Morgunblaðið - 21.01.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.01.2004, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 47 ÞAÐ ætti að skýrast á morgun hvort danska úrvalsdeildarliðið Frem geri landsliðsmanninum Rík- harði Daðasyni tilboð en hann hef- ur verið til skoðunar hjá liðinu síð- an á mánudag ásamt norskum miðjumanni. „Aðstæðurnar hérna eru ekkert til að hrópa húrra fyrir. Það hefur verið kalt og snjór og fyrir vikið þurftum við að æfa á gervigrasi. Ég verð hérna fram á fimmtudag og ég reikna með að fá að vita eitthvað fyrir þann tíma hvað þeir ætla sér að gera,“ sagði Ríkharður við Morgunblaðið. Spurður hvort hann gæti hugsað sér að ganga í raðir Frem sagði Ríkharður; „Það er erf- itt að segja enda veit ég ekkert hvað þeir eru að hugsa sér, bæði hvað varðar laun og lengd samn- ings. Ég er samt ekkert voða spenntur og það þyrfti að koma gott boð ef ég á að stökkva á það. “ Hefur rætt við Fram og KR Ríkharður neitaði því í samtali við Morgunblaðið að hann væri bú- inn að gera munnlegt samkomulag við KR-inga en orðrómur hefur ver- ið í gangi þess efnis. „Ég hef ekki gert samkomulag við einn eða neinn. Ég hef spjallað við Fram og KR. Ég veit hvað liggur á borðinu hvað Fram varðar en ekki hjá KR en ég reikna með að heyra frá KR- ingum fyrir helgina,“ sagði Rík- harður. Ríkharður ekki mjög spenntur fyrir Frem  DETROIT Pistons jöfnuðu fé- lagsmet á mánudaginn er liðið lagði meistaralið San Antonio Spurs í NBA-deildinni en þetta var 13. sig- urleikur Pistons í röð.  LEBRON James, aðalstjarna Cleveland Cavaliers og nýliði er meiddur á ökkla og verður líklega ekki með í einhverjum leikjum liðs- ins á næstunni. Hann sneri sig á ökkla í leik gegn Utah Jazz en James skorar flest stig að meðaltali í liði Cavs.  FORRÁÐAMENN McDonald’s í Bandaríkjunum hafa ákveðið að semja ekki við körfuknattleiksmann- inn Kobe Bryant á ný um að hann auglýsi vörur fyrirtækisins líkt og undanfarin þrjú ár. Samningur hans við fyrirtækið rann út um áramót og eru engar líkur á því að nýr samn- ingur verði gerður.  ZYDRUNAS Ilgauskas miðherji NBA-liðsins Cleveland og Greg Ost- ertag miðherji Utah voru í gær úr- skurðaðir í eins leiks bann vegna slagsmála í leik liðanna á mánudag.  KVENNALANDSLIÐ Kína í körfuknattleik tryggði sér sæti á Ól- ympíuleikunum í Aþenu í sumar með því að leggja Japan að velli, 92:80, í úrslitaleik Asíumótsins á mánudag- inn.  VÖLSUNGUR frá Húsavík, sem tryggði sér sæti í 1. deild karla á komandi leiktíð, hefur fengið í sínar raðir 31 árs gamlan leikmann frá Serbíu/Svartfjallandi, Borosliv Lal- ic að nafni.  Á HEIMASÍÐU KKÍ er greint frá því að Jakob Sigurðarson hafi skor- að 19 stig í sigurleik háskólaliðsins Birmingham Southern gegn Virg- inia Military Institute, 82:49, en liðin eru í Big South-deild í 1. deild. Jakob skoraði fimm þriggja stiga körfur í leiknum úr aðeins sjö tilraunum.  CATAWBA háskólinn sem Helgi Már Magnússon leikur með tapaði gegn Tusculum, 63:67 en þar skoraði Helgi Már 16 stig í leiknum. Cat- awba hefur nú unnið 5 leiki, en tapað 11 en liðið lék tvívegis hér á landi á milli jóla og nýárs. Íslensku úrvals- liðin höfðu betur í báðum leikjunum.  CHARLTON hafnaði í gær 7,5 milljóna punda tilboði frá Chelsea í miðvallarleikmanninn Scott Parker. Þetta er annað tilboðið sem Charlton hafnar og nú vonast forráðamenn liðsins að Chelsea hætti að bera ví- urnar í leikmanninn.  HIN 23 ára gamla tenniskona frá Bandaríkjunum Venus Williams lék í dag fyrsta sinn í keppni eftir 6 mán- aða fjarveru vegna meiðsla. Venus komst í gegnum fyrstu umferð Opna ástralska meistaramótsins en þetta er fyrsta risamót ársins sem eru alls fjögur. Venus lagði löndu sína Ashl- ey Harkleroad, 6:2 og 6:1, en Venus lék síðast í júlí í fyrra gegn systur sinni Serenu á Wimbledon mótinu. FÓLKSLÓVENAR segja að það sésanngjarnt verð á aðgöngu-miðum á leiki Evrópumótsins í handknattleik, þeir hafi ákveð- ið að taka þann pól í hæðina að stilla miðaverðinu í hóf og freista þess að koma sem mest í veg fyrir að leikið verði í hálf- tómum íþróttahöllum, eins og stundum hefur verið á stórmót- um í handknattleik. Verð miða á leikina í riðlakeppninni er 4.000 tolarjev, um 1.600 krón- ur, og þá er keyptur aðgangur að tveimur leikjum í einu. Í dag hefst miðasala á und- anúrslitaleikina 31. janúar í Ljubljana og kosta þeir um 6.000 tolarjev, um 2.400 krón- ur. Miði á úrslitaleikinn og und- anúrslitaleikinn í Ljubljana 1. febrúar verður seldur á 8.400 tolarjev, um 3.400 krónur. Sanngjarnt miðaverð Þriðjungur af farangri landsliðsinsskilaði sér ekki til Ljubljana, hafði orðið eftir í Vínarborg þar sem liðið millilenti frá Kaupmannahöfn. Einar sagði að sér hefði verið lofað að farangurinn kæmi með vél sem væntan- leg var frá Vínarborg um miðnættið og farangurinn yrði fluttur um leið til Lasko þar sem liðið býr. Alls vegur farangur íslenska landsliðsins á milli 800 og 900 kg að sögn Einars. „Það er tilhlökkun í brjóstum okkar að takast á við verkefnið sem framundan er. Andinn í hópnum er svipaður og á undanförnum stórmótum. Menn ein- beita sér að því sem framundan er. Undirbúningur okkar að þessu sinni er svipaður og fyrir HM í fyrra og EM fyrir tveimur árum. Það hefur reynst okkur vel að halda utan snemma og eyða síðustu dögunum saman við æfingar og keppni. Þetta þjappar hópnum vel saman,“ segir Einar og bætir við að það hafi reynd- ar verið viss vandamál að þessu sinni sem snerta meiðsli og fyrir vikið hef- ur ekki verið hægt að stilla upp öllum leikmönnum í leikjum. „Þar af leiðandi hefur undirbúning- urinn verið eilítið flóknari en við von- uðum. Af þessu leiðir að við erum með sautján leikmenn í þessari ferð, í stað sextán eins og vant er. Við verð- um að sjá til hvernig spilast úr þessu,“ segir Einar sem er bjartsýnn á að Dagur Sigurðsson leiki með þeg- ar á hólminn verður komið. „Dagur lék í 20 mínútur með okkur í Dan- mörku í æfingaleik á mánudaginn. Miðað við það sem ég sá til hans í þeim leik þá er ég bjartsýnni á þátt- töku hans en fyrir síðustu helgi.“ Fyrsti leikur íslenska liðsins verður við heimamenn annað kvöld, en þeir hafa lagt mikið undir við undirbúning liðs síns að þessu sinni svo það megi standa sig best. Einar segir engum vafa undirorpið að það verði mikil spenna ríkjandi þegar flautað verður til leiks þjóðanna. „Það verður mjög erfitt að byrja gegn heimamönnum og mikil spenna í lofti, ekki síst hjá Slóvenum. Til þess að vinna þá verð- um við að leika virkilega góðan leik, vera skrefi á undan þeim í öllu. Í heild má segja að þessi riðill sé geysilega jafn og vandasamt að spá um hvernig keppnin í honum endar. Við höfum skoðað vel upptökur af leikjum Ung- verja og Tékka og þar kemur skýrt fram að þau lið eru síst veikari en Slóvenar. Ungverjar urðu í fimmta sæti á HM í fyrra og Tékkum hefur farið gríðarlega mikið fram. Við erum í galopnum riðli. Riðillinn sem við vorum í á EM fyrir tveimur árum var öðruvísi þar sem Sviss var m.a. með okkur og þá vissum við að með eðli- legum leik ættum við að vinna þá. Nú getum við ekki bókað sigur gegn neinum þeirra þriggja andstæðinga sem við leikum við á næstu dögum,“ sagði Einar Þorvarðarson. Rúnar og Dagur verða klárir í bátana Íslenska landsliðið æfir árdegis í dag í nýju íþróttahöllinni í Celje þar sem það leikur í riðlakeppni mótsins. Reiknað er með að allir 17 leikmenn hópsins geti tekið þátt í tæplega hálfrar annarrar klukkustundar æf- ingu. Elís Þór Rafnsson, sjúkraþjálf- ari íslenska liðsins, sagði í gær að klárt mál væri að Rúnar Sigtryggs- son yrði með á æfingu og í fyrsta leik Íslands, a.m.k. ættu meiðsli í lær- vöðva sem hann varð fyrir í leik við Egypta á dögunum ekki að koma í veg fyrir það. „Rúnar verður klár í slaginn,“ sagði Elís. Þá sagðist hann vera bjartsýnn á að Dagur yrði einnig með, þótt það væri e.t.v. of snemmt að fullyrða að hann tæki þátt í fyrsta leiknum. Dagur hefði náð sér á strik gegn æfingaleik við Dani á mánudag og ekkert hefði gerst hjá honum í þeim leik sem gæfi annað til kynna en hann gæti stigið fram á sviðið óskaði þjálfarinn þess. Vatni hefði verið tappað af öðru hné Patreks Jóhann- essonar, en það væri ekki alvarlegt og alls ekki óeðlilegt að slíkt væri gert í framhaldi af aðgerð þeirri sem Pat- rekur gekkst undir í haust á Spáni. Það var sem sagt létt yfir íslenska hópnum við komuna til Lasko í gær- kvöldi og ekki annað að heyra en menn klæjaði í lófana að takast á við Slóvena, Ungverja og Tékka. „Hér er fyrsta flokks aðstaða, fínt hótel, góður matur, úrvals vinnuað- staða og gott umhverfi til þess að ein- beita sér í,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari að loknum síðbúnum kvöldverði á Hotel Vrelec þar sem íslenska liðið dvelst næstu daga í félagsskap ungverska og tékkneska landsliðsins. Morgunblaðið/Sverrir Dagur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, verður klár í slaginn á Evrópumótinu sem hefst í Slóveníu á morgun. Hér gluggar Dagur í upplýsingabækling um EM við komuna á hótelið í Celje. Bjartsýnn á að Dagur verði tilbúinn í slaginn „ÞAÐ er alltaf ákveðinn léttir að vera kominn á leiðarenda og geta þar með einhent sér í það sem skiptir máli, átökin sem framundan eru á Evrópumeistaramótinu,“ sagði Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ og aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands í handknatt- leik við komuna til Slóveníu í gærkvöldi, en liðið var komið inn á hótel í Lasko, 10 km sunnan við Celje, á níunda tímanum í gær. Flautað verður til fyrsta leiks Íslands á EM í handknattleik annað kvöld kl. 19.30 og verður þá leikið við heimamenn. Ívar Benediktsson skrifar frá Celje ÍÞRÓTTIR Elís Þór Rafnsson sjúkraþjálfari bjartsýnn við komuna til Slóveníu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.