Morgunblaðið - 21.01.2004, Blaðsíða 14
ERLENT
14 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLITIN í forkosningum demó-
krata í Iowa eru mikið áfall fyrir
Howard Dean, fyrrverandi ríkis-
stjóra í Vermont, og benda til, að for-
kosningabaráttan verði harðari og
tvísýnni en áður var talið. Að sama
skapi er sigurinn mikill fyrir John F.
Kerry, öldungadeildarþingmann fyr-
ir Massachusetts, og málflutning
hans. Hann hefur lagt áherslu á, að
hann sé traustur innanbúðarmaður í
bandarískri pólitík, fyrrverandi
stríðshetja með hefðbundna og skýra
stefnu og því manna líklegastur til að
bera sigurorð af George W. Bush for-
seta í kosningunum í haust.
Forkosningabaráttan er rétt að
hefjast og úrslitin í Iowa í tölum talin
vega ekki þungt á landsmælikvarða.
Þar að auki er fyrirkomulagið þar á
bæ sérstakt að því leyti, að kosið er á
milli frambjóðenda á opnum kjör-
fundum en ekki á venjulegum kjör-
stöðum eins og tíðkast í kosningum
almennt. Niðurstaðan hefur samt
mikil sálfræðileg áhrif. Howard
Dean, sem hingað til hefur siglt
beggja skauta byr í forkosningabar-
áttunni, á nú allt í einu undir högg að
sækja.
Gephardt ákvað að
draga sig í hlé
Dean ræður yfir mestu fjármagni
allra frambjóðendanna og er með öfl-
uga kosningavél í New Hampshire
þar sem kosið verður í næstu viku en
reynslan er hins vegar sú, að sá, sem
sigrar í Iowa, hefur ávallt notið þess
að einhverju marki í New Hamp-
shire. Á hinn bóginn hafa ríkin aðeins
kosið sama manninn þrisvar í 13 próf-
kjörum frá 1972.
Fréttaskýrendur í Bandaríkjunum
benda á, að á síðustu vikum hafi kjós-
endur farið að líta frambjóðendurna
gagnrýnni og raunsærri augum en
áður og það kann að hafa skipt sköp-
um fyrir þá Richard A. Gephardt,
fulltrúadeildarþingmann fyrir Miss-
ouri, og Dean. Verkalýðshreyfingin,
öflugasti bakhjarl Gephardts, sem
um tíma hafði forystu í skoðanakönn-
unum í Iowa, brást honum þegar á
hólminn kom og Gephardt tilkynnti í
gærkvöldi, að hann hefði dregið sig út
úr forkosningabaráttunni. Lenti hann
í fjórða sæti á eftir þeim Kerry, John
Edwards og Dean með 10,6%.
Fyrir Dean er áfallið það, að kjós-
endur virðast ekki telja, að reiðilestur
hans yfir Bush og Íraksstríðinu sé
lykillinn að sigri í forsetakosningun-
um í haust. Skoðanakönnun, sem
gerð var meðal þeirra demókrata,
sem kusu í Iowa, sýnir, að Kerry fékk
34% atkvæða andstæðinga Íraks-
stríðsins en Dean 24%.
Breiður stuðningur
Könnunin sýndi líka, að stuðning-
urinn við Kerry er mjög breiður.
Hann sigraði jafnt meðal kvenna sem
karla, meðal hófsamra og þeirra, sem
íhaldssamari eru, meðal þeirra, sem
telja sig fremur frjálslynda, og meðal
ungs fólks og þeirra, sem fylgjast
mikið með pólitíkinni á Netinu. Þessir
tveir síðastnefndu hópar hafa hingað
til verið taldir kjarninn í stuðningnum
við Dean. Í Iowa sigraði hann aðeins
meðal þeirra, sem skilgreina sig af-
dráttarlaust sem frjálslynda en í aug-
um margra Bandaríkjamanna er það
annað orð yfir vinstrimennsku.
Góður árangur John Edwards, öld-
ungadeildarmanns fyrir Norður-Kar-
ólínu, kom einnig á óvart en hann
lenti í öðru sæti með tæp 32% at-
kvæða á móti tæplega 38% fyrir
Kerry. Er málflutningur þeirra
beggja mjög svipaður og styður það
þá kenningu, að kjósendur telji, að
maður með báða fætur í hefðbundn-
um gildum sé líklegastur til að sigra
Bush. Saman fengu þeir Kerry og
Edwards 70% atkvæða í Iowa.
Að duga eða drepast
í New Hampshire
Tveir frambjóðendanna í forkosn-
ingabaráttu demókrata, þeir Wesley
Clark, fyrrverandi hershöfðingi, og
öldungadeildarþingmaðurinn Joseph
Lieberman, varaforsetaefni Al Gores
í kosningunum 2000, tóku ekki þátt í
baráttunni í Iowa en verða með í
slagnum í New Hampshire í næstu
viku. Almennt er búist við, að Lie-
berman muni heltast fljótlega úr lest-
inni og fréttaskýrendur telja nú, að
Clark hafi orðið á alvarleg mistök
með því að vera ekki með í Iowa.
Hann og Kerry eru á svipuðum nót-
um í málflutningi sínum en í New
Hampshire verður Kerry með sigur-
inn í Iowa í farteskinu.
Ætla má, að Dean standi vel að vígi
í New Hampshire. Hann er með öfl-
uga kosningavél, frammámenn í
flokknum víða um land hafa lýst yfir
stuðningi við hann og síðast en ekki
síst hefur hann fjármagnið. Á síðasta
ári söfnuðust í kosningasjóð hans um
40 milljónir dollara, hátt í þrír millj-
arðar ísl. kr. Ósigurinn í Iowa, aðeins
18% atkvæða, og á stundum hvat-
skeytleg framkoma hans valda því
hins vegar, að hann þykir ekki lengur
jafn aðlaðandi og áður. Kannanir
sýna, að af einstökum frambjóðend-
um í Iowa var andúðin mest á Dean
og keppinautar hans segja, að þeir
verði varir við það sama í New
Hampshire. Segjast margir efast um,
að hann „lifi af“ ósigur í kosningunum
þar í næstu viku.
Að kosningunum í New Hampshire
loknum verður kosið í sjö ríkjum 3.
febrúar og síðan í hverju ríkinu á fæt-
ur öðru. Hin endanlegu úrslit gætu
hins vegar ráðist í forkosningunum í
Kaliforníu, New York og Ohio 2.
mars.
Heimildir: AP, AFP, Los Angeles
Times, New York Times.
LÖGREGLA í Svíþjóð rann-
sakar nú hvort Mijailo Mijail-
ovic, sem játað hefur á sig
morðið á
Önnu
Lindh, fyrr-
verandi ut-
anríkisráð-
herra, kunni
að hafa átt
hlut að máli
þegar 77 ára
gamall karl-
maður var
myrtur í
nóvember árið 2002. Maðurinn
fannst um hálfan kílómetra frá
heimili sínu á Skärholmen í
Stokkhólmi og hafði verið
stunginn ítrekað með hnífi.
Ráðist var á manninn þegar
hann var á leið heim til sín úr
kirkju. Fram kom í sænskum
fjölmiðlum í gær að vitað væri
að Mijailovic hefði stundum
verið á ferð á þessu svæði og
heimsótt sambýlisfólk sem býr
skammt frá morðstaðnum.
Hann sagði fólkinu þá að hann
væri hræddur um að hann
myndi stinga annað fólk og
a.m.k. einu sinni segist parið
hafa tekið eldhúshníf af
Mijailovic.
Loftárásir
á Líbanon
ÍSRAELSKAR herþotur
gerðu í gær loftárásir á bæki-
stöðvar Hezbollah-samtakanna
í suðurhluta Líbanon í gær, ein-
um sólarhringi eftir að ísr-
aelskur hermaður var drepinn í
árás á landamærum ríkjanna.
Ísraelski herinn staðfesti í gær-
kvöld að ráðist hefði verið á
skotmörk í Líbanon. Ísrael dró
allan her sinn frá Líbanon í maí
2000 en hernám Ísraela á hluta
Líbanons hafði þá staðið í 22 ár.
23 farast
í Alsír
TUTTUGU og þrír, hið
minnsta, létu lífið í öflugri
sprengingu í gasverksmiðju í
bænum Skikda í austanverðu
Alsír og 74 slösuðust, að því er
greint var frá í útvarpi þar í
landi í gærmorgun. Orsök
sprengingarinnar er ókunn að
því er orkumálaráðherrann
Chakib Khelil greindi frá er
hann heimsótti slysstaðinn í
gær.
Kasparov
gegn Pútín
HÓPUR Rússa undir forystu
skákmeistarans Garrís Kasp-
arovs kveðst hafa stofnað nefnd
sem á að
berjast
gegn því að
þingið
breyti
stjórnar-
skránni til
að Vladímír
Pútín geti
gegnt for-
setaemb-
ættinu leng-
ur en til ársins 2008.
Í nefndinni eru meðal annars
blaðamenn og frjálslyndir
stjórnmálamenn sem náðu ekki
kjöri í dúmuna, neðri deild
rússneska þingsins, í kosning-
unum 7. desember.
STUTT
Mijailovic
grunaður
um morð
Garrí Kasparov
Mijailo Mijailovic
„VIÐ gefumst ekki upp,“ hrópaði
Howard Dean er hann flutti kröft-
uga ræðu eftir að úrslitin í Iowa
lágu fyrir. „Við fengum okkar far-
miða til New Hampshire,“ sagði
hann við mikinn fögnuð stuðnings-
manna sinna.
Dean sagði, að vissulega hefði
hann stefnt að sigri í Iowa en á hinn
bóginn væri slagurinn bara rétt að
byrja. Kjósendur hefðu enn ekki
fengið að kynnast kosningabaráttu
hans fyrir alvöru. Sögðu ráðgjafar
hans að ræðunni lokinni, að engu
væri líkara en Dean hefði létt við að
sigra ekki enda væri hann alltaf í
essinu sínu þegar hann ætti á bratt-
ann að sækja.
Joe Trippi, kosningastjóri Deans,
sagði, að ein af skýringunum á
ósigrinum í Iowa væri sú, að þar
hefði Gephardt ráðist heiftarlega að
Dean í von um hagnast á því sjálfur.
Með því hefði hann ekki aðeins spillt
fyrir Dean, heldur endanlega eyði-
lagt sína eigin kosningabaráttu.
AP
Dean í miklum ham þrátt fyrir ósig-
urinn í fyrstu forkosningunum.
„Við gefumst
ekki upp“
John Kerry vann yfirburðasigur í forkosningum demókrata í Iowa-ríki
Baráttan skyndi-
lega galopin
Mikið áfall fyrir Howard Dean, sem verður að leggja allt
undir í forkosningunum í New Hampshire í næstu viku
Reuters
John F. Kerry á kosningafundi í Manchester í New Hampshire í gær eftir sigurinn í forkosningum í Iowa.
ÍSRAELSKUR landnemi grætur í
bænahúsi í landnemabyggðinni
Vestur-Tapuach skammt frá Nabl-
us á Vesturbakkanum í gær.
Landnemar reyndu þá að koma í
veg fyrir að ísraelskir hermenn
jöfnuðu bænahúsið við jörðu þar
sem landnemabyggðin er ólögleg.
Til nokkurra átaka kom milli um
það bil 150 landnema og nokkurra
tuga hermanna og særðust ellefu
lítillega, þar af fimm hermenn.
Ísraelskir fjölmiðlar sögðu að
fjórir landnemanna hefðu verið
handteknir. Reuters
Bænahúsið
rifið niður
DANSKA stjórnin skýrði frá
því í gær að Dönum, sem störf-
uðu lengur en til 65 ára aldurs,
yrði boðin allt að 40% hærri líf-
eyrir.
Nýtt lífeyriskerfi tekur gildi í
júlí og verður þá miðað við að
fólk geti hætt störfum þegar
það verður 65 ára, en ekki 67
ára eins og nú er. Stjórnin sagði
að nýja kerfið þyrfti að vera
„sveigjanlegt“ og lífeyrir Dana
ætti að hækka eftir því sem
þeir störfuðu lengur.
Boða líf-
eyrisauka