Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 29
Konudagsblómvöndurinn tilbúinn
Blómastofa Friðfinns
Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499
Alvöru
blómabúð
Pör í ástarleikjum á af-skekktum stöðum urðu íátta tilfellum fórnarlömbmorðingja í nágrenniFlórens á árunum 1968 til
1985. Fyrstu morðin voru framin 21.
ágúst 1968 og í sex tilfellum af átta
voru fórnarlömbin ástleitin ítölsk
pör sem lagt höfðu bílum sínum á af-
skekktum stað. Í tveimur tilfella er
um að ræða frávik frá þessu og urðu
tveir ungir, síðhærðir Þjóðverjar til
að mynda fórnarlömb morðingjans,
eða morðingjanna, 9. september
1983 sem og franskt par, síðustu
fórnarlömbin, sem myrt voru í tjaldi
sínu 9. september 1985.
Í sex af átta tilfellum voru morðin
framin á laugardegi sem ýtt hefur
undir þær hugmyndir að morðin
tengist djöflatrú með einhverjum
hætti, enda dagurinn mikilvægur
djöflatrúnni. Þá var morðvopnið í
öllum tilfellum hið sama, Beretta
byssa með hlaupvídd 22, sem aldrei
hefur fundist. Í eitt skipti fannst þá
sama gerð af hnífi og notaður hafði
verið til að skera burt kynfæri einn-
ar konunnar, en í sjö tilfellum voru
kynfæri fjarlægð og eftir 1981 voru
vinnubrögðin orðin svo fagmannleg
að spurningar vöknuðu um hvort
skurðlæknir gæti átt þar þátt að
máli.
Hnífurinn fannst á sjúkrahúsi í
Suður-Flórens.
Í dag er svo jafnvel talið að byssan
hafi getað gengið milli manna, að
fleiri en einn standi að baki morð-
unum og læknir hafi jafnvel verið
viðstaddur og séð um kynfæra-
skurðin. Enn fremur hafi verið vel
greitt fyrir morðin og líkamshlut-
arnir notaðir við djöflamessur.
Stefano Mele
Nú eru liðin 36 ár frá fyrsta morð-
inu og ein 19 ár frá því það síðasta
var framið og fyrir skemmstu var
opnað fyrir þriðju rannsóknina á
þessu dularfulla máli.
Á sínum tíma var hinn sardiníski
Stefano Mele, eiginmaður fyrstu
konunnar sem myrt var, handtekinn
grunaður um að hafa myrt eiginkonu
sína. Sonur þeirra, sem var í aftur-
sæti bílsins, slapp hins vegar
óskaddaður og var einfaldlega tek-
inn úr bílnum og skilinn eftir þar
rétt hjá. Að sögn sonarins var faðir
hans á morðstaðnum um nóttina í fé-
lagi við tvo aðra, hina sardinísku
Vinci-bræður sem taldir eru hafa
verið fyrrverandi elskhugar hinnar
myrtu, en meint ástæða er talin af-
brýðisemi. Árið 1993 var annar
bræðranna síðan myrtur með því að
kveikt var í bíl sem hann var í og
sama ár var hjákona hans og sonur
hennar myrt á sama hátt. Þessi þrjú
morð eru enn óupplýst.
Pietro Pacciani
Í september 1985, þremur dögum
eftir að síðasta morðið var framið,
beindist rannsókn lögreglu að bónd-
anum Pietro Pacciani, sterkbyggð-
um og ofbeldisfullum manni sem
hafði myrt kærustu sína og elskhuga
hennar á 6. áratugnum eftir að hafa
komið að þeim í ástarleik úti á túni.
Að sögn Pacciani rann á hann morð-
æði þegar hann sá glitta í bert brjóst
unnustu sinnar. Pacciani hafði þá
einnig hvað eftir annað gerst sekur
um kynferðislega misnotkun á báð-
um dætrum sínum. Hann eyddi enn
fremur drjúgum tíma innan fangels-
ismúranna, en hafði alltaf verið laus
er morðin voru framin.
Í kjölfarið, árið 1989, voru þre-
menningarnir frá Sardiníu svo sýkn-
aðir af öllum grun og fyrstu rann-
sókn í málinu þar með lokið. Önnur
rannsókn beindist svo gegn Pacciani
sem árið 1994 var dæmdur í lífstíð-
arfangelsi. Dómnum var áfrýjað til
hæstaréttar, enda margt talið stang-
ast á. Gat það virkilega verið að
Pacciani bæri einn ábyrgð á öllum
þessum morðum?
Vanni og Lotti
Í janúar 1996 beindist grunur svo
einnig að Mario Vanni, póstburðar-
manni í San Casciano. Vanni og
Pacciani voru að sögn þess fyrr-
nefnda kunningjar og snæddu oft
saman. Hann var handtekinn mán-
uði áður en Pacciani var látinn laus,
en til hans hafði sést á barnum þar
sem Pia Rontini, eitt fórnarlamb-
anna, vann, daginn áður en hún var
myrt.
Hinn 20. maí 1997 voru Vanni og
Giancarlo Lotti, vinur Vannis og
Paccianis, síðan ákærðir fyrir að
bera ábyrgð á morðum fimm hinna
átta para og 24. mars 1998 var Vanni
dæmdur í lífstíðarfangelsi en Lotti
til 30 ára fangelsisvistar. Í réttar-
höldunum var m.a. stuðst við vitn-
isburð vændiskonu nokkurrar, en fé-
lagarnir þrír höfðu allir nýtt sér
þjónustu hennar, og sagði hún sam-
töl þeirra hafa skýrlega bent til að
þeir tengdust morðunum.
Lotti lést úr lifrarkrabba um
páskana 2002.
Hinn 22. febrúar 1998 fannst
Pacciani síðan látinn á heimili sínu
og virtist dánarorsök vera hjarta-
áfall. Lögfræðingur Paccianis er þó
á öðru máli og telur skjólstæðing
sinn hafa verið myrtan. Þeir hafi hist
tveimur dögum fyrir andlát Paccian-
is sem hafi þá verið við góða heilsu.
Pacciani hafi þá enn fremur látið þau
orð falla að hann ætlaði að greina frá
vissum atriðum. Orðrómur hefur
síðan verið á kreiki um að degi síðar
hafi ókunnug kona heimsótt Pacci-
ani og á hún að hafa eitrað fyrir hon-
um. Lyf fundust þá á heimili Pacci-
anis sem hann var ekki vanur að
taka og eftir andlát hans kom í ljós
að eigur hans voru að andvirði 900
milljóna líra, um 45 milljónir ís-
lenskra króna. Hvernig gat smá-
bóndi eignast slíka fjármuni?
Pacciani og vinir hans eiga hins
vegar að hafa tekið þátt í djöfla-
messum á San Casciano-svæðinu.
Getur verið að honum hafi verið
borgað svo ríkulega fyrir að fremja
morðin eða að þegja yfir einhverju
sem að hann hafði séð eða jafnvel
heyrt?
Francesco Narducci
Einn anginn á málinu til viðbótar
tengist svo lækninum Francesco
Narducci sem fannst 9. október
1985, þá 38 ára gamall, látinn í Trasi-
meno-vatninu í nágrenni Perugia.
Meint dánarorsök var sjálfsmorð, en
raddir voru engu að síður uppi um að
Narducci hefði vitað of mikið um
morðin. Fer nú fram rannsókn á
hvort Narducci hafi verið myrtur.
Orðrómur var einnig uppi um að
líkið hefði verið af öðrum manni og
var það m.a. tíu sentimetrum lægra
en Narducci. Einnig hefur þótt ein-
kennilegt að dánarvottorð Narducc-
is gefur 13. október en ekki þann ní-
unda sem dánardægur hans. Líkið
sem fannst í vatninu var þá aldrei
krufið á sínum tíma, Narducci var
hins vegar krufinn í júní 2002 og
reyndist dánarorsök þá vera af völd-
um kyrkingar, auk þess sem lyfja-
leifar fundust í líkinu. Enn í dag er
fjölskylda Narduccis ekki viss um
hvort um slys eða sjálfsmorð hafi
verið að ræða.
En hvaða sambönd hafði Nard-
ucci, sem var frá Perugia, í Toskana?
Hann var í sambandi við fyrirtæki í
San Casciano, auk þess að hafa átt
að hafa verið með læknastofu við
hlið apóteksins, læknastofu sem
hann leigði af þáverandi apótekara,
Francesco Calamandrei. Narducci á
þá að hafa stundað djöflamessur í
Toskana og kann þannig að hafa
þekkt Pacciani. Messurnar eiga að
hafa verið haldnar í villu í nágrenni
San Casciano og á Narducci að hafa
haft hin afskornu kynfæri kvenkyns
fórnarlambanna í fórum sínum.
Francesco Calamandrei
Í janúar 2004 var Francesco Cal-
amandrei, apótekseigandinn fyrr-
verandi, svo handtekinn, grunaður
um aðild að morðunum. Þar með
hófst þriðja rannsóknin á morðun-
um.
Húsleit hafði áður verið gerð hjá
honum 1998, en það var ekki fyrr en
eftir 13 tíma húsleit nú í janúar að
hann var ákærður grunaður um að
hafa staðið að baki þeim morðum
sem þeir Pacciani, Vanni og Lotti
eiga að hafa framið.
Fyrrverandi eiginkona Cala-
mandrei, sem nú er á geðveikrahæli,
ásakaði hann fyrir nokkrum árum
um að vera fjöldamorðinginn. Hann
neitar hins vegar að þekkja nokkra
sem morðunum tengjast utan Mario
Vanni, sem bar út póstinn hans.
Hann hafi einungis leigt út lækna-
stofurnar við hliðina á apótekinu
sínu. Auk Calamandrei eru þrír aðr-
ir grunaðir um aðild að morðunum í
þessari þriðju rannsókn.
Áhyggjur yfirvalda í San Casciano
Yfirvöld í San Casciano eru mjög
óánægð með að bærinn sé nú aftur í
umræðunni vegna morðanna. Árið
1996 var blásið til auglýsingaher-
ferðar til að auka ferðamanna-
straum í San Casciano, en þá komu
um 4.000 manns þangað á ári. 2003
hafði sú tala hækkað upp í 100.000
ferðamenn. Óttast bæjaryfirvöld að
ímynd bæjarins eigi eftir að bera
skaða af ef engar sannanir finnast
um aðild fjórmenninganna sem nú
tengjast rannsókninni.
Faðir Piu Rontini
Hin danskættaða Pia Rontini var
myrt 29. júlí 1984. Móðir Piu er
dönsk og fylgdist fjölskyldan með
öllum réttarhöldum í morðmálunum,
auk þess að eyða aleigunni í lög-
fræðikostnað. Þegar íbúð Rontini-
hjónanna var sett á nauðungarupp-
boð kom lögreglan þeim til hjálpar
og studdi þau fjárhagslega mánaðar-
lega eftir það. Rontini, faðir Piu,
fékk hjartaáfall fyrir nokkrum árum
og lést skammt frá aðalstöðvum lög-
reglunnar í Flórens, þangað sem
hann hafði verið að sækja fjárhags-
aðstoð. Einn lögregluþjónninn sagði
við hann sama dag: „Gefðu þig aldr-
ei.“
Kvikmyndir tengdar morðunum
Morðmálin hafa tvisvar verið hluti
af efni í kvikmynd. Thomas Harris,
handritshöfundur Hannibal, fylgdist
með réttarhöldunum gegn Pietro
Pacciani fyrir 7 árum og talið er að
hann hafi rætt við Pacciani. Hluti
myndarinnar Hannibal var þá tek-
inn í Flórens, en þar er samnefnd
sögupersóna og fjöldamorðingi lát-
inn leita hælis á bókasafni. Einnig
fylgdist Dario Argento, ítalskur
handritahöfundur og hryllings-
myndaleikstjóri með áðurnefndum
réttarhöldum og hefur sagst vera að
hugleiða að gera kvikmynd um
fjöldamorðingjann í Flórens. Haft
hefur verið eftir Argento að hann
hafi hitt Harris í Róm fyrir 7 árum
og sagt við hann að hann teldi að
Pacciani ekki hafa verið einn að
verki. Að þessu á Harris að hafa
hlegið og sagt: „Þið Ítalir hafið alltaf
þörf fyrir að einhverjir fleiri séu að
baki morðum.“ Enn í dag segist Arg-
ento hræddur um að hann hafi á
réttu að standa. Að lokum má svo
nefna að Roberto Benigni notaði
fjöldamorðingjann í Flórens sem
hugmynd að aðalhlutverki myndar-
innar „Jonny Stecchino“ sem sýnd
var í Regnboganum á sínum tíma.
Fjöldamorðin í nágrenni Flórens
Dularfull og ofbeldisfull morð voru framin í
Flórens á Ítalíu á árunum 1968–1985, sem jafnvel
hafa verið talin tengjast djöfladýrkun. Morðin
hafa aldrei verið fyllilega skýrð en ítalska lög-
reglan telur sig nú hafa nýjar vísbendingar í
málinu. Bergljót Leifsdóttir rifjar upp málsatvik.
Mario Vanni fékk
lífstíðardóm.
Giancarlo Lotti fékk
30 ára dóm.
Morðin
1. morðið var framið miðvikudaginn 21. ágúst 1968.
2. morðið var framið laugardaginn 14. september 1974.
3. morðið var framið laugardaginn 6. júní 1981.
4. morðið var framið fimmtudaginn 22. október 1981.
5. morðið var framið laugardaginn 19. júní 1982.
6. morðið var framið laugardaginn 9. september 1983.
7. morðið var framið laugardaginn 29. júlí 1984.
8. og síðasta morðið var framið laugardaginn 9. september 1985.
Lögregla á vett-
vangi eftir að
skrímslið í Flór-
ens hefur látið til
skarar skríða.
Bóndinn Pietro Pacciani í réttarsalnum árið 1994.
Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Höfundur er fréttaritari
Morgunblaðsins á Ítalíu.
Pasquale
Gentilcore,
eitt fórnar-
lambanna.