Morgunblaðið - 22.02.2004, Qupperneq 64
64 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Risaeðlugrín
Svínið mitt
HLUSTAÐUR Á HLJÓÐIÐ SEM
KÖRTUKARLINN GEFUR FRÁ SÉR ÞEGAR
HANN ER Í MAKALEIT.
ÞETTA ER EINS OG FALLEGT ÁSTARLJÓÐ,
SÁLMUR FRJÓSEMINNAR,
LOFSÖNGUR BARÁTTULÍFSINS...
ELSKAN MÍN ÉG HELD AÐ
BARNIÐ ÞURFI AÐ FÁ
EITTHVAÐ AÐ BORÐA
© DARGAUD
© DARGAUD
HLUSTAÐU
BARA...
KVENNDÝRIÐ
ER KOMIÐ
Ó ÞÚ HÉR?!...
ÉG BJÓST EKKI
VIÐ ÞVÍ AÐ HITTA
ÞIG HÉRNA
ELSKU
GUNNA MÍN!
ÉG VISSI AÐ
ÞÚ MYNDIR
KOMA HINGAÐ
JÚ ÞAÐ ER
EITTHVAÐ SVO
RÓMANTÍSKT OG
UNAÐSLEGT Í
LOFTINU AÐ ÉG...
FALLEGUR
DAGUR
FINNST
ÞÉR EKKI?
ÞVÍLÍKUR
DÓNI!!
SKRAMBINN!
ÉG VERÐ AÐ HÆTTA
AÐ BORÐA HVÍTLAUK.
ÉG FÆ ALLTAF Í
MAGAN AF HONUM.
HVAÐ
ER AÐ
RÚNAR?
ERTU
HÆTTUR Í
LEIKNUM?
VILTU VERA
EITTHVAÐ ANNAÐ
EN SMÁBARN?
HVERNIG
KOMUMST VIÐ
AÐ ÞVÍ HVAÐ
HANN VILL
VERA?
SÝNDU OKKUR
HVAÐ ÞÚ VILT LEIKA
RÚNAR!
JÁ
FRÁBÆRT!
HANN VILL
VERA
PABBINN!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚ ÞEGAR örfáir dagar eru þar til
starfsfólk heimahjúkrunar hættir
vegna samningsrofa stjórnar heima-
hjúkrunar, ber hún sínu skilnings-
vana höfði við steininn. Heilbrigðis-
ráðherra virðist
utangátta í mál-
inu. Hann sér
ekki þá gjá sem
þessi vandræða-
stjórn er búin að
mynda milli hans
og starfsliðs og
skjólstæðinga
þeirra.
Stjórn heima-
hjúkrunar, aðeins þrjár manneskjur,
hefur tekist að verða eyðileggingar-
afl í heilbrigðiskerfinu. Hvað eftir
annað fær hún, í skjóli Framsókn-
arflokksins, að setja heimahjúkrun-
arferlið á annan endann. Stjórnin er
með breytingaáráttu og sýndar-
mennskan með ólíkindum. Fyrir
hverjum hún er að sýnast veit sjálf-
sagt enginn og síst hún sjálf og fram-
leiðslan því endalaus vandræði.
Skynsemi og rök eiga ekki upp á
borðið hjá þessari ótrúlega neikvæðu
stjórn og samstarfsörðugleikar við
alla um allt, því skiljanlegir. Ætli
Reykvíkingar viti að stjórn þessi læt-
ur starfslið og skjólstæðinga vera í
stöðugri óvissu um sína hagi? Aldrei
vinnufriður né vissa um eitt eða neitt.
Sífelldar kostnaðarsamar breyting-
ar, breytinganna vegna og líðan
starfsfólks og skjólstæðinga látin
lönd og leið. Mikilvægi mannlega
þáttarins er ofar skilningi stjórnar-
innar og leggur hún áherslu á að
hann skipti engu. Stjórnin er að
hrekja vant fólk úr störfum og eyði-
leggur starfsanda og reynir að etja
starfsfólki móti hvert öðru. Ef farið
er ofan í störf stjórnarinnar sést
skaðinn sem hún veldur. Milli 50–60
bílar, sem stjórnin hugðist neyða
starfsfólkið til að sætta sig við í stað
eigin bíla, verðfalla í portum. Allt
sem stjórnin leggur til við starfskon-
ur heimahjúkrunar er af hinu verra
fyrir þær og skjólstæðingana. Hún
sér aldrei neitt gott hjá þessum frá-
bæru konum. Sífelldur undirróður,
ófriður og kauplækkunarkröfur þeim
til handa eru stjórnarinnar ær og
kýr. Heimahjúkrunarkonurnar eru
allt of góðar til að eiga skilið óhæfa
tillagnailla og glámskyggna stjórn.
Hvaða afl er svo sterkt að það þoli að
vera svo heimskt að geta fórnað tug-
um frábærra starfskvenna fyrir
þriggja manneskna vanhæfa stjórn?
Stjórn sem gerir ferlið dýrara og
ómannúðlegra. Framsóknarráðherr-
anum sem setur þessa stjórn til höf-
uðs konunum í heimahjúkrun getur
ekki verið sjálfrátt. Það er ekki á
allra færi að vera svona glámskyggn
og ranglátur. Ef hann legði það á sig
að hugsa málið, þá ræki hann stjórn-
ina, en það er, ef að líkum lætur, til of
mikils mælst.
Það er mikið í húfi fyrir aldraða,
sjúka og aðstandendur þeirra að í
heimahjúkrun sé gott fólk. Vita
Reykvíkingar að þessar konur eru á
fullu allan sólarhringinn? Allar næt-
ur eru þær á þeytingi um borgina í
hvaða veðri og ófærð sem er til að
hátta ósjálfbjarga fólk í rúm og sinna
margvíslegum þörfum þess. Á vökt-
unum er svo neyðarútköll sem þær
verða að sinna. Það sér hver heilvita
maður, að þessar konur eru ómiss-
andi, öndvert við stjórnina. Örugg-
lega mundu starfskonur og skjól-
stæðingar telja starfshreinsun ef
skipt væri alveg um í stjórn heima-
hjúkrunar. Reykvíkingar, komum í
veg fyrir að ráðuneyti Framsóknar-
flokksins rústi heimahjúkrunarstarf-
ið.
ALBERT JENSEN,
Sléttuvegi 3,
104 Reykjavík.
Stjórn heimahjúkr-
unar í stríði við sjúk-
linga og starfsfólk
Frá Albert Jensen:
Albert Jensen
ÞAÐ er eflaust æði breytilegt hvaða
lesefni hver og einn velur sér og
kann að vera að áróður ráði þar
helst til mikið för. En hvað sem um
það er langar mig að fara nokkrum
orðum um bók Erlu Stefánsdóttur,
píanóleikara og sjáanda, „Lífssýn
mín“. Ég hef á langri ævi reynt að
kynna mér og fylgjast með flórunni í
bókmenntum um andleg mál, og ég
verð að segja það, að þessi bók Erlu
finnst mér ein hin besta í þeim efn-
um. Það er stórfenglegur og undra-
verður heimur sem opnast manni í
þessari bók. Áður hef ég ekki
skyggnst um fegurri og ævintýra-
legri heima, þótt ég hafi gert mér
far um það, að sjá nokkru lengra
nefi mínu. Það hlýtur hver fagurkeri
og myndlistarmaður að hrífast af
allri þeirri fegurð sem hún dregur
upp af þessum dásamlega heimi,
sem er allflestum hulinn. Boðskap-
urinn sem hún flytur okkur, vitandi
og óafvitandi, er líka ferskur og
hreinn, já, hágöfugur og ofar allri
þröngsýni og kreddum. Í hennar
hugarheimi er allt þrungið af lífi og
ljósi og jarðlífið stórkostlegur
reynsluskóli. Þeir sem eru leitandi
og hvarflandi í efasemdum myndu
eflaust hafa gott af að lesa þessa
bók. Og þeir sem vilja skyggnast
eitthvað um og horfa forvitnum
huga á lífið og tilveruna hitta eflaust
þarna fyrir eitt og annað, sem glæð-
ir athyglina og gefur lífinu gildi. Mér
skilst að von sé á fleiri bókum frá
þessum ágæta höfundi. Við skulum
hlakka til þess og vona að svo megi
verða. Ég óska Erlu innilega til
hamingju með þessa ágætu bók.
GUNNÞÓR GUÐMUNDSSON,
Spítalastíg 3,
Hvammstanga.
Lífssýn mín eftir
Erlu Stefánsdóttur
Frá Gunnþóri Guðmundssyni: