Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 47
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 47
MARGT hefur verið talað og rit-
að um kvótakerfið síðan það var
tekið upp, í íslenskum sjávarútvegi,
og sýnist sitt hverjum. Við getum
gengið út frá því, að þeir sem, á
sínum tíma fengu úthlutað leyfi til
þess að nýta auðlind
þjóðarinnar eins og
þeir nánast vildu,
eru þessu kerfi mjög
hlynntir og segja
það það besta sem
völ er á, bæði til
þess að vernda fiski-
stofnana og að auka
hagkvæmni í rekstri
útgerðar. En aftur á
móti þeir sem ekki
njóta þeirra forrétt-
inda að fá úthlutað á
hverju ári nokkrum
tugum milljóna, af
sameiginlegri eign þjóðarinnar (skv.
2. gr. stjórnarskrárinnar), hafa aðra
skoðun og sýn til framkvæmdarinn-
ar á kvótakerfinu.
Menn geta gefið sér; að ekki
verði hróflað við kvótakerfinu. Til
þess eru hagsmunasamtökin allt of
sterk og virðast, því miður, hafa
það sterk ítök og ekkert bendir til
að þar verði breyting á.
Nú er svo komið að þessi þjóð-
areign, sem er fiskurinn í sjónum,
er komin í hendurnar á örfáum
stórum aðilum og það er nánast
ógerlegt fyrir nýja aðila að komast
inn í útvegsgeirann.
Útgerðaraðilar sem hafa fengið
úthlutað veiðiheimildum (án endur-
gjalds) að virði margra tuga millj-
óna, hafa leigt þennan sama kvóta
og sent skip sín til veiða á fjarlæg
mið og þannig fjármagnað smíði á
nýjum og afkastamiklum skipum.
Aðrir hafa byggt upp stórútgerð-
arveldi og ber í því sambandi að
nefna að kvótaúthlutunin átti
stærstan þátt í uppbyggingunni, en
dæmi um þetta verður tekið síðar.
Að margra áliti stöndum við á
tímamótum. En á þessum tímamót-
um verðum við að staldra við og
ákveða hvernig lífskjörin í þessu
landi eiga að vera. Á að verða hér
forréttindastétt, sem verður leyft að
athafna sig (næstum því að eigin
vild), í auðlegð þjóðarinnar, eða ætl-
um við að koma upp réttlátara fisk-
veiðistjórnunarkerfi og þá um leið
að gera mönnum mögulegt að horf-
ast í augu við næsta mann og geta
sagt: Ég hef komist áfram á eigin
forsendum og ágætum en ekki af
því að ég fæddist inn í vissan for-
réttindahóp. En þannig er veruleik-
inn í dag.
Kvótakerfið og það sem það
hefur gert
Margir hafa velt fyrir sér hvert sé
hið raunverulega markmið kvóta-
kerfisins og hvort það þjóni í raun
og veru hagsmunum allrar þjóð-
arinnar eða hvort sé verið að þjóna
hagsmunum örfárra aðila. Hér á
eftir verða talin upp helstu mark-
mið þessa umdeilda kerfis:
Upphaflegt markmið kvótakerf-
isins var að sjálfsögðu að vernda
fiskistofnana við landið og bæta
sóknarstjórnunina.
Kvótakerfið átti að vernda byggð
í landinu, þannig að smærri
byggðarlög yrðu ekki
afskipt. Kvótakerfið
átti með öðrum orðum
að verða eitt verkfæra
hinnar svokölluðu
byggðastefnu.
Kvótakerfið átti að
auka mikið afrakstur
fiskimiðanna, allur afli
átti að koma að landi
og menn áttu að auka
sóknina í verðmætari
og vannýttar fiskteg-
undir. Með því að
stýra sókninni átti að
verða hagkvæmara að
vinna aflann, það átti að auka út-
flutningsverðmæti aflans og mikil
hagkvæmni átti að nást við
vinnslu hans.
En hver varð raunin? Náðist að
uppfylla þær væntingar, sem voru
gerðar til fiskveiðistjórnunarinnar
og hver varð svo fórnarkostnaður-
inn?
Að hluta til verður að viðurkenn-
ast að það hefur tekist að vernda
fiskistofnana gegn ofveiði (þótt ekki
séu fiskifræðingar sammála um
það), því tekist hefur að mestu leyti
að koma í veg fyrir ofveiði á helstu
fiskistofnum landsins. Þá er ekki
beinlínis hægt að segja að kvóta-
kerfið sjálft hafi brugðist, heldur er
það útfærslan á því sem hefur verið
hvað alvarlegust og meðal annars
orðið til þess að heilu byggðarlögin
eru að leggjast í auðn.
En hefur tekist að bæta sókn-
arstjórnunina og nýtingu aflans? Að
hluta til hefur sóknarstjórnunin
verið bætt, en á öllum málum eru
tvær hliðar. Sem dæmi má nefna
skip sem á lítinn kvóta eftir af einni
fiskitegund, þar er reynt að forðast
þau fiskimið, þar sem eru líkur á að
sú fiskitegund haldi sig, en ef þann-
ig vill til að umrædd tegund slæðist
með í veiðarfærin er þessari fisk-
tegund bara hent í hafið aftur til
þess að hún komi ekki til frádráttar
þeim litla kvóta sem eftir er. Und-
irritaður var mörg ár til sjós og
aldrei upplifði ég það að aðeins ein
fisktegund kæmi í trollið eða þá að
fiskurinn bærist eftir fyrirfram
gerðri pöntun. Það er á margra vit-
orði að vegna þess hvernig verðlag-
ið er á fiski, koma netaveiðibátar
aðeins með fisk að landi, sem er lif-
andi þegar hann kemur inn fyrir
borðstokkinn, að öðrum kosti er
hann of verðlítill. Það verður að ná
hámarksverði fyrir hvert kíló af
kvótanum og þar af leiðandi er
dauðum fiski bara hent aftur í sjó-
inn. Hvernig sem á því stendur þá
er ekki lengur landað tveggja nátta
fiski.
Hefur kvótakerfið orðið til þess
að þjappa saman byggð í landinu og
vernda þau þau byggðarlög, sem
hafa staðið höllum fæti gagnvart
stærri byggðarlögum?
Ekki er nokkur vafi á því að
kvótinn hefur beint og óbeint orðið
til þess að margar byggðir þessa
lands eru að leggjast í auðn og aðr-
ar að stækka og eflast eins og t.d
Akureyri. En þar á bæ (Akureyri)
hafa t.d Samherjamenn verið mjög
duglegir að kaupa upp kvóta á
minni stöðum og flutt hann eftir
hæfilegan tíma, til Akureyrar. Þar
með er það byggðarlag, sem kvót-
inn var keyptur frá, skilið eftir í
sárum, þannig að fólkið sem þar
býr hefur engin úrræði önnur en að
fara frá verðlausum eignum sínum
og byrja lífið frá grunni, á stöðum
sem enn hafa kvóta, t.d Akureyri.
Fyrst er verið að skrifa um Sam-
herja er ekki úr vegi að rifja aðeins
upp hvert var upphafið að því stór-
veldi. Eins og kunnugt er, þá
keyptu þeir frændur, Þorsteinn
Már Baldvinsson, Þorsteinn Vil-
helmsson og Kristján Vilhelmsson,
skuttogarann Guðstein GK, sem
hafði verið lagt í höfninni í Hafn-
arfirði. Þessum skuttogara breyttu
þeir síðan í Slippstöðinni á Ak-
ureyri í frystitogara. Þegar þessum
breytingum var að verða lokið var
kvótkerfinu skellt á. Þorsteinn Vil-
helmsson, einn Samherjamannanna,
hafði áður en þetta ævintýri hófst
verið mjög fengsæll skipstjóri hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa. Á
þeirri forsendu fóru þeir frændur
fram á þann kvóta sem fylgdi skip-
inu, sem Þorsteinn Vilhelmsson
hafði verið skipstjóri á og vissulega
átt þátt í að afla þessu skipi. Regl-
urnar varðandi úthlutun kvóta voru
þannig að veiðireynsla síðustu
þriggja ára var höfð til grundvallar
við útreikning kvótans fyrir árið, en
færi skipstjóri til annarrar útgerðar
var heimild til þess að kvótinn af
fyrra skipi fylgdi honum yfir á
næsta skip. Gengið var að þessu en
ekki veit ég hvort Útgerðarfélagi
Akureyringa var bættur kvótamiss-
irinn. Í dag er Samherji hf. eitt-
hvert stærsta og öflugasta útgerð-
arfyrirtæki landsins. Ekki er hægt
að segja að framganga þeirra
frænda stafi eingöngu af úthlutun
aflaheimilda, því þeir hafa rekið fyr-
irtæki sitt mjög vel. En það skemm-
ir ekki fyrir að utanaðkomandi að-
stæður hafa verið þeim afskaplega
hagstæðar, svo ekki sé nú fastar að
orði kveðið. Einnig er það umhugs-
unarefni hvernig einn þeirra frænda
gat gengið út úr fyrirtækinu með
þrjá milljarða eftir innan við tuttugu
ára veru í fyrirtækinu. Góð ávöxtun
það.
Annan útgerðarmann veit ég um
sem fékk úthlutað nokkuð stórum
„kvóta“ af rækju. Þessi úthlutun
kom sem himnasending fyrir hann
því hann var að láta smíða fyrir sig
stórt og fullkomið skip. Í stað þess
að láta skipið sitt veiða úthlutaðan
„kvóta“ var skipið sent til veiða á
Flæmska hattinn og kvótinn leigður
út, til þess að fjármagna smíðina á
nýja skipinu. Sjálfsagt eru dæmin
um svona ráðstöfun á úthlutuðum
veiðiheimildum mörg, að gera svona
er örugglega fullkomlega löglegt, en
okkur, sauðsvörtum almúganum,
þykir þetta siðlaust.
En hefur sóknin í verðmætari teg-
undir aukist?
Svarið við þessari spurningu er
JÁ, en ekki tel ég að hægt sé að
þakka það kvótakerfinu, heldur hafa
aðstæður breyst. Sérstaklega hafa
orðið miklar breytingar á flutninga-
tækninni, en þessi framþróun hefur
fært alla markaði nær okkur, þannig
að við höfum getað gefið meiri gaum
að sjávarfangi, sem selst fyrir hátt
verð á erlendum mörkuðum, t.d er
Asíumarkaður alltaf að stækka.
Leiðir til úrbóta
En er þá kvótakerfið alvont og er þá
ekkert annað með það að gera en að
kasta því og veðja á eitthvað annað
fiskveiðistjórnunarkerfi? Ekki tel ég
að svo sé og sú skoðun mín hefur
komið fram áður að kvótakerfið sem
slíkt hafi ekki brugðist heldur fram-
kvæmdin á því. Ég hef engan hitt
sem ekki er á því að við þurfum á
sóknarstýringu að halda.
Hér á eftir fara hugmyndir mínar
um hvernig eigi að nýta fiskinn í
sjónum til hagsbóta fyrir þegna
þessa lands og þá meina ég alla
þegna þessa lands, ekki suma.
Fyrst og fremst tel ég að deila
eigi kvótanum á milli byggðarlaga.
Segjum sem svo að Þorlákshöfn
væri úthlutað 5000 tonna þorsk-
kvóta. Í Þorlákshöfn landaði síðan
bátur 20 tonnum af þorski, þessi 20
tonn myndu dragast frá heild-
arþorskkvóta Þorlákshafnar, þannig
að þar væru eftir 4980 tonn af
þorski. En nú á útgerð þessa báts
eftir að greiða fyrir að veiða þessi 20
tonn af þorski og væri gjaldið eitt-
hvert hlutfall af aflaverðmætinu, t.d
10%. Nú kunna ýmsir að reka upp
ramakvein, en ég minni á það að það
þurfa allar greinar iðnaðar að greiða
gjald fyrir það hráefni sem er notað
og því skyldi ekki útgerð gera það
líka? Þessi tekjustofn yrði síðan not-
aður til þess að fjármagna hafrann-
sóknir, veiðieftirlit og landhelg-
isgæslu.
Með ráðstöfun af þessu tagi væri
komið í veg fyrir að kvóti safnist til
örfárra aðila og einnig myndi byggð
lítið sem ekkert raskast en gæti
styrkst aftur. Með því að nota þessa
aðferð við veiðistjórnunina væri
komið í veg fyrir svokallað kvóta-
brask og fiskvinnslan í landi gæti
sérhæft vinnslu sína.
Í þessari grein minni hef ég reynt
að draga fram helstu kosti og galla
kvótakerfisins eins og það er í dag.
Ekki tókst mér nú að finna marga
kosti við það en ekki var erfitt að
koma auga á gallana.
Það er ekki hægt að gera tæm-
andi úttekt á fiskveiðikerfinu okkar í
einni grein en ég vona að mér hafi
tekist að koma skoðunum mínum
þokkalega á framfæri.
Jóhann Elíasson skrifar um
fiskveiðistefnuna ’Fyrst og fremst tel égað deila eigi kvótanum á
milli byggðarlaga.‘
Jóhann Elíasson
Höfundur er fyrrverandi stýrimaður.
Fiskveiðistefnan – fiskveiðistjórn-
unartæki eða hagsmunaverndun?
Heimilisfang: VAÐLASEL
Stærð eignar: 229 fm
Stærð bílskúrs: 40 fm
Byggingarár: 1977
Brunabótamat: 29 millj.
Verð: 28,9 millj.
Sérlega falleg sérhæð í tvíbýlishúsi
á góðum stað í Seljahverfi. Hæðin
hefur öll verið endurnýjuð á mjög
smekklegan hátt. Gólfefni eru
Jaddish-náttúruflísar og iberero-
stafaparket. Stórar stofur með arni
og útgangi á svalir. Mikið útsýni.
Eldhúsið er opið inn í stofu með
fallegri sérsmíðaðri innréttingu og
gaseldavél. Fimm rúmgóð herb.
Stórt baðherb. Tvöfaldur bílskúr.
SÉRHÆÐ M. BÍLSKÚR - 109 RVÍK
Hrafnhildur Bridde - s. 899 1806
Netfang: hrafnhildur@remax.is
Fasteignasala: RE/MAX Suðurlandsbraut
Ingólfur G. Gissurarson, lögg.
fast., s. 588 4477 - valholl.is -
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Undirrituðum hefur verið falið að leita eftir góðu 250-400 fm einbýlishúsi
eða lóð á Seltjarnarnesi. Einnig kæmi til greina að skoða aðra góða staði á
stór- Reykjavíkursvæðinu. Má kosta allt að 50-55 millj. Hafið samband við
Bráð Tryggvason í síma 896 5221 eða sendið tölvupóst í bardur@val-
holl.is.
Einbýlishús eða lóð
á Seltjarnarnesi
Glæsilegt 274 fm einbýlishús á 2 hæðum
ásamt 100 fm kjallararými. Á 1. hæð er
möguleiki á aukaíbúð. Mjög fallegur garður
teiknaður af landslagsarkitekt, timburverönd
með heitum potti og stórt steypt bílaplan.
Aðalhæð skiptist í stóra stofu, borðstofu,
eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasalerni og 5 svefnherbergi, en á neðri
hæð eru m.a. tvö stór unglingaherbergi, baðherbergi og billjardherbergi. Húsið
hefur verið mikið endurnýjað á sl. ári. Verð 37,0 millj.
Húsið er til sýnis í dag á milli kl. 14.00 og 16.00
Allar nánari upplýsingar gefur Einar Páll Kjærnested í síma 899 5159
Þverholti 2 • 270 Mosfellsbæ • Sími 586 8080 • Fax 586 8081• www.fastmos.is
OPIÐ HÚS - BUGÐUTANGI 11 - MOSFELLSBÆ
Einar Páll Kjærnested,
löggiltur fasteignasali