Morgunblaðið - 09.01.2004, Page 50

Morgunblaðið - 09.01.2004, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Elsku pabbi, elsku besti pabbi í heimi, við söknum þín svo sárt. Tilhugsunin að þú sért farinn er ólýsanleg. Orð geta ekki lýst því hvernig okkur líður því þetta er það skrýtnasta í heimi, að þurfa að kveðja þig og lifa lífinu án þín. Ef við ættum eina ósk þá myndum við óska þess að þú værir hérna hjá okkur, að þú gætir komið aftur og allt orðið eins og það var. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur, elsku pabbi okkar, takk fyrir að vera besti pabbi í heimi. Þú veist hversu vænt okkur þykir um þig, við elskum þig, að eilífu. INGVAR ÞÓR HALLDÓRSSON ✝ Ingvar Þór Hall-dórsson fæddist í Reykjavík 6. desem- ber 1956. Hann lést á heimili sínu í Mið- vangi 16 í Hafnar- firði 26. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 7. janúar. Þúsund kossar, þínar prinsessur, Tinna, Sunna og Sif. Elsku bróðir. Nú ertu farinn frá okkur. Það er mikill söknuður í hjarta mínu þegar ég hugsa um allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman, allar þessar miklu hug- leiðingar um lífið og til- veruna yfir kaffibollan- um, þú varst með fastar skoðanir á flestöllum hlutum. Þó að það hafi verið langt á milli okkar í nokkur ár vorum við alltaf í góðu sam- bandi. Það var svo gaman að heyra þig tala um stelpurnar þínar, þú varst mjög stoltur af þeim. Fyrir þremur mánuðum keypti ég mér hús, og þú varst mjög stoltur af Beggu systur og sagðir við mig: „Mikið langar mig að vera fyrsti gesturinn til þín.“ Í nóv- ember komstu til mín og þið Ragn- heiður voruð fyrstu næturgestirnir mínir. Þrátt fyrir þín erfiðu veikindi síðastliðið ár sýndir þú mér hvernig á að taka örlögunum með reisn og ég er þér þakklát fyrir það. Ég kveð þig elsku bróðir, þín verð- ur sárt saknað af okkur öllum. Þín systir Berglind. Að morgni annars dags jóla kvaddi fyrrverandi tengdasonur okkar þenn- an jarðneska heim. Ingvari kynnt- umst við þegar hann var ungur að ár- um með dóttur okkar, bæði voru þau barnung og áttu von á sínu fyrsta barni. Eftir að Tinna fæddist bjuggu þau hjá okkur á heimilinu í tæpt ár, og seinna í nokkur ár á neðri hæðinni í Stafnaselinu, með allar dæturnar, Tinnu, Sunnu og Sif. Þetta voru góð ár og sambýlið var gott. Það hagaði þannig til í Stafnaselinu að ekki var innangengt milli íbúða og þannig vildir þú hafa það, sagðir það á mjög hæverskan hátt að það væri betra fyrir okkur að barnabörnin væru þá ekki alltaf að trufla. Seinna meir ræddum við í glettni um að kannski óttaðistu bara að ég yrði niðri í tíma og ótíma. Það var sérstaklega notalegt að koma heim í lok vinnudags og finna matarlyktina sem streymdi upp til okkar, þá kallaðir þú „eruð þið nokk- uð farin að borða, ég var að elda og það er nægur matur“. Ég dáðist að því hversu duglegur þú varst að búa til góðan mat og hvað þú taldir það ekki eftir þér að elda. Margar minningar koma í huga mér þar sem við unnum saman við að útbúa veislur, þótt þú værir ekki lærður á þessu sviði varstu svo „flink- ur“ við að skera kjötið, setja á bakk- ana og skreyta matarborðið. Matarveislan sem þú hafðir fyrir okkur Geira og vini okkar þar sem þú brást þér í hlutverk kokksins og þjónsins og barst m.a. fram humar sem „flammeraður“ var með koníaki er einnig minnisstæð. Þið Laufey ásamt dætrunum flutt- ust til Noregs og bjugguð þar í nokk- ur ár. Margar heimsóknir fórum við til ykkar og um jólin var farið með skötu og hangikjöt í farteskinu. Þér þótti skata nauðsynlegur þáttur í jóla- haldinu og fannst hún betri eftir því sem hún var kæstari. Þetta voru ynd- islegar heimsóknir og ávallt tekið vel á móti okkur. Eftir að leiðir ykkar Laufeyjar skildu höfðum við alltaf samband öðru hverju, ekki samt eins mikið og ég hefði viljað. Það sýndi sig eins og svo oft áður hversu greiðvikinn þú varst þegar þú fyrir tilviljun hringdir í mig í fyrra- sumar og ég var í miklu uppnámi, hafði verið að slá garðinn og velti við steini í blómabeðinu og undir því var vespubú og vespur sem flögruðu út um allan garðinn. Ég var ein heima því Þorgeir var staddur í Englandi. Ég spurði þig hvað væri best að gera og þú svaraðir á þinn rólega hátt, lok- aðu bara hurðinni og láttu þetta eiga sig. Eftir ca 10 mínútur varstu mætt- ur til mín, pakkaðir öllu draslinu í kassa og fórst með þetta í burt. Ingvar var ekki allra, hann var fastur fyrir og hafði ákveðnar skoð- anir, glettinn og spaugsamur í góðra manna hópi. Hann var einstaklega góður heimilisfaðir, oft dálítið strang- ur við dæturnar, sem bera þess gott vitni að þær hafa hlotið gott uppeldi. Við áttum langt samtal áður en þú fórst í aðgerðina, þú vonaðist eftir því besta en tjáðir mér að horfurnar væru ekki eins góðar og þú hefðir óskað. Þú sagðir mér einnig að sein- ustu mánuðir hefðu verið mjög erf- iðir, en sem betur fer ættir þú góða samferðakonu sem styddi þig eins og hennar væri kostur og varst henni mjög þakklátur fyrir það. Tinna, Sunna og Sif hafa sýnt mikinn kjark og dugnað í veikindum þínum og dvöldu eins mikið og þær gátu heima hjá ykkur Ragnheiði. Við kveðjum þig, kæri vinur, góður Guð veri með þér og öllu þínu fólki. Birna og Þorgeir. MINNINGAR Glæsilegir antiksófar, sófasett, ljósakrónur, lampar, handhnýtt teppi og mottur, gjafavörur, gjafabréf. Ýmislegt áhugavert fyrir safnara. Victoría Antik, Síðumúla 34, s. 568 6076. „Prúttbókamarkaður“að Lauga- vegi 105, 8.-15. jan. Höldum prúttmarkað á þúsundum bóka. Komdu og prúttaðu. Opið kl. 13-18 alla dagana. Stóri fornbóka- markaðurinn, Laugavegi 105. Andleg leiðsögn, miðlun, tarot, spilaspá, draumaráðningar og huglækningar. Er við frá hádegi til kl. 2.00 eftir miðnætti. Hanna, s. 908 6040. Hundaræktunin Dalsmynni aug- lýsir: Erum með hreinræktaða boxerhvolpa til sölu, heilsufar- skoðaða og ættbókaferða. Upplýsingar í síma 566 8417. Lítil íbúð með húsgögnum og líni til leigu í einn dag eða fleiri fyrir 2-4. Upplýsingar í síma 555 2712 eða 822 1941. Janúartilboð. Tveggja manna herbergi með morgunverði kr 2.900 á mann. Hótel Vík, Síðumúla 19, S. 588 5588, www.hotelvik.is vitamin.is - vefur og verslun fyrir líkamann í Ármúla 32. Opið mán.-fös. frá kl. 10-18. Sími 544 8000. Perurnar skipta máli. Við notum eingöngu Philips hágæðaperur. Smart sólbaðstofa, MÖMMUR athugið, ef barnið pissar undir. Undraverður ár- angur með óhefðbundnum að- ferðum. Sigurður Guð- leifss.svæðanuddk. netf. sigurð- urg@fjoltengi. Símar 587 1164 GSM. 895 8972. Mömmur athugið ef barnið pissar undir! Undraverður ár- angur m. óhefðbundnum aðferð- um. Sigurður Guðleifsson svæða- nuddkennari. sigurdurg@fjol- tengi.is, s. 587 1164, 895 8972. Fótaðu þig í hálkunni! YAKTRAX fótabúnaðurinn er léttur og þægi- legur og veitir örugga fótfestu! Nánar á http://www.simnet.is/ yaktrax Lazy boy svefnsófi frá Banda- ríkjunum. Er í mjög góðu standi - eins árs gamall. Verð 120 þús. Upplýsingar í síma 849 6264 og 557 1023. Hvítur skápur. Hvítur skápur til sölu, góður í barnaherbergi. 176x95x50 cm. Verð kr. 4.000. Upplýsingar í síma 824 5382 e. kl. 16:30 í dag. Átthagar - NÝTT. 2ja og 3ja her- bergja íbúðir í Hafnarfirði. Stór- glæsilegar, nýjar, vandaðar íbúðir með öllum heimilistækjum, lýs- ingu, gardínum o.fl. Eigum einnig lausar íbúðir í Reykjavík. Kíkið á vef okkar www.atthagar.is Vel staðsett íbúð, laus strax. 70 fm, 2ja herb. vel staðsett íbúð. Leigist aðeins reyklausum og reglusömum. Laus strax til loka maí. Kjörin fyrir námsmenn. Leiga 70.000. Uppl. í síma 867 2715. Til leigu hergbergi. Góð að- staða. Eldh., borðsalur, setu- stofa, þvottah., Stöð 2, Sýn, fjöl- varp. Gistiheimilið Berg. S. 565 2220 frá kl. 13 til kl. 18 www.gestberg.is Til leigu falleg 119 fm 4 herb. íbúð m. húsg. og öllu tilh. Laus 1. mars. Leig. í 18 mán. eða lengur. Nýl. bíll getur leigst með. Trygg- ing. Tilb. berist augld. Mbl. merkt: „Grafarvogur - útsýni“. Skrifstofuherbergi. Til leigu snyrtileg skrifstofuherb. í Ármúl- anum. Salerni og kaffistofa í mjög góðri sameign. Góður staður. Uppl. gefur Þór í s. 899 3760. Kaupmannahöfn - Hótelíbúð Nú er hægt að leigja frábærar ný- uppgerðar ferðamannaíbúðir á frábærum kjörum. Dagleg þrif og morgunverður. Sendið fyrirspurn á netinu og við sendum okkar besta tilboð þá daga sem þið óskið gistingar. Þriðjudagstilboð: Vika 3.500 d.kr. fyrir 1-2 persónur í stúdíóíbúð. hotel@valberg.dk - www.valberg.dk 2ja herb. íbúð til leigu í Vestur- bænum. Íbúðin er 65 fm, í frá- bæru standi og í göngufæri við Háskólasvæðið. Laus strax. Íbúðin er reyklaus. Áhugasamir hafi samband við Þorvald í síma 660 1980. Húsnæði óskast 200-300 fm upp- hitað geymsluhúsnæði óskast til leigu sem fyrst á höfuðborgar- svæðinu. Lofthæð 3,50 m, inn- keyrsluhurð en má vera glugga- laust. Uppl. veitir hronn.sveinsdottir@toyota.is 45 fm sumarhús í smíðum með 20 fm svefnlofti til sölu. Gott verð ef samið er strax. Afhentist í apríl. Uppl. í símum 897 1712 og 893 4180, fax 552 5815. Til sölu málverk eftir Kristínu Jónsdóttur. Stærð 132x102 cm í ramma. Eigendasaga. Upplýsingar í síma 894 2061. Taktu stefnuna á Microsoft prófgráðu. Nám til undirbúnings MCP, MCDST, MCSA og MCSE prófgráðunum. Vandað nám - hagstætt verð. Nánari upplýsing- ar á vefnum www.raf.is/msnam. Fjarnám - Einkakennsla - tolvu- skoli.is Tölvunámskeið í fjarnámi fyrir þig, þegar þér hentar, hvar sem þú ert. Einnig Bókhaldsnám- skeið. Kannaðu málið www.tolvu- skoli.is . Sími 562 6212 frá kl. 10- 22 virka daga. Skolphreinsun Ásgeirs sf. s. 892 7260 og 567 0530 Losa stíflur úr salernum, vöskum, baðkörum og niðurföllum. Röramyndavél til að staðsetja skemmdir í lögnum. FJARLÆGJUM STÍFLUR VALUR HELGASON ehf. Sími 896 1100 - 568 8806 Röramyndavél til að skoða og staðsetja skemmdir í frárennslislögnum DÆLUBÍLL úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum og niðurföllum – Við notum ný og fullkomin tæki Til sölu rúm 140 cm á breidd ásamt gafli. Upplýsingar í síma 864 1281.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.