Morgunblaðið - 21.01.2004, Síða 34
MINNINGAR
34 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Adolf F. Wendelfæddist í bænum
Dömitz í Meklen-
burg í Þýskalandi
hinn 29. febrúar
1920. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu hinn 11.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Luise Emma
Rickert hjúkrunar-
kona, f. 12. apríl
1891 í Schwerin
Mecklenburg, d. 24.
mars 1980, og Har-
aldur Wendel hús-
gagnasmíðameistari, f. 26. desem-
ber 1890 á Þingeyri við Dýrafjörð,
d. 11. nóvember 1979. Adolf flutt-
ist á öðru ári til Íslands með for-
eldrum sínum og settust þau að í
Reykjavík. Hann var elstur fjög-
urra systkina. Hin eru: Ragna El-
ísabet, f. 29. janúar 1923, d. 8.
mars 1961, þeirra börn Gerður
Björk, Matthildur og Andrea. 3)
María Björk, f. 20. febrúar 1956,
gift Helga S. Þorsteinssyni, f. 3.
febrúar 1956, þeirra börn Friðrik
Arnar og Christian Thor. 4) Jón
Sverris, f. 3. júní 1959, kvæntur
Jóhönnu Eiríksdóttur, f. 23. jan-
úar 1959, þeirra börn Adolf og
Frosti, dóttir Jóhönnu er Vaka
Ágústsdóttir. Með fyrri eiginkonu
sinni Önnu Brynju Richardsdóttur
eignaðist Jón börnin Richard og
Erlu Maríu.
Adolf dvaldi í Minnesota í
Bandaríkjunum á árunum 1951 og
1952 á vegum American-Scand-
inavian Foundation þar sem hann
sótti námskeið í húsgagna- og inn-
anhúss-hönnun, auk þess að vinna
við iðn sína. Fljótlega eftir heim-
komuna fór hann að vinna sem
byggingareftirlitsmaður á Kefla-
víkurflugvelli og var einn af stofn-
endum Sameinaðra verktaka hf.
Árið 1957 stofnaði hann heild-
verslunina A. Wendel hf. þar sem
hann starfaði til dauðadags.
Útför Adolfs fer fram frá
Kristskirkju Landakoti í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
apríl 1991; Svanhild
María, f. 18. nóvem-
ber 1927; og Kristján,
f. 22. janúar 1930.
Adolf gekk í Landa-
kotsskóla og síðan í
Iðnskólann í Reykja-
vík þar sem hann
lærði húsgagnasmíði.
Hann vann síðan á
verkstæði föður síns
sem var til húsa í Að-
alstræti 16.
Hinn 22. janúar
1948 gekk hann að
eiga Matthildi Jóns-
dóttur, f. 6 október
1921, d. 20. febrúar 2002. Börn
Matthildar og Adolfs eru: 1) Sól-
veig Luise, f. 7. september 1949,
gift Michael Sharrett, f. 2. júlí
1949, þeirra börn eru Justin
Magnús og Natalie Marie. 2) Har-
aldur Friðrik, f. 11. september
1953, kvæntur Ástu Richter, f. 27.
Tengdafaðir minn, Adolf F.
Wendel, er látinn. Hann var á 84.
aldursári. Dolli, eins og hann var
alltaf kallaður, var mjög hress og
vel á sig kominn þrátt fyrir þennan
aldur. Reyndar var hann einungis
rúmlega tvítugur, ef fjöldi afmæl-
isdaga er talinn. Dolli var nefnilega
fæddur 29. febrúar á hlaupári, og
átti þar með einungis afmælisdag
fjórða hvert ár. Við fjölskyldan
göntuðumst með þetta árlega á
hverju afmæli hans, og hafði hann
gaman af.
Móðir Dolla var þýsk og það mál
því mikið talað á heimilinu er hann
ólst upp. Þegar hann gekk í Landa-
kotsskóla fór hluti kennslunnar
fram á dönsku og talaði hann ótrú-
lega góða dönsku af Íslendingi að
vera.
Dolli byggði steinhúsið Sörlaskjól
26 ásamt föður sínum, af miklum
dugnaði árið 1947, á þeim tímum
þegar mikill skortur var á bygging-
arefni svo sem timbri, þakjárni og
saum, vegna hafta og gjaldeyris-
skömmtunar. Það var ekki bara far-
ið í næstu byggingarvöruverslun og
keypt í reikning í þá daga eins og nú
þykir sjálfsagt. Í Skjólunum bjó svo
stórfjölskyldan, systkini hans,
þeirra makar og börn a.m.k. þar til
þau höfðu komið sér upp sínu eigin
húsnæði.
Síðan hélt Dolli til Minnesota í
Bandaríkjunum ásamt fjölskyldu,
en þeim Möttu hafði fæðst dóttirin
Sólveig. Þar dvöldu þau í tvö ár og
fékk hann „diploma“ og mikla
starfsreynslu í sínu fagi.
Eftir heimkomu opnuðu þeir
feðgar Dolli og Harald húsgagna- og
trésmíðaverkstæði í kjallaranum í
Skjólunum. „Enginn má koma ná-
lægt kjallaranum meðan verið er að
líma eða lakka,“ voru óskrifuð lög í
húsinu á þeim árum og íbúarnir
læddust um á tánum a.m.k. þar til
lakkið var þornað.
Fyrirtækið A. Wendel heildversl-
un stofnaði Dolli 1957 og var það
fyrst rekið í kjallaranum í Skjól-
unum og umsvifin jukust jafnt og
þétt. Ég held að óvenjumikil mála-
kunnátta, eiginleikinn að geta talað
við alla og heiðarleiki hafi gert það
að verkum að menn treystu Dolla
vel, hvort sem um var að ræða við-
skiptavini á Íslandi eða fyrirtæki er-
lendis sem hann var í viðskiptum
við. Hjá A. Wendel var aldrei lokað
og ef viðskiptavinur hringdi eða
kom, þó það væri í miðri sunnudags-
steikinni, var rokið til og pantaðir
varahlutir fyrir bilaða vél, annars
var verkið stopp. Fyrir um tíu árum
var fyrirtækið flutt upp í Sóltún og
fyrirtækjasíminn með og minnkaði
áreitið talsvert á heimilinu við það.
Nokkrum árum síðar fluttu hjónin á
Kirkjubraut 10 á Seltjarnarnesi og
voru alsæl í nýju og fallegu parhúsi,
enda húsið í Skjólunum orðið allt of
stórt fyrir þau tvö.
Ég var svo lánsamur að eignast
þau sæmdarhjónin Möttu og Dolla
sem tengdaforeldra fyrir rúmum
tuttugu árum síðan. Þau eru mesta
sómafólk sem ég hef kynnst, og fjöl-
skyldan afar samheldin. Matta var
heilsuveil síðustu árin og lést fyrir
tæpum tveimur árum.
Þau voru ekki aðeins samrýnd
hjón heldur einnig bestu vinir.
Matta var akkerisfestin í lífi Dolla.
Hún var trúnaðarvinur barna og
barnabarna og gaf þeim ómælda at-
hygli og tíma enda leituðu þau mikið
til hennar.
Dolli saknaði Möttu mikið en bar
sig vel og hélt áfram að lifa lífinu.
Hann stundaði Vesturbæjarlaugina
á morgnana þar sem hann hitti
sundfélagana, sem voru honum
mjög mikilvægur félagsskapur. Það-
an fór hann inn í Sóltún þar sem tók
við vinnudagur í fyrirtækinu fram á
kvöld. Á sunnudögum sótti hann
alltaf messu í Landakotskirkju og
fór í kirkjukaffi á eftir.
Dolli hafði pantað sér ferð til
Kanaríeyja í febrúar og var farinn
að hlakka til að hitta vinafólk þeirra
hjóna er þar dvelur.
Ekki varð af þeirri ferð, en hann
fór í annað og merkilegra ferðalag í
staðinn. Ég get ímyndað mér að
Möttu hafi verið farið að leiðast bið-
in á himnum og að tími væri kominn
til að sækja hann Dolla sinn.
Blessuð sé minning þín, heiðurs-
mannsins Adolf F. Wendel.
Hvíl í Guðs friði.
Helgi S. Þorsteinsson.
Vinsældir Adolfs F. Wendel náðu
langt út fyrir landsteinana. Hann
átti fjölda vina í Bretlandi og Evr-
ópu, svo ekki sé minnst á Banda-
ríkjamennina sem áttu kost á að
starfa með honum, þar sem hann
var við nám og störf.
Hann var smiður í mörgum lönd-
um og það eru ekki ófá parkettgólf-
in og önnur handverk sem eftir
hann liggja hjá okkur Sólveigu í
London.
Fyrir okkur sem þekktum hann
náið, minnumst við manns, sem naut
tilverunnar og nýtti öll tækifæri
sem Guð gaf, bæði í leik og starfi.
Heiðarleiki, gjafmildi, sanngirni
og hlýja voru aðalsmerki þessa heið-
ursmanns.
Ég á eftir að sakna návistar hans
og visku um ókomna tíð.
Þinn tengdasonur
Michael Sharrett.
Kæri afi Dolli, ekki átti ég von á
því þegar ég átti að skrifa ritgerð í
skólanum í haust um einhvern sem
mér þætti vænt um, og ég skrifaði
um þig, að ég myndi senda hana í
Morgunblaðið nokkrum mánuðum
seinna sem minningagrein: „Adolf
Friederich Wilhelm Olaf Reinhard
Wendel, eins og afi hét fullu nafni,
fæddist í Þýskalandi árið 1920 í
litlum bæ sem heitir Dömitz. Harald
Wendel, pabbi Adolfs, kom til
Þýskalands árið 1918 til að læra
húsgagnasmíði og giftist þýskri
hjúkrunarkonu, Luise Rickert. Þau
eignuðust afa Dolla og fluttu til Ís-
lands einu ári seinna.
Hann gekk í Landakotsskóla og
fór síðan í Iðnskólann í Reykjavík
14 ára gamall til að læra húsgagna-
smíði en hann var yngsti nemandinn
í skólanum. Hann fékk frí í dönsku-
tímum því mörg fög voru kennd á
dönsku í Landakoti á þeim tíma og
var litið svo á að hann kynni dönsku.
Afi átti líka marga danska leik-
félaga. Hann talar raunar mjög
góða dönsku enn í dag.
Hann langaði mikið til að verða
arkitekt en það voru ekki til pen-
ingar til að kosta hann í það nám.
Hann hefði áreiðanlega orðið góður
arkitekt, því hann hefur alltaf haft
mikinn áhuga á hönnun og er mjög
flinkur að teikna.
Eftir námið í Iðnskólanum fór
hann að vinna við smíðar á verk-
stæði pabba síns.
Seinna var hann svo í Ameríku í
tvö ár við nám og störf í hönnun og
húsgagnasmíði.
Afi hafði sem ungur maður mik-
inn áhuga á útivist, hann var mikið á
skíðum, í fjallgöngum og skútusigl-
ingum og smíðaði hann skútu ásamt
nokkrum félögum sínum.
Það er ekki hægt að segja að afi
sé gamall karl, hann er flottur karl
með mikið hvítt hár og alskegg.
Hann fer í vinnuna á hverjum
morgni eftir sundsprett í Sundlaug
Vesturbæjar en hann vinnur í fyr-
irtækinu sínu A.Wendel hf. sem sér
um innflutning á allskonar vinnu-
vélum og tækjum.
Afi Dolli er ekki bara afi minn
heldur einn af mínum bestu vinum
þó svo að hann sé orðinn 83 ára
gamall. Við bröllum margt saman,
hann býður mér oft í bíó og í mat.
Við tölum mikið um sameiginleg
áhugamál eins og flugvélar og göm-
ul hergögn. En oft sitjum við bara
tveir einir og ræðum um lífið og til-
veruna.
Mér finnst ég vera alveg ótrúlega
heppinn að eiga svona frábæran afa
sem gefur sér tíma til að hlusta á
mig og fræða mig um svo margt.“
Elsku afi, takk fyrir allt sem þú
gerðir fyrir mig. Ég á eftir að sakna
þín mikið.
Christian Thor.
Elsku afi. Nú ertu farinn, þú sem
hafðir alltaf verið svo hress en eftir
að amma dó vantaði stóran hluta í
hjarta þitt og líf.
Það var alltaf svo gott að koma til
þín, þótt það hafi kannski verið of
sjaldan.
Við erum svo þakklát fyrir stund-
irnar sem við áttum með þér og
núna síðast um jólin og áramótin.
Núna ertu kominn til ömmu
Möttu sem þú elskaðir svo heitt.
Með þessu kveðjum við þig, elsku
afi.
Þín afabörn
Richard, Erla María,
Adolf og Frosti.
Þegar við bræður fréttum að Dolli
frændi væri látinn leitaði hugurinn
ósjálfrátt til æskuáranna í Sörla-
skjólinu. Í minningunni er sterkt
það viðmót sem við kynntumst frá
unga aldri og aldrei varð breyting á.
Það einkenndist af því að Dolli hafði
alltaf tíma fyrir okkur, hann var
boðinn og búinn að ráðleggja hvort
sem var um fjármál, vinnu eða
einkamál og alltaf sýndi hann jafn
mikinn áhuga á því sem við vorum
að gera. Á heimili hans og Möttu, á
efri hæðinni, vorum við eins og hluti
fjölskyldunnar og fengum ekki síður
tækifærisgjafir en þeirra eigin börn.
Ekki stóð á því að fá lánaðan bíl,
þegar aldri til þess var náð, eða pen-
inga ef svo bar undir og hann að-
stoðaði við að fá vinnu, eða það
nægði að nefna nafn hans og skyld-
leika, þá greiddi orðspor hans götu.
Dolli var okkur því ekki síðri en
besti faðir þegar á því þurfti að
halda.
Það var lærdómsríkt að kynnast
því frumkvöðlastarfi sem hann
sýndi með fyrirtæki sínu sem einn
af brautryðjendum í innflutningi á
tækjum til verklegra framkvæmda
allt frá minnstu múrskeiðum til
stærstu byggingarkrana. Einnig var
reynsla fólgin í því að sjá hverju
hann gat áorkað í jafn litlu fyrirtæki
og raun bar vitni. Þar einkenndist
allt af nægjusemi, en margur annar
hefði freistast til að láta það bólgna
út, byggja veglega, berast á og þá
eins líklega fara á hausinn. Það má
líka telja til nægjusemi að búa með
afa okkar og ömmu öll þeirra ár í
Sörlaskjólinu sem sjálfsagt var ekki
alltaf jafn auðvelt og ætla mætti.
Dolli kenndi okkur líka lexíu með
því fordæmi sem hann sýndi ætíð
með hjálpsemi, hvort sem hún varð-
aði fjölskylduna, vinnu eða önnur
áhugamál, t.d. störf hans fyrir kaþ-
ólska söfnuðinn og hvar sem hann
fór var hann virtur fyrir hana.
Elsku Sólveig, Friðrik, Maja og
Jón, við vottum ykkur og fjölskyld-
um ykkar samúð okkar á þessari
stundu um leið og við þökkum fyrir
allt sem Dolli hefur gefið okkur í
gegnum tíðina. Blessuð sé minning
hans.
Harald, Þóroddur og fjölskyldur.
Örstutt kveðja frá okkur hjónum.
Við Adolf höfum verið vinir allt
frá barnæsku. Leiðir okkar lágu
fyrst saman í Landakotsskóla. Við
vorum báðir kórdrengir í gömlu
Landakotskirkju.
Þeir tímar liðu og við tókum þátt í
æskulýðsstarfi kirkjunnar. Síðan
fórum við að stunda skíði á Kolvið-
arhóli. Annað sem við tókum okkur
fyrir hendur á þessum árum var að
smíða seglskútu ásamt Friðriki
Daníelssyni. Við fengum aðstöðu í
skúr í portinu hjá Ásgarði á Ný-
lendugötu 10. Mér hafði tekist að út-
vega teikningar frá Bandaríkjunum,
sem við unnum eftir. Þetta var 18
feta skúta með fallkili og var Adolf
auðvitað sá sem stjórnaði og vann
aðalverkið, við Friðrik vorum að-
stoðarmenn.
Svo kom að því að við kvæntumst
og eignuðumst fjölskyldur, hann var
guðfaðir elsta sonar okkar. Eigin-
konur okkar urðua góðar vinkonur.
Adolf smíðaði húsgögn fyrir okk-
ur og svo innréttingar í húsið okkar
í Snekkjuvogi 13. Frábærar ferðir
fórum við saman til Parísar, Rómar,
þar sem við hittum Pál páfa Vl, og
svo til Lourdes, sem var mikil upp-
lifun.
Adolf gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum innan kirkjunnar, enda
traustur og drengur góður.
Gegnum árin áttum við með Adolf
og Matthildi góðar stundir hér á
Kanarí, hans var von hingað um
miðjan febrúar, sína fyrstu ferð
hingað eftir að hafa misst Matthildi.
Við söknum góðs vinar og sendum
okkar innilegustu samúðarkveðju til
fjölskyldu hans.
Hann hvíli í friði.
Elín Kaaber,
Gunnar J. Friðriksson.
Aldursforseti okkar pottfélaga,
Adolf Wendel, er nú snögglega fall-
inn frá. Með honum er genginn
sannur og heilsteyptur félagi, hlýr,
kíminn og hugljúfi okkar allra.
Það var ánægjulegt að fá að
kynnast Adolf og njóta þeirra for-
réttinda að fylgjast með framkomu
sanns eðalmanns í öllum samskipt-
um um áratuga skeið. Aldrei
styggðaryrði og umtal allt um menn
og málefni fært til betri vegar og
veitti ekki af slíkum „dempara“ þeg-
ar umræður urðu heitar og galsa-
fengnar hjá félagsskapnum.
Áhugamál Adolfs voru margvísleg
og fróðlegt að hlusta á frásagnir
hans eftir heimkomur úr utanlands-
ferðum og frá gömlum Reykjavík-
urdögum.
Adolf missti eiginkonu sína, Matt-
hildi, fyrir tveim árum og mátti þá
merkja breytingar á högum hans og
söknuð í hjarta, enda voru þau hjón-
in auðsjáanlega mjög samrýnd. Trú-
lega hefur sá missir haft mikil áhrif
á líf hans allt og flýtt fyrir kallinu.
Þakklæti okkar félaga fyrir liðnar
samverustundir er efst í huga á
þessari sorgarstundu um leið og
samúðarkveðjur beinast til eftirlif-
andi barna og fjölskyldna þeirra
með þeirri vissu að minningin um
góðan dreng mun ylja þeim um
hjartarætur, því auðsætt var að
Adolf var ávallt hinn sanni og kæri
fjölskyldufaðir.
Genginn er góður drengur. Bless-
uð sé minning hans.
F.h. pottfélaga kl. 8 í Vesturbæj-
arlaug,
Geir Zoëga.
ADOLF F.
WENDEL
Faðir minn, tengdafaðir og bróðir okkar,
KRISTJÁN ÞÓRHALLSSON
frá Ásgarði, Svalbarðsströnd,
Eiðsvallagötu 24,
Akureyri,
lést á FSA miðvikudaginn 14. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Dalvíkurkirkju
laugardaginn 24. janúar kl. 13.30.
Þórhallur Kristjánsson,
Zeynep Özcan,
Tómas Þórhallsson,
Jón Árni Þórhallsson
og fjölskyldur.
Föðurbróðir okkar,
HAUKUR ALFREÐ GUNNLAUGSSON,
Ægisgrund 4,
Skagaströnd,
sem lést sunnudaginn 18. janúar, verður jarðsettur frá Hólaneskirkju á
Skagaströnd laugardaginn 24. janúar kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Soffía G. Karlsdóttir.