hjá þeim sem eldri eru en ung-
lingarnir eru að fara á Heimsmeist-
aramót á þessu ári,“ segir Friðrik en
heildarvelta Skíðasambandsins vegna
landsliðsverkefna alpa- og skíða-
göngulandsliðsins er um 65 millj. kr.
„Það koma af og til ár þar sem eng-
in stórmót eru á dagskrá hjá afreks-
fólki á skíðum en ég veit að Dagný
Linda mun mæta sterk til leiks á ný
eftir þetta mótlæti.“
Það vekur athygli að eini Íslending-
urinn sem hefur látið að sér kveða að
einhverju marki á Heimsbikarmótum
á skíðum, Kristinn Björnsson, þurfti
að hætta að keppa vegna þrálátra
meiðsla í hné. En hann sleit einnig
fremra krossband í hné líkt og Dagný
Linda.
„Ég er ekki sérfræðingur á þessu
sviði en ég tel að skíðaíþróttin sé ekki
hættulegri íþrótt en hver önnur. Í til-
viki Dagnýjar var hún að stöðva sig
eftir ferð niður brekkuna. Hún var
ekki á mikilli ferð, en hún telur að
slæm birtuskilyrði hafi gert það að
verkum að hún misreiknaði sig þegar
hún stöðvaði sig,“ segir Friðrik og
bætir því við að starf Skíðasambands-
ins fari að stærstum hluta fram hér á
landi og þar sé útlitið mun betra en
undanfarin ár.
„Það er snjór í fjöllum víðsvegar
um landið og það er kærkomið eftir
mjög mögur ár. Krakkarnir og ung-
lingarnir eru því að æfa við þær að-
stæður sem gerir skíðaíþróttina
skemmtilega. Brekkurnar eru iðandi
af lífi og við lítum björtum augum á
framtíðina þrátt fyrir að Dagný
Linda hafi lent í þessu óhappi,“ sagði
Friðrik.
Morgunblaðið/Kristján
Dagný Linda Kristjánsdóttir skíðakona frá Akureyri á fullri ferð.
„Dagný mun efl-
ast við mótlætið“
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir skíðakona frá Akureyri verður frá
keppni og æfingum í a.m.k. 6 mánuði eftir að í ljós kom að hún er
með slitið krossband en hún slasaðist á æfingu fyrir Heimsbik-
armót á dögunum. Friðrik Einarsson formaður Skíðasambands Ís-
lands sagði í gær við Morgunblaðið að meiðsli Dagnýjar Lindu væru
dapurlegar fréttir þar sem hún hefði verið komin á ágætt skrið á
Heimsbikarmótunum en markmiðið hefði verið hjá henni að fikra
sig upp heimslistann í vetur.
Meiðsli Dagnýjar Lindu Kristjánsdóttur hafa ekki
mikil áhrif á starf Skíðasambands Íslands
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 57
FYRSTU æfingu í bruni
kvenna fyrir heimsbikarmót
sem fram á að fara um helgina
í Sviss, var frestað í gær.
Ástæðan var að brautin var
svo illa lögð að dómarar
ákváðu að hætta við æfinguna
eftir að tvær fyrstu skíðakon-
urnar höfðu lent í því að missa
úr nokkur hlið. Í hraðasta
hlutanum voru nokkrir staðir
þar sem stúlkurnar tókust á
loft og áttu ekki möguleika á
að taka næstu beygju. Í neðsta
hluta brautarinnar var lítill
snjór og þar fóru keppendur
einnig allt of hratt.
Brunæfingu
var frestað
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik leikur þrjá vináttulands-
leiki við Sviss á föstudag, laugardag
og sunnudag, en leikirnir eru liður í
undirbúningi þess fyrir Evrópu-
keppnina sem hefst í Slóveníu 22.
janúar. Fyrsti leikurinn verður á
Varmá í Mosfellsbæ á föstudags-
kvöldið klukkan 20 en hinir tveir
verða í Laugardalshöll. Að leikjun-
um loknum velur Guðmundur Þórð-
ur Guðmundsson landsliðsþjálfari
16 manna hóp sem tekur þátt í
keppninni í Slóveníu, sem hefst
fimmtudaginn 22. janúar, en þá
mæta Íslendingar heimamönnum.
LANDSLIÐIÐ hefur æft tvisvar á
dag frá 2. janúar. Í byrjun vikunnar
voru allir leikmennirnir 22 að einum
undanskildum sendir í þrekmælingu
hjá Sjúkraþjálfunarskor Háskóla Ís-
lands við Stigahlíð. Sá eini sem slapp
við að fara í þrekmælinguna var
Heiðmar Felixson en flensa hefur
hrjáð hann síðustu daga.
ÓLAFUR Stefánsson, Íþrótta-
maður ársins 2002 og 2003, á við lítils
háttar meiðsli að etja þar sem hann
er tognaður á maga. Þá er Patrekur
Jóhannesson að glíma við meiðsli í
vinstri öxl. Báðir æfa þeir þó af
krafti með landsliðinu um þessar
mundir. Flensa hefur einnig herjað á
línumanninn Sigfús Sigurðsson.
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson
markvörður var síðasti leikmaðurinn
af þeim 22 sem nú æfa með landslið-
inu sem kom til móts við hópinn.
Hann fékk tveimur dögum lengra frí
en aðrir og mætti til æfinga 4. jan-
úar. Ástæðan var sú að Guðmundur
og eiginkona hans eignuðust sína
þriðju dóttur skömmu fyrir áramót.
BRYNJAR Þór Hreinsson, hand-
knattleiksmaður úr Gróttu/KR,
gekkst undir aðgerð á hendi á dög-
unum. Samkvæmt vef Gróttu/KR
verður hann ekki tilbúinn í slaginn
þegar úrvalsdeildin hefst í febrúar.
KASPER Hvidt, landsliðsmark-
vörður Dana í handknattleik, ætlar
ekki að leika áfram með Ademar
Leon á Spáni þegar samningur hans
við félagið rennur út í vor. Dönsk
dagblöð leiða líkum að því að Hvidt
sé á leið Barcelona, Ciudad Real eða
Portland San Antonio. Hann ætlar
hins vegar ekki að ræða um framtíð
sína fyrr en að loknu Evrópumóti
landsliða í Slóveníu í byrjun febrúar.
FORRÁÐAMENN franska 1.
deildarliðsins Rennes hafa neitað
boði frá Chelsea í tékkneska lands-
liðsmarkvörðinn í knattspyrnu, Petr
Cech. Ekki kemur til greina að Cech
verði seldur frá félaginu fyrr en í
fyrsta lagi í sumar.
ÞÁ hefur Liverpool vísað frá sér
tilboði frá Stuttgart í svissneska
varnarmanninn Stephane Henchoz.
FÓLK
FRAMTÍÐ Ólafs Inga Skúlasonar
knattspyrnumanns, sem er á mála
hjá enska stórliðinu Arsenal, er í
óvissu en samningur hans við fé-
lagið rennur út í sumar. Ólafur hef-
ur leikið með varaliði Arsenal í vet-
ur og fékk tækifæri í aðalliðinu í
fyrsta sinn í byrjun desember þeg-
ar Arsenal burstaði Úlfana í deilda-
bikarkeppninni.
„Ég hef lítillega rætt mín mál við
Arsenal og svörin sem ég fékk frá
stjórnarmönnum félagsins voru
þau að þeir segjast ekki búnir að
ákveða hvort mér verður boðinn
nýr samningur. Þeir vilja sjá fyrst
hvaða leikmenn verða áfram,
hverjir fara, hvaða nýir menn
koma og meta hvers konar leik-
menn þeir ætla að reyna að fá fyrir
næsta tímabil áður en þeir taka
ákvörðun um framtíð mína,“ sagði
Ólafur Ingi við Morgunblaðið sem
lék nýlega sinn fyrsta landsleik og
var kjörinn efnilegasti leikmaður
Íslandsmótsins á síðasta tímabil en
Ólafur var í láni hjá Fylk-
ismönnum.
„Þetta er eðlilega nokkuð óþægi-
leg staða en ég sagði við Arsenal á
móti að ég gæti ekki beðið enda-
laust. Ég þyrfti að hugsa um sjálf-
an mig þannig að það má segja að
ég sé farinn að kíkja á aðra hluti.
Það er allt opið en ég þarf fyrst að
fá mig góðan af meiðslunum í lær-
inu áður en ég get farið að reyna
fyrir mér annars staðar“.
Ólafur Ingi hefur glímt við togn-
un í aftanverðu lærinu en hann
segist reikna með að geta hafið æf-
ingar að nýju í lok vikunnar.
Framtíð Ólafs Inga hjá
Arsenal er í óvissu
TALSMENN Alþjóða skíða-
sambandsins, FIS, sögðu á dög-
unum að líklega yrði keppt í sér-
stakri liðakeppni árið 2005 á
Heimsmeistaramótinu sem fram fer
það ár. Á aðalfundi FIS í maí á
næsta ári er búist við að keppn-
isfyrirkomulagið verði samþykkt
en sex keppendur munu skipa hvert
landslið, en aðeins fjórir taka þátt í
keppninni sjálfri, tveir karlar og
tvær konur. Keppt verður í risa-
svigi og svigi. Árangur keppenda
verður síðan lagður saman til þess
að fá fram opinbert Heimsmeist-
aralið í Alpagreinum. Næsta
Heimsmeistaramót fer fram í Bor-
mio á Ítalíu árið 2005. Lokadagur
Heimsmeistaramótsins er ætlaður
fyrir þessa liðakeppni en að venju
verður keppt í fimm einstaklings-
greinum í karla- og kvennaflokki.
Ef vel tekst til með þetta keppn-
isfyrirkomulag eru allar líkur á því
að liðakeppnin verði á Ólympíu-
leikunum árið 2010. Slíkt keppn-
isfyrirkomulag var til staðar á ár-
unum í kringum 1960 en lagðist af.
Það eru talsmenn liða frá Norð-
ur- Evrópu og Skandinavíu sem
hafa lagt hart að FIS að taka slíka
liðakeppni upp að nýju.
Liðakeppni á HM
á skíðum árið 2005?
BÚIÐ er að velja leikmenn sem
skipa liðin sem leika gegn hvort
öðru í hinum árlega Stjörnuleik
KKÍ. Friðrik Ingi Rúnarsson þjálf-
ari Grindavíkur stýrir liði Stakka-
víkur úr suðri en liðið er þannig
skipað: Pálmi Freyr Sigurgeirsson
(Breiðablik), Brandon Woudstra
(Njarðvík), Páll Axel Vilbergsson
(Grindavík), Páll Kristinsson
(Njarðvík), Friðrik Stefánsson
(Njarðvík), aðrir leikmenn Darrel
Lewis (Grindavík), Brenton Birm-
ingham (Njarðvík), Mike Manciel
(Haukum), Lárus Jónsson (Hamar),
Guðmundur Jónsson (Njarðvík),
Þorleifur Ólafsson (Grindavík),
Sævar Haraldsson (Haukar). Bárð-
ur Eyþórsson stýrir liði Esso úr
norðri. Liðið er þannig skipað: Sig-
urður Á. Þorvaldsson (Snæfell),
Hlynur E. Bæringsson (Snæfell),
Clifton Cook (Tindastól), Eiríkur
Önundarson (ÍR), Magni Hafsteins-
son (KR), aðrir leikmenn, Axel
Kárason (Tindastól), Nick Boyd
(Tindastól), Steinar Kaldal (KR),
Skarphéðinn Ingason (KR), Lýður
Vignisson (Snæfell), Jeb Ivey
(KFÍ), Kevin Grandberg (ÍR). Leik-
urinn fer fram í Seljaskóla á laug-
ardag kl. 16 og er aðgangur ókeypis.
Leikmenn Keflavíkur gáfu ekki
kost á sér að þessu sinni vegna
komandi leikja þeirra í Evrópu-
keppni bikarhafa.
Langskot og troðslur
Einnig verður boðið uppá troðslu-
keppni og þriggja stiga skotkeppni.
Í ár verður tekið uppá þeirri ný-
breytni að einnig verður þriggja
stigaskotkeppni kvenna.
Þá verður einnig paraskotkeppni.
Þau lið sem þátt taka í paraskot-
keppninni eru: Keflavík, Grindavík,
Njarðvík, ÍS, KR og ÍR.
Sigurður
fékk flest
atkvæði