Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 42
SKOÐUN
42 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Framnesvegur 44 - nýjar 2ja herbergja íbúðir
Opið hús í dag
sími
530 6500
Bogi Pétursson
löggiltur fasteignasali
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Vorum að fá í sölu tvær sérlega glæsilegar „nýjar“ 2ja
herbergja íbúðir. Íbúðirnar eru 74 fm og 61 fm að stærð.
Allt er nýtt í íbúðunum t.d. vandað parket og innrétting-
ar. Glæsilegt flísalagt baðherbergi o.fl. Íbúðirnar geta
verið til afhendingar fljótlega.
Opið hús í dag frá kl. 15-17.
Nánari upplýsingar og myndir á www.Heimili.is
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Öll eignin við Álftamýri 1-3 er til leigu, samtals ca 1.600 fm.
706 fm á tveimur hæðum, innréttað sem aðgerða- og læknastofur.
264 fm á annarri hæð, innréttað fyrir sjúkraþjálfun og skrifstofur.
602 fm verslun og lager innréttað sem apótek.
Mögulegt að leigja í smærri einingum
ÁLFTAMÝRI/TIL LEIGU
Mjög góð staðsetning. Mjög góð aðkoma.
Næg bílastæði. Hagstæð leiga.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson,
sölustjóri atvinnuhúsnæðis.
magnus@valholl.is sími 588 4477 gsm 822 8242
Vegna aukinnar eftirspurnar vantar okkur á söluskrá allar
stærðir og gerðir atvinnuhúsnæðis
Höfum einnig kaupendur að atvinnuhúsnæði
með góðum langtímaleigusamningum
á verðbilinu 30-300 milljónir og 500-1.000 milljónir.
Um er að ræða trausta og örugga kaupendur.
Er með mjög traustann kaupanda að atvinnuhúsnæði á
verðbilinu 500-600 milljónir. Mjög öruggar greiðslur.
Verður að vera langtímaleigusamningur.
EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS
Við hjá Valhöll leggjum áherslu á góða þjónustu,
heiðarleika og vönduð vinnubrögð.
ATVINNUHÚSNÆÐI
TIL SÖLU EÐA LEIGU
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir
Magnús Gunnarsson,
s. 588 4477 eða 822 8242.
Laugavegur - 148 fm
skrifst. Nýtt á skrá til sölu/leigu
skrifstofur á 4. hæð í lyftuh. Móttaka, 3
rúmg. skrifst. auk fundarh. Vandaðar og
góðar innrétt. Mjög góð nýting. Aðgang-
ur að eldh. og salerni í sameign. Hentar
undir starfs. lögmanna, endurskoðenda.
Verðtilboð.
Grensásvegur - 340 fm
skrifst. - nýtt á skrá Til
sölu/leigu nýinnréttaðar glæsilegar skrif-
st. á 3. hæð, 360 fm. Góð bílastæði.
Hentar fyrir lögm., endursk., tannl.,
verkfr. o.fl. Lækkað verð 23,9 millj.
Klettháls - nýbygging
Stálgrindarhús, 1.650 fm, allt að 7,5 m
lofthæð. Fullbúið að utan. Mögul. að
skipta húsinu upp í smærri einingar ca
250-300 fm. Verður fullb. í maí-júní. Úti-
pláss er mjög gott og verður allt malbik-
að. Verðtilboð. Uppl. á skrifst. Magnús.
Snyrti- og/eða nuddstofa
Eiðistorgi
Glæsilega nýinnréttuð snyrti- og/eða nuddstofa til leigu við Eið-
istorg á Seltjarnarnesi. Fullbúin tækjum og húsgögnum.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Í SKÝRSLU Ríkisendurskoðunar
frá í nóvember 2003 (1) um samein-
ingu sjúkrahúsanna í Reykjavík er
því haldið fram að afköst á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi (LSH)
séu mun minni en á
breskum sjúkrahúsum.
Þetta hafa ýmsir
stjórnmálamenn, og
jafnvel starfsmenn í
stjórnkerfi LSH, grip-
ið á lofti og notað til
réttlætingar á þeim
samdráttaraðgerðum
sem nú standa yfir.
Ekki er þó allt sem
sýnist í skýrslu Rík-
isendurskoðunar. Al-
varlegast er að stofn-
unin vanreiknar
stórlega fjölda „með-
ferða“ sem starfsmenn
sjúkrahússins veita og ofreiknar
jafnframt fjölda starfsmanna sem
tilgreindum meðferðum sinna. Þar
að auki er áherslan næsta lítil á það
sem betur er gert á LSH en á
bresku sjúkrahúsunum. Í þessari
grein verður gerð tilraun til að svara
þessari þungu ásökun á hendur
starfsmönnum LSH.
Samanburðarsjúkrahúsin
Niðurstöður Ríkisendurskoðunar
byggjast á upplýsingum sem fengn-
ar hafa verið frá bresku ríkisend-
urskoðuninni (National Audit Of-
fice) og frá ráðgjafarfyrirtæki
(CHKS) sem selur ýmsum breskum
sjúkrahúsum þjónustu sína. Margs
konar upplýsingar um bresk sjúkra-
hús og ýmsa afkastamælikvarða
þeirra má einnig finna á ítarlegum
vefsíðum breska heilbrigðisráðu-
neytisins (2).
Til samanburðar um afköst og
gæði voru valin átta háskólasjúkra-
hús utan London. Til samanburðar
um skilvirkni og kostnað vegna
starfsfólks voru til viðbótar valin níu
háskólasjúkrahús í London og tólf
bráðasjúkrahús utan London. Ekki
kemur fram hvers vegna nauðsyn-
legt þótti að hafa samanburðarhóp-
inn um afköst og gæði annan en
samanburðarhópinn um skilvirkni
og kostnað. Rétt er hins vegar að
benda strax á að afköst starfsmanna
LSH og gæði meðferðar reynast síst
verri en umræddra háskólasjúkra-
húsa utan London, þegar grannt er
skoðað.
Hvað er Landspítalinn?
Landspítali – háskólasjúkrahús er
allt í senn: bráðasjúkrahús fyrir
Reykjavík (fyrsta móttökustöð),
svæðissjúkrahús fyrir Suður- og
Vesturland (tilvísunarstöð erfiðari
tilfella) og hátæknisjúkrahús fyrir
landið allt (endastöð flóknustu til-
fella), auk þess að vera kennslu- og
vísindastofnun (háskólasjúkrahús)
heilbrigðisgreinanna í Háskóla Ís-
lands og Tækniháskóla Íslands.
Loks sinnir LSH umtalsverðri geð-
heilbrigðis- og öldrunarþjónustu.
Það er því ekki auðvelt að finna al-
veg sambærilegar
stofnanir í öðrum lönd-
um. Hugsanlegt er þó
að háskólasjúkrahúsin
utan London hafi hlut-
verk sem komast nærri
hinum ýmsu hlut-
verkum LSH. Fram
kemur þó í skýrslu
Ríkisendurskoðunar að
þessi sjúkrahús sinni
ekki geðheilbrigðis-,
öldrunar- og end-
urhæfingarþjónustu „í
eins ríkum mæli og
LSH“. Á LSH er ein-
mitt um helmingur
legurúma (51%) notaður fyrir þessa
þjónustu (3), en sú staðreynd gerir
sanngjarnan samanburð við ensku
sjúkrahúsin afar erfiðan. Stóru há-
skólasjúkrahúsin í London eru án
efa enn sérhæfðari en LSH og
bráðasjúkrahúsin utan London ann-
ars eðlis en LSH.
Afköst sjúkrahúss
Ríkisendurskoðun gerir tilraun til
að nota svonefndar „meðferðir“ sem
mælikvarða á afköst LSH. Til þess-
ara meðferða telur stofnunin þó ein-
ungis legur og dagdeildarkomur.
Slíkt er mikil einföldun því að þjón-
ustu sjúkrahúss við sjúklinga til-
heyrir fjöldi verka sem með réttu
má telja „meðferðir“, og eru unnin í
tengslum við komur sjúklinga á
göngudeildir og á slysa- og bráða-
móttökudeildir. Ef vandlega á að
skoða þarf að halda til haga, með
góðu skráningarkerfi, öllum þeim
fjölmörgu verkum sem starfsmenn
sjúkrahúsanna framkvæma í þjón-
ustunni við sjúklinga, hvort sem þau
heita meðferð, umönnun, aðgerð,
rannsókn, viðtal, vitjun, þjálfun eða
ráðgjöf.
Mælikvarðar afkasta
Grófustu mælikvarðarnir á afköst
sjúkrahúsa eru gjarnan birtir í árs-
skýrslum þeirra (3). Þá er talinn
heildarfjöldi legutímabila sjúklinga
á legudeildum (svonefndar legur),
heildarfjöldi daga á dagdeildum
(dagdeildarkomur) og fjöldi heim-
sókna (komur) á göngudeildir og
slysa- og bráðadeildir. Margar
deildir nota að auki sértæka mæli-
kvarða á eigin afköst: fjölda og teg-
undir skurðaðgerða, fjölda greining-
araðgerða, fjölda blóðrannsókna,
röntgenrannsókna, þjálfunarmeð-
ferða og sérfræðiráðgjafa, bráðleika
veikinda og hjúkrunarþyngd, svo
nokkur dæmi séu nefnd.
Samanburður sem felst einungis í
upptalningu á grófustu mælikvörð-
unum getur átt rétt á sér þegar
stofnanir eru algerlega sambæri-
legar eða þegar samanburðurinn
þarf ekki að vera mjög nákvæmur.
Hann tekur hins vegar ekki tillit til
mismunandi eðlis starfseminnar á
ólíkum deildum og stofnunum. Sjúk-
lingar með ólíka sjúkdóma og mis-
alvarleg veikindi fá að sjálfsögðu
meðferð með mjög ólíku umfangi.
Meðallengd legu á brjósthols- og
hjartaskurðlækningadeild LSH er
til dæmis tíu dagar, en meðallega á
háls-, nef- og eyrnadeild er 2,2 dagar
(3). Það væri mjög einhliða fram-
setning að telja afköst starfsmanna
á síðarnefndu deildinni fjórföld á við
afköstin á þeirri fyrri.
Hvað er meðferð?
Nauðsynlegt er að ítreka að ofan-
greindar „meðferðir“ eru ekki jafn-
gildar. Ein lega, sem getur falist í
margra sólarhringa umönnun sjúk-
lings á legudeild sjúkrahúss með
hjúkrun, lyfjameðferð, rannsóknum,
sjúkraþjálfun og skurðaðgerðum, er
ekki jafngild dagdeildarkomu, sem
getur falist í dvöl sjúklings og með-
ferð á deild daglangt eða hluta úr
degi, og alls ekki jafngild svonefndri
göngudeildarkomu, sem felst í
stuttri heimsókn einstaklings til eft-
irlits eða skammtímameðferðar á
göngudeild.
Vægi meðferða
Til að gera slíkar „meðferðir“ jafn-
gildar þarf að gefa þeim vægi, til
dæmis þannig að hver sjúkra-
húslega fái vægi sem byggist á
dagafjölda meðallegu, hver dag-
deildarkoma fái vægi sem byggist á
klukkustundafjölda meðaldvalar á
þeirri deild og hver göngudeild-
arkoma á þeim meðalmínútufjölda
sem heimsókn og meðferð taka þar.
Þegar legur og komur hafa verið
margfaldaðar með réttu vægi er
loks réttmætt að leggja þessar ólíku
„meðferðir“ saman í einfalda heild-
artölu. Ríkisendurskoðun leggur
saman legur og dagdeildarkomur,
án þess að gefa þeim mismunandi
vægi, eins og um jafngildar „með-
ferðir“ sé að ræða. Þar að auki telur
Afköst starfsmanna
LSH eru í góðu lagi!
Eftir Jóhann Heiðar
Jóhannsson ’Niðurstaðan hlýtur aðverða sú að afköst
starfsmanna LSH séu í
góðu lagi þegar þau eru
borin saman við afköst
starfsmanna á háskóla-
sjúkrahúsum utan
London.‘
Jóhann Heiðar
Jóhannsson