Morgunblaðið - 22.02.2004, Page 9

Morgunblaðið - 22.02.2004, Page 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 9 Holtasmára 1 • 201 Kópavogur • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309 Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.langferdir.is Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00 Velkomin í ævintýraheim Fe rð ab æk lin ga Ku on i er að fin na á m ör gu m be ns ín st öð vu m ES SO Lj ós m yn d K U O N I Tæland er sannarlega eitt besta sólarland í heimi þar sem sólin, sjórinn, gestrisnir heimamenn, hagstætt verðlag og stórfeng- legur menningararfur eru ávísun á einstaka upplifun. Aldrei fyrr hafa Tælandsferðir verið jafn hagstæðar.* Eftirfarandi dagsetningar eru í boði: 28. apríl (2 sæti laus í 2 vikur) • 5. maí (uppselt) • 26. maí (2 sæti laus í 3 vikur) • 2. júní (laus sæti) NÚ MÖGULEIKI Á 3 VIKUM Á AÐEINS 107.990 KR. ** Verð miðast við tvíbýli á City Beach Resort og staðgreiðslu ferðakostnaðar innan viku frá bókun. Ekki er unnt að framlengja dvöl í Tælandi eða í Kaupmannahöfn. Verðdæmi til Tælands (2 vikur) Sólarvinin Hua Hin Frá Íslandi: 89.990 kr. - 2. júní 110.200 kr. - 28. júlí 107.900 kr. - 4. ágúst Frá Khöfn: 78.900 kr. - 3. júní 84.700 kr. - 29. júlí 82.400 kr. - 5. ágúst Gleðibærinn Jomtien Frá Khöfn: 69.600 kr. - 21. apríl 77.700 kr. - 2. júní 83.500 kr. - 28. júlí Ferð til Phuket og Bangkok Frá Khöfn: 85.900 kr. - 7. maí 88.200 kr. - 28. maí 89.400 kr. - 13. ágúst Tvær vikur í sólarparadísinni Hua Hin í Tælandi fyrir aðeins: 89.990 kr. á mann** með öllum sköttum! *Verðdæmi miðast við gengisskr. 12. febrúar 2004. Öll verðdæmi eru verð á mann í tvíbýli og miðast við upp gefnar brottfarir. Íslenskur fararstjóri frá 1. apríl SKÝRA stefnumörkun skortir af hálfu ríkisins hvað íslenskukennslu fyrir nýbúa á Íslandi varðar, að mati Garðars Vilhjálmssonar, fræðslu- stjóra hjá Eflingu – stéttarfélagi. Í lögum um útlendinga, sem tóku gildi í byrjun síðasta árs, var kveðið á um að útlendingar þyrftu að sitja 150 tíma námskeið í íslensku eða taka stöðupróf sem sýni þá kunnáttu sem hljótist af slíku námi, til þess að hægt sé að veita þeim búsetuleyfi. Til að fá slíkt leyfi þarf fólk að hafa búið hér á landi í þrjú ár. Garðar segir að honum finnist rík- ið ekki sinna þessu verkefni nógu vel. „Það er engin stefna í þessu, þeir samþykkja að setja lög og reglur um 150 stunda nám til að eiga kost á þessu græna korti, eða óbundna at- vinnuleyfi, en svo gera þeir ekki ráð fyrir því hvernig eigi að fjármagna slíkt, setja engar reglur eða hafa yf- irleitt neina stefnu í því,“ segir hann. Menntmálaráðuneytið hafi styrkt íslenskunám lítillega, en það hafi aldrei verið neitt markvisst. Starfs- menntasjóðir stéttarfélaganna hafi hins vegar stutt þetta nám að miklu leyti. Erlendir ríkisborgarar sem starfi hér á landi geti sóst eftir styrk, eins og fyrir hvert annað starfsnám til síns stéttarfélags. Þeir geti fengið allt að 75% af kostnaði námskeiðsins endurgreidd eða milli 35 og 44 þús- und krónur á ári, mismunandi eftir sjóðum. „Í þeim fræðslusjóðum þar sem við erum með mikið af opinberum starfsmönnum í umönnun á spítöl- unum, sem nota mikið tungumálið, höfum við jafnvel farið upp í 90% styrk. Þessu til viðbótar höfum við verið með sér verkefni hjá Eflingu, eins og Landnemaskólann, sem er 120 stunda menningartengt ís- lenskunám þar sem er einnig farið í réttindi, skyldur og þess háttar,“ segir Garðar. Þá hafi einstök fyrir- tæki verið styrkt til að standa fyrir íslenskukennslu innan fyrirtækisins. „Það er ekki hægt að gefa sér það að starfsmenntasjóðir stéttarfélaga muni standa undir því til framtíðar að kenna útlendingum íslensku, út- lendingum sem eru fengnir hingað til lands af atvinnurekendum. Það þarf að móta þá stefnu hverju sinni,“ segir Garðar. Ríkisvaldið heldur að sér höndum Spurður hvort atvinnuveitendur eigi að styðja íslenskunám starfs- manna sinna í auknum mæli, segir Garðar að þeir komi að fræðslusjóð- unum með stéttarfélaginu, „en þetta þarf að vera meira samspil ríkis- valdsins og þá vinnumarkaðarins. Það er enginn að segja að við viljum ekki koma að þessu, enda höfum við gert það, bæði með beinum peninga- styrkjum, skipulagt námskeið sjálf eða í samvinnu við fyrirtækin. En ríkisvaldið hefur alveg haldið að sér höndum í þessu, fyrir utan þá smá- styrki sem þeir veittu í menntmála- ráðuneyti sem voru nokkrar milljón- ir hvert ár, en það bara segir ekkert. Við höfum kallað eftir stefnu stjórn- valda í þessu en hún hefur a.m.k. að okkar mati ekki legið alveg skýrt fyrir,“ segir Garðar. Þá segist hann telja að stjórnvöld hafi lítið eftirlit með þessum mála- flokki, t.d. hafi þau viðurkennt stöðu- próf sem útlendingar geta tekið hjá fyrirtækinu Fjölmenningu í stað þess að taka 150 tíma námskeið í ís- lensku. Garðar segir að sumir, sem þó hafi náð stöðuprófinu sé algjör- lega ófærir um að tjá sig á íslensku og því hafi Efling ákveðið að hætta um síðustu áramót að styrkja fólk fjárhagslega í að taka þessi stöðu- próf. „Það eru öll einkenni þess að það hafi lítið verið hugsað til stefnu- mótunar í þessum málum. Við höfum síðan verið að reyna að bera okkur að því að bjarga því sem bjargað verður og setja undir lekann hér og þar,“ segir hann. Skýra stefnu skortir af hálfu ríkisvaldsins Starfsmenntasjóðir stéttarfélaganna hafa að stórum hluta fjármagnað íslenskunám útlendinga ÞAÐ var þorramatur á boðstólum hjá Samhjálp á föstudag en þá var haldið upp á það að stuðningsheim- ili þeirra á Miklubraut 20 var tveggja ára og heimilið að Miklu- braut 18 hálfs árs. Þorramaturinn, sem boðið var upp á í samvinnu við Sláturfélag Suðurlands rann ljúflega niður og mátti sjá rófustöppu, lifrarpylsu og aðra þjóðlega rétti á diskum þeirra sem komu til að fagna afmælinu. Morgunblaðið/Jim Smart Þorramatur hjá Samhjálp UMSÓKN Atlantsolíu um undan- þágu til dísilolíusölu í Hafnarfirði verður tekin fyrir á fundi heilbrigð- isnefndar Hafnarfjarðar- og Kópa- vogssvæðis á mánudag. Atlantsolía hefur ekki starfsleyfi til sölu á dísil- olíu til almennings en óskar eftir undanþágu til að geta haldið sölunni áfram í fimm vikur, eða þar til fram- kvæmdum við bensínstöð fyrirtæk- isins lýkur. Umhverfisráðuneytið hafnaði í desember sl. ósk fyrirtækisins um undanþágu frá ákvæðum um starfs- leyfi. Með umsókninni nú vill Atl- antsolía ítreka nauðsyn þess að und- anþágan sé veitt. Ósk Atlants- olíu tekin fyrir á mánudag LANDLÆKNIR hefur gefið út til- mæli til sjúkrahúsa, heilbrigðis- stofnana, heilsugæslustöðva og læknastofa þar sem ítrekað er að ekki skuli nota tölvupóst við send- ingu á sjúkraskrám eða öðrum við- kvæmum upplýsingum þar til komið hafi verið á sérstökum öruggum flutningsleiðum fyrir rafræn skila- boð. Von er á íslensku heilbrigðis- neti innan fárra ára þar sem heil- brigðisstofnanir verða tengdar sín á milli með mun meira öryggi en er í dag. Í tilmælum landlæknis segir að eftir sem áður sé ekkert því til fyrir- stöðu að tímapantanir eða almennar upplýsingar frá lækni til sjúklings eða tímapantanir sjúklings fari fram um tölvupóst, svo fremi sem sjúk- lingi sé ljóst að ekki sé hægt að tryggja öryggi slíkra boðskipta full- komlega. Að sögn Matthíasar Halldórs- sonar aðstoðarlandlæknis er ekki vitað til þess að viðkvæmar upplýs- ingar um sjúklinga hafi lekið út eða hvort eða hversu mikið er um að fólk sendi upplýsingar á borð við sjúkra- skrár með tölvupósti. Landlæknir um notkun tölvupósts Má ekki innihalda við- kvæm heilsufarsgögn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.