Morgunblaðið - 21.01.2004, Qupperneq 56
HÁLF milljón tonna af loðnu virðist nú vera á
svæðinu norðvestur úr Langanesi. Vegna mik-
illar loðnugöngu á þessu svæði hefur tímabund-
ið bann við loðnuveiðum verið fellt úr gildi og nú
er gert ráð fyrir kraftveiði næstu daga. Skipin
og frystihúsin sem eru að frysta loðnu fyrir
Rússlandsmarkað fjórfalda verðmæti hennar.
Hjálmar Vilhjálmsson, leiðangursstjóri á
Árna Friðrikssyni RE, sagði í gær að töluvert
virtist af loðnu á nokkuð stóru svæði norðvestur
úr Langanesi. „Þetta er nánast allt eftir bókinni,
utan þess að loðnan er nokkuð seinna á ferðinni
en venjulega. Það er mikið af sterkum torfum
norður úr Langanesi sem hægt væri að veiða
bæði í nót og troll. Okkur mældist til að þar
væru um 500 þúsund tonn.“
Fjöldi loðnuskipa var á leið á miðin í gær-
kvöldi, en veiði var góð hjá þeim skipum sem
fyrir voru á miðunum. Guðmundur Ólafur ÓF
landaði um 900 tonnum af loðnu í Neskaupstað í
gær eða þeim afla sem skipinu var heimilt að
veiða við loðnuleitina. Þar af voru um 150 tonn
af frystri loðnu en áætlað var að frysta um 400
tonn af farminum hjá Síldarvinnslunni.
Hver dagur dýrmætur
Nokkur skip eru búin til frystingar á loðnu og
hefur frystingin gengið vel, að sögn Árna V.
Þórðarsonar, skipstjóra á Baldvini Þorsteins-
syni EA. Hann sagði aflabrögðin góð en mestu
máli skipti þó að vinna aflann til manneldis. „Við
erum að frysta á Rússlandsmarkað og fáum
ágætt verð fyrir loðnuna þar, sennilega fjórum
sinnum hærra en ef hún færi til bræðslu. Það er
því ágæt afkoma af þessum veiðum ef við náum
að halda uppi fullum afköstum í vinnslunni.“
Hálf milljón tonna af
loðnu út af Langanesi
Tímabundnu veiðibanni var aflétt í gær og
sjómenn búast við kraftveiði næstu daga
Morgunblaðið/Sigurgeir Búið að /12
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik kom til
Celje í Slóveníu í gærkvöldi en á morgun hefst
Evrópumótið og etja Íslendingar kappi við
heimamenn í Slóveníu í fyrsta leik. Eitt af
fyrstu verkum landsliðshópsins við komuna á
hótelið var að snæða kvöldverð þar sem meðal
annars var boðið upp á spagettí. Patrekur Jó-
hannesson, Einar Örn Jónsson, Gunnar Magn-
ússon liðsstjóri, Guðjón Valur Sigurðsson,
Dagur Sigurðsson, Reynir Þór Reynisson og
Róbert Sighvatsson ætla greinilega að taka
hraustlega til matar síns eftir ferðalagið./44
Morgunblaðið/Sverrir
Mættir til leiks í Slóveníu
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Smáauglýsingar á
STJÓRNVÖLD í Marokkó hafa
veitt Brimi ehf. tvö veiðileyfi á sard-
ínu við strendur landsins. Hvort
leyfi heimilar veiðar á 15.000 tonn-
um. Aflinn verður sjókældur um
borð og unninn í landi. Guðbrandur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Brims, gerir ráð fyrir að eitt skip
veiði upp í þessi leyfi. Verkefnið er
unnið í samstarfi við marokkóska
fyrirtækið Tawarta Pelagics.
Guðbrandur segir strandlengju
Marokkó langa og fiskimiðin mjög
gjöful – sérstaklega hvað varðar
uppsjávarfisk á borð við makríl,
sardínur, ansjósur og fleiri tegund-
ir. Marokkóbúar hafi hug á að
byggja upp og þróa sinn sjávarút-
veg betur og hafi leitað eftir sam-
starfsaðilum til þess. Meðal annars
fyrir tilstuðlan forseta Íslands hafi
formlegu samstarfi verið komið á
við Brim eftir heimsókn sjávarút-
vegsráðherra Marokkós síðasta
sumar.
Dorrit Moussaieff aðstoðaði
Dorrit Moussaieff, eiginkona
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta
Íslands, sagði frá því í viðtali við ísr-
aelska dagblaðið Haaretz í lok síð-
asta árs, að hún hefði reynt að nota
sambönd sín til að hjálpa Íslending-
um. Hún hefði t.d. komið á tengsl-
um milli íslenskra sjómanna og sjó-
manna frá Marokkó, en einn
ráðgjafi konungsins í Marokkó er
náinn vinur hennar.
Hingað til hafa stór erlend verk-
smiðjuskip veitt mikið á þessum
slóðum og lítið af arðsemi veiðanna
runnið til Marokkóbúa. Veiðileyfi
útlendra skipa voru felld úr gildi á
meðan ný áform stjórnvalda um
fjölþætt samstarf við erlend fyrir-
tæki voru mótuð. Framkvæmda-
stjóri Brims segir að fyrirtækið
muni byggja upp vinnslu í Marokkó
með þarlendu vinnuafli í krafti
reynslu og þekkingar Íslendinga á
sjávarútvegi.
Guðbrandur segir lítil nóta- og
trollskip með öfluga sjókælingu
henta best til veiðanna vegna þess
að sjórinn á þessu svæði er heitur.
Til að byrja með verða sardínurnar
flokkaðar í landi og heilfrystar.
Mismunandi stærðir eru seldar á
mismunandi markaði. Í framtíðinni
sjái þeir fyrir sér að vinna aflann
frekar. Unnið verður úr 30.000
tonnum af sardínu á ári til að byrja
með og munu um 100 starfsmenn
vinna hjá fyrirtækinu. Helstu yfir-
menn verða Íslendingar en að öðru
leyti verður mest notast við þarlent
vinnuafl, segir Guðbrandur Sig-
urðsson.
Brim hyggur á vinnslu sjávarafurða erlendis á þessu ári
Fengu leyfi til að veiða 30
þúsund tonn við Marokkó
Niðurhal á tónlist hefur áhrif
Dregur úr
plötusölu
HÉR á landi hafa plötubúðaeigendur og
starfsmenn útgáfu- og innflutningsfyrir-
tækja orðið varir við minnkandi sölu á tón-
list á geisladiskum. Hægt er að rekja þetta
til aukins niðurhals á tónlist í gegnum Netið
sem er ólöglegt. Þó eru það bara vissir geir-
ar tónlistar sem verða fyrir þessum áhrif-
um. Þá eru erlendar plötur viðkvæmari en
innlendar, en síðasta ár var metár í sölu á
íslenskum hljómplötum.
Fólk í fréttum/50, 51
Kia-umboðið selt
PÉTUR Kjartansson lögfræðingur hefur
keypt Kia-umboðið af Stefáni Tómassyni.
Kia-umboðið flytur inn og selur bifreiðir
suður-kóreska framleiðandans Kia, sem er í
meirihlutaeigu Hyundai. Pétur segir að sér
lítist vel á framtíðina í rekstrinum og segir
fyrirtækið ætla að auka sinn hlut á bíla-
markaðnum. Hann segir að ekki hafi verið
hagnaður af rekstri fyrirtækisins að und-
anförnu en til standi að snúa því við með
nýjum stjórnendum.
Bílablað/2
Hlýtur virt
bandarísk
myndlistar-
verðlaun
SOFFÍA Sæmunds-
dóttir myndlistarkona
hreppti nýverið banda-
rísku Joan Mitchell-
verðlaunin fyrir mynd-
list sína. Verðlaunin
eru kennd við banda-
rísku listakonuna Joan
Mitchell, sem var einn
kunnasti málari þjóðar
sinnar á síðustu öld.
Stofnun í hennar nafni
sér um verðlaunaveitinguna.
Að sögn Soffíu var Joan Mitchell ab-
strakt-expressjónisti og starfaði lengi í
París. „Þetta eru svipuð verðlaun og
Pollock-Krasner-verðlaunin, en ein-
göngu fyrir starfandi listamenn í mál-
aralist og skúlptúr,“ segir Soffía.
Hún segir það kannski mesta hjálp-
artækið að hafa nafn Joan Mitchell á bak
við sig á þennan hátt. Einn af verðlauna-
höfunum frá í fyrra, Fred Wilson, var til
dæmis valinn fulltrúi Bandaríkjanna til
að sýna á Feneyjatvíæringnum. „Margir
fleiri úr hópi þessara verðlaunahafa eru
að gera það mjög gott í listaheiminum.“
Gott að hafa/25
Soffía
Sæmundsdóttir
ViðhafnarútgáfA
á þeim tveimur
mynddiskum sem
út hafa komið
með Hringadrótt-
inssögu; Föru-
neyti hringsins
og Tveggja turna
tali, er uppseld
hérlendis og
sömuleiðis hjá út-
gefanda. Ný
sending er vænt-
anleg á næstu
vikum. Þegar allt er saman tekið hefur
Hringadróttinssaga á mynddiskum selst í
38.000 eintökum hérlendis.
Hringadróttins-
saga uppseld
♦♦♦
♦♦♦