Morgunblaðið - 08.01.2004, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 65
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.10.
EINGÖNGU SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 6.
Stórbrotin og mögnuð kvikmynd
sem enginn Íslendingur má missa af.
HJ. MBL
Hennar draumar. Hennar skilmálar.
Frábær mynd og frábær tónlist enda kom myndin
skemmtilega á óvart í Bandaríkjunum.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Roger EbertSV. MBL
KRINGLAN
kl. 8 og 10. Enskt. tal.
ÁLFABAKKI
kl. 3.50 og 5.55. Ísl. tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl. tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 9.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Frá
framleiðendum
FourWeddings,
Bridget Jones
& Notting Hill
GH. Kvikmyndir.com HJ.MBL Kvikmyndir.is
AKUREYRI
kl. 10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8 OG 10.30.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
Frumsýnd 9. janúar
Kvikmyndir.is
Landssamtök
gagnrýnenda í
Bandaríkjunum
hafa valið Banda-
ríska dýrð (Amer-
ican Splendor)
bestu mynd árs-
ins 2003 en mynd-
in er byggð á ævi
myndasagnahöf-
undarins Harvey
Pekar. Þetta er í 38. skipti sem verð-
launin eru veitt.
Clint Eastwood var valinn besti
leikstjórinn fyrir Dulá (Mystic River)
og Bill Murray besti leikarinn fyrir
Glataða þýðingu (Lost in Transla-
tion).
Samtökin samanstanda af 55 gagn-
rýnendum en þeir völdu Charlize
Theron bestu leikkonuna fyrir túlkun
sína á morðingjanum Aileen Wourn-
os í myndinni Skrímsli (Monster).
Bestu aukaleikarar voru valdir
Peter Sarsgaard fyrir Brotið gler
(Shattered Glass) og Patricia Clark-
son fyrir tvær myndir, Stöðvar-
fulltrúann (The Station Agent) og
Aprílbrot (Pieces of April).
Finninn Aki Kaurismäki fékk
verðlaun fyrir bestu erlendu myndina
Maður án fortíðar (Mies vailla men-
neisyyttä). Frönsk mynd fékk þann
heiður að vera valin besta heimildar-
myndin og er það mynd Nicolas Phili-
berts Að vera og hafa (Être et avo-
ir) …
Tom Cruise
segist í viðtali við
breska kvik-
myndaritið Emp-
ire hafa mikinn
áhuga á því að
leika Iron Man
eða Járnkarlinn í
fyrirhugaðri
mynd um þetta
mikla Marvel of-
urmenni …
Sönggyðjan
Ashanti hefur
fengið aukahlut-
verk í sannsögu-
legu körfubolta-
drama sem
kemur til með að
heita Coach Cart-
er og skarta
Samuel L. Jack-
son í hlutverki
þjálfara menntaskólaliðs sem komst í
fréttirnar árið 1999 er hann setti allt
byrjunarlið sitt á bekkinn vegna lé-
legrar námsframmistöðu …
Til stendur að endurgera gaman-
myndina The Producers eftir Mel
Brooks. Söngleikur byggður á mynd-
inni hefur notið mikilla vinsælda á
Broadway undanfarin ár og er gert
ráð fyrir að sömu leikarar verði í kvik-
myndagerðinni, Matthew Broderick
og Nathan Lane. Í upprunalegu
myndinni sem er frá 1968 fóru Gene
Wilder og Zero Mostel með þessi
hlutverk. Söngleikurinn vann til 12
Tony verðlauna árið 2001 og hefur
verið sýndur fyrir fullu húsi ár eftir ár
á Broadway. Gert er ráð fyrir að tök-
ur hefjist árið 2005 og að myndin
verði klár síðla árs. Einnig stendur til
að setja verkið
upp á West End
með Richard
Dreyfuss og Lee
Evans í aðalhlut-
verki …
Leikstjórinn
Mike Nichols fær
heiðursverðlaun
Samtaka kvik-
myndaleikstjóra í
Bandaríkjunum þetta árið. Nichols er
72 ára og hefur hlotið allar þær veg-
tyllur sem virtastar þykja í bransan-
um þ.m.t. Óskars-, Golden Globe-,
Tony- og Emmy-verðlaun. Einungis
þrjátíu aðrir leikstjórar hafa verið
heiðraðir með þessum hætti af sam-
tökunum sem starfrækt hafa verið í
68 ár. Meðal kunnustu mynda Nichols
eru The Graduate (sem hann fékk
Óskar fyrir), Who’s Afraid of Virginia
Woolf?, Catch 22, Biloxi Blues, Prim-
ary Colors og Wit. Nýjasta verk hans,
sjónvarpsmynd byggð á leikritinu
Englar í Ameríku með Al Pacino í að-
alhlutverki, hefur hlotið mikið lof
gagnrýnenda sem sumir hverjir telja
með bestu kvikmyndaverkum ársins
2003 …
Heildaraðsókn að kvikmyndahúsum
í Bandaríkjunum árið 2003 dróst sam-
an frá árinu áður en það er í fyrsta
skiptið sem það hefur gerst frá 1991.
Tuttugu myndir þénuðu meira en 100
milljónir dala, þ.m.t. vinsælast mynd
ársins Leitin að Nemó. Talið er að
dræmar viðtökur við framhalsmyndum
síðasta sumars sé meginástæða þess að
aðsóknin varð minni. Meðalkostnaður
við gerð kvikmynda í Bandaríkjunum
árið 2003 var 6.03 milljónir dala eða
422.1 milljónir króna …
Breski leikstjórinn Brian Gibson er
látinn 59 ára gamall. Kunnasta mynd
Gibsons er What’s Love Got To Do
With It? sem fjallar um líf Tinu Tur-
ner og Still Crazy, gamanmynd um
brösuga endurkomu gamallar rokk-
sveitar.
BÍÓ molar
Ashanti
Mike Nichols
Paul Giamatti
Tom Cruise