Morgunblaðið - 22.02.2004, Qupperneq 62
FRÉTTIR
62 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/662 0984
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ mánud. 16. feb. Spilað
var á tíu borðum. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Geir Guðmundss. – Ægir Ferdinandss. 253
Olíver Kristóf. – Sæmundur Björnsson 252
Jón Lárusson – Magnús Oddsson 230
Árangur A-V:
Björn E. Pétursson – Gísli Hafliðason 268
Eysteinn Einarss. – Kári Sigurjónss. 264
Jón Karlsson – Sigurður Karlsson 240
Tvímenningskeppni spiluð fimm-
tud. 19. feb. Spilað var á átta borð-
um. Meðalskor 168 stig.
Árangur N-S:
Hannes Ingibergss. – Sigurður Pálsson 196
Jón Karlsson – Sigurður Karlsson 192
Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímss. 188
Árangur A-V:
Eysteinn Einarss. – Kári Sigurjónss. 202
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 201
Jón Lárusson – Magnús Oddsson 196
Bridsfélag Dalvíkur
og Ólafsfjarðar
Hinn 9. febrúar lauk hjá BDÓ
þriggja kvölda Húsasmiðju-tví-
menningi. Húsasmiðjan gaf verðlaun
fyrir þrjú efstu sætin. Átta pör tóku
þátt í mótinu og var miðlungur 252
stig. Úrslit urðu eftirfarandi:
Þorsteinn Ásgeirss. – Guðm. Sigurbj. 310
Kristján Þorsteinss. – Hákon Sigm. 290
Jón A. Jónsson – Eiríkur Helgason 256
Ingvar Jóhannss. – Guðm. S. Jónss. 250
Hinn 16. febrúar hófst svo aðaltví-
menningur félagsins með þátttöku
12 para.
Staðan eftir 1 kvöld er þessi:
Hákon Sigmundss. – Kristján Þorst. 211
Eiríkur Helgason – Jón A. Jónsson 194
Gunnar Jónsson – Árni Steingrímsson 182
Guðmundur S. Jónss. – Ingvar Jóh. 177
Magnús G. Gunnarss. – Gústaf Þórar. 174
Bridsfélag
yngri spilara
Aðeins fjögur pör mættu til leiks á
spilakvöldi Bridsfélags byrjenda
miðvikudaginn 18. febrúar. Spilaður
var 24 spila sveitakeppnisleikur milli
sveita Indu Hrannar Björnsdóttur
og Sigrúnar Sveinbjörnsdóttur.
Leikurinn var í járnum lengst af, en
svo fór að Inda Hrönn hafði betur 88-
69. Í sveit Indu auk hennar voru
Anna Guðlaug Nielsen, Kári Hreins-
son og Ísak Sigurðsson. Næsta spila-
kvöld mæta vonandi nægilega marg-
ir til þess að spila tvímenning.
Miðvikudaginn 3. mars verður
spilaður Stórfiskaleikur. Þá mæta
spilameistarar úr röðum félaga hjá
BR og spila við yngri spilara í tví-
menningskeppni. Yngri spilarar geta
mætt án meðspilara og fengið úthlut-
að meistara úr röðum BR-manna,
eða komið með ákveðinn makker.
Fyrir áramótin var einnig spilaður
stórfiskaleikur sem mæltist mjög vel
fyrir hjá yngri spilurunum sem
fengu þar tækifæri til þess að þjálfa
sig meða lengra komnum spilara.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á tólf borðum
fimmtudaginn 19. febrúar. Meðal-
skor 220. Beztum árangri náðu:
NS
Sigtryggur Ellertsson – Oddur Jónss. 256
Hlaðgerður Snæbj. – Halldóra Thor. 235
Guðjón Ottóss. – Guðmundur Guðv. 230
Guðrún Gestsd. – Guðmundur Árnas. 226
AV
Guðlaugur Árnas. – Jón Páll Ingib. 265
Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 240
Leifur Jóhannesson – Ólafur A. Jónss. 236
Stefán Ólafss. – Sigurjón H Sigurjónss. 235
Spilað mánu- og fimmtudaga.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK spilaði tvímenn-
ing á 15 borðum mánudaginn 17.
febrúar. Miðlungur 264. Efst vóru:
NS
Guðmundur Magnúss. – Kristinn Guðm. 327
Stefán Friðbjarnars. – Sigurþór Halld. 297
Guðmundur Guðv. – Guðjón Ottóss. 281
Jóhann Ólafsson – Sigurpáll Árnason 278
AV
Dóra Friðleifsdóttir – Jón Stefánsson 352
Lilja Kristjánsd. – Oddur Jónsson 304
Jón Páll Ingibergss. – Guðlaugur Árnas. 289
Róbert Sigm. – Sigtryggur Ellertss. 289
Spilað alla mánu- og fimmtudaga.
Mæting kl. 12.45 á hádegi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar hf.
og KB banki hf. hafa undirritað 4,2
milljarða króna lánssamning. Um
er að ræða endurfjármögnun á öll-
um lánum Flugstöðvarinnar hjá ís-
lenska ríkinu, en þau eru um 2⁄3 af
langtímalánum stöðvarinnar. Láns-
samningurinn er til 15 ára.
Flugstöðin hefur unnið að endur-
fjármögnun lánanna um nokkurt
skeið með aðstoð frá Ráðgjöf og
Efnahagsspá hf. Langtímalán Flug-
stöðvarinnar hafa lækkað um 1,8
milljarða síðastliðin ár. Í lok árs
2001 voru þau um 8,7 milljarðar
króna, en verða komin niður í um
6,9 milljarða króna í ár.
Árið 2002 voru um 2 milljarðar
króna endurfjármagnaðir með
lánssamningi við Norræna fjárfest-
ingabankann og árið 2003 var 1,1
milljarður króna af lánum félagsins
greiddur niður. Með þessum nýja
lánssamningi er endurfjármögnun
félagsins lokið.
Vegna mikillar fjölgunar farþega
sem fara um Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar mun stöðin verða stækkuð og
skipulagi breytt innandyra á næstu
tveimur árum. Framkvæmdirnar
verða í tveimur áföngum og eru
þær þegar hafnar. Fyrri áfanga
lýkur áður en sumarannir hefjast.
Undirrita 4,2 milljarða króna lánssamning
Á myndinn eru sitjandi frá vinstri: Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Flugstöðvarinnar, Gísli Guðmunds-
son, stjórnarformaður Flugstöðvarinnar, Sólon R. Sigurðsson, forstjóri KB banka og Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri KB banka. Standandi frá vinstri: Stefán Þórarinsson, varaformaður stjórnar Flugstöðvarinnar, Elín Árna-
dóttir, fjármálastjóri Flugstöðvarinnar, Bjarki H. Diego, framkvæmdastjóri hjá KB banka, Þórður Jónsson,
viðskiptastjóri hjá KB banka og Róbert B. Agnarsson, viðskiptastjóri hjá KB banka.
Þurrlendisvistfræði Svalbarða og
annarra heimskautasvæða
Fræðsluerindi HÍN verður haldið á
morgun, mánudaginn 23. febrúar, kl.
17 í Náttúrufræðihúsi Háskólans, í
stofu 132. Ingibjörg Svala Jónsdóttir
plöntuvistfræðingur flytur erindi um
þurrlendisvistfræði Svalbarða og
annarra heimskautasvæða.
Ingibjörg Svala mun fjalla almennt
um einkenni þurrlendis heim-
skautasvæðanna og þess breytileika
í loftslagi, plöntu- og dýralífi sem
þar er að finna. Þá mun hún víkja að
vistfræðilegri sérstöðu eyjaklasans
Svalbarða meðal heimskautasvæða.
Fræðslufundur Stómasamtak-
anna verður á morgun, mánudaginn
23. febrúar, kl. 20 í Skógahlíð 8, 4.
hæð. Ásgeir Theódórs meltingar-
sjúkdómalæknir heldur erindi um
ristilkrabbamein hjá Íslendingum
og Geirþrúður Pálsdóttir hjúkr-
unarfræðingur kynnir nýjungar frá
Coloplast o.fl. Bollukaffi verður að
erindum loknum.
Á MORGUN
Málstofa um farandverkakonur
Mannréttindaskrifstofa Íslands og
UNIFEM á Íslandi halda málstofu
um farandverkakonur í Norræna
húsinu fimmtudaginn 26. febrúar kl.
12.05–13.
Í málstofunni verður reynt að varpa
ljósi á stöðu farandverkakvenna hér á
landi og hvort og þá á hvern hátt hún
er frábrugðin stöðu farandverka-
kvenna annarsstaðar. Erindi flytja
Hjálmfríður Þórðardóttir hjá Efl-
ingu-
stéttarfélagi og Lilja Hjartardóttir
frá UNIFEM. Þátttakendur í pall-
borði verða Anh–Dao Tran, formaður
Samtaka kvenna af erlendum upp-
runa, og Friðbjörg Ingimarsdóttir,
kennsluráðgjafi um nýbúakennslu
hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.
Inngangur að skjalastjórnun Nám-
skeið Skipulags og skjala ehf. „Inn-
gangur að skjalastjórnun“ verður
haldið fimmtudaginn 17. og föstudag-
inn 18. mars. n.k. kl. 9–13 báða dag-
ana og er öllum opið. Farið verður í
grunnhugtök skjalastjórnunar; lífs-
hlaup skjals, virk skjöl, óvirk skjöl,
skjalaáætlun og skjalalykil, hvernig
leysa má skjalavanda íslenskra
vinnustaða, fjallað um íslensk lög er
varða skjalastjórnun o.fl. Léttur há-
degismatur ásamt kaffi er innifalið í
námskeiðsgjaldi. Kennari er Sigmar
Þormar M.A. Námskeiðsgjald er
kr.25.000.
Námskeiðsskráning og upplýsingar:
skipulag@vortex.is
Aðalfundur Umhyggju – félag til
stuðnings langveikum börnum verð-
ur haldinn fimmtudaginn 26. febrúar
kl. 20 að Laugavegi 7, 3. hæð. Venju-
lega aðalfundarstörf og kynning á
Sjónarhóli. Veitingar verða í boði í
lok fundarins.
Á NÆSTUNNI
ÓUMBEÐINN póstur, sem berst
inn á heimili landsins, vegur alls
rúmlega 5.300 tonn á ári. Myndi
allur sá pappír nægja til að byggja
20 sentimetra breiða brú frá jörð-
inni til tunglsins, eða 363.000 kíló-
metra leið. Ef allur óumbeðinn
póstur færi í endurvinnslu mætti
spara 4.800 tonn af koltvísýringi á
ári, sem jafngildir útblæstri frá
1.200 fólksbílum.
Í fréttatilkynningu frá Sorpu
segir að gera megi ráð fyrir að
óumbeðinn pappír og dagblöð í
áskrift vegi um 100 kg að með-
altali á hvert heimili. Berist allur
þessi pappír til endurvinnslu, næg-
ir hann til framleiðslu á 45 millj-
ónum klósettrúlla, sem gerir 155
rúllur á mann á ári. Í fyrra söfn-
uðust 5.128 tonn af dagblöðum,
tímaritum og auglýsingapósti á
suðvesturhorni landsins og á
Norðurlandi 386 tonn. Pappírinn
var sendur frá Sorpu til Svíþjóðar
í endurvinnslu þar sem fyrirtækið
Eden nýtir hann m.a. til fram-
leiðslu á klósettrúllum og eldhús-
þurrkum.
Réttlætismál að útgefendur
greiði úrvinnslugjald
Í tilkynningunni segir að gera
megi ráð fyrir að kostnaður sveit-
arfélaga vegna óumbeðins pappírs
sé ekki undir 90 milljónum króna á
ári. Þegar dagblöð í áskrift, tíma-
rit og annar prentpappír er talinn
með má ætla að kostnaðurinn fari
yfir 200 milljónir króna. „Það er
töluvert réttlætismál að útgefend-
ur óumbeðins pappírs greiði fyrir
endurvinnslu eða eyðingu pappírs
og það væri vel framkvæmanlegt
með álagningu úrvinnslugjalds,
líkt og þegar hefur verið lagt á
fernur,“ segir í tilkynningunni. Er
einnig bent á að fólk geti fengið
límmiða hjá Íslandspósti þar sem á
stendur „engan fjölpóst takk“ og
er hægt að líma við bréfalúgu eða
póstkassa.
5.300 tonn af óumbeðn-
um pósti á heimilin á ári