Morgunblaðið - 09.01.2004, Qupperneq 8
Gísli Rúnar er kominn til að taka yfir, herra. Það er samdóma álit allra að hann leiki þig
betur en þú sjálfur, herra.
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ísalp og Klifurhúsið með opið hús
Gróska í
klifursportinu
Klifur í klettum ogsvokallað ísklifur,að ógleymdum
miserfiðum fjallgöngum,
heillar marga Íslendinga.
Íslenski Alpaklúbburinn
og Klifurhúsið gangast
fyrir opnu húsi á næstunni
og þar verður starfsemi
árins kynnt gaumgæfi-
lega. Halldór Kvaran er
formaður Ísalp og Morg-
unblaðið ræddi við hann á
dögunum og spurði hann
út í starfsemi Ísalp og
Klifurhússins og um klifur
á almennari nótum. Svör
hans fara hér á eftir.
Segðu okkur fyrst eitt-
hvað almennt um Ísalp og
Klifurhúsið …
„Íslenski Alpaklúbbur-
inn er félagsskapur karla
og kvenna sem eiga sameiginlegt
áhugamál sem er hvers kyns
fjallamennska. Fólk leggur stund
á sport eins og ís- og klettaklifur,
almennar fjallgöngur, jöklaferðir
og svo í seinni tíð hefur bæst við
innanhússklifur með tilkomu
Klifurhússins. Við erum með fjöl-
breytt námskeið sem snúa að
fjallamennsku og því að geta
bjargað sér og öðrum úr marg-
víslegum kringumstæðum. Enn-
fremur erum við með mynda-
kvöld, við höldum veglega
fjallamyndasýningu, Banff, ár-
lega og svo ísklifurfestival, rek-
um upplýsingavefinn www.isalp.-
is auk þess að gefa út veglegt
ársrit o.fl. o.fl.
Klifurhúsið sér svo um rekst-
urinn á innanhússklifuraðstöðu
ásamt því að halda klifurnám-
skeið. Aðstaðan og félagsskapur-
inn er öllum opinn og allir eru
velkomnir. Aðstaðan er í Skútu-
vogi 1g og heilmikið á döfinni og
alltaf gaman.“
Nú er opið hús um helgina,
hvað verður þar í gangi og hver
er dagskráin?
„Ísalp og Klifurhúsið verða
með opið hús um helgina. Húsið
verður opið frá 11 til 18.00 báða
dagana. Það verður frítt í klifur
fyrir alla og fólk getur jafnframt
fengið allar upplýsingar um
starfsemina, skráð sig á nám-
skeið og skoðað allan útbúnað
sem notaður er í fjallamennsk-
unni í dag. Við verðum með
myndasýningar og vídeó í gangi
alla helgina og öll fyrri ársrit Ís-
alp liggja frammi og það verður
heitt á könnunni.“
Eru margir í svona klifri á Ís-
landi?
„Á landsvísu eru starfandi í
björgunar- og hjálparsveitum um
5.000 manns á útkallsskrá. Fé-
lagsmenn í Ísalp eru rúmlega 300
og það eru nokkur hundruð
manns sem koma nokkuð reglu-
lega í Klifurhúsið. Ég myndi
áætla að þeir sem stunda ein-
hvers konar klifur á Íslandi væru
í námunda við 1.000 manns.“
Fjölgar iðkendum eða stendur
þetta í stað?
„Eftir tilkomu Klifurhússins
hefur þessi fjöldi auk-
ist töluvert og við
spáum því að þetta sé
bara byrjunin. Nýleg
könnun í grunnskólum
sýnir að klifur er í
fimmta sæti hjá strákum og sjö-
unda hjá stelpum yfir það sport
sem þau vilja helst stunda.“
Á hverra færi er að klifra í ís og
klettum?
„Það geta allir klifrað í ís og
klettum. Fólk ætti þó að fara á
námskeið og læra helstu hnúta og
tryggingar. Síðan er að velja leið-
ir við hæfi og ætla sér ekki um of.
Æfingin skapar meistarann.“
Myndirðu segja að þetta væri
hættulegt sport?
„Slys eru sem betur fer næsta
óþekkt í þessum íþróttum. Helst
er að menn hrufli sig og rispist
eða misstígi sig. Við klifur eru
menn í línum og nota annaðhvort
fastar tryggingar í klettum eða
þá aðrar klifurtryggingar. Í ís-
klifri eru notaðar skrúfur sem
skrúfaðar eru í ísinn. Ef rétt er
að staðið er hættan sáralítil.“
Kostar mikið að koma sér af
stað?
„Til að byrja í innanhússklifri
þarf aðeins klifurskó og þeir
kosta um 6.000 kr. Til að fara svo
yfir í útiklifur bætist við lína og
karabínur/tvistar og það er hægt
að koma sér upp búnaði fyrir
minna en 15.000 kr. Til að fara í
ísklifur bætast við mannbroddar
og ísaxir og slíkur búnaður kost-
ar heldur meira.“
Stunda menn þetta sport einir
eða í hópi?
„Menn stunda klifur yfirleitt í
tveggja til þriggja manna hópum.
Einn leiðir klifrið og félaginn
tryggir hann með að halda í lín-
una. Erfiðleikar leiðanna eru
gráðaðir eftir ákveðnum kerfum
og eftir því sem getan eykst tak-
ast menn á við erfiðari og meira
krefjandi leiðir.“
Er Ísland heppilegt land til
svona klifurs?
„Aðstæður til ísklifurs á Ís-
landi þykja á heimsmælikvarða
og það er ekki langt að fara til að
komast í frábærar að-
stæður. Það eru þó-
nokkur mjög góð
klettaklifursvæði á
landinu. Í nágrenni
höfuðborgarinnar er
helst að klifrað sé í Valshamri eða
þá í Stardal. Svo eru jöklarnir
innan seilingar og fjöllin allt í
kringum okkur. Útivist og fjalla-
mennska er fyrir alla og allir eiga
að geta fundið sér eitthvað við
sitt hæfi á fjöllum.
Óski menn eftir fleiri upplýs-
ingum um dagskrá Ísalp þá er
þær allar að finna á slóðinni
www.isalp.is á netinu.“
Halldór Kvaran
Halldór Kvaran fæddist í
Reykjavík 1961. Stúdent frá VÍ
1982. Starfaði þar eftir við Heild-
verslun Gunnars Kvaran til árs-
ins 2000. Frá 2000 til 2002 sem
deildarstjóri hjá matvörudeild
Danól og hefur rekið eigin heild-
verslun frá miðju ári 2003. Hall-
dór hefur setið í stjórn Íslenska
Alpaklúbbsins í fjögur ár og sem
formaður síðustu tólf mánuði.
Halldór situr ennfremur í stjórn
Klifurhússins. Maki er Kristín
Gísladóttir og eiga þau saman
tvö börn en tvö hvort til viðbótar
úr fyrri samböndum.
Það geta allir
klifrað í ís og
klettum
Fást í verslunum um land allt
H. Blöndal ehf.
Sími 517 2121
www.hblondal.com
Purga-T sjálfvirku
slökkvitækin fyrir
sjónvörp
• Alltaf á vakt
• Slekkur eldinn strax
• Fullkomlega öruggt
30-70%
afsláttu
r
STRANDGÖTU 33 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 565 4533
• Regngallar
• Vindblússur
• Golfpeysur
• Full sett
• Stakar kylfur
• Golfskór
• Pokar
• Kerrur
• Boltar o.fl.
RISAÚTSALA
LOFTLEIÐIR Icelandic hafa
samið við ítalska flugfélagið Vol-
are Group um leigu á B767
breiðþotu Loftleiða.
Samningurinn nær yfir leigu
til Volare Group á einni Boeing
767-300 breiðþotu, áhöfnum, við-
haldi og tryggingum.
Lágmarksverðmæti samnings-
ins, sem er til þriggja mánaða,
er rúmar 4 milljónir bandaríkja-
dala eða um 280 millj. ísl. kr.
Samkvæmt upplýsingum Loft-
leiða Icelandic verður fyrsta
flugið farið 16. janúar n.k. en
flogið verður fjórum sinnum í
viku frá Mílanó til þriggja
áfangastaða á Kúbu og fleiri
staða í Karíbahafi. Loftleiðir Ice-
landic er dótturfyrirtæki Flug-
leiða og annast öflun leiguverk-
efna.
Loftleiðir hafa leigt
þotu til ítalsks félags