Morgunblaðið - 09.01.2004, Page 26
DAGLEGT LÍF
26 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
M
BA-nám er til af ýmsum gerð-
um og sú gerð sem kennd er
við Háskóla Íslands er svo-
kallað „Executive MBA“.
Þegar Snjólfur Ólafsson pró-
fessor er spurður hvað felist í því segir hann
að í MBA-námi sé oftast krafist stjórn-
unarreynslu. „En hjá okkur er það ekki
þannig,“ segir hann. „Við erum með MBA-
námið fyrir fólk sem hefur háskólagráðu á
einhverju sviði og að minnsta kosti þriggja
ára starfsreynslu. Oft er þess krafist að fólk
hafi þá starfað við stjórnun. Það er æskilegt
en við gerum ekki þá kröfu.“
Við Háskóla Íslands stunda fjörutíu og
fimm nemendur MBA-nám. Hópurinn sem er
á seinna ári námsins útskrifast vorið 2004 en
vorið 2002 útskrifaðist fyrsti MBA-hópurinn.
Hvað er MBA-nám?
„Þetta er ýmist 45 eða 60 eininga meist-
aranám. Hér við Háskóla Íslands er þetta 45
eininga nám sem jafngildir einum og hálfum
vetri í mastersnámi. Hópurinn tekur þetta
nám á tveimur löngum vetrum.“
Hvers vegna er það ekki 60 einingar?
„Flestum sem
fara í þetta nám
finnst það nógu
erfitt eins og það
er. Það eru flestir
í fullri vinnu, eru
með fjölskyldu og
eiga lítinn frítíma
þegar námið bæt-
ist við.“
Hvað felst í
náminu?
„Það má kalla þetta viðskiptafræðinám
með áherlu á stjórnun. Fólk lærir öll helstu
fögin sem kennd eru í viðskiptafræði.“
Hvernig er kennslu háttað?
„Kennslan fer fram síðdegis á mánudögum
og fimmtudögum og byggist síðan á verk-
efnum. Þau vega oft mjög þungt í einkunn.“
Eru þá engin próf?
„Jú, það eru próf í um það bil helmingi
námskeiðanna. Síðan skiptir þátttaka í tím-
um líka máli og það má segja að námsmat sé
nokkuð breytilegt.“
Veitir námið einhver réttindi?
„Þetta er ekki réttindanám
en opnar þeim sem ljúka því
meiri möguleika á vinnumark-
aði. Meginmarkmiðið er að
gera fólk að hæfari stjórn-
endum og það hefur sýnt sig
með fyrsta hópinn, sem út-
skrifaðist í fyrra, að mjög vel
tókst til.“
Eru mikil afföll í náminu?
„Það er alltaf eitthvað alveg
í upphafi. Meginreglan virðist
hins vegar vera sú að þeir
sem fara í gegnum fyrstu
námskeiðin ljúka náminu.“
Er þetta ekki dýrt?
„Fyrir þessa tvo vetur
greiða nemendur eina og
hálfa milljón – sem er ódýrt
miðað við hvað MBA-
námskeið kosta almennt. En
fyrir þá sem eru á námskeið-
inu er þetta alltaf miklu frem-
ur spurning hvort þeir hafi
tíma en hvort þeir geti borgað
þau.“
Taka fyrirtækin sem nem-
endurnir vinna hjá þátt í
kostnaðinum?
„Það er afar sjaldgæft. Það er að vísu til í
dæminu en ég held að það sé alger und-
antekning. Nemendur í MBA-námi koma úr
öllum mögulegum starfsgreinum. Þarna eru
starfsmenn Símans, Slökkviliðsins, bílaum-
boða og svo eru kynningarstjórar, læknar,
lögfræðingar, hjúkrunarfræðingar, tölvufræð-
ingar, skrifstofustjórar, forstöðumenn, tölv-
unarfræðingar, starfsmenn banka og trygg-
ingafélaga og þannig mætti lengi telja og
aldursdreifingin er frá þrítugu upp í sex-
tugt.“
MENNTUN|MBA-nám við Háskóla Íslands
Við Háskóla Íslands leggja 45 nem-
endur stund á MBA-nám. Nemendur
eru á öllum aldri og koma úr ólíkustu
starfsgreinum. Súsanna Svavarsdóttir
skrapp í tíma hjá þeim.
Morgunblaðið/Golli
Snjólfur Ólafsson
Hristir upp í gráu
sellunum
EVA Magnúsdóttir, kynningarfulltrúi Símans, segist trúa á sí-
menntun og því hafi hún skellt sér í MBA-námið. „Ég trúi því
að maður verði alltaf öðru hverju að hrista duglega upp í sjálf-
um sér,“ segir hún. Eva er þjóðhátta- og fjölmiðlafræðingur og
segir að sig hafi í mörg ár langað til að fara í
framhaldsnám. „Ég var á sínum tíma mest að
spá í að fara til Bandaríkjanna,“ segir hún,
„en þegar farið var að bjóða upp á þetta nám
hér í Háskóla Íslands, greip ég tækifærið.
Mér fannst betra að þurfa ekki að rífa fjöl-
skylduna upp, auk þess sem ég gat haldið
áfram í mínu starfi.“
Aðspurð hvers vegna hún hafi viljað breyta
til segir Eva að henni hafi fundist hún vera
farin að stefna á of þrönga braut. „Mig lang-
aði til að eiga kost á fleiri möguleikum, því
auðvitað felst í þessu öllu ákveðinn metnaður og vilji til að
víkka sjóndeildarhringinn,“ segir hún og bætir við að námið
hafi skilað jafnvel meiru en hún sóttist eftir.
„Það eru margir þættir sem koma á óvart. Eitt af því sem er
skemmtilegt við námið, auk námsefnisins, er að mitt í öllum
hraðanum hefur það í för með sér ákveðinn þroska hvað varðar
samvinnu við aðra. Við vinnum mikið saman í hópum og það er
dýrmætt fyrir okkur að læra hvert af öðru þar sem ólík reynsla
okkar og bakgrunnur kemur sér vel.
Námið býður líka upp á ekkert nema möguleika og ég
hlakka bara til að sjá hvað verður þegar tími til að nýta námið
til fullnustu rennur upp.“
Eva Magnúsdóttir
Námið býður bara
upp á möguleika
Eva
Magnúsdóttir
EINN nemandinn í hópnum er Geir Thorsteinsson, framkvæmda-
stjóri kjararannsóknanefndar opinberra starfsmanna. Hann segist
lengi hafa ætlað sér í MBA-námið. „Ég ætlaði í fyrsta hópinn en var
að fara utan þegar námið hófst, svo ég ákvað að sjá
til hvernig þetta plumaði sig í fyrstu keyrslu. Svo
stóðst ég ekki mátið,“ segir Geir og kveður tvennt
hafa komið til. „Annars vegar endurvinnsla á sjálf-
um mér, hins vegar markaðslegar forsendur. Það
er aldrei að vita nema maður sjái einhver tækifæri
í þessu námi.
Aðallega var þetta þó til þess að rækta mig sjálf-
an vegna þess að þetta nám hristir heldur betur
upp í gráu sellunum.“
Geir er fyrir með cand. oecon. gráðu í við-
skiptafræði frá Háskóla Íslands, sem og próf frá
Verslunarskóla Íslands. Hann segir það engu að síður góða hug-
mynd að bæta við sig frekara námi.
„Það eru komin svo mörg ár síðan ég útskrifaðist að þjóðfélagið
er gerbreytt. Það eru komin ný svið í fjármálum og utanrík-
isviðskiptum – og nýjar atvinnugreinar hér á Íslandi. Það hefur orð-
ið til þess að mig langaði til að læra meira um það sem er að gerast
í kringum mig.“
Þótt hann sé með eldri nemendum er Geir alls ekki einn á báti.
„Aldur er afstæður. Þetta er spurning um ástand. Við erum hér
tveir skólabræður úr Versló og höfum báðir mikla ánægju af nám-
inu. Það sem gefur náminu líka gildi, er að það er stöðugt verið að
skipta okkur upp í nýja hópa þannig að við kynnumst mjög vel inn-
byrðis og það myndast góð og skemmtileg samstaða í hópnum.
Mér finnst ég líka fá enn meira út úr náminu en ég reiknaði með
í fyrstu og þótt ég sé viðskiptamenntaður er ég alltaf að læra eitt-
hvað nýtt, læri stöðugt meira í dag en í gær.“
Geir Thorsteinsson
Aldur er afstæður
Geir
Thorsteinsson
NÍU AF hverjum tíu stelpum á aldrinum 10–19 ára
í Bretlandi eru óánægðar með líkama sinn, sam-
kvæmt könnun unglingatímaritsins Bliss þar sem
úrtakið var 2.000 stúlkur. Opinberar rannsóknir
benda hins vegar til þess að þriðjungur stúlkna á
aldrinum 11–15 ára sé of þungur. Greint er frá
þessu á vef Guardian.
Samkvæmt könnun Bliss fannst tveimur þriðju
þær þurfa að léttast og 64% þeirra sem voru undir
13 ára aldri höfðu farið í megrun. Átta af hverjum
tíu vildu missa meira en 3 kg og 46% vildu missa
meira en 6 kg.
Meira en fjórðungur fjórtán ára stelpnanna
sagðist hafa íhugað fegrunaraðgerð. Tvær af
hverjum tíu sögðust eiga við átröskun að stríða.
Helen Johnston, ritstjóri Bliss, segir það sorglegt
að venjulegar stelpur vilji vera horaðar. „Þær eru
að missa vitið við að reyna að ná óraunhæfu vaxt-
arlagi sem ofurfyrirsætur hafa ekki einu sinni.“
UNGLINGSSTELPUR
Vilja vera
horaðar
Fyrirmynd: Unglingsstúlkunum þótti Britney
Spears hafa fallegasta líkamann af frægu fyr-
irmyndunum.
Reuters
BJÖRG Árnadóttir er kynningar-
fulltrúi Sjálfsbjargar og hjúkrunar-
fræðingur að mennt. Eftir að hafa ver-
ið með sjálfstæðan
rekstur í níu ár segist
hún hafa ákveðið að
drífa sig í MBA-námið.
En hvers vegna?
„Eins og margir
sem verða fertugir fór
ég að reyna að ákveða
hvað ég ætlaði að gera
þegar ég yrði stór,“
segir hún. „Fyrir val-
inu varð þetta nám
vegna þess að ég vildi byggja upp sam-
keppnismöguleika mína á vinnumark-
aði.“
Björg hætti fyrirtækjarekstrinum
síðastliðið haust og var heima um tíma
að reyna að átta sig á því hvað hún
vildi gera við námið. „Hins vegar leidd-
ist mér að vera bara í náminu og þegar
mér bauðst vinna hjá Sjálfsbjörg, sló
ég til,“ segir Björg og telur námið hafa
skilað sér miklu.
„Við höfum verið að fara í fyr-
irtækjaheimsóknir þar sem ég hef átt-
að mig á því hvað vinkillinn er mikið
stærri en ég ímyndaði mér áður en ég
hóf námið. Ég get alveg séð mig fyrir
mér á mun fleiri stöðum en ég gerði
upphaflega. Mér finnst líka hæfni mín
sem stjórnandi hafa aukist alveg gríð-
arlega á þessum tíma. Hún hefur
margfaldast.“
– Hefur þetta þá verið tímans og
peninganna virði?
„Já, og þar fyrir utan er þetta ótrú-
lega skemmtilegt nám. Það er auðvitað
mikið álag vegna þess að það er undir
hverjum og einum komið hverju námið
skilar – og ég ætla að láta það skila
mér.“
Björg Árnadóttir
Vil byggja
upp sam-
keppnismögu-
leika mína
Björg
Árnadóttir
JÓHANN Halldórsson er lögfræðingur
og framkvæmdastjóri Vörðufangs. Eftir
að hafa starfað í lögmennsku í átta ár,
segir hann að sig hafi
langað til að breyta til.
„Ég ákvað að nota
þetta nám sem skref út
úr því ferli sem ég var
í, bæði til að bæta við
mig í námi og tengslum
í atvinnulífinu,“ segir
Jóhann. Hann er svo til
nýbyrjaður í fram-
kvæmdastjórastarfinu
og segir starfið í raun
að hluta til ávöxt þeirra breytinga sem
orðið hafi á sínum högum vegna náms-
ins.
– En hafðir þú ekki allt í það sem lög-
fræðingur?
„Nei, það vantaði upp á ýmislegt úr
fjármálahlutanum sem er mjög mik-
ilvægur. Þannig er ákveðinn kjarni í
náminu sem mér finnst mjög gagnlegur.
Á seinustu tveimur önnunum, sem hefj-
ast eftir áramót, eru til dæmis valnám-
skeið þar sem nemendur geta lagt
áherslu á það sem þá langar til að kynna
sér betur.“
Hann bætir við að námið hafi vissu-
lega borgað sig. „Það er fyrsta skrefið í
að snúa við ferli sem verður stöðugt erf-
iðara eftir því sem menn eldast sjálfir og
eldast í starfi.“
Jóhann Halldórsson
Ákveðinn
kjarni sem
mér finnst
mikilvægur
Jóhann
Halldórsson