Morgunblaðið - 09.01.2004, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 09.01.2004, Qupperneq 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ V íðtæk sátt ríkir á Ís- landi um að mennta- kerfi þjóðarinnar þurfi jafnan að vera nátengt framþróun samfélagsins á hverjum tíma. Um leið og horft til hins liðna og einstakra afreka íslenskrar þjóð- ar á öllum sviðum mannlegrar tilveru og tjáningar þarf einatt að búa svo um hnútana að ungir Íslendingar séu búnir undir virka, óhefta og skapandi þátt- töku í samfélaginu. Þetta er mikilvægt. Þegar horft er yfir sviðið má hins vegar spyrja hvort mennta- kerfið, og hér einkum horft til grunn- og framhaldsskólastigs- ins, hafi lagað sig að þeim öru breytingum og stórstígu fram- förum sem orðið hafa á Íslandi á allra síðustu árum. Hér ræðir einkum um markaðs- væðingu efna- hagslífsins, hagræðingu í atvinnulífinu og þau nýju viðhorf og tækifæri sem aukið frelsi á sviði viðskipta og fjármála- umsýslu hafa skapað. Verður það sagt um þá ungu Íslendinga sem nú stunda nám í grunn- og framhaldsskólum landsins að nægileg áhersla sé lögð á að gera þá hæfa til virkrar, óheftr- ar og skapandi þátttöku á mark- aði? Er menntun þeirra í sam- ræmi við kröfur nýja þjóðmenningarhugtaksins? Er sú kennsla sem fram fer í „lífs- leikni“ í skólum landsins í sam- ræmi við gildismat hins Nýja Ís- lands? Traust rök má færa fyrir því að svörin við ofangreindum spurningum séu heldur neikvæð. Ljóst er að stórauka þarf áherslu á grunnmenntun á sviði viðskiptafræða og hér er því hugtaki beitt í víðari skilningi en almennt hefur tíðkast. Jafnframt blasir við að endurskoða þarf tungumálakennslu í grunn- og framhaldsskólum til þess að gera ungu fólki kleift að láta til sín taka á markaði hér heima sem erlendis í samvinnu við helstu vina- og samstarfsþjóð Ís- lendinga. Á árum áður var t.a.m. svo- nefnd viðskiptaenska talin nægja og enn er það svo að nám er varðar þennan mikilvæga grunnþátt nútíma þjóðlífs fer al- mennt og yfirleitt ekki fram á öðrum tungumálum. Umskipti á þessu sviði þola í raun enga bið. Alkunna er að við þá fram- farasókn sem átt hefur sér stað á fjármála- og viðskiptasviðinu hafa Íslendingar einkum leitað í smiðju til annarrar mikillar menningarþjóðar, Rússa. Mjög áþekk viðhorf hafa verið uppi í ríkjunum tveimur hvað þessi grunnsvið samfélagsins varðar á undanliðnum misserum. Á þetta ekki síst við um markaðsvæð- ingu og nýtingu náttúruauðlinda. Enda er það svo að einstakt trúnaðarsamband hefur myndast milli íslenskra og rússneskra ráðamanna. Þess er skemmst að minnast að forseti lýðveldisins fór í sérlega árangursríka og mikilvæga heimsókn til Rúss- lands og heimsathygli vakti er hann hélt til fundar við rúss- neska kaupsýslumanninn Roman Abramovítsj, sem mikillar virð- ingar nýtur í alþjóðlegu við- skiptalífi. Þessi réttnefndi „Ís- landsvinur“ hefur í krafti frægðar sinnar vakið athygli á íslenskri þjóð, sem ómetanleg kann að reynast í framtíðinni. Því er þetta rakið hér að við sýnist blasa að hið nána sam- starf við Rússa krefjist þess að tekið verði upp skyldunám í rússnesku þegar á grunnskóla- stiginu og það aukið þegar fram- haldsskólinn tekur við. Þegar horft er yfir sviðið má færa rök fyrir því að samskipti hins Nýja Íslands og hins Nýja Rússlands lýðræðissinnans Vladímírs Pút- íns feli í raun í sér ánægjulegt fráhvarf frá þeim einsleitu, engilsaxnesku áhrifum sem sett hafa óhóflegt mark á íslenska menningu á undanliðnum árum. Enginn fær í efa dregið að lyk- illinn að skilningi á öðrum þjóð- um, menningu þeirra og sögu, liggur í gegnum tungumálið. Samstarfið við Rússa krefst þess að Íslendingar auki þekkingu sína á rússneskri menningu, tungu og merkri sögu þessar dugmiklu þjóðar. Með sama hætti liggur nú fyr- ir eftir heimsókn forseta lýð- veldisins að Rússar hafa gífur- legan áhuga á því að dýpka skilning sinn á einstakri sögu og menningararfleifð íslenskrar þjóðar. Ekki er að efa að þeir Vladímír Pútín og Roman Abramovítsj munu reynast áhugasamir um að auka hlut Ís- lendinga enn frekar en orðið hefur í rússnesku viðskipta- og menningarlífi. Vera kann að bjóða mætti þeim til sumar- dvalar og íslenskunáms hér á landi. Möguleikarnir eru í raun óþrjótandi. Með stórauknum menningarsamskiptum sem eðli- legt er að hin nýja Útflutnings- stofa ríkismenningar hafi með höndum má enn treysta böndin þjóðanna í millum. Jafnframt ættu fulltrúar Íslendinga í slík- um viðræðum að leggja ríka áherslu á skipti á sjónvarpsefni. Stórstígar framfarir á því sviði gætu t.a.m. tryggt að Íslend- ingar ættu jafnan greiðan að- gang að Ríkissjónvarpi Rúss- lands um gervihnött og Rússar með sama hætti að því vandaða menningar-, fræðslu- og afþrey- ingarefni sem RÚV framleiðir. Fátt hentar betur við kennslu tungumála en áhugavert sjón- varpsefni á viðkomandi tungu. Í ljósi þess að hlutur rúss- nesku mun án nokkurs vafa fara ört vaxandi á Íslandi á allra næstu árum er ljóst að koma þarf á skyldunámi í þeirri heillandi tungu strax á upphafs- stigum grunnskólans. Með því að þætta saman kennslu í rúss- nesku og grunnþáttum viðskipta og fjármálaumsýslu má leggja grunn að lífsleikni nútímans á Íslandi. ---------------------------------------- Eftirfarandi kosta Viðhorfsdálka Ásgeirs Sverrissonar: Stigaleigan.is – Alltaf á upp- leið Útflutningsstofa ríkismenn- ingar – Ljós úr norðri. Lífsleikni nútímans Með því að þætta saman kennslu í rússnesku og grunnþáttum viðskipta og fjármálaumsýslu má leggja grunn að lífsleikni nútímans á Íslandi. VIÐHORF Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is ✝ Gunnar Þór Ís-leifsson var fæddur á Akranesi 3. september 1938. Hann varð bráð- kvaddur þann 23. desember 2003. For- eldrar Gunnars voru Ísleifur Kristberg Magnússon, bif- reiðastjóri á Akra- nesi, síðar í Garða- bæ, f. 19. júlí 1914 á Heinabergi, Skarðshr., Dal, d. 2. okt. 1983, og Þorl- fríður Þorláksdóttir, húsmóðir í Grímsholti á Akra- nesi, síðar á Skagaströnd, f. 9. júní 1919 á Akranesi, d. 13. jan. 1987. Gunnar var alinn upp að Digranesvegi 10, Kópavogi, ásamt systur sinni Kristjönu og seinna syni hennar Þorláki Rúnari Loftssyni, hjá móður- ömmu sinni og afa, þeim Guð- rúnu Þórarinsdóttur húsmóður, f. 16. nóv. 1891, d. 10. sept. 1962, og Þorláki Kristjánssyni, kenn- ara og húsasmiði, f. 12. apríl 1893, d. 3. júní 1972. Gunnar var þriðji elstur af fjórtán systkinum, 7 stúlkur og 7 drengir, öll sammæðra og eru 12 á lífi í dag. Einnig átti hann 7 systkin samfeðra og eru 2 látin. Gunnar var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Guðmunda Lilja Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Þau slitu samvistum, Guðmunda lést 12. mars 1996. Börn þeirra eru: Júlíana Sóley Gunnarsdóttir, f. 8. júní 1956, var gift Guðna Svavari Kristjánssyni, sem lést 6. ágúst 1984. Börn þeirra eru Davíð Aron, kona hans er Ester Linda Helgadóttir, og eiga þau 2 börn, Aron Inga og Lenu Dögg. Rakel Rós í sambúð með Björgvini Jóns- syni. Eiginmaður Sóleyjar er Friðrik Már Bergsveinsson. Guðmundur Össur Gunnarsson, f. 6. júní 1957. Óskírð Gunnarsdóttir, f. 5. des. 1958, d. í feb. 1959. Grímur Norð- kvist Gunnarsson, f. 31. jan. 1960, d. 16. ágúst 1961. Jón Halldór Gunnarsson, f. 22. okt. 1962. Seinni kona Gunnars var Rósamunda Helgadóttir. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: Róbert Þór Gunnarsson, f. 20. maí 1973, samb.k. hans er Sigríður Hafsteinsdóttir. Sonur þeirra er Hlynur Þór. Fósturson- ur Hafsteinn. Anton Rafn Gunn- arsson, f. 11. júní 1976, sam- býliskona hans er Helga Hólmfríðardóttir, dóttir þeirra er Birgitta Jóna og fyrir á hann soninn Ágúst Þóri Ammendrup, og fósturbörnin Hjört Mar og Aðalheiði Diljá. Ríkharður Guð- jón Gunnarsson f. 1. nóv. 1977, sambýliskona hans er Vinni Hougaard, dóttir þeirra er Sandra Silja, og fyrir á hann dótturina Hrafnhildi Maríu. Sæ- mundur Maríel Gunnarsson f. 18. júní 1982. Fóstursonur Gunn- ar Helgi Eysteinsson, f. 16. nóv. 1969. Útför Gunnars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.00. Pabbi var bifvélavirkjameistari að mennt og vann lengst af hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, við bifvélavirkjun og síðar hjá Frumherja hf. Njarðvík við bif- reiðaskoðun. Nú síðustu ár gerði pabbi út smábátinn sinn Karlottu og var virkur félagi í stéttarfélagi smábátaeiganda á Suðurlandi og sat um tíma í stjórn þess félags. Á yngri árum stundaði pabbi sjómennsku og vann hjá Álverinu í Straumsvík, þar lenti hann í miklu bifreiðarslysi og beið þess aldrei bætur síðan, eftir það fór hann að keyra leigubifreið hjá Bifreiðastöð Hafnarfjarðar en það starf átti engan veginn við hann því hann var svo mikið snyrtimenni og þótti svo vænt um bílana sína að hann átti erfitt með að þola umgang sumra kúnna sinna, og man ég að það fór alllangur tími hjá honum í að þrífa bílinn eftir hverja vakt á stöðinni. Og eftir frekar stutt starf þar fór hann aftur til Varnarliðsins og síðan til Frumherja eins og fyrr hefur komið fram. Pabbi var mikill hagleiksmaður á allt sem viðkom vélum og var enginn sá hlutur til sem hann gat ekki gert við eða smíðað, og þeir eru ekki fáir sem nutu kunnáttu hans í þeim efnum. Enda vissu menn að þeir kæmu ekki að kof- anum tómum hjá honum í þeim efnum. Síðustu árin var báturinn honum allt, hann vakti og svaf yfir honum. Það var aldrei svo að það væri ekki eitthvað sem þyrfti að gera, lengja hann og annað í þeim dúr. Ég veit að þetta gerði hann oft við erfiðar aðstæður og átti hann þá góða vini að en ég held að ég halli ekki á neinn þó ég nefni Möggu frænku, því þar átti pabbi góðan vin og systur, og verður henni seint þakkað. Ekki má gleyma hundinum hans, henni Perlu, sem fylgdi honum hvert sem hann fór, og ef hún var ekki með þá stillti hann, liggur við, klukkuna sína eft- ir hennar þörfum, svo tengd voru þau. Pabbi var mikið ljúfmenni í alla staði og mátti ekkert aumt sjá eða vita um, án þess að koma til hjálp- ar ef hann mögulega gat, þá skipti ekki máli hvort það voru menn eða málleysingjar, eins og allir vita sem til hans þekktu. Og svo er hér ánægjuleg minn- ing um pabba frá því ég var lítil. Það tók pabba ævinlega alllangan tíma að hafa sig til ef eitthvað stóð til hjá þeim mömmu, því hann gaf sér góðan tíma. Hann t.d. þvoði alltaf vaskinn og kranann (lá við sótthreinsun) áður en hann þvoði sjálfum sér og stóð lengi við speg- ilinn og rakaði sig og greiddi (með brilljantín) mömmu oft til mikillar armæðu, en svona var pabbi, vildi alltaf vera hreinn og fínn. Mig langar að láta fylgja með fallegt kvæði sem mér finnst segja allt sem segja þarf um pabba og finnst lýsa elsku pabba best. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Elsku pabbi. Við andlátsfregn þína allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn tjáð var í bænunum mínum, en guð vildi fá þig og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því, sem frelsarinn hefur að segja, um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög, sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð, hann er góður og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért og horfin burt þessum heimi. Ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir.) Kæri pabbi og tengdapabbi, hjartans þakkir fyrir hlýhug og allar góðu samverustundirnar. Minning þín er ljós í lífi okkar. Sóley og Friðrik. Annað skarð hefur nú myndast í okkar stóra systkinahóp þegar elskulegur bróðir er nú fallinn frá langt fyrir aldur fram, og langar mig að minnast hans í örfáum ljóð- línum á kveðjustund um leið og ég sendi elsku Sóley og bræðrunum öllum mínar innilegustu samúðar- kveðjur á sorgarstund. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða. og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Þín systir Júlíana Í örfáum orðum langar okkur að minnast frænda okkar þegar kom- in er kveðjustund, þó kveðjustund- in komi náttúrulega alltof snemma og við aldrei við því búin þá leitar hugur okkar aftur í tímann og við rifjum upp allar þær góðu minn- ingar sem við systkinin eigum um góðan frænda sem Gunnar var, eða Gunni froskur eins og við allt- af kölluðum hann og er af góðri ástæðu, því aldrei kom hann í heimsókn til okkar eða við til hans öðruvísi en að hann hefði súkku- laðifrosk í vasanum til að gauka að okkur. En það var svo sem ekki endilega að hann væri með súkku- laðið, heldur var hann alltaf svo hress og skemmtilegur og alltaf í góðu skapi, tilbúinn að gantast og leika við okkur. Við gætum auðveldlega sett heilmikið á blað en við viljum geyma þær góðu minningar í huga okkar og hjarta sem við eigum og minnast með tregafullum tárum, um leið og við sendum honum þessar ljóðlínur Guðrúnar Jó- hannsdóttur sem lýsa honum svo vel. Hann gekk hér um að góðra drengja sið, gladdi mædda, veitti þreyttum lið. Þeir fundu best sem voru á vegi hans vinarþel hins drenglundaða manns. Þó ævikjörin yrðu máski tvenn, hann átti sættir jafnt við Guð og menn. Elsku frændsystkinum okkar sendum við okkur dýpstu samúðar kveðjur og hugsum til ykkar á þessum erfiðu tímum. Sigþór, Guðrún, Baldur og Sylvía Þórarinsbörn. GUNNAR ÞÓR ÍSLEIFSSON Elsku afi. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Við biðjum þér guðs blessunar og megir þú í friði hvíla og takk fyrir samveruna, elsku afi. Davíð Aron, Linda, Aron Ingi, Lena Dögg, Rakel Rós og Björgvin. HINSTA KVEÐJA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.