Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 35 SPÆNSKI listamaðurinn Antonio Hervás Amezcua er staddur hér á landi í tilefni af opnun myndlist- arsýningar hans á Kjarvalsstöðum – en hún er liður í barselónskri menningarhelgi sem stendur 20. til 22. febrúar. Antonio er sérfræðingur í múr- og veggmyndagerð, auk þess að hafa sérhæft sig í málaralist og freskugerð. Á síðustu árum hefur gætt áhrifa frá Íslandi í verkum hans, þar sem hann gæðir íslensk mótíf suðrænum litum og setur þau í súrrealískan búning. Tengsl Antonios við Ísland eiga sér nokkuð sérstæða sögu. Hann kom hingað til lands vegna draums sem hann dreymdi aftur og aftur: Hann var staddur í landi þar sem reykur steig upp af jörð- inni. Antonio gerði sér enga grein fyrir því hvaða land þetta gæti verið – en hann dreymdi sífellt sama landslagið. „Ég fór að teikna og mála þetta landslag og fólk fór að spyrja mig hvort ég hefði komið til Íslands, því þetta væri landslag þaðan. Ég hafði aldrei komið til Íslands og vissi nánast ekkert um landið,“ segir Antonio. Ekki dugðu þó draumarnir til þess að hann legðist í víking norð- ur í átt að íshafinu, heldur hélt hann sínu striki og sýndi í heima- landi sínu, Bandaríkjunum, Bras- ilíu, Lúxemborg, Þýskalandi, Finn- landi og Ísrael. Bíltúr sem endaði á Íslandi Það var eftir sýninguna í síðast- nefnda landinu, árið 1992, sem hann ákvað að fara til Íslands. „Það var svo heitt í Ísreal og það var svo mikill hiti í menningunni þar,“ segir hann, „að ég ákvað að fara til lands sem hefði þveröfug skilyrði. Það næsta sem ég gerði var að fara til ræðismanns Íslands í Barselóna til þess að fá uplýsingar og hingað kom ég árið 1993 til þess að ferðast um landið. Ég dvaldi meðal annars um tíma á Akureyri, þar sem ég fékk hús- næði til að vinna og kynntist fjöl- mörgum listamönnum þar.“ Næsta ferð Antonios til Íslands var stuttu seinna þegar Hafn- arfjarðarbær bauð honum að dvelja í listamannaíbúðinni í Straumi um nokkurra mánaða skeið til að vinna og í kjölfarið hélt hann sýningu í Portinu í Hafnarfirði. Þegar svo Sigurður Gísli Pálma- son tók við stöðu aðalræðismanns Spánar á Íslandi bauð hann Anton- io að koma með stóra og glæsilega sýningu til landsins. Hún var hald- in í Listhúsinu í Laugardal. En hvað rekur hann til Íslands núna? „Ég kynntist tveimur konum, Guðrúnu Tulinius og móður henn- ar, þegar þær dvöldu í Barselóna um tíma. Einn daginn bauð ég þeim í bíltúr og hafði ákveðinn áfangastað í huga til að sýna þeim, en tilviljun réð því að við enduðum hjá vini mínum, ljóðskáldinu Carl- es Duarte I Montserrat. Hann hafði verið að gefa út ljóðabók og ég sagði við Guðrúnu að hún yrði bara að þýða hana. Og það gerði hún. Bókin kemur hér út í tilefni af barselónsku helginni. Í henni eru ljóðin á fjórum tungumálum, katalónsku, íslensku, spænsku og frönsku, og ég myndskreyti hana.“ Vil upplifa eitthvað sem ég hef ekki upplifað áður „Hverju ljóði fylgir tilvitnun og þú ræður hvort þú lest tilvitnunina eða ekki – en ef þú gerir það fær ljóðið aðra merkingu. Það er hægt að túlka listaverk frá ýmsum sjón- arhornum. Sýningin mín á Kjar- valsstöðum er hengd upp á sama hátt. Við myndirnar hafa ljóðin verið sett upp og það má segja að þarna sé verið að sýna samruna tveggja listforma, myndlistar og ljóðlistar.“ Fyrir nokkrum árum stofnaði Antonio listamiðstöðina Fundacion í Gava í Barselóna. Meiningin er að hún verði eins konar sam- skiptamiðstöð íslenskra og spænskra listamanna og er nú unnið í því að fá Ríkharð Valt- ingojer þangað til þess að kenna stáltintu, nýja tækni sem hann hef- ur verið að þróa. „Ég vil gjarnan koma á sambandi við íslenska listamenn til þess að fá þá til Barselóna til að vinna um tíma,“ segir hann og ólíklegt að það verði miklum vandkvæðum bund- ið. En, svona í lokin, hvert er þema sýningarinnar? „Þema sýningarinnar er það sama og ljóðabókarinnar: Þögnin – túlkun frá ýmsum sjón- arhornum. Ég kom ekkert nálægt því sjálfur að hengja upp sýn- inguna og skipti mér ekkert af því hvernig það er gert. Ég er hins vegar mjög hrifinn af þeirri leið sem hefur verið valin, að hengja upp myndirnar og ljóðin saman.“ Hvers vegna vildirðu ekki skipta þér af því? „Ég kom hingað til að upplifa eitthvað sem ég hef aldrei upp- lifað áður – og ef það er eitthvað sem ég hef ekki upplifað áður, þá er það samruni tveggja list- greina.“ Dreymdi Ísland ítrekað og málaði það Antonio Hervás Amezcua, listamaður frá Spáni, sýnir verk sín á Kjarvalsstöðum þessa dagana. Súsanna Svavars- dóttir ræddi við hann um tengsl hans við Ísland og samruna myndlistar og ljóðlistar á sýningunni á Kjarvalsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.