Morgunblaðið - 21.01.2004, Síða 20

Morgunblaðið - 21.01.2004, Síða 20
á næstu mánuðum svipað og gert var ráð fyrir við útboðið. Kemur skipið inn í Ameríkusigl- ingarnar í staðinn fyrir leiguskipið Hanse Duo, sem er mun minna skip. Skógarfoss mun áfram sigla á Am- eríku. Höskuldur segir að vaxandi flutningar hafi verið á flutningsleið- inni til Ameríku, sérstaklega inn- flutningur á vörum frá Bandaríkjun- um vegna lágs gengis Bandaríkjadals. Brúarfoss mun því koma að góðum notum, einnig af þeim ástæðum. Í samningum er kveðið á um að Eimskip taki við flutningum fyrir varnarliðið 1. febrúar næstkomandi. Bandaríkjaher hefur beðið Eimskip að taka við fyrr og mun Brúarfoss lesta í fyrsta skipti í Helguvík næst- komandi mánudag. Atlantsskip og bandarískt systur- félag þess hafa notað Njarðvíkurhöfn fyrir varnarliðsflutninga og munu gera það áfram fyrir þann hluta flutninganna sem félögin halda. Helguvík | Eimskip mun nota Helgu- víkurhöfn til að losa og lesta vörur fyrir varnarliðið á Keflavíkurflug- velli. Brúarfoss mun lesta þar í fyrsta skipti 27. þessa mánaðar. Eimskip samdi um að annast meirihluta flutninga fyrir varnarliðið næstu fimm árin, eftir útboð Banda- ríkjahers, í stað Atlantsskips sem hefur haft alla flutningana undanfar- in ár. Þegar sagt var frá samning- unum kom fram að gera yrði breyt- ingar á skipastól félagsins til að annast þessa aukingu í Ameríkusigl- ingum. Höskuldur H. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Eim- skips, segir að ákveðið hafi verið að nota Brúarfoss í varnarliðsflutn- ingana. Brúarfoss hefur verið í siglingum til Evrópu. Það tekur liðlega 720 gámaeiningar. Áætlað er að fluttir verði samtals um 200 gámar fyrir varnarliðið í hverri ferð og segir Höskuldur að áætlanir bendi til að flutningsmagn fyrir varnarliðið verði Brúarfoss lestar í Helguvík Brúarfoss fær nýtt hlutverk: Brúarfoss er gámaflutningaskip sem smíðað var 1992 og verið hefur í Evrópusiglingum fyrir Eimskip í fjögur ár. SUÐURNES 20 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Reykjanesbær | „Við munum ekki draga hækkun leikskólagjalda til baka, en leggja til við bæjarráð að systkinaafsláttur með 2. barni verði aukinn úr 25% í 40%,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á fjölmennum fundi með foreldrum leikskóla- barna í fyrrakvöld. Foreldrafélög leikskóla Reykjanesbæjar boðuðu til fundarins og vildu félögin fá skýringu á hækkun leikskólagjalda, sem nema á bilinu 16% sé 19% sé ekki miðað við tímagjald. Í lok fundar gekk undirskrift- arlisti þar sem foreldrar mótmæla hækkun leikskólagjalda. Flestir fundarmenn skrifuðu nöfn sín undir, segir Petra Lind Einarsdóttir sem var í forsvari fyrir foreldra á fundinum. Ætlunin er að láta listana liggja frammi næstu daga, á leikskólunum ef það er unnt- .Það var mikill hiti í þeim rúmlega 100 for- eldrum sem mættu á fundinn og margar spurningar sem brunnu á vörum þeirra. Ekki minni hiti var í bæjarfulltrúum Samfylking- arinnar, þeim Sveindísi Valdimarsdóttur og Guðbrandi Einarssyni, sem jafnframt er for- eldri tveggja leikskólabarna, en þau stigu bæði í pontu til að lýsa andstöðu sinni við hækkunina. Gagnrýna að hækkunin skuli koma öll í einu Foreldrar gagnrýndu einnig að hækkunin skyldi koma öll á einu bretti og að óþolandi væri að rökstuðningur á gjaldskrárhækkun gengi út á hækkun launa, eins og fram kom í máli Petru Lindar Einarsdóttur, sem stýrði fundinum fyrir hönd foreldrafélagnna. Petra Lind sagði að slíkt tíðkaðist ekki annars stað- ar og hún skoraði jafnframt á bæjaryfirvöld að endurskoða ákvörðun sína um hækkun leikskólagjalda. Í svari bæjarstjóra kom fram að ekki væri rétt sem komið hefði fram, meðal annars í fjölmiðlum, að skýring á hækkun leikskóla- gjalda væri launahækkun starfsfólks og að einkennilegar þætti honum þær athugasemd- ir að verið væri að fjárfesta í steinsteypu. Skýring hækkunarinnar væri hins vegar sú að Reykjanesbær, líkt og önnur sveitarfélög, væri að miða við að hlutur foreldra verði þriðjungur af kostnaði, miðað við vistun eins barns, en bæjarsjóður stæði undir tveimur þriðju hlutum kostnaðarins. Hlutfall foreldra hafi hins vegar verið lægra en til viðbótar komi aukinn rekstrarkostnaður leikskólanna og hann áréttaði undir lok fundar að ákvörð- un bæjaryfirvalda um hækkunina yrði ekki haggað. Hæst á Suðurnesjum Sé miðað við önnur sveitarfélög er Reykja- nesbær með hæstu mánaðargreiðslur af sveit- arfélögunum á Suðurnesjum og hærri en t.d. Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Árborg og Garðabær en lægri en Seltjarnarnes, Kópa- vogur, Akureyri og Reykjavík. Á fundinum kom fram að Sjálfstæðisflokk- urinn myndi leggja fyrir bæjarráð á morgun þá tillögu að systkinaafslættur á 2. barn verði aukinn úr 25% í 40% frá og með 1. febrúar næstkomandi og þó foreldrar með tvö eða fleiri börn á leikskóla hafði tekið þeim upplýs- ingum fagnandi fannst foreldrum með eitt leikskólabarn lítill fengur í því. Fjölmennur fundur foreldrafélaga leikskólanna í Reykjanesbæ um hækkun leikskólagjalda Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Heitur fundur: Kapp var í fundarmönnum sem þó hlýddu með athygli á svör Árna Sigfússonar bæjarstjóra. Lækkið gjöldin: Petra Mjöll Gunnarsdóttir kom fram fyrir hönd foreldra leikskólabarna og skoraði á bæjaryfirvöld að endurskoða ákvörðun sína. Ákvörðun um hækkun gjalda stendur Aðalfundir deilda | Boðað hefur verið til aðalfundar deilda Keflavík- ur, ungmenna- og íþróttafélags. Að- alfundur félagsins sjálfs verður haldinn að þeim loknum, undir lok febrúarmánaðar, að því er segir í til- kynningu frá félaginu. Fyrsti fundurinn í þessari funda- röð er aðalfundur skotdeildar, laug- ardaginn 24. janúar, þá verða fundir badmintondeildar mánudaginn 26. janúar, sunddeildar þriðjudaginn 27., fimleikadeildar miðvikudaginn 28. og Taekvondodeildar fimmtu- daginn 29. janúar. Aðalfundur körfuknattleiks- deildar Keflavíkur verður laug- ardaginn 31. janúar og knatt- spyrnudeildar miðvikudaginn 4. febrúar. Allir fundirnir verða í félagsheim- ili Keflavíkur á Hringbraut 108.    Drasl á veginum | Bifreið sem leið átti um Hafnaveg á mánudags- kvöldið var ekið á hljóðkútsrör sem var á veginum. Hjólbarði rifnaði. Ökumaðurinn tilkynnti atvikið til lögreglu og kvaðst hann þakka fyrir að ekki hefðu aðrir verið á ferð þarna á sama tíma því þá hefði getað farið illa.    Reykjanesbær | Liðlega 464.000 íþróttaiðkendur og sundgestir sóttu íþróttamannvirki Reykja- nesbæjar á síðasta ári. Notkun mannvirkjanna hefur aukist ár frá ári og nú var aukningin tæp 5% frá árinu á undan. Mest notkun var á Íþróttahúsi Keflavíkur. Þangað komu tæplega 112 þúsund gestir sem er 12 gesta aukning frá árinu á undan, sam- kvæmt samantekt Menningar-, íþrótta- og tómastundasviðs Reykjanesbæjar (MÍT). Með gest- um er eingöngu átt við íþróttaiðk- endur sem koma í íþróttasalina, ekki áhorfendur. Veruleg aukn- ing varð einnig í Reykjaneshöll- inni. Þangað komu liðlega 69 þús- und gestir. Í íþróttasali bæjarins komu alls liðlega 293 þúsund manns á síðasta ári sem er aukn- ing um 21 þúsund gesti eða lið- lega 7%. „Það er ánægjulegt að nýting þessara mannvirkja skuli vera að aukast. Það hefur verið markvisst unnið að aukinni þátttöku kvenna í íþróttum, ekki síst í knatt- spyrnu. Það er skýrir að hluta til aukinn gestafjölda í íþróttahús- unum,“ segir Stefán Bjarkason, framkvæmdastjóri MÍT. Gestum í sundlaugar bæjarins fjölgaði einnig frá fyrra ári. Sam- tals komu tæplega 171 þúsund gestir í sund, á annað þúsund fleiri en árið áður. Flestir sækja Sundmiðstöðina í Keflavík, tæp- lega 102 þúsund manns. Ljósmynd/Hilmar Bragi Gaman í sundi: Aðsókn að Sundmiðstöðinni í Keflavík hefur aukist á und- anförnum árum. Iðkendum í íþróttahúsum bæjarins hefur fjölgað meira. 464 þúsund gestir íþróttamannvirkja Innbrot í Sandgerði | Lögreglan fékk tilkynningu um innbrot í Shell- skálanum í Sandgerði um klukkan eitt í fyrrinótt. Innbrotsboð bárust til öryggisfyrirtækisins Securitas. Þegar lögreglan kom á staðinn sást að gluggi hafði verið spenntur upp og við það hafði þjófavarn- arkerfi staðarins farið í gang. Sá eða þeir sem þarna voru að verki voru farnir og fundust ekki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.