Morgunblaðið - 09.01.2004, Síða 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 53
Málþing um lífupplýsingafræði Á
morgun, föstudaginn 9. janúar verður
haldið málþing um lífupplýsingafræði
(e. bioinformatics). Fundurinn verður
haldinn í fyrirlestrarstofu þriðju
hæðar í Læknagarði kl. 13.15. Farið
verður yfir, með reikniritum,
tölfræðilíkönum, beitingum í sam-
eindalíffræði, og óformlegum pæl-
ingum um upplýsingamagn lífsins.
Erindi halda: Daníel Guðbjartsson,
Birgir Hrafnkelsson, Jón Jóhannes
Jónsson, Hans Þormar, Bjarni V.
Halldórsson og Einar Steingrímsson.
Forsvarsaðili fundarins er rannsókn-
arhópur innan tölvunarfræðisviðs
Verkfræðistofnunar um reiknirit og
lífupplýsingafræði.
Í DAG
Útsölur á löngum laugardegi Á
morgun, laugardagurinn 10. janúar,
er langur laugardagur á Laugaveg-
inum. Verslanir verða opnar kl. 10–
17 og fjöldi tilboða í gangi. Flestar
verslanirnar bjóða nýtt kortatímabil.
Frítt er í bílastæðahúsin allan dag-
inn og eftir kl. 13 í stöðumæla.
Ókeypis skákskóli hjá Skákfélag-
inu Hróknum Helgina 10.–11. jan-
úar tekur Skákskóli Hróksins til
starfa á fimm stöðum á höfuðborg-
arsvæðinu. Boðið verður upp á
ókeypis skákkennslu fyrir krakka í
1.–6. bekk og fer kennsla fram einu
sinni í viku í vetur. Farið verður yfir
undirstöðuatriðin í skák, komið til
móts við þau sem lengra eru komin
og slegið upp skákmótum o.fl.
Krakkar úr öðrum skólum en taldir
eru upp hér að neðan eru velkomnir í
skákskólann. Ef nemendur í 7. bekk
hafa áhuga er þeim frjálst að mæta.
Róbert Harðarson skólastjóri er fyr-
irliði félagsins.
Laugardagar: Rimaskóla, Rósarima
11, Grafarvogi kl. 11–13, Seljaskóli,
Kleifaseli 28, Breiðholti kl. 14–16 og
Salaskóla Versölum 5, Kópavogi kl.
14–16.
Sunnudagar: Vesturbæjarskóli, Sól-
vallagötu 67, kl. 11–13 og Fé-
lagsmiðstöðin Selið Suðurströnd 170
Seltjarnarnesi kl. 14–16.
Á MORGUN
Ljósmyndanámskeið Næstu 3 mán-
uði verða haldin ljósmyndanámskeið í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á
vegum ljósmyndari.is og í boði eru
bæði helgarnámskeið og 8 vikna
námskeið í ljósmyndun. Námskeiðin
eru annars vegar fyrir eigendur staf-
rænna myndavéla og hins vegar fyrir
þá sem eiga venjulegar filmuvélar.
19. janúar og 21. janúar hefjast
kvöldnámskeið. Þau verða tvö og er
annar hópurinn á mánudagskvöldum,
en hinn á miðvikudagskvöldum kl.
20–22. Kennd verður m.a. mynda-
taka, myndbygging, meðferð tækja
o.fl.
Helgarnámskeiðin eru fyrir eigendur
stafrænna myndavéla og verður farið
í stafrænu ljósmyndatæknina, s.s.
pixlar, upplausn og þjöppun mynda
o.fl. Námskeiðin eru haldin laug-
ardaga og sunnudaga kl. 13–17.
Leiðbeinandi námskeiðunum er
Pálmi Guðmundsson. Skráning og
nánari upplýsingar er að finna á vef
ljósmyndara.is: www.ljosmyndari.is
Á NÆSTUNNI
Rangt nafn
Þau mistök urðu í gagnrýni Sæ-
bjarnar Valdimarssonar um sjón-
varpsmyndina Mynd fyrir afa (6.1.),
að nafni kvikmyndatökumannsins,
Guðmundar Bjartmarssonar, er snú-
ið við og hann nefndur Bjartmar
Guðmundsson, sem leiðréttist hér
með.
Röng tíðni
Þau leiðu mistök áttu sér stað í
gær að Útvarp Saga var sögð vera á
tíðninni 94,3. Þetta var í grein um
nýjan þátt Önnu Kristine Magnús-
dóttur, sem hófst í gær. Rétta tíðnin
er 99,4 og er hér með beðist velvirð-
ingar á þessu.
LEIÐRÉTT
MIÐVIKUDAGINN 14. janúar
hefjast fastir golftímar fyrir fatlaða í
æfingarhúsakynnum Golfklúbbsins
Keilis að Dalshrauni 13 í Hafnarfirði.
Í tilkynningu frá Golfsamtökum
fatlaðra á Íslandi, GSFÍ, segir að
samkomulag hafi náðst við GK um
aðgang að æfingasal klúbbsins milli
kl. 18 og 20 alla miðvikudaga í vetur.
Er það von GSFÍ að samtökin séu
með þessu að festa sig í sessi með
kennslu til frambúðar og að fatlaðir
áhugamenn um golf nýti sér tæki-
færið til að kynnast íþróttinni.
Magnús Birgisson er áfram aðal-
kennari GSFÍ og mun hann sjá um
kennslu í ár ásamt Jakobi Magnús-
syni þroskaþjálfa.
Fatlaðir fá golfkennslu
hjá Keili í Hafnarfirði
Vestmannaeyjum. Sirrý lærði
reyndar hjá Önnu Gunnu á Hárfínt
fyrr á árum og er nú flutt búferlum
á Hellu og tók við rekstrinum um
áramótin. Anna Gunna mun starfa
áfram í hlutastarfi hjá Hárfínt
a.m.k. fyrst um sinn. Að auki er Eva
Lind starfsmaður hjá Hárfínt en
hún er nemi á fjórða ári. Hár-
greiðslustofan Hárfínt er á Dyns-
kálum 22 á Hellu og er opin virka
daga frá kl. 9 til 18 og laugardaga
frá 9 til 12.
ANNA Guðrún Jónsdóttir (Anna
Gunna) hefur selt hárgreiðslustof-
una Hárfínt eftir 15 ára rekstur.
Anna Gunna selur af heilsufars-
ástæðum en hún lenti í bílslysi fyrir
2 árum og brotnaði á báðum fótum.
Eftir það á hún erfitt með að standa
við vinnu sína allan liðlangan dag-
inn.
Kaupandi hárgreiðslustofunnar
er Sigríður Inga Rúnarsdóttir
(Sirrý) sem hefur búið og starfað
undanfarin ár við hárgreiðslu í
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Eva Lind, Anna Gunna og Sirrý.
Eigendaskipti að
Hárfínt á Hellu
Hella. Morgunblaðið.
Sjúkraþjálfun Styrkur
býður upp á:
Hópþjálfun, s.s. hjartahópa, parkin-
sonshóp, vefjagigtarhópa, þrek og
teygjur, góða leikfimi fyrir konur og
12 vikna átaksnámskeið.
Tækjasal - einkaþjálfun og faglega
ráðgjöf.
Skráning stendur nú yfir
Sjá heimasíðu www.sstyrkur.is
Upplýsingar og skráning
í síma 587 7750.
Sjúkraþjálfun Styrkur ehf.,
Stangarhyl 7, 110 Reykjavík
OKKAR STYRKUR
YKKAR STYRKUR
BÆTT
FRÆTT
RÆTT
Góð fræðsla starfsfólks er hverju fyrir tæki
mikilvæg. Hún skerpir kunnáttuna, sannreynir
hæfnina og stillir mið fyrirtækis að árangri af
meiri nákvæmni.
GREINING Á FRÆÐSLUÞÖRFUM FYRIRTÆKIS
ÁÆ LUN UM ÚRBÆTUR Í FRÆÐSLU STARFSMANNA
SÉRSNIÐIN FRÆÐSLA OG NÁMSKEIÐ
f r æ ð s l u r á ð g j ö f t i l f y r i r t æ k j a
Endurmenntun Háskóla Íslands, í samstarfi við
Áslaugu B. Guðmundardóttur hjá Consensus ehf.
b jóða fyr i r tækjum upp á faglega og
f jö lbreyt ta ráðgjöf um f ræðs lu s tarf s fó lks -
í nýrri þjónustu sem kallast Rætt, frætt & bætt.
&FRÆTT BÆTTRÆTT
&RÆTT FRÆTT BÆTT
h a f ð u s a m b a n d
Fáðu nánari kynningu hjá Endurmenntun HÍ.
Sími: 525-4444, Netfang:
fraedsla@endurmenntun.is,
www.endurmenntun.is
s k i p t i s t í 3 s t i g
m a r k v i s s f r æ ð s l a - h ag k v æ m f j á r f e s t i n g
n ý þ j ó n u s t a
h e n t a r ö l l u m f y r i r t æ k j u m
ef l i ng f ræðs lu - ný tæk i fær i
E N D U R M E N N T U N
HÁSKÓLA ÍSLANDS
EFTIRFARANDI ályktun hefur
borist frá Sjómannafélagi Ólafs-
fjarðar þar sem mótmælt er áform-
um um afnám skattaafsláttar sem
sjómenn hafa notið:
„Aðalfundur Sjómannafélags
Ólafsfjarðar haldinn 29. des. 2003,
mótmælir harðlega fyrirætlan ríkis-
stjórnarinnar um afnám sjómanna-
afsláttar og minnir á að afslátturinn
er hluti af launum sjómanna, og var á
sínum tíma settur á til að greiða fyrir
samningum, og verður þess vegna
ekki tekinn af sjómönnum óbættur.
Fundinum finnst ámælisvert að
leggja þetta frumvarp fram í aðdrag-
anda þeirra samningaviðræðna sem
nú eru hafnar, og telur að það sé ekki
til þess fallið að greiða fyrir því að
samningar náist milli útvegsmanna
og sjómanna. Fundurinn skorar á
þingmenn kjördæmisins að standa
með sjómönnum í þessu máli.“
Fjölmargar ályktanir í þessa veru
hafa borist frá samtökum sjómanna
á undanförnum dögum.
Afnámi sjómanna-
afsláttar mótmælt