Morgunblaðið - 22.02.2004, Qupperneq 11
Ummæli vikunnar
’Hún er enn að minnka og rof-ferillinn, frá því að gosi lauk
sumarið 1967, er mjög jafn.‘Sveinn P. Jakobsson jarðfræðingur um
Surtsey, sem verður að líkindum aðeins
0,4 km² móbergskjarni eftir 120 ár.
’Menn hafa sagt að börnin verðiað fá frí eins og aðrir.‘Þorlákur Björnsson formaður leik-
skólaráðs Reykjavíkur, um samfelld frí
leikskólabarna.
’Er þarna uppi á reginfjöllumkannski að rísa eitthvert fríríki á
Íslandi, fjallaríki?‘Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, í umræðum á þingi um
skattgreiðslur starfsmanna við Kára-
hnjúkavirkjun.
’[...]undanbrögð í þessu efniverða að sjálfsögðu ekki liðin.‘Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir
skattskyldu erlendra starfsmanna við
Kárahnjúkavirkjun ótvíræða.
’Þunglyndi er alvarlegt heil-brigðisvandamál en það fær
þrátt fyrir það ekki næga at-
hygli, hvorki frá heilbrigðisyf-
irvöldum né læknum.‘Dr. Norman Sartoriussegir að aðeins einn
af hverjum sextán þunglyndissjúklingum
fái rétta meðferð.
’Íslenskt lambakjöt og íslensk-ur fiskur eru frábært hráefni.
Annað sem ég held mikið upp á
er íslenskt skyr. Það er alveg
magnað.‘Jeff Tunks , einn listakokkanna í dóm-
nefnd Food & Fun keppninnar.
’Ég átta mig á því að í augummargra utan Bandaríkjanna
virkar Bush forseti áreiðanlega
oft sem frekar framandi vera.‘David Frum , fyrrverandi ræðuritari
George W. Bush.
’Múrinn sviptir þúsundir Pal-estínumanna aðgangi að brýn-
ustu nauðsynjum eins og vatni,
heilsugæslu og menntun og
kemur einnig í veg fyrir að þeir
geti framfleytt sér með jarð-
yrkju eða annarri atvinnu.‘Alþjóðanefnd Rauða krossins vék frá hlut-
leysisreglu sinni í harðorðri yfirlýsingu.
’Hann er líka ótrúlega kaldurþví hann hringir alltaf beint í
toppana en talar aldrei við nein-
ar undirtyllur.‘Kristín Hálfdánardóttir , móðir tónleika-
haldarans Gunnars Atla Gunnarssonar á
Ísafirði. Hann er nemandi í 10. bekk og
skipuleggur allt úr í hörgul, nema þá helst
herbergið sitt.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 11
Hver drap Jesús? er yfirskrift greinareftir Jon Meacham um nýjustukvikmynd Mel Gibson, „The Passionof the Christ“, um síðustu 12klukkustundirnar í lífi Jesú í tíma-
ritinu Newsweek. Titill greinarinnar vísar til
gagnrýni á að ýtt sé undir að gyðingar séu ábyrg-
ir fyrir krossfestingu Jesú í myndinni. Fyrir
frumsýningu hefur stórmyndin Píslarsaga Krists
því orðið ein umdeildra Kristsmynda í nútíman-
um.
Eins og kemur fram í grein undir yfirskriftinni
„Vandamál raunsæisins“ á vef The Economist er
þar engum miðlungsmyndum að líkjast. Skemmst
er frá því að segja að greinarhöfundur heldur því
fram að lengst af hafi Kristsmyndir ekki náð að
skapa sannfærandi mynd af uppreisnarmannin-
um Jesú. Hver átakalausa biblíumyndin hafi fylgt
annarri frá kvikmynd Sidney Olcott „Frá jötunni
á krossinn“ frá árinu 1912 fram á okkar daga. Að-
eins fáar stórmyndir á borð við „Síðustu freist-
ingu Jesú Krists“ eftir Martin Scorsese hafi náð
að skapa trúverðuga mynd af frelsaranum. Allar
hafi þessar Kristsmyndir verið umdeildar rétt
eins og mynd Gibson.
Píslarsagan var vart fullfrágengin þegar gyð-
ingasamtök lýstu yfir áhyggjum sínum af því að
ýtt væri undir gyðingahatur í myndinni. Eugene
Korn frá Réttindasamtökum gyðinga í Banda-
ríkjunum tók sérstaklega fram eftir að hafa séð
kvikmyndina að ekki væri aðeins um ósamkomu-
lag á milli gyðinga og Gibsons að ræða. „Margir
guðfræðilega upplýstir kaþólikkar og mótmæl-
endur hafa látið í ljós áhyggjur af gyðingahatri
og því að þessi kvikmynd gæti eyðilagt áratuga
góðan árangur í samskiptum á milli trúarstefna,“
er haft eftir honum á síðum Morgunblaðsins í
nóvemberbyrjun 2003.
Gagnrýnin magnaðist enn þegar haft var eftir
Hutton Gibson, föður Gibsons, í útvarpsviðtali á
útvarpsstöðinni WSNR að ólíklegt væri að jafn
margir gyðingar hefðu látið lífið í helförinni og
látið hefði verið í veðri vaka. „Þetta er kannski
ekki allt uppspuni en mestallt,“ sagði Hutton í
viðtalinu og bætti við að ekki hefði verið hægt að
brenna jafn marga í Auschwitz og öðrum útrým-
ingarbúðum og haldið hafi verið fram. Gibson
ásakaði fjölmiðla fyrir að misnota föður sinn í
sjónvarpsviðtali á sjónvarpsstöðinni ABC um
miðjan febrúar. Við sama tækifæri sagðist hann
trúa því að til hefðu verið útrýmingarbúðir þar
sem varnarlausir og saklausir gyðingar hefðu
hlotið grimmilegan dauðdaga á valdatíma nasista.
Óhugnanleg grimmdarverk hefðu verið framin á
gyðingum á valdatíma Hitlers í Þýskalandi.
Orð páfa dregin til baka
Fjölmargir hafa lofað kvikmyndina fyrir feg-
urð og nákvæma framsetningu. Fréttir um að Jó-
hannes Páll páfi II hefði lokið lofsorði um mynd-
ina gengu eins og eldur í sinu um allan hinn
vestræna heim í byrjun desember. The New
York Times segir að fulltrúi frá framleiðandanum
hafi afhent Stanislaw Dziwisz, erkibiskupi og rit-
ara páfa, eintak af myndinni föstudaginn 5. des-
ember sl. Páfinn og Dziwisz hefðu horft á mynd-
ina í einkaíbúð páfa einhvern tíma um helgina.
Dziwisz hefði í framhaldi af því haft eftir páfa um
framsetningu Píslarsögunnar í myndinni: „Þetta
er eins og þetta var“ og um myndina að hún væri
„ótrúleg“ í jákvæðri merkingu þess orðs.
Fréttirnar um ummæli páfa voru formlega
dregnar til baka af Vatíkaninu um mánuði síðar.
„Páfinn hefur séð myndina en hann leggur ekki í
vana sinn að tjá sig opinberlega um listaverk,“
sagði einfaldlega í fréttatilkynningu frá Vatík-
aninu. Háttsettur embættismaður í Vatíkaninu
lét í því sambandi þau orð falla að hann hefði
ástæðu til að ætla að rétt hefði verið haft eftir
páfanum. Hins vegar hafi Vatíkaninu ekki líkað
hvernig ummælunum var slegið upp í fjölmiðlum.
Á sérstakri sýningu í Vatíkaninu í desember var
hins vegar gerður góður rómur að myndinni.
Eins og áður segir er framsetning Gibsons
gagnrýnd í nýjasta tölublaði Newsweek. Grein-
arhöfundur gagnrýnir m.a. Gibson fyrir að líta
svo á að með gyðingum eigi Jesús alltaf við alla
gyðinga.
Óttuðust byltingu á versta tíma
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur
tekur undir með Jon Meacham, greinarhöfundi
Newsweek, um að með gyðingum eigi Jesús að-
eins við vissa guðfræðistefnu innan gyðingdóms-
ins – tengdri gyðinga-elítunni í musterinu. „Við
megum ekki gleyma því að á tímum Jesú til-
heyrðu gyðingdómnum margir hópar. Jesús á
ekki við alla gyðinga þegar hann í Jóhannesar-
guðspjalli segir andstæðinga sína úr hópi gyðinga
eiga djöfulinn að föður. Ef hann ætti við alla gyð-
inga væru hans eigin lærisveinar m.a. meðtaldir.
Þeir voru náttúrlega allir gyðingar. Þvert á móti
átti hann aðeins við fylgismenn vissrar guðfræði-
stefnu í musterinu,“ segir Sigurjón Árni.
Hann minnir á að nútíma gyðingdómur hafi
ekki byrjað að þróast fyrr en eftir uppreisn gyð-
inga gegn Rómverjum sem barin var niður 70 eft-
ir Krist. „Ólíkir hópar tókust á um hverjir væru
sannir fulltrúar gyðingdómsins. Kristindómurinn
varð undir í þeirri baráttu. Sú stefna sem farísear
eru fulltrúar fyrir fór með sigur af hólmi. Með
þeim tók gyðingdómurinn að þróast að vissu leyti
í þeirri mynd sem við þekkjum hann í dag,
þ.e.a.s. um 135 til 200 eftir Krist. Það er ekki far-
ið að tala um gyðinga sem sérstakan kynstofn
fyrr en á 19. öld. Fram að þeim tíma er gyð-
ingdómurinn ætíð skilinn sem trúarsamfélag.“
Sigurjón Árni tekur ekki undir gagnrýni
Newsweek á að Mel Gibson taki guðspjöllin of
trúanleg í kvikmyndinni. „Að halda því fram að
sannleikurinn sé allt annar heldur en kemur fram
í guðspjöllunum hefur verið í tísku allt frá því að
Reimarus skrifaði bók sína einhvern tíma á 17.
öld. Þar er því m.a. haldið fram að lærisveinarnir
hafi rænt líki Jesú og falið þar til ekki var lengur
hægt að þekkja hann. Þá fyrst hafi þeir byrjað að
boða Jesúm upprisinn og stofna kirkju sem hafði
lítið að gera með boðskap Jesú. Reimarus hélt því
fram að guðspjöllin kenndu allt annað en Jesús
hafði sjálfur boðað. Þessar fullyrðingar hafa ekki
reynst haldbærar,“ segir hann.
„Að sjálfsögðu hafa höfundar og ritunartími
einhver áhrif á útkomu guðspjallanna eins og
annarra texta,“ viðurkennir Sigurjón Árni. „Hins
vegar er ekki þar með sagt að þó einhver blæ-
brigðamunur sé á lýsingu fjögurra fréttamanna
af fréttnæmum atburði eins og árekstri hafi at-
burðurinn ekki orðið og grundvallarstaðreynd-
irnar séu ekki réttar. Í frásögum af sögulegum
atburðum eigum við í fæstum tilfellum jafn mikið
af texta jafn nálægt atburðunum og um kross-
festinguna og upprisuna. Því virðist flest benda
til þess að óhætt sé að taka grundvallaratriði
guðspjallanna trúanleg eins og m.a. hefur verið
staðfest í sagnfræðilegum samanburði á réttar-
höldunum yfir Jesú eins og þeim er lýst í guð-
spjöllunum og réttarkerfinu eins og því er lýst í
rómverskum heimildum.“
Sigurjón Árni segist búast við að soðið hafi
uppúr þegar Jesús hreinsaði til í musterinu og
hótaði að rífa það niður. „Við skulum ekki gleyma
því að musterið var miðstöð gyðingdómsins og
efnahagslega mjög sterkt. Það var næstum því
eins og Seðlabanki þess tíma. Þangað komu píla-
grímar alls staðar að úr heiminum og skapaði það
mikla veltu fyrir musterið. Pílagrímarnir þurftu
m.a. að skipta rómverskum peningum í gildandi
mynt musterisins. Auk þess borguðu margir gyð-
ingar hálfgerða tíund til musterisins o.s.frv.
Þarna var gríðarlegt peningakerfi í gangi og
fórnir færðar í svo stríðum straumum að sér-
stakar rennur þurfti til að blóðið úr fórnardýr-
unum gæti runnið í burtu. Jesús gerði alvarlega
atlögu að musterinu með boðskap sínum, t.d. um
fyrirgefningu syndanna. Ef guð veitti fyrirgefn-
ingu væru allar fórnir ónauðsynlegar. Musterið
væri heldur ekki nauðsynlegt því fólk gæti til-
beðið guð alls staðar. Boðskapur Jesú olli því
miklum titringi og kom á versta tíma fyrir Róm-
verja – á meðan borgin var full af pílagrímum
rétt fyrir páskana, þ.e. þegar gyðingar minntust
frelsunarinnar frá Egyptalandi. Þeir töldu sig því
knúna til að grípa til sinna ráða til að forðast
byltingu.“
Allt mannkynið sekt
Sigurjón Árni segir misskilning felast í því að
gyðingar beri ábyrgð á dauða Jesú. „Sagnfræði-
lega báru stjórnvöld í landinu ábyrgð á dauða
Jesú. Þar sem gyðingleg stjórnvöld máttu ekki
kveða upp dauðadóm féll það í hlut rómverskra
yfirvalda sem Ponteus Pílatus var fulltrúi fyrir að
kveða upp dóminn. Guðfræðilega túlkunin er að
allir menn séu ábyrgir á dauða Jesú. Það kemur
skýrt fram í boðun Nýja testamentisins að Jesús
lét lífið fyrir alla menn. Þannig erum við öll ábyrg
en ekki einhver einn afmarkaður hópur,“ segir
Sigurjón Árni. Spurningunni er svarað með ít-
arlegri hætti í nýútkomnu rit eftir hann „Kristin
siðfræði í sögu og samtíð“ (bls. 241).
Kvikmyndin „The Passion of the Christ“ verð-
ur frumsýnd í Bandaríkjunum 25. febrúar og á
Íslandi um páskana. James Caviezel (Thin Red
Line, Count of Monte Christo) fer með hlutverk
Jesú í myndinni. Alls koma um 1.000 manns fram
í myndinni.
Guð og Gibson
Nýjasta kvikmynd Mel Gibsons hefur
ekki aðeins vakið óskipta athygli kvik-
myndaáhugafólks vestra. Píslarsaga
Gibsons hefur kallað fram á varir nú-
tímamanna 2000 ára gamla spurn-
ingu um hver raunverulega beri
ábyrgð á dauða Jesú Krists. Anna G.
Ólafsdóttir velti myndinni og spurn-
ingunni fyrir sér. Píslarsagan verður
frumsýnd um páskana á Íslandi.
Píslarsagan lýsir ótrúlegum þjáningum Jesú Krists síðustu 12 stundirnar.
ago@mbl.is
ÍSRAELSKUR hermaður opnar hér
hlið á aðskilnaðarmúrnum fyrir
palestínskum börnum á leið úr
skóla sínum á Vesturbakkanum til
heimabæjar sín sem nú fellur innan
marka Ísraelsríkis. Múrinn var
reistur til að skilja Ísrael frá Vest-
urbakkanum og tekur Alþjóðadóm-
stólinn í Haag á þriðjudag afstöðu
til þess hvort hann teljist brot á al-
þjóðalögum.
Reuters
Á leið úr
skólanum