Morgunblaðið - 21.01.2004, Blaðsíða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 21
Trygg›u stö›u flína
Vi›skiptavinir í Stofni fá afslátt og endurgrei›slu flegar fleir eru tjónlausir
Haf›u yfirhöndina
Sjóvá-Almennar hlutu
Íslensku gæ›aver›launin 2003
fieir sem sameina tryggingar sínar í Stofni
fá 10% endurgrei›slu á i›gjöldum sínum
flegar fleir eru tjónlausir og árlega fá flúsundir
Íslendinga ávísun í pósti frá félaginu.
Sjóvá-Almennar eru eina tryggingafélagi›
á Íslandi sem umbunar tjónlausum
vi›skiptavinum sínum me› flessum hætti.
Nánari uppl‡singar fást hjá Sjóvá-Almennum
tryggingum hf., Kringlunni 5, í síma 569 2500
e›a á www.sjova.is.
Sjóvá-Almennar eru í eigu Íslandsbanka.
Vestmannaeyjar | Á sunnudaginn
var tekin fyrsta skóflustungan að
viðbyggingu við Safnaðarheimili
Landakirkju. Um leið var undirrit-
aður samningur við verktakafyr-
irtækið Steina og Olla ehf. Um er að
ræða tæplega 300 fermetra viðbygg-
ingu vestan við Safnaðarheimilið og
á framkvæmdum að vera lokið á
næsta ári. Samningurinn við Steina
og Olla hljóðar upp á 71,3 milljónir
en heildarkostnaður er áætlaður um
90 milljónir.
Það var að aflokinni messu og að-
alsafnaðarfundi í Ofanleitissókn að
Magnús Kristinsson, formaður sókn-
arnefndar, og Magnús Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Steina og Olla,
skrifuðu undir verksamninginn.
Magnús Kristinsson sagði við það
tækifæri að verkinu ætti að ljúka á
næsta ári. „Þá munum við vígja nýja
húsið okkar og er það vel við hæfi
því á árinu 2005 verða 225 ár frá því
Landakirkja, sem er elsta stein-
kirkja landsins, tekin í notkun og 15
ár frá því við vígðum núverandi
safnaðarheimili,“ sagði Magnús.
„Þetta eru miklir peningar, um 90
milljónir króna í heildina, sem við
gerum ráð fyrir að verkið kosti í
heild. En Ofanleitissókn er vel sett
fjárhagslega þannig að ég reikna
ekki með að við þurfum að taka stór
lán til að ljúka verkinu.“
Um er að ræða tveggja hæða
steinsteypta 260 fm viðbyggingu
vestan við Safnaðarheimilið sem
tekið var í notkun 1990 og 40 fm
steinsteypta millibyggingu, neð-
anjarðargeymslu og neyðarútgang,
milli Landakirkju og Safnaðarheim-
ilisins.
Byggt við
Safnaðar-
heimilið
í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Undirskrift: Magnús Kristinsson, Páll Zophaníasson, Magnús Sigurðsson,
og Þorvaldur Víðisson við undirritun samningsins.
Skóflustunga: Þórhallur Guðjónsson, Guðríður Haraldsdóttir og Þórarinn
Ingi Valdimarsson tóku í sameiningu fyrstu skóflustunguna.
Norðurland | Norðurlandsskóga-
verkefnið hefur nú verið starfandi
rúmlega þrjú ár. Á þeim tíma hafa
verið gróðursettar rúmlega 2,5
milljónir plantna á vegum verkefn-
isins á Norðurlandi. Skógræktar-
samningar hafa verið gerðir fyrir
rúmlega hundrað jarðir á starfs-
svæði verkefnisins sem nær allt frá
Langanesi vestur í Hrútafjörð.
Síðastliðið sumar var einstaklega
hagstætt trjágróðri og vöxtur mjög
mikill í mörgum tegundum. Þó setti
hretið síðast liðið vor strik í reikn-
inginn sérstaklega hjá lerki og
greni.
Árið 2003 voru gróðursettar rúm-
lega milljón plöntur á 85 jörðum.
Hver skógarbóndi gróðursetti að
meðaltali rúmlega 12.000 plöntur
eða í um 5 hektara lands. Þetta þýð-
ir að grundvöllur var lagður að um
420 ha skógi á Norðurlandi í fyrra.
Þannig gróðursettu 47 bændur
samtals um 46 kílómetra af skjól-
beltum á vegum verkefnisins.
Mjög mikill áhugi hefur verið á
verkefninu á meðal landeigenda frá
upphafi og hafa fjárveitingar ekki
dugað til að hægt væri að taka inn í
verkefnið alla þá sem óska inn-
göngu. Um sextíu jarðir á Norður-
landi eru nú á biðlista eftir að kom-
ast inn í Norðurlandsskóga.
Sex ára rússalerki í Skagafirði. Pálmi í Garðakoti ásamt Michelle Slaney
skógfræðingi skoða árangur skógræktarinnar í Skagafirði.
Rúmlega milljón
plöntur gróðursettar
Norðurlandsskógar stækka