Morgunblaðið - 22.02.2004, Qupperneq 14
fyrir nemendur og þar sem
metnaður og skuldbinding er bæði
mikil og almenn og inntökukröfur
ákveðnari. „Það hefur margoft sýnt
sig að nemendur geta veitt hver öðr-
um mikilvæga örvun og hvatningu í
náminu. Ef nemendasamfélagið er
öflugt þá læra menn meira. Þar sem
skuldbindingin er meiri og almenn-
ari verður samfélag nemendanna
einfaldlega akademískara.“
Nemendur sitja eftir
Rúnar segir athyglisvert að Há-
skóli Íslands hafi verið að styrkjast
undanfarin ár að því er varðar hæfni
og árangur kennaranna. Á sama
tíma hafi ekki verið hugað að styrk-
ingu nemendaþáttarins eins og
ástæða væri til.
„Til að mynda erum við jafn opin
öllum stúdentum og áður, þótt for-
sendurnar fyrir gamla opna þjóð-
skólanum hafi breyst. Nú eru tíu ís-
lenskir skólar að bjóða kennslu á
háskólastigi. Mér sýnist það kalla á
endurskoðun á þessari gömlu stefnu.
Ýmiss konar annan sveigjanleika í
námi nemenda Háskólans mætti
nefna sem ástæða væri að huga nán-
ar að. Almennt eru ekki ákvæði um
lágmarks einingafjölda nemenda í
námi á hverju misseri. Reglur um
hámarkslengd náms eru almennt
rúmar og hægt að fá undanþágur frá
þeim. Þótt þessi sveigjanleiki hafi
vissulega kosti gagnvart nemendum,
sem ekki geta skuldbundið sig að
fullu í námi vegna ýmissa aðstæðna,
má á móti nefna faglega og rekstr-
arlega ókosti. “
Háskólanum hefur gengið illa að
fá greitt fyrir alla nemendur sem
þreyta próf við skólann, að sögn
Rúnars. Í kennslusamningi Háskól-
ans og menntamálaráðuneytisins
fyrir grunnnámið í skólanum er sett
þak á greiðslur fyrir fjölda námsein-
inga sem nemendur mega taka til
prófs. Á sama tíma hafi Háskólinn
ekki heimildir til að takmarka fjölda
nemenda sem skrá sig og þreyta
próf.
„Háskólinn hefur reynt að fá
þennan mismun greiddan sérstak-
lega, en það hefur gengið erfiðlega.
Kennslusamningurinn býður ekki
upp á meira. Við bætist að sú launa-
stika (föst meðallaun) sem miðað er
við í reiknilíkani kennslusamnings-
ins er lægri en föst meðallaun sem
greidd eru í Háskólanum samkvæmt
kjarasamningum. Þá er ekki tekið
nægilegt tillit til þess aukakostnaðar
sem Háskólinn hefur af rekstri ým-
issa lítilla námsleiða með tiltölulega
fáum nemendum. Það blasir við að
þessa hluti verður að lagfæra til að
styrkja rekstur grunnnámsins í Há-
skólanum.“
Meira framhaldsnám
Það er mat Rúnars að Háskóli Ís-
lands verði að leggja aukna áherslu á
framhaldsnám, þótt það kunni að
verða á kostnað umfangs í grunn-
námi. Sé opin leið inn í grunnnámið
geti það dregið úr möguleikum til
uppbyggingar kennslu á framhalds-
stigi, vegna þess að námseiningar
sem Háskólinn fær greitt fyrir eru
fastar eins og málum er nú háttað.
„Sérstaða Háskóla Íslands er fólg-
in í hinu almenna framhaldsnámi,
þótt við séum einnig með margar
greinar í grunnnámi sem enginn
annar kennir hér á landi. En það er
auðvitað viðkvæmt mál að draga
saman í grunnnáminu og pólitísk
sjónarmið á kreiki sem styðja
óbreytt ástand.“
Hvað varðar hlutfall lítilla bekkja í
HÍ, samanborið við erlendu rann-
sóknaháskólana, segir Rúnar að það
sé ekki auðvelt að nálgast upplýsing-
ar um samsetningu og stærð bekkja í
HÍ. Þó eru vísbendingar um að stórir
bekkir séu hlutfallslega fleiri í HÍ en
í erlendu rannsóknaháskólunum.
Rúnar segir það viðbrögð deildanna
við versnandi fjárhag undanfarin
misseri að stækka fyrirlestrahópana
og fella niður eða fresta fámennari
valnámskeiðum, sem sé miður.
Skilvirkni nemenda í námi er einn-
ig töluvert lægri í Háskóla Íslands
en í alþjóðlegu samanburðarskólun-
um. Skilvirknin er mæld með því að
athuga hve stór hluti nemenda er í
sem svarar fullu námi. Í alþjóðlegu
einkareknu rannsóknaháskólunum
er hlutfallið 90–95%, í opinberu al-
þjóðlegu rannsóknaháskólunum 85–
90%, en 65,4% í Háskóla Íslands.
Stefnt að rannsóknaháskóla
Hlutfall kennara, það er prófess-
ora, dósenta og lektora, með dokt-
orspróf er 66% í Háskóla Íslands,
sem er mun lægra en í virtum alþjóð-
legum rannsóknaháskólum. Rúnar
athugaði einnig hlutfall þeirra kenn-
ara sem hafa fengið birtar fræðileg-
ar ritsmíðar á alþjóðlega viður-
kenndum vettvangi. Hann vann
meðal annars upp úr gögnum ISI
(Institute for Scientific Information)
og fékk út að 69% kennara HÍ hafi
birt fræðilegar ritsmíðar á viður-
kenndum alþjóðlegum vettvangi.
Rúnar segir þetta hlutfall hafa
hækkað verulega á undanförnum ár-
um.
„Þróunin er öll í rétta átt varðandi
kennarana,“ segir Rúnar. „En það
þarf einnig að huga að námsþætti
háskólastarfsins á komandi misser-
um og árum, ekki einasta inntöku-
kröfum, heldur einnig námsfram-
vindu nemenda, smækkun
námshópa og meira návígi nemenda
og kennara. En til þess þarf meðal
annars að fjölga fastráðnum kenn-
urum.“
Rúnar segir að töluvert vanti upp
á að Háskóli Íslands uppfylli kjör-
mynd um alþjóðlegan rannsóknahá-
skóla. „Hann hefur samt mikla sér-
stöðu meðal skóla á háskólastigi
hérlendis. Rannsóknaháskóli er fjöl-
sviða og býður bæði upp á ýmiss
konar fræðilegt og „praktískt“ nám.
Það er enginn annar skóli hérlendis
sem nálgast HÍ að umfangi. Í Há-
skóla Íslands eru 11 deildir og 206
námsleiðir, 399 fastráðnir kennarar,
auk aðjúnkta og stundakennara. Í
fyrra haust voru við skólann 9.012
nemendur, þar af 570 erlendir stúd-
entar frá 60 þjóðum. Það er mun al-
gengara að kennarar HÍ fari utan í
rannsóknaleyfi við kennslu- eða
rannsóknastofnanir en kennarar
annarra íslenskra skóla á háskóla-
stigi. HÍ hefur einnig sérstöðu hvað
varðar hlutfall kennara með doktors-
menntun og birtingu rannsóknarit-
verka. Eins og áður hefur komið
fram setur Háskólinn sér það mark-
mið að vera rannsóknaháskóli þjóð-
arinnar er standist alþjóðlegan sam-
anburð og er það skýrt tekið fram í
þróunaráætlun skólans.“
Íslenskir háskólar
Rúnar segir að meðal íslenskra
skóla á háskólastigi komi HÍ ekki
sérlega vel út þegar horft er til nem-
endatengdra gæðavísa. Þó séu til-
tölulega fáir virkir nemendur í HÍ á
hvert stöðugildi fastra kennara
(lektora, dósenta og prófessora).
Raunar sé einungis Kennaraháskól-
inn með færri virka nemendur á
stöðugildi kennara. Einkaháskólarn-
ir raða sér í efstu þrjú sætin, með
flesta nemendur á stöðugildi kenn-
ara. Rúnar bendir á að Háskólinn í
Reykjavík og Viðskiptaháskólinn á
Bifröst hafi einkum einbeitt sér að
viðskiptatengdu námi sem sé líklegt
til vinsælda meðal nemenda. Nám af
því tagi krefjist ekki lítilla nemenda-
hópa í sama mæli og verklegt nám og
rannsóknatengt nám. Það geti því
verið rekstrarlega hagkvæmara en
nám sem krefst lítilla námshópa.
Þegar litið er til skilvirkni nemenda í
íslensku skólunum er staðan áber-
andi best í Listaháskólanum, sem
Rúnar segir að megi skýra með mun
strangari inntökuskilyrðum þar en
annars staðar. Nemendur í Háskóla
Íslands eru hins vegar með næst
lægstu skilvirknina í námi, aðeins í
Kennaraháskólanum er hún lægri.
„Þessari stöðu Háskólans er hægt
að breyta á tiltölulega skömmum
tíma ef það er vilji til þess. Meðan
Háskóli Íslands er jafn opinn og býð-
ur nemendum jafn mikinn sveigjan-
leika í námsframvindu og nú koma
niðurstöður af þessu tagi ekki á
óvart,“ segir Rúnar. Hann segir að
skýra megi útkomu Kennaraháskól-
ans að hluta með því að hann sé
mesti fjarnámsskóli landsins. Það
verði seint hægt að búast við fullum
námsafköstum í fjarnámi, enda sé
það oft skilgreint sem hlutanám.
Skortur á aðhaldi og stefnu
Rúnar segir mikilvægt að hver há-
skóli setji sér raunhæf markmið og
hugi vandlega að faglegum forsend-
um varðandi námsleiðir og námsstig
sem boðið er upp á (grunnnám eða
framhaldsnám), svo og rannsóknir.
„Skóla má flokka eftir því hvort
þeir hafa grunnám að uppistöðu, eða
hafa grunnám og framhaldsnám auk
almenns rannsóknastarfs í öllum
deildum. Í alþjóðlegri háskólaum-
ræðu kallast fyrri tegundin „college“
eða grunnháskóli og sú síðari „uni-
versity“ eða rannsóknaháskóli. Þá
má einnig flokka skóla eftir því hvort
þeir eru sérhæfðir (fagháskólar) eða
fjölfaglegir. Þegar litið er til alls
heimsins er meðal stærð á alþjóðleg-
um fjölfaglegum rannsóknaháskóla
um 20.000 stúdentar og þjónustu-
svæði slíks skóla telur frá 500.000 til
einnar milljónar manna. Íslendingar
eru innan við 300.000 og það gefur
augaleið að ekki er svigrúm fyrir
meira en í mesta lagi einn fjölfagleg-
an rannsóknaháskóla í landinu ef
standa á vel að málum.
Nú eru í gildi rúm rammalög um
háskóla á Íslandi og skólarnir hafa
mikið sjálfstæði um uppbyggingu og
þróun náms og rannsókna. Stefna
ráðuneytisins hefur verið að leyfa
háskólunum að þróast faglega hverj-
um með sínum hætti, en bjóða upp á
almennt mat á starfsemi háskólanna
eftirá. Þrátt fyrir þetta meðvitaða
hlutleysi um faglega uppbyggingu
háskólanna hafa menntamálaráð-
herrar undanfarinna ára aðhyllst
einkavæðingu þessa skólastigs með
meintri aukinni samkeppni, auk
byggðastefnu. Mikið hefur borið á
byggðastefnu í háskólaumræðunni
hérlendis síðustu misseri, sem bygg-
ist á því að háskólar skapa störf,
bæði beint og óbeint og því má nota
þá til atvinnuuppbyggingar.
Hættan sem fólgin er í byggðaum-
ræðunni um háskóla er sú að farið
verði að líta á háskólastarfsemi sem
tæki til að ná markmiðum óskyldum
eiginlegu háskólastarfi og þar með
gleymist hvers eðlis háskólastarfið
er og hvaða forsendur verða að vera
fyrir hendi til að rétt sé staðið að því.
Einkavæðingar- og samkeppnis-
áherslan, sem einnig hefur borið
mikið á, gengur útfrá því að nem-
endur velji „gott“ nám og hafni „lé-
legu“ og veiti þannig aðhald og auki
gæði háskólastarfsins. Vandi þessa
sjónarhorns er að nemendur hafa í
reynd takmarkaðar upplýsingar
þegar þeir velja nám. Þannig hafa
nemendur litlar sem engar upplýs-
ingar um rannsóknaþátt skólastarfs-
ins. Þeir hafa líka takmarkaðar upp-
lýsingar um lykil gæðaþætti í
kennslunni, svo sem um fræðilega
þekkingu kennarans á sínu fræða-
sviði. Faglegu forsendurnar sem
nemendur byggja á við val á námi
eru því oft óljósar eða almenns eðlis.
Við þetta bætist svo að ýmsar sér-
hæfðar námsleiðir eru og verða að-
eins í boði í Háskóla Íslands. Til að
tryggja gæði kennslustarfs, að ég
tali ekki um rannsóknir, þurfa því
aðrir þættir að koma til.“
Rúnar telur að menntamálaráðu-
neytið þurfi að gegna betur eftirlits-
og aðhaldshlutverki sínu í háskóla-
málum. Eftirlit ráðuneytisins hafi
verið fremur almenns eðlis, stundum
nánast formsatriði. Úttektir þess á
háskólum og háskóladeildum fram
að þessu séu fremur lýsandi, veiti
ekki skýra forskrift að lágmarks-
kröfum í grunnámi, framhaldsnámi
og rannsóknum. Viðmiðanir í úttekt-
um séu ekki nægilega samræmdar
milli úttektarskýrslna og faglegum
frávikum í háskólastarfi ekki fylgt
eftir með skýrum viðurlögum af
hálfu ráðuneytisins.
Rúnar bendir á að ráðuneytið hafi
fjögur megin stjórntæki til að gegna
faglegu eftirlitshlutverki og aðhaldi:
Með rekstrarsamningum við
skólana, með birtingu auglýsingar
um viðurkenndar námsgráður hvers
skóla, með úttektum, sem leggja fag-
legt mat á skólastarfið og forsendur
þess, og með svonefndum gátlistum
gagnvart einkaskólunum.
„Ég kalla eftir skýrum viðmiðun-
um um gæði háskólastarfs,
ákveðnum skilgreiningum á ólíkum
háskólum og eðlilegri verkaskipt-
ingu á milli þeirra. Í þeirri stefnu-
mótunarvinnu ráðuneytisins þarf að
viðurkenna Háskóla Íslands sem
rannsóknaháskóla allrar þjóðarinnar
og sérstaða hans að þessu leyti þarf
að vera tryggð,“ segir Rúnar.
Breyttar áherslur Háskólans
Ástæða er til, að mati Rúnars, að
Háskóli Íslands hugi að endurskoð-
un þeirrar stefnu að taka nær alla
umsækjendur um nám inn í skólann.
Hann segist binda vonir við að sam-
ræmt stúdentspróf geti fengið sess
sem inntökupróf fyrir skóla á há-
skólastigi í framtíðinni.
„Ég tel líka mikilvægt að Háskóli
Íslands auki enn frekar akademískar
kröfur til kennara til að efla rann-
sóknastarf og rannsóknatengt fram-
haldsnám. Styrkur skólans og sér-
staða felst í því. Auknar kröfur til
kennara þurfa að endurspeglast í
framgangi innan skólans. Háskólinn
þarf að gera almennar kröfur um
doktorsmenntun við ráðningu í störf.
Með því væri skólinn að samræma
kröfur sínar þeim sem gerðar eru
meðal annars í háskólum í Skandin-
avíu. Háskólinn þarf einnig að leggja
aukna áherslu á fræðastörf á alþjóð-
legum vettvangi, að þeir sem birti
fræðilegar ritsmíðar á íslensku komi
einnig rannsóknum sínum á fram-
færi á ritrýndum alþjóðlegum vett-
vangi. Ef þetta gengur eftir er bjart
framundan í starfsemi Háskóla Ís-
lands.“
!"
#$ %#
&
'"
()*"
!
+
%
,
#
-.
/0 1
1/
1
10
0
$
34 5
34 34 34 34 6' 6' 34
!!
"
#$ %
$
#$
& %
'
(&)
& %
*+
,
($
'
(
& &
-
)
'
& %
7'') -4
8)9"
. % /
/
*)
")
&
"*
4
")#":;
<
%
:") %
0)*<
#)")
="=')
" +''
"#
>
%
%""%
4
0 0 >
)
)
) %
@
A"=
BC-
0? 7D( 7EB=
7B
=
10 20 10 0 >
)
)
) (3?
(2
2:
.<
(1?
1( (1?
FG)=
$
!*
&)
4
5 4 4 6
4 7
8 4 4 9
4 , 4 4 4 9
8 4 4 7
, 4 4 6
5 4 5 4 8 4 4 7
4 9
4 6
4 , 4 5 4 4 4 9
4 7
, 4 4 6
4 4 9
, 4 4 6
4 7
5 4 8 4 4 , 4 4 6
4 4 9
4 7
, 4 5 4 8 4 2(
!
$
& (
-
!"
#$ %#
&
'"
()*"
-.
;$ %
$ %
/
</
=
$
$> 4
%
$
? $ %
4
!
$
4
$
!
4
$
) $
-
33 , $
$
&)
%
$%%
(: (: (: (: (1:1 2 1(2?
2 2 1(1:
1(2:
21( 32(1:
3(1:
3 1(2:
2( 1 3 3 (3:
2( (1:
3(1:
(1:
(3:
3( 2( (2:
33( 23( 3 (2:
2( ’ Sérstaða HáskólaÍslands er fólgin í
hinu almenna fram-
haldsnámi, þótt við
séum einnig með
margar greinar í
grunnnámi sem
enginn annar kennir
hér á landi. ‘
gudni@mbl.is