Morgunblaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Clifton - Kóbrukossinn
Tittur
framhald ...
© GLENAT
© DARGAUD
EN ÞAÐ ER EKKERT
SEM BANNAR OKKUR
AÐ KÍKJA Á ÞÁ! ...EÐA
JAFNVEL TAKA AFRIT!
...HMM ...
HAHAHA! NÚ LÍST
MÉR Á ÞIG! ÉG VAR
ORÐINN HRÆDDUR
UM AÐ ÞÚ VÆRIR
AÐ VERÐA HEIÐAR-
LEGUR!
SVONA, DRÍFÐU ÞIG NÚ.! ... ÉG VIL
EKKI MISSA AF HONUM AFTUR!
Á SAMA TÍMA Í BRESKA SENDIRÁÐINU.
GAKKTU INN SÖR HAR-
ALDUR, HANS HÁGÖFGI
BÝÐUR ÞÍN ...
SLEIKJÓ, TVEGGJA KALIBERA, MEÐ
KÚLUM SEM LAMA MANN! ... VIÐ
MINNSTU HREYFINGU, HIKIÐ EKKI
FRÆNDI MINN, SKJÓTIÐ STRAX! ...
ER HONUM FRÆNDA MÍN-
UM ALVARA? ... HELDUR
HANN AÐ ÉG SÉ ALGER
FÁVITI? ...
KOMDU OFURSTI,
KOMDU INN! ...
SÆLL HAR-
ALDUR! ...
SJÖ, TVÖ!
ÉG ER
MEISTARI!
KOMDU!
GAMAN AÐ
VERA HJÁ
ÖMMU
ÞINNI
EKKI HAFA
HÁTT HÚN ER
AÐ LEGGJA
SIG
MA ...
MANNÆTU-
FISKUR Í
KRUKKUNNI!
AMMA
HLYTUR
AÐ HAFA
VEITT
HANN!
SVONA SKEPNA
ÉTUR AF MANNI
HENDINA Á NOKKR-
UM SEK-
ÚNDUM
ÍIII ...
Í ALVÖRU PASSAÐU
ÞIG ...
ÉG ÆTLA AÐ GEFA HONUM
TYGGJÓ. SJÁÐU BARA ...
HANN SNERTIR
ÞAÐ EKKI ... ÞETTA
ER GILDRA
PASSAÐU ÞIG!
HANN GERIR
MIG DAUÐ-
HRÆDDAN ...
VIÐ VERÐUM AÐ
SLEPPA HONUM...
HANN ER ALLTOF
HÆTTULEGURGETUM VIÐ
EKKI HENT
HONUM Í
KLÓSETTIÐ
ERTU SNAR
HANN GÆTI
BITIÐ Í
TIPPIÐ Á
AFA ÞÍNUM
UPPS! ÞETTA
ER BETRA
SVONA!
SEM
BETUR FER
VARS ÞÚ
HÉRNA
VIÐ ERUM
HETJUR!
ÞAÐ
VERÐUR
EKKI BITIÐ Í
TIPPIÐ Á
AFA!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NOKKRIR framsæknir tónlistar-
menn tóku sig til fyrir gamlárs-
kvöld og ákváðu að halda tónleika á
Zetunni. Var undirritaður einn af
þeim. Kvöldið heppnaðist frábær-
lega þrátt fyrir veikindi einhverra
listamanna sem létu þau þó ekki
buga sig.
Mikið stress fylgir svona tón-
leikahaldi og undirbúningur meiri
en marga grunar. Klukkan eitt að-
faranótt nýársdags ákvað ég að
drífa mig á staðinn til að hefja
kvöldið. Ég hafði ákveðið að fara á
bílnum mínum niður eftir þar sem
ég var með talsvert af búnaði sem
átti eftir að koma fyrir. Ég lagði
honum við Hafnargötuna fyrir utan
staðinn hinum megin við götuna og
hafði áform um að færa hann
seinna. Kvöldið leið hratt og aldrei
fann ég tíma til að færa bílinn.
Þann 2. janúar þegar ég sótti bílinn
og hóf að hlaða hann græjum,
stoltur af kvöldinu og fullviss um
að allir sem hefðu komið á kvöldið
okkar hefðu skemmt sér best af
öllum, varð ég súr á svip. Bílrúðan
farþegamegin var mölbrötin og
vörur sem ég hafði skilið eftir í
bílnum horfnar. Þú sem gerist svo
bíræfinn að brjóta þér leið inn í
eigur annara einungis fyrir kippu
af bjór skalt njóta hennar vel! Síð-
an skaltu leita þér hjálpar. Vakt-
sími hjá AA samtökunum er 895
1050 og hjá vinalínu Rauða kross-
ins er síminn 800 6464. Það er aug-
ljóst að önnur þessi samtök a.m.k.
geta aðstoðað þig og óska ég þér
allra heilla í baráttunni. Ég vil hins
vegar vita hver þú ert og lýsi ég
vegna þess eftir vitnum að verkn-
aðinum sem voru á ferli sennilega
seint á nýársdagsmorgun! Bíllinn
er blár Daihatsu Feroza sem stóð
við Hafnargötuna andspænis Zet-
unni og Ránni. Farþegarúðan var
mölvuð til að ná í veigar og fleira
sem var í bílnum. Allir sem hafa
einhverjar upplýsingar vinsamleg-
ast hafi samband við mig í síma 692
8042 (eða við lögregluna).
HALLBJÖRN VALGEIR
RÚNARSSON (Halli Valli),
Hólagötu 4,
245 Sandgerði.
Heimsendir á
gamlárskvöld
Frá Hallbirni Valgeiri Rúnarssyni
ÞESSI eðlisþáttur þ.e. „Geirræði“
í fari hæstvirts fjármálaráðherra
kom sennilega fyrst berlega eða
réttara sagt
freklega í ljós á
meðan svonefnd
samráðsnefnd
var starfandi, en
hún var skipuð
fulltrúum eldri
borgara svo og
Þórarni V. Þór-
arinssyni, skóg-
ræktarmannin-
um útsjónarsama og var hann
fulltrúi ríkisins og jafnframt nefnd-
arformaður. Í beinu framhaldi af
þessu ætla ég að leyfa mér að vitna
í greinarkorn eftir mig, sem birtist
í Morgunblaðinu um nefndarstörf-
in:
„Þarna var víst skrafað og
skeggrætt um bjarta framtíð eldri
borgara, en eina góða eða réttara
sagt vonda fundarstund bárust fyr-
irskipanir frá fjármálaráðherra
þess efnis að nefndarmönnum væri
með öllu óheimilt að ræða um
skattamál“. Mörgum þótti þar
heldur betur brydda á ráðríki
hans, yfirgangi og því sem ég vil nú
kalla „Geirræði“, sem er andstæða
eða andhverfa lýðræðis.
Nú hefur þessi lýðræðissinni í
orði en langt frá því á borði gengið
fram fyrir skjöldu og mælt fyrir
frumvarpi um róttækar breytingar
á lögum um réttindi og skyldur rík-
isstarfsmanna. Samkvæmt því
munu forstöðumennirnir ekki leng-
ur þurfa að áminna starfsmann
formlega þ.e. skriflega áður en
honum er sagt upp störfum. Það er
jafnframt ætlunin að svipta starfs-
menn andmælarétti.
Nú er æðimörgum spurn hverjar
kynnu að verða afleiðingarnar af
þessu frumvarpi ef það yrði sam-
þykkt, sem vonandi verður ekki. Ef
yfirmaður, sem er ekki endilega
fullkominn, ber af einhverjum
ástæðum óvildarhug til starfs-
manns, er ekkert hefur af sér brot-
ið og víkur honum úr starfi, þá
virðist hann hafa fulla heimild til
þess eftir anda og inntaki þessa
frumvarps. Hann er með öðrum
orðum algjörlega „stikkfrí“. Þá
ætti ennfremur forstjóra með slag-
síðu á heilanum að vera í lófa lagið
að losa sig við starfsmann, sem
hann telur vera andsnúinn ríkis-
stjórninni og með vinstri slagsíðu.
Þar skyldi þó aldrei hundurinn
vera grafinn?
Ég segi bara þetta að lokum að
Guð hjálpi öllum sönnum Íslend-
ingum ef „Geirræði“ af þessu tagi á
að fá að grassera hér á landi og það
alveg taumlaust. Það þýddi m.a. al-
varlega skerðingu á sjálfsögðum
mannréttindum.
HALLDÓR ÞORSTEINSSON,
Rauðalæk 7,
Reykjavík.
Er „Geirræði“ það
sem koma skal?
Frá Halldóri Þorsteinssyni