Morgunblaðið - 09.01.2004, Side 34

Morgunblaðið - 09.01.2004, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hvað veldur því að Ind-verjar og Pakistanarhafa nú ákveðið að setj-ast að samningaborði og ræða öll ágreiningsmál þjóðanna, þar á meðal hina langvinnu deilu um Kasmír-hérað? Getur verið að friður sé í augsýn milli þjóða sem hafa háð þrjú stríð á 56 árum og sem næstum hófu það fjórða fyrir tveimur árum; stríð sem hefði getað haft afar alvarlegar afleiðingar í ljósi þess að bæði Indland og Pak- istan ráða nú yfir kjarnorkuvopn- um? „Dömur mínar og herrar, sögu- legur atburður hefur átt sér stað,“ sagði Pervez Musharraf, forseti Pakistan, þegar hann skýrði frá samkomulagi sem hann og Atal Behari Vajpayee, forsætisráðherra Indlands, gerðu á fundi í Islamabad á þriðjudag. Er stefnt að því að formlegar viðræður milli ríkjanna hefjist þegar í næsta mánuði. Athygli vekur að yfirlýsing þjóð- anna frá því á þriðjudag felur í sér loforð frá Musharraf um að koma í veg fyrir að Pakistan verði griða- staður fyrir hryðjuverkamenn í Kasmír. Þá hverfa Pakistanar nú frá fyrri stefnu sinni sem fólst í því að allar deilur um Kasmír yrði að setja niður áður en önnur ágrein- ingsmál Indlands og Pakistan væru rædd. Á hinn bóginn viðurkennir Vajpayee fyrir sitt leyti að Kasmír er í reynd deilumál milli Indlands og Pakistan, s.s. milliríkjamál, sem þýðir að lausn á deilunni mun þurfa að verða báðum þjóðum skapleg. „Miðað við þetta getur Indland ekki lengur staðið fast á þeirri skoðun að Kasmír-málin séu aðeins og einung- is innanríkismál Indverja,“ sagði Riffat Hussain, yfirmaður rann- sóknarstofnunar við Quid-e-Azam- háskólann í Islamabad, í samtali við AFP-fréttastofuna. Engar óraunhæfar væntingar Bæði Indland og Pakistan gera tilkall til Kasmír; Pakistanar á grundvelli þess að meirihluti íbú- anna er íslamstrúar en Indverjar á grundvelli þess að hindúaprinsinn sem réð ríkjum í Kasmír 1947 kaus að vera undir verndarvæng Ind- lands. Yfirlýsing leiðtoga ríkjanna tveggja fyrr í vikunni þýðir þess vegna að báðar þjóðir hafa látið nokkuð af sínum ýtrustu kröfum í aðdraganda formlegra viðræðna, sem vekur vonir um að ná megi við- unandi niðurstöðu. En slíkar vonir hafa hins vegar vaknað áður. Í júlí 2001 ferðaðist Musharraf t.a.m. til Agra í Indlandi til að hitta Vajpa- yee en innan fárra klukkustunda var orðið ljóst að fundur þeirra hafði farið gjörsamlega út um þúf- ur. Staðan er hins vegar breytt að því leyti núna að ljóst þykir að báðir aðilar vilja frið. Mátti ráða þetta af aðdraganda fundarins í Islamabad en viðræður höfðu átt sér stað á bakvið tjöldin, að sögn fréttaskýr- enda, sem einkenndust af því að gagnkvæm virðing ríkti milli deil- enda og jafnframt, að báðir aðilar væru staðráðnir í að ná árangri. Engar sambærilegar þreifingar höfðu átt sér stað fyrir fundinn í Agra fyrir tæpum þremur Þá voru menn varkárir anda fundarins í Islamaba ekki sömu mistök og í Agr vekja óraunhæfar væntin draganda fundarins. Friður ekki í höf Tæplega ári eftir fundin munaði minnstu að stríð b milli Indlands og Pakis hryðjuverkaárás á þing Nýju-Delhí sem yfirvöld í sögðu að öfgamenn er ny ings stjórnvalda í Pakist borið ábyrgð á. Á unda mánuðum hefur hins veg unnið að því að bæta sam beint flug hefur m.a. verið að nýju milli áfangastaða á og í Pakistan og vopnah sömuleiðis tekið gildi á la unum sem aðskilja þan Kasmír sem lýtur indversk og þann sem lýtur pakista þar höfðu hermenn skipst nánast daglega. „Menn voru að átta sig æ því að koma þyrfti á friði,“ hid Malik, pakistanskur fr Er friður milli In og Pakistan í au Indverskir hermenn, gráir fyrir járnum, standa vörð við landam Nágrannaríkin Indland og Pakistan hafa háð þrjú stríð á síðustu 56 árum. Nú hafa þau tíð- indi hins vegar gerst, eins og fram kemur í fréttaskýringu Davíðs Loga Sigurðssonar, að ákveðið hefur verið að efna til viðræðna þar sem öll ágreiningsmál ríkjanna verða rædd. ’ Dömur mínarherrar, söguleg atburður hefur sér stað. ‘ Dagdeild blóð- og krabbameins-lækninga tók formlega til starfa ínýjum húsakynnum á LSH viðHringbraut í gær en deildin hef- ur búið við afar þröngar aðstæður síðustu ár, að sögn forsvarsmanna spítalans, eða allt frá því sjúkrahúsin í Reykjavík voru sameinuð. Í fyrra voru komur sjúklinga á deildina alls 11.185 sem var u.þ.b. 12% aukn- ing frá fyrra ári. Meginviðfangsefni deildarinnar sem stað- sett er í elsta húsnæði Landspítalans verður sem fyrr að sinna sjúklingum með krabba- mein og illkynja blóðsjúkdóma. Að sögn Vilhelmínu Haraldsdóttur, sviðs- stjóra lækninga á lyflækningasviði II, er að- staðan öll hin glæsilegasta. Meðal þess sem búið sé að bæta við séu meðferðarpláss, skoðunar- og viðtalsaðstaða. „Það er búið að bæta við þannig að við sjáum fram á það að það muni fara mikið betur um bæði starfs- fólkið og ekki síst sjúklingana í þessu nýja Blóð- og krabbameinsd Yfir 11 þúsund komur á deildina á síðasta ári Fjöldi starfsmanna hlýddi á ávörp þegar deildin tók til var blessuð. Frá vinstri: Gunnhildur Magnúsdóttir, deil ingadeildar, Kristín Sophusdóttir, sviðsstjóri hjúkruna Skúlason sjúkrahúsprestur, Jón Kristjánsson heilbrigð stjóri LSH, og Sigurður Björnsson, yfirlæknir deildarin KYNFERÐISBROT GEGN BÖRNUM FYRNIST EKKI Kynferðisbrot gegn börnum erumeðal alvarlegustu glæpa semhugsast geta. Þau bera sjúku hugarfari gerenda vitni og hafa varanleg áhrif á líf og sálarheill þolenda. Skýrt var frá því fyrr í vikunni að Hér- aðsdómur Vestfjarða hefði sýknað karl- mann af ákæru um kynferðisbrot gegn barnungri stúlku, þrátt fyrir að sekt hans teldist sönnuð, á þeirri forsendu að sök mannsins væri fyrnd. Dómurinn hefur endurvakið umræðu um það hvort eðli- legt sé að kynferðisbrot gegn börnum fyrnist. Veigamikil rök hníga að því að aðrar reglur skuli gilda um fyrningu kynferð- isbrota gegn börnum en almenn brot. Eðli málsins samkvæmt er staða barns sem þolanda allt önnur en fullorðinnar manneskju og á það sérstaklega við um kynferðisbrotamál. Það er ekki hægt að ganga út frá því að börn sem verða fyrir kynferðisofbeldi skilji eðli glæpsins og jafnvel ekki að um glæpsamlegt athæfi sé að ræða. Þekkt er að börn sem verða fyrir kynferðisbrotum kenna gjarnan sjálfum sér um, finna til sektarkenndar og reyna að bæla niður minningar um ofbeldið. Þar að auki er þolandinn, barnið, iðulega í þeirri aðstöðu gagnvart gerandanum að það þorir ekki að ljóstra upp um hann, til dæmis vegna hótana hans eða fjölskyldu- tengsla og ótta um hugsanleg viðbrögð. Það er augljóslega ekki hægt að gera þá kröfu til barna sem verða fyrir kynferðis- ofbeldi að þau séu fær um að skýra strax frá glæpnum og leggja fram kæru. Fram til ársins 1998 höfðu ekki gilt sérstakar reglur um fyrningarfrest í kyn- ferðisbrotamálum gegn börnum, en þá var gerð bragarbót á. Reglum hegning- arlaga um fyrningu sakar var breytt í þá veru að fyrningarfrestur, sem er á bilinu 5 til 15 ár eftir eðli brots, byrjar ekki að líða fyrr en barnið nær fjórtán ára aldri. Sú lagabreyting var vissulega skref í rétta átt. En það er skoðun margra að ekki hafi verið nóg að gert. Meðal annars hefur verið bent á að í Svíþjóð hefjist fyrningarfrestur ekki fyrr en við fimmtán ára aldur, en í Danmörku og Noregi við átján ára aldur. Ljóst er að núgildandi reglur geta sem fyrr hindrað að lögum verði komið yfir brotamenn sem beitt hafa börn kynferðisofbeldi. Áður en fyrrnefndar breytingar voru gerðar á ákvæðum hegningarlaga lagði umboðsmaður barna fram tillögur um ýmsar bætur á réttarstöðu barnungra þolenda kynferðisofbeldis. Meðal annars lagði umboðsmaður til að kynferðisbrot gegn börnum fyrntust ekki, fremur en al- varleg brot á borð við manndráp. Í ljósi þess hve kynferðisbrot gegn börnum eru alvarleg og að staða barna sem þolenda er afar veik blasir við að spyrja hvort ekki sé rétt að afnema regl- ur um fyrningu kynferðisbrota gegn börnum með öllu, eins og umboðsmaður barna hefur lagt til. Að minnsta kosti væri eðlilegt að fyrningarfrestur hæfist ekki fyrr en við sjálfræðisaldur. Tryggja verður að réttlætið geti náð fram að ganga. AFSTAÐA TIL OFBELDISTÖLVULEIKJA Morgunblaðið greindi frá því á þriðju-dag að faðir þrettán ára drengs hefði kært verzlunina BT til lögreglu fyrir að selja piltinum tölvuleik, sem merktur var þannig að hann væri bannaður börn- um innan sextán ára aldurs. Tölvuleikur- inn, sem um ræðir, er fullur af hrottalegu ofbeldi og orðbragði af verstu sort og al- mennt alls ekki talinn við hæfi barna. Þeg- ar leitað var svara BT við því hvers vegna þrettán ára barni væri seldur slíkur leik- ur, svaraði Halldór Benediktsson verzlun- arstjóri því til að engin lög væru til, sem segðu til um aldurstakmark vegna tölvu- leikja og því erfitt að móta starfsreglur vegna sölu þeirra til barna. Það væri fyrst og fremst foreldranna að gæta að slíkum hlutum. „Það er innflytjandinn sem merk- ir leikina en það er enginn sem fer yfir þá og engar opinberar leiðbeiningar um hvernig skuli fara með þessi mál. Þeir eru í raun ekki merktir nema í sérstökum til- fellum,“ sagði Halldór. „Það myndi auðvit- að auðvelda starf okkar til muna ef stjórn- völd settu einhvers konar reglur. Við höfum líka lent í því að foreldrar hringja hingað bálreiðir yfir því að við höfum neit- að að selja börnum þeirra leiki.“ Þetta er dæmi um þá afstöðu – eða kannski öllu heldur afstöðuleysi – sem Morgunblaðið hefur áður gagnrýnt og kemur gjarnan fram hjá seljendum vöru og þjónustu, sem beint er að börnum en er augljóslega ekki við þeirra hæfi. Afstaðan er sú að firra sig ábyrgð, af því að ekkert yfirvald hefur ákveðið boð eða bönn, og skjóta sér undan því að leggja sjálfir sið- ferðilegt mat á réttmæti þess að ota við- komandi vöru, hvort sem það eru ofbeld- istölvuleikir eða barnaföt með klámfengnum áletrunum, að börnunum. Sama á auðvitað við um þá foreldra, sem skeyta ekki um að börnin þeirra kaupi slíkt dót. Það er því óhætt að taka undir með Þor- gerði Katrínu Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra, sem segir í Morgunblaðinu í gær: „Við megum ekki gleyma því að þó að við höfum hér stjórnvöld þá hafa for- eldrar og fyrirtæki ábyrgð gagnvart því hvað þeir vilja selja eða kaupa. Hið op- inbera á ekki að þurfa að skikka fyrirtæk- in til að gera ákveðna hluti sem eru aug- ljósir.“ Reyndar þarf ekki alltaf atbeina stjórn- valda til að seljendur tölvuleikja sjái að sér. Eftir að sala á ofbeldistölvuleikjum til barna og unglinga sætti harðri gagnrýni fyrir jólin 2002, breytti Skífan vinnu- brögðum sínum við sölu slíkra leikja, tók upp merkingar á íslenzku og ákvað að af- henda engum leiki með slíkum merkingum nema hann hefði náð tilskildum aldri. En ef sumir eru ekki reiðubúnir að leggja eigið siðferðilegt mat á það, hvað er rétt og rangt að þessu leyti, er sjálfsagt að settar séu reglur af hálfu hins opinbera. Raunar hefur verið heimild í lögum allt frá árinu 1995 til þess að setja sambærilegar reglur um ofbeldistölvuleiki og um ofbeld- iskvikmyndir, að slíka vöru megi ekki af- henda börnum undir lögaldri. Það er nokkur ráðgáta hvers vegna þessar reglur hafa aldrei verið settar. Fyrir rúmu ári sagði þáverandi mennta- málaráðherra, Tómas Ingi Olrich, slíkt nauðsynlegt, en ekki hefur neitt gerzt enn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir seg- ist í Morgunblaðinu í gær hafa sett í gang vinnu í menntamálaráðuneytinu til að skoða hvort setja megi reglur um sölu tölvuleikja á grundvelli núgildandi laga, eða hvort breyta þurfi lögum. Ekki má gleyma þeim, sem megin- ábyrgðina bera í þessum efnum, sem eru foreldrarnir. Foreldrar, sem sinna þeirri skyldu sinni að leiðbeina börnum sínum um það hvað er rétt og rangt og setja þeim skýr og eðlileg takmörk, ættu að geta dregið verulega úr líkunum á því að börn- um undir lögaldri detti yfirleitt í hug að fara í búð og biðja um tölvuleik, sem er fullur af hugsunarlausu ofbeldi. Nóg er til af öðru og uppbyggilegra efni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.