Morgunblaðið - 09.01.2004, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 31
ÚTSALAN
HEFST Í DAG KL.10:00
30-50%
afsláttur
laugavegi 91 s.562 0625
nýtt kortatímabil
DKNY
DKNY JEANS
IKKS
GERARD DAREL
CUSTO
BZR
VENT COUVERT
PAUL & JOE
NICOLE FARHI
JULIE DEE
LISTAMAÐURINN Odd Nerdrum
verður með málverkasýningu í Nor-
egi í maí en hann hefur ekki sýnt þar
í allmörg ár og ekki síðan hann settist
að hér á landi.
Tone Lyngstad Nyaas, sem vinnur
að sýningarskránni, sagði í viðtali við
VG eða Verdens Gang, að heiti sýn-
ingarinnar yrði „Kitsch 2004“ en hún
verður sett upp í Telemark Museum í
Skien. Um væri að ræða myndir, sem
Nerdrum hefði málað á Íslandi, og
ekki verið sýndar áður í ættlandi
hans.
Fyrir nokkrum árum var Ner-
drum með sýningu í Túnsbergi, sem
hann kallaði „Love Love Love“, og
1998 hneykslaði hann landa sína með
mynd af sjálfum sér með manndóms-
merkið í fullri reisn.
Nerdrum vinnur enn að kitsch-
seríunni sinni en sumir segja, að
óvægin gagnrýni á hana hafi átt sinn
þátt í, að hann settist að á Íslandi.
Odd Nerdrum
sýnir í Noregi
Listmálarinn Odd Nerdrum.
Morgunblaðið/Ásdís
ÆFINGAR eru hafnar hjá Söng-
sveitinni Fílharmóníu á aðalverkefn-
um yfirstandandi starfsárs. Tekin
verða til flutnings tvö stór kórverk,
Dixit Dominus eftir G.F. Händel og
hin svonefnda Pákumessa eftir J.
Haydn. Pákumessan, sem einnig er
þekkt undir heitinu Messa á stríðs-
tímum (á frummálinu Missa in tem-
pore belli), er samin árið 1796 í hita
Napóleonsstyrjaldanna. Händel
samdi Dixit Dominus 1707, aðeins 22
ára að aldri, við texta úr Gamla
testamentinu. Hann dvaldi þá í Róm
og fékk það verkefni að semja tón-
verk fyrir Karmelítaregluna þar í
borg. Dixit Dominus er fimmradda
og gerir miklar kröfur til flytjenda.
Tónleikarnir
verða í Lang-
holtskirkju í lok
marsmánaðar og
mun valið lið ein-
söngvara taka
þátt í tónleikun-
um auk hljóm-
sveitar.
Leiðarljós við
val á viðfangsefni
þessa vormisseris var m.a. að verkin
eru eftir tónskáld sem bæði eru í
miklu uppáhaldi hjá kórnum.
Skemmst er að minnast þess að á sl.
vori flutti Söngsveitin Messías eftir
Händel og vorið 2002 Messu heilagr-
ar Sesselju eftir Haydn. Dixit Dom-
inus hefur ekki verið flutt hér á landi
áður að því er best er vitað. Páku-
messan er betur þekkt hérlendis
þótt Söngsveitin hafi ekki flutt hana
áður.
Meginmarkmið Söngsveitarinnar
Fílharmóníu er og hefur alla tíð verið
á ríflega fjörutíu ára starfsferli að
halda tónleika þar sem flutt eru stór
kórverk með einsöngvurum og
hljómsveit.
Æfingar Söngsveitarinnar eru að
venju í Melaskóla. Stjórnandi kórs-
ins í vetur er Óliver Kentish. Enn
eru laus pláss í tenór og sópran. Þeir
sem áhuga hafa á því að takast á við
þessi verkefni geta haft samband við
formann kórsins, Lilju Árnadóttur.
Dixit dominus og Pákumessa
Óliver Kentish