Morgunblaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Vantar herslumuninn | Hótel Aldan á
Seyðisfirði hefur verið lokað um hríð vegna
útrunninna bráðabirgðaleyfa eldvarnar- og
heilbrigðiseftirlits. Hót-
elið, sem er í tveimur
gömlum húsum við
Norðurgötu og Odda-
götu á Seyðisfirði, var
opnað í júlí í fyrra og er í
eigu Sigurjóns Sighvatssonar,
Seyðisfjarðarkaupstaðar og Byggðastofn-
unar. Framkvæmdum við húsin er ekki lok-
ið að fullu og liggur því lokaúttekt bygging-
arfulltrúa ekki fyrir. Þá er sett út á
starfsmannaaðstöðu og að heimili hótelrek-
enda og hóteleldhús sé í sama húsnæði. Þó
er reiknað með að ný bráðabirgðaleyfi fyrir
hótelið verði gefin út í vikunni svo unnt sé
að halda starfsemi áfram.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Flestir búa á Vesturlandi | Vegagerðin
hefur nú lokið gerð og birti í síðasta mánuði
skýrslu um umferðarkönnun sem gerð var í
Hvalfjarðargöngunum 24.
og 26. október 2002. Á vef
Akraness segir að athygli
veki að 29% vegfarenda
fari daglega um göngin og
41,4% vegfarenda séu bú-
sett á Vesturlandi. Skýrsluna er að finna á
vefslóð Vegagerðarinnar:
http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/
Hvalfjordur_2002/$file/Skýrsla_Hval.pdf
Almennur kynn-ingarfundurverður haldinn í
félagsheimilinu Þórs-
veri í dag vegna aðal-
skipulags Þórshafn-
arhrepps 2003–2023.
Fundurinn hefst kl.
17.00 og eru allir íbúar
hreppsins sem tök hafa
á hvattir til að mæta.
Þetta kemur fram á
vef hreppsins og þar er
jafnframt bent á að mik-
ið hefur safnast af
óskilamunum í íþrótta-
miðstöðinni Veri. Sem
dæmi um óskilamuni má
nefna að á undanförnum
vikum hafa orðið eftir í
Verinu þrenn sjóngler-
augu sem einhverjir
ættu að sakna.
Á vefnum kemur
einnig að nýja árið heils-
aði á Þórshöfn með hlý-
indum með tilheyrandi
flughálku á götum stað-
arins.
Aðalskipulag
Þórshafnar
Heimilismönnum á Dvalarheimilinu Silfurtúni íBúðardal var boðið upp á veislu á þrett-ándanum og var það sveitarfélagið Dalabyggð
sem bauð. Máttu heimilismenn bjóða með sér gestum.
Matráðskona heimilisins, Elín Melsted, sá um kræs-
ingar sem voru hangikjöt og kakó og rjómaterta í eft-
irrétt. Eftir matinn mætti söngfélagið Vorboðinn og
söng fyrir veislugesti.
Morgunblaðið/Helga H.Ágústdóttir
Þrettándagleði
Eitt sinn setti ÓlafurBriem nemendumsínum fyrir að
skrifa ritgerð um Íslend-
ingasögu. Einhver nemenda
var orðinn seinn fyrir,
steypti saman heimildum
tveggja valinkunnra fræði-
manna og skilaði svo rit-
gerðinni undir sínu nafni.
Þegar ritgerðunum var skil-
að kom í ljós að allir höfðu
fengið einkunn nema sam-
steypumaðurinn. Hann hafði
fengið svohljóðandi umsögn:
„Smekklega valið.“ Sagan
kom Kristjáni Eiríkssyni í
hug þegar hann las umsögn
Helgu Kress um hugverk
Hannesar H. Gissurarsonar
og mundi hann þá jafnframt
eftir þessari limru eftir Val-
þjóf vestan:
Þótt hálærðir hafi það talið
að Hannesarverkið sé galið
þá ber þess að geta
sem mest er að meta
hvað margt er þar smekklega valið.
Jón Ingvar Jónsson hefur
annað sjónarhorn:
Hannes, þig skal ekki iðra þess
að endurnýta Laxness þar og hér,
en að birta bull úr Helgu Kress
er borin von að fyrirgefist þér.
Smekklega valið
Reykjavík | Þessir ungu
ferðamenn létu kulda og
skammdegi ekki stoppa sig í
því að koma til Reykjavíkur
og skoða sig um í skammdeg-
inu, og ekki á þeim að sjá að
þeim væri kalt. Ljósmyndari
rakst á þau við Ingólfsgarð á
dögunum og var sammála
þeim um að þetta væri gott
tækifæri til að smella af
mynd.
Morgunblaðið/Kristinn
Skemmtiferð í skammdegi
Myndasmiðir
Laugarvatn | Stofa íslenskra fræða við
bókasafnið á Laugarvatni hefur tekið til
starfa. Hún er stofnuð á grundvelli gjafar
frá afmælisárgöngum skólans árið 2003.
Gjöfinni fylgdi skjal þar sem gefendur settu
meðal annars fram óskir um að fræðastofa
yrði tengd nöfnum og störfum þeirra unn-
enda og merkisbera íslenskrar tungu sem
starfað hafa og munu starfa við skólann.
Voru þar einkum hafðir í huga lærdóms-
mennirnir Ólafur Briem, Haraldur Matt-
híasson, Jóhann S. Hannesson og Kristinn
Kristmundsson.
Stofan verður hluti af bókasafninu, en
skal afmörkuð sérstaklega frá hinu almenna
safni. Fyrst um sinn verður hún þó í sér-
stöku húsnæði á efstu hæð skólans sem ver-
ið er að innrétta, en þar munu íslensku- og
sögukennarar einnig hafa vinnuaðstöðu og
nemendur geta unnið við heimildaritgerðir
og önnur stór verkefni. Að baki stofunni
stendur sjóður, byggður á áðurnefndri gjöf,
sem tekur við gjöfum og öðrum framlögum.
Stofa íslenskra
fræða við ML
Nýkjörin stjórn og fólk úr undirbúningshópnum:
Halldór Páll Halldórsson, Valgerður Sævars-
dóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigrún Lilja
Einarsdóttir, Guðmundur Sæmundsson, Páll
Magnús Skúlason og Samúel Örn Erlingsson.
Hornafjörður | Ísfell hf. hefur keypt allt
hlutafé í Veiðarfæragerð Hornafjarðar.
Ekki er stefnt að neinum starfsmanna-
breytingum og Tryggvi Vilmundarson mun
stýra starfseminni áfram.
Haukur Þorvaldsson og Kristján Gústafs-
son stofnuðu Veiðarfæragerð Hornafjarðar
árið 1972 og ráku fyrirtækið allt til ársins
1988 þegar nýr hluthafahópur kom að félag-
inu. Veltan hefur verið rúmar 50 milljónir
króna árlega síðustu ár. Kaupin eru í sam-
ræmi við stefnu sem mörkuð var við stofnun
nýs Ísfells með samruna Ísfells-Netasöl-
unnar og Icedan fyrir um ári. Veiðarfæra-
gerðin bætist nú í hóp Ísnets-netaverk-
stæða sem eru á Sauðárkróki, Akureyri,
Húsavík, í Þorlákshöfn og Hafnarfirði.
Veiðarfæragerð
Hornafjarðar seld
♦♦♦
Veiðileyfi á markað | Veiðistjórnunar-
svið Umhverfisstofnunar hefur auglýst til
sölu hreindýraveiðileyfi á næsta veiði-
tímabili, frá 1. ágúst til
15. september nk. Við
fyrstu úthlutun geta
veiðimenn sótt um tvö
leyfi, en dregið verður úr
innsendum umsóknum
ef þær verða fleiri en
leyfi. Laus veiðileyfi sem
ekki ganga út strax
verða seld eftir 1. mars.
Leyfi á tarfa kostar nú frá 55 til 90 þús-
und krónum eftir veiðisvæðum og leyfi á
kýr frá 30 til 45 þúsund krónum. Í ár má á
alls skjóta 368 tarfa og 432 kýr, alls 800 dýr.
Umsóknum um hreindýraveiðileyfi þarf
að skila inn fyrir 15. febrúar.
pebl@mbl.is