Morgunblaðið - 09.01.2004, Side 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SUMAR barnavísur einkennast af algjöru
ábyrgðarleysi og í þeim er hvorki tekið til-
lit til heilsuverndar né eðlilegs öryggis.
Hafa tveir læknar, Sarah Giles og Sarah
Shea, við Dalhousie-háskólann í Halifax í
Kanada komist að þessari niðurstöðu. Sem
dæmi um þetta nefna þær vísuna um hann
„Humpty Dumpty“, sem féll ofan af veggn-
um. „Við efumst stórlega um, að „allir
kóngsins hestar og allir kóngsins menn“
hafi verið færir um rétt viðbrögð eftir að
að herra Dumpty hrapaði ofan af veggn-
um,“ segja þær stöllur í grein, sem birtist í
tímariti kanadísku læknasamtakanna.
Leggja þær til, að gerð verði sú bragarbót
á vísunni og í stað þess, að reynt er að
skella hr. Dumpty saman á ný eftir fallið,
verði honum strax komið undir lækn-
ishendur.
Horfast í augu ...
RICH Gosse, sjálfmenntaður daðursér-
fræðingur í Kaliforníu, er nú kominn til
Ástralíu til að kenna einhleypu fólki að
finna sinn draumaprins og sína drauma-
drottningu. Segir hann, að fyrsta boð-
orðið sé að horfast í augu, brosa og byrja
samtalið með skemmtilegri setningu.
Hann varar hins vegar karlmennina al-
varlega við að spyrja konuna um aldur og
kílóatölu. „Þegar kona talar við mann, er
hún að hugsa um framtíðina; þegar karl-
maður talar við konu, er hann að hugsa
um næstu nótt,“ segir Gosse. „Þannig er
það nú einu sinni. Karlinn vill unga konu,
konan vill auðugan mann.“ Gosse, sem
var einn af mörgum mótframbjóðendum
Arnolds Schwarzeneggers í ríkisstjóra-
kosningunum í Kaliforníu, segir, að það,
sem standi einhleypu fólki fyrir þrifum,
sé ótti, óttinn við að verða hafnað.
Drjúgt dagsverk
hjá Churchill
BRESKA forsætisráðuneytið er með sinn
vef eins og fleiri og þar kemur fram ým-
islegt fróðlegt um fyrri ábúendur í Down-
ingsstræti 10. Í desember mátti lesa þetta:
„Á þessum degi árið 1953 fékk Sir Winston
Churchill menntun sína í Harrow og í
Sandhurst-herskólanum og að því búnu
var hann við herþjónustu á Indlandi og í
Súdan. Á milli vakta starfaði hann sem
stríðsfréttaritari.“
Ólíklegur smellur
„RÚSTUM hús og brjótum brýr,“ segir í
söngnum, sem nú er kominn í efsta sæti á
japanska vinsældalistanum Oricon og
kemur mörgum á óvart. Heitir smellurinn
„Nihon Break Kogyo C. Shaka“ og er
enginn breiksöngur, heldur fyrirtækis-
mars að japönskum sið. Er hann sunginn
kvölds og morgna hjá Nihon Break, sem
fæst við að brjóta niður mannvirki, og er
ætlað að auka eldmóðinn hjá starfsfólk-
inu.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Forkastanlegt
ábyrgðarleysi
Reuters
ÞESSI api brá á leik í dýragarði í Gu-
angzhou í Kína fyrir fáum dögum en
Kínverjar eru um þessar mundir að
fagna því, að nýtt ár, Ár apans, geng-
ur í garð 22. janúar næstkomandi.
Ár apans
KARLMAÐUR hefur fundist á lífi í
rústum húss sem hrundi í jarð-
skjálftanum í írönsku borginni
Bam, þrettán dögum eftir hamfar-
irnar. Maðurinn, sem er 56 ára, var
þungt haldinn og í dái á sjúkrahúsi í
Bam í gær, að sögn íranskra lækna
sem voru ekki bjartsýnir á að hann
héldi lífi. „Við erum ekki viss um að
hægt verði að bjarga honum. Heill
hluti líkamans er kaldur,“ sagði
einn læknanna. Fréttamaður AFP
sá manninn anda með hjálp önd-
unarvélar.
Írönsk björgunarsveit fann
manninn í fyrrakvöld. Talið er að
hann hafi lifað af vegna þess að
hann var undir húsgagni sem
myndaði loftgat, þannig að hann
gat andað.
Íranskir ríkisfjölmiðlar hafa
skýrt frá nokkrum „kraftaverka-
sögum“ um fólk sem hefur verið
bjargað úr rústunum, meðal annars
97 ára konu, löngu eftir að björg-
unarmenn voru orðnir nær úrkula
vonar um að fleiri fyndust á lífi.
David Heymann, embættismað-
ur Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
arinnar (WHO), sem aðstoðar við
skipulagningu björgunarstarfsins,
kvaðst í gær efast um að fleiri fynd-
ust á lífi í rústunum. „Það er mjög
ólíklegt vegna kuldans á næturnar,
þegar frostið er stundum fimm
gráður, og hitans á daginn, sem
verður allt að 15, 16 gráður.“
Heymann bætti við að björgunar-
sveitirnar hefðu fundið fáa á lífi í
rústunum vegna þess hvernig flest
húsa borgarinnar voru hönnuð, en
þau voru með þung þök sem
hrundu þegar jarðskjálftinn hófst.
„Langflestir þeirra sem lifðu af
komust annaðhvort sjálfir út eða
með hjálp skyldmenna skömmu
eftir skjálftann,“ sagði Heymann.
Mörg húsanna voru gerð úr
leðjusteinum sem molnuðu í ham-
förunum, þannig að lítið var um að
loftgöt mynduðust. Talið er að
þetta sé ein af meginástæðum þess
hversu manntjónið var mikið, auk
þess sem jarðskjálftinn varð þegar
flestir borgarbúanna voru í fasta-
svefni.
Um 30.000 manns létu lífið í jarð-
skjálftanum 26. desember og um
30.000 slösuðust. Áætlað er að
75.000 manns hafi misst heimili sín.
Óttast nýjar hamfarir
Yfirvöld í Íran hafa varað við því
að öflugur jarðskjálfti geti orðið í
olíu- og gasvinnsluhéraði í suðvest-
urhluta landsins. Yfir 30 skjálftar
hafa orðið þar síðustu tvo daga og
sá snarpasti mældist 4,9 stig á
Richterskvarða.
Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóða-
ráð Rauða krossins óskuðu í gær
eftir framlögum að andvirði 70
milljóna dollara, 4,9 milljarða
króna, vegna hjálparstarfsins
næstu þrjá mánuðina. Að þeim tíma
liðnum hefst endurreisnarstarfið
sem gert er ráð fyrir að stjórnvöld í
Íran annist að mestu leyti, að sögn
talsmanns Sameinuðu þjóðanna.
Ali Khameini erkiklerkur, æðsti
leiðtogi Írans, sakaði í gær Banda-
ríkjastjórn um að sýna enn Íran
fjandskap þrátt fyrir aðstoð hennar
við Írana eftir jarðskjálftann. Hann
bætti þó við að sættir kæmu til
greina ef Bandaríkjastjórn breytti
afstöðu sinni til írönsku klerka-
stjórnarinnar.
Fannst á lífi í rústum 13 dögum eftir jarðskjálftann í Íran
Ekki víst að hægt verði
að bjarga lífi mannsins
AP
Úkraínskur læknir hlynnir að Írana sem fannst á lífi 13 dögum eftir
jarðskjálftann í Bam. Um 30.000 manns fórust í hamförunum.
Bam. AFP.
KÍNVERSKIR embættismenn skýrðu frá
því í gær að grunur léki á að tvítug fram-
reiðslukona á veitingahúsi í Guangdong-
héraði hefði smitast af HABL, heilkennum
alvarlegrar og bráðrar lungnabólgu. Óstað-
festar fregnir hermdu að konan hefði starf-
að á veitingahúsi þar sem matreidd væru
villt dýr sem kynnu að geta borið HABL-
veiruna í menn.
Konan er nú í sóttkví á sjúkrahúsi. Fyrr
um daginn útskrifaðist 32 ára karlmaður í
Guangdong af sjúkrahúsi eftir að hafa smit-
ast af HABL. Var það fyrsta staðfesta
HABL-tilfellið í Kína í rúmt hálft ár.
Kveðst aldrei hafa
snert þefketti
Maðurinn segist aldrei hafa borðað eða
snert þefketti sem kínversk yfirvöld telja að
breiði út sjúkdóminn. Hann kveðst ekki vita
hvernig hann smitaðist af sjúkdómnum og
segir að eina dýrið sem hann hafi snert sé
lítil mús sem hann hafi kastað út um glugga.
DNA-rannsókn benti til þess að HABL-
veiran í Kínverjanum væri lík kór-
ónaveirum í þefköttum. Yfirvöld í Guang-
dong ákváðu því að láta slátra öllum þef-
köttum í héraðinu ekki síðar en á
laugardag. Alls eru um 10.000 þefkettir í
héraðinu en þeir hafa verið ræktaðir til
manneldis og þykja mikið hnossgæti í Kína.
Þeir gefa einnig frá sér ilmvessa sem eru
eftirsóttir til ilmvatnsgerðar.
Margir sérfræðingar eru efins um þá
ákvörðun yfirvalda í Guangdong að láta
slátra öllum þefköttum og segja að ekki hafi
enn verið sannað að þeir beri HABL-
veiruna í menn.
Yfirvöld í Guangdong ætla einnig að
reyna að útrýma rottum sem að sögn kín-
verskra embættismanna geta verið enn
hættulegri en þefkettir.
Um 800 manns dóu af völdum HABL í
fyrra og um 8.000 sýktust.
Grunur um nýtt
HABL-tilfelli
Deilt um slátrun
þefkatta í Guang-
dong í Kína
Peking. AFP.
!"!
#$ %&
""
'
'"""!"( '
")*+","
! "
# $ %
$ & #
' ()
-!.!,",!
!/.""&0123
#$"
4))!"
+
(+*
*
# +
( &
,-
$ . 0
1
ÍRÖSK kona í Bagdad grætur eftir að hafa án árangurs leitað
að syni sínum við Abu Ghraib-fangelsið í gær. Bandaríkja-
menn létu þá lausa 60 fanga en hyggjast leysa úr haldi um 500
Íraka sem margir voru grunaðir um að vera útsendarar Ba-
ath-flokks Saddams Husseins, fyrrverandi forseta landsins.
Reuters
Týndur sonur
Í SKÝRSLU sem Carnegie-
stofnunin, ein virtasta hug-
veita Bandaríkjanna, hefur
birt er því haldið fram að
stjórn George W. Bush for-
seta hafi skipulega beitt
blekkingum og ýkt hættuna
af meintum gereyðingar-
vopnum Íraka.
Í skýrslunni segir m.a. að
bandarísk stjórnvöld hafi
rangtúlkað niðurstöður
vopnaleitarsérfræðinga sem
störfuðu í Írak áður en ráðist
var inn í landið í fyrra. Þetta
hafi verið gert til að mikla
hættuna sem sögð var stafa
af meintum gereyðingar-
vopnum Saddams Husseins.
Engin slík hafa fundist í
landinu frá því að honum var
steypt af stóli.
„Embættismenn stjórnar-
innar rangtúlkuðu með
skipulögðum hætti þá ógn
sem stafaði af gereyðing-
avopnum Íraka og eldflaug-
um,“ segir í skýrslunni.
Skýrslan er 100 blaðsíður
og sex mánuði tók að vinna
hana. Í henni kemur enn-
fremur fram að „engin mark-
tæk sönnunargögn“ hafi
fundist fyrir þeirri fullyrð-
ingu Bandaríkjamanna að
Saddam Hussein hafi átt
samstarf við al-Qaeda-
hryðjuverkasamtökin.
Sagðir hafa
ýkt ógnina
Washington. AFP.