Morgunblaðið - 21.01.2004, Síða 23

Morgunblaðið - 21.01.2004, Síða 23
Þeir sem vinna að staðaldrivið fartölvur eiga á hættuað fá álagseinkenni í háls ogaxlir sé sérstakur búnaður til að draga úr þessari hættu ekki notaður. Þetta orsakast m.a. af því að skjár fartölvunnar er niðri við lykla- borð hennar sem neyðir notandann til að horfa niður á við og sitja álútur við vinnu sína. Valgeir Sigurðsson er sjúkraþjálf- ari hjá Gáska og hefur sérhæft sig í vinnuvistfræði. Hann segist sjá í starfi sínu aukningu á líkamlegum vandamálum hjá fólki tengdum tölvu- notkun þess. „Tölvunotkun almennt er að aukast og eflaust mest á fartölv- um,“ segir hann. „Langtímanotkun á fartölvum er að okkar mati óheppileg vegna álagsins á hálsinn og axlirnar og vegna þeirrar stöðu sem efri hluta líkamans er í þegar setið er við þær. Við fartölvurnar hafa menn minni möguleika á að koma hlutum vel fyrir þannig að þeir henti líkamanum. Fólk er farið að nota þessar tölvur meira heima og situr jafnvel langtímum saman við eldhúsborðið eða einfald- lega þar sem pláss er. Þar er bún- aðurinn, eins og stóll og borðhæð, ekkert sérstakur og fleiri þættir spila þarna inn í.“ Hann segir það vandamál við far- tölvuna hversu skjárinn er nálægt lyklaborði hennar. „Maður þarf að lúta niður til að horfa í skjáinn. Það væri betra og hvetti mann frekar í upprétta stöðu ef skjárinn væri hærra en við miðum yfirleitt við að efri brúnin á honum sé í augnhæð.“ Sömuleiðis eru lyklaborð margra fartölva talsvert þykk þannig að not- andinn fær ekki sama stuðning af borðinu sem tölvan hvílir á, að sögn Valgeirs. „Þá er langt inn á lykla- borðið og vinnan fyrir herðarnar verður meiri fyrir vikið.“ Stök lyklaborð og sérstakar hækkanir Valgeir segir þó ýmislegt hægt að gera til að bæta úr þessu. „Sumir hafa fengið sér stök lyklaborð og jafnvel sérstakar hækkanir sem er hægt að stinga vélinni ofan í og gera það mögulegt að velta skjánum upp og hækka hann. Þannig er til ýmis búnaður til að gera fartölvurnar svo- lítið notendavænni.“ Hann segir að fólk í vissum starfs- greinum vinni mikið með fartölvur í dag, sérstaklega þar sem vinnan krefst þess að það sé mikið á ferðinni. „Fólk er að átta sig á því sjálft að þetta sé ekki heppilegt þótt það sé ekki endilega með bestu lausnirnar. Við höfum fengið ýmsar fyrirspurnir einmitt varðandi fartölvur enda er fólk fljótt að finna fyrir því að þessu fylgir aukið álag á háls og herðar.“ Hann hvetur því fólk, sem vinnur mikið við fartölvur, til að huga að þessum málum áður en vandamálin láta á sér kræla. Það sé ekki góð hug- mynd að vinna allan daginn við slíkan búnað án þess að gera einhverjar ráð- stafanir. „Ég myndi alla vega ekki gera það sjálfur,“ segir hann að lok- um. Einfaldasta lausnin: Laust lykla- borð er tengt við fartölvuna og hún sett á stall. Morgunblaðið/Sverrir Slæm staða: Þar sem skjár fartölv- unnar er niðri við lyklaborðið er notandinn álútur við vinnuna sem skapar álag á háls og herðar. ben@mbl.is  HEILSA|Vandi fartölvunotenda Álag á háls og hnakka DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 23 KONUR sem drekka meira en þrjá bolla af kaffi á dag eru í tvöfalt meiri hættu en hófsamari kaffikon- ur að fæða létt sveinbörn. Þetta er niðurstaða nýlegrar norskrar rann- sóknar sem Berlingske Tidende greindi frá. Rannsóknin sýndi að kaffidrykkja hinnar verðandi móð- ur hafði mun minni áhrif á mey- börn. „Lítil fæðingarþyngd er ekki hættuleg í sjálfu sér og mörg barnanna þroskast eðlilega, jafnvel þótt þau hafi verið lítil við fæðingu. En lítil fæðingarþyngd er áhættu- þáttur varðandi ýmsa sjúkdóma við og eftir fæðingu,“ sagði Torstein Vik, prófessor við Lýðheilsustofn- unina (Institutt for Samfunnsmedis- in), í samtali við netútgáfuna www.forskning.no. Þátttakendur í rannsókninni voru 850 konur sem voru að fæða barn í annað og þriðja skipti. Þær héldu nákvæma skrá yfir matar- og drykkjarvenjur á meðgöngunni. Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvort matur og neysluvenj- ur móðurinnar hefðu áhrif á þroska fóstursins. Torstein Vik prófessor segir að svo virðist sem kaffið hafi áhrif á fæðingarþyngd svein- barnanna. „Fóstrið fær jafn mikið koffein og móðirin. Fáum dytti í hug að bjóða nýfæddu barni upp á kaffi, og þess vegna er rökrétt að takmarka kaffineyslu á með- göngu.“ Morgunblaðið/Jim Smart Kaffið og krílin  MEÐGANGA ÞRÍR fjórðu Breta sofa minna nú en fyrir fimm ár- um, að því er könnun hefur leitt í ljós. Bretar í fullri vinnu vinna lengur en í öðrum Evrópulöndum með 43,3 stunda meðalvinnuviku en algengt er að Bretar vinni yfir 48 klukkustundir á viku, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Samkvæmt könnuninni finna 57% fyrir því a.m.k. einu sinni í viku að svefnleysið hefur áhrif á frammi- stöðu þeirra í vinnunni. 30% hafa sofnað í strætó eða lest og 13% á viðskiptafundi. Meira en helmingur hefur sofnað á einhverjum óviðeigandi stað, vegna ónógs nætursvefns. 5% höfðu sofnað undir stýri. Svefnsérfræðingurinn Chris Idzikowski segir að fólk vinni lengur en vilji samt sem áður félagslíf og svefninn verði því útundan. Svefninn sé þó lífs- nauðsynlegur og slök frammistaða í vinnunni og vanlíðan geti verið afleiðing svefnleysis. „Okkur er ekki ætlað að vera alltaf að vinna. Líkaminn verður að endurnærast.“ Rannsóknir á vegum Háskólans í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum gefa til kynna að meiri meðallífs- líkur kvenna séu afleiðing þess að þær sofi betur en karlar. Niðurstöður annarrar rannsóknar eru á þann veg að skertur svefn barna hafi áhrif á andlega hæfni þeirra, þótt einungis sé um að ræða að þau missi eina klukkustund úr nætursvefninum. Syfja kemur niður á heilsunni Morgunblaðið/Golli Syfjan sækir á: Þingmenn eru meðal þeirra sem vinna mikið og þurfa að gæta þess að fá nægan svefn.  SVEFN Ný sending af samkvæmiskjólum til leigu og sölu Efnalaug og fataleiga Garðabæjar Garðatorgi 3 • 565 6680 www.fataleiga.is Bjóðum mötuneyti Sjálfsbjargar velkomið í hóp viðskiptavina okkar. Þeir hugsa vel um sitt fólk. Hvað hentar þér: fyrir þá sem hugsa um heilsuna Fæst í heilsubúðum www.xylitol.is Hollt Ekki fi tandi Verndar tennur Allir geta notað í stað sykurs Xylitol 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.