Morgunblaðið - 22.02.2004, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 67
DAGBÓK
Hef flutt lækningastofu mína
í Augnlæknastöðina, Kringlunni 4-12, Reykjavík.
Tímapantanir alla virka daga frá kl. 8:30-16:30
í síma 570 0905.
Ingimundur Gíslason,
sérgrein: augnlækningar og augnskurðlækningar.
Hann?
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir,
fjölskylduráðgjafi
Skemmtilegt námskeið fyrir konur á öllum
aldri af öllum stærðum og gerðum verður
haldið í Brautarholti 4a,
laugardaginn 6. mars frá kl. 13-17.
Efni námskeiðsins er m.a:
Eigi vil ek hornkerling vera
BE- ástandið
„Þóknast þér“ skeiðið
Seinkunartæknin
Hverjir voru heimsmeistarar
í sektarkennd 2003
Skráning í símum 588 2092 og 862 7916
Stuttir fyrirlestrar með léttu ívafi og meðlæti
Námskeið 1: „Persónuleikinn og tjáskipti“. Námskeiðið
byggir á grunnþáttum NLP og fjallar meðal annars um það
hvernig við upplifum heiminn á mismunandi hátt og hvern-
ig við getum bætt samskipti okkar enn frekar.
11.-14. mars kl. 9.00-17.00 (32 tímar).
Námskeið 2: „Persónuleikinn, hvatning og markmið“
Námskeiðið er framhald af námskeiði 1. Það færir þér
innsýn í verðgildi og sannfæringar – og sýnir þér hvernig þú getur nýtt þér
þinn innri styrk ennþá betur til að ná markmiðum þínum.
Þeir sem áður hafa tekið Praktitioner-nám fá helmingsafslátt á þessi námskeið.
Hægt er að taka þessi námskeið sem sjálfstæða einingu eða sem hluta Prac-
titioner-náms (samt. 120 tímar). Seinni hluti þess náms verður vor/sumar 2004.
Innra ferðalag: Námskeið fyrir alla sem vilja leita inn á við og auka enn frekar
skilning á viðbrögðum sínum. Á þessu námskeiði er hægt að uppgötva óvænta
þætti og nýjar hliðar í lífi þínu.
Námskeiðið er kvöldnámskeið og verður haldið 8.–10. mars nk.
Allar nánari upplýsingar gefur Guðrún Harðardóttir í síma 863 0800.
Kennari er Hrefna Birgitta B. Sekkesæter.
Kennari er Hrefna Birgitta
Bjarnadóttir NLP kennari/
meðhöndlari/þjálfari.
NLP-Practitioner-nám og námskeið
(Nevro Lingvistisk Programmering)
4.-7. mars kl. 9.00-17.00 (32 tímar)
Háaleitisbraut 11-13, 108 Reykjavík. www.joga.is
Námskeið í hugrækt og slökun
Fyrir þá sem vilja ná betri stjórn á streitu og álagi.
Viðhorf og lífsgæði, léttar steitulosandi æfingar,
öndunartækni, líkamsbeiting og mataræði
Námskeiðið hefst 26. febrúar kl. 19:30.
Skráning á joga@joga.is og í síma 544 2104
Jafnvægi og Vellíðan
h u g r æ k t o g s l ö k u n
Halldóra & Svala Rún
Flughræðslunámskeið
Undirritaður heldur í samvinnu við Flugfélag
Íslands námskeið til að takast á við flug-
hræðslu. Námskeiðið verður haldið laugar-
daginn 28. febrúar kl. 8:30 til 17 á Hótel Loft-
leiðum. Dagana á eftir fer ég með þátttakend-
ur í flug með Flugfélaginu.
Nánari upplýsingar og skráning í síma
849 6480.
Rúnar Guðbjartsson, sálfræðingur og fyrrver-
andi flugstjóri.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert skyldurækin/n og
hjálpleg/ur, laus við eigingirni
og gerir miklar kröfur til
sjálfrar/sjálfs þín. Þú þarft að
taka mikilvæga ákvörðun á
árinu. Veldu vel.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki athugasemdir for-
eldra þinna eða annarra í fjöl-
skyldunni slá þig út af laginu.
Reyndu að sætta þig við það að
fólk skilji ekki alltaf orkuna
þína.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt sennilega hafa minni-
háttar áhyggjur af einhverju í
dag. Reyndu að láta þær ekki
fara úr böndunum. Þú munt sjá
hlutina í öðru ljósi á morgun.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Einhver þér eldri mun senni-
lega gefa þér ráð varðandi fjár-
málin í dag. Þú getur hlustað án
þess að fara endilega eftir því
sem sagt er. Reyndu að sýna
öðrum virðingu á sama tíma og
þú ferð þínar eigin leiðir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér finnst athugasemdir eða
kröfur annarra hefta þig.
Reyndu að hugsa ekki of mikið
um þetta. Þetta eru smámunir
sem skipta litlu máli þegar frá
líður.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Áætlanir varðandi ferðalög og
framhaldsmenntun líta ekki
sem best út. Reyndu að halda í
bjartsýnina. Hlutirnir munu
líta betur út eftir nokkra daga.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú finnur til sterkrar vernd-
artilfinningar gagnvart ein-
hverjum eða einhverju í dag. Þú
vilt gæta eigna þinna og hags-
muna. Gerðu ekkert sem þú ert
ekki handviss um.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú reynir yfirleitt að gera fólki
til geðs en í dag er það allt að
því ómögulegt. Þannig að þú
getur eins gert það sem þér
sýnist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er vænlegast til árangurs
að gera hlutina á hefðbundinn
hátt í dag. Það borgar sig ekki
að vera of frumleg/ur í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ástarsamband þitt gengur eitt-
hvað stirðlega í dag og það ger-
ir þig óörugga/n og einmana.
Hafðu ekki of miklar áhyggjur.
Þetta mun líða hjá á næstu dög-
um.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér finnst þú ekki vera í nógu
góðum tengslum við annað fólk
í dag. Þetta á sérstaklega við
um þá sem eru yfirleitt nánir
þér. Reyndu að gera eitthvað
skemmtilegt upp á eigin spýtur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er mikil hætta á að nei-
kvæðni nái tökum á þér í dag.
Hreyfing og útivera geta hjálp-
að þér við að berjast gegn
þessu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er einhver varkárni í loft-
inu og því ertu óvenju fastheld-
in/n á peningana þína í dag.
Þetta mun ganga yfir á næstu
dögum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HÁR ÞITT
Einu sinni var hár þitt
net til þess að veiða í
augu mín.
Og ennþá geymir það
blóðbergsilminn
frá liðnum dögum.
Nú eru hendur þínar
hreiður fyrir
tvö dröfnótt egg,
hjörtu okkar brothætt
að vaka yfir
til langrar elli.
Jón úr Vör
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
BRÚÐKAUP. Hinn 30. des-
ember sl. voru gefin saman í
hjónaband í Lahore Pak-
istan af Gulam Hussain þau
Tassadaq Saleem (Bunty)
og Birna Kristjánsdóttir
(Mrs Bunty). Þau eru búsett
í Reykjavík.
40 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 22.
febrúar, verður fertug Anna
Sólrún Jóhannesdóttir
(Rúna), Starengi 118e. Í til-
efni dagsins gleðst hún með
ættingjum og vinum á
Grand hóteli milli kl. 15–17.
„FESTIÐ nú sætisbeltin,
krakkar mínir, því það er
ókyrrð í lofti framundan,“
skrifar Eric Kokish í móts-
blað NEC-hátíðarinnar og
niðurbældur hláturinn smit-
ar í gegnum orðin.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠Á10983
♥–
♦G98754
♣K5
Vestur Austur
♠42 ♠–
♥1097643 ♥ÁKDG852
♦K32 ♦Á
♣98 ♣Á10742
Suður
♠KDG765
♥–
♦D106
♣DG63
Spilið er frá 8 liða úrslit-
um og á öllum borðum fórn-
uðu NS í sex spaða yfir sex
hjörtum AV. Fórnin er góð,
þrátt fyrir „öfugar“ hættur,
því sex spaðar fara aðeins
tvo niður (500) en slemman
gefur 980. Á einu borði
reyndist „fórnin“ óvenju vel,
en það var í leik Englands og
Kanada:
Vestur Norður Austur Suður
Senior Silver Lambardi Carrut-
hers
– – 2 lauf * 2 spaðar
Pass 3 spaðar 4 hjörtu Pass
Pass 4 spaðar 5 hjörtu Pass
6 hjörtu 6 spaðar Pass Pass
Dobl Allir pass
Bretinn Brian Senior er
góður kunningi Kokish,
enda báðir mikilvirkir brids-
blaðamenn og vinsælir skýr-
endur á stórmótum. Þeir
hafa oft setið hlið við hlið við
hljóðnemann á al-
þjóðamótum og deilt í bróð-
erni um menn og málefni.
Senior er meinhæðinn og
hefur stundum beint bauna-
byssunni að Kokish. Svo það
er von að Kokish hafi notið
þess að skýra frá þettu spili.
Eru ólarnar vel festar?
Allt í lagi, þá skulum við
leggja í hann. Senior íhugaði
útspilið gegn sex spöðum vel
og lengi. Hann sá að útspil í
hjarta gat ekki gefið vörn-
inni neitt og var auk þess
hættulegt ef NS voru með
eyðu á báðum höndum. En
hvort átti hann að spila út
laufi eða tígli? Það gat verið
nauðsynlegt að spila öðrum
litnum í gegnum blindan og
til að halda „öllu opnu“ og
innkomunni þegar blindur
kæmi upp, þá valdi Senior
tígulkónginn!
En Senior fékk ekki að
eiga slaginn. Lambardi drap
þvingað á ásinn og honum
datt ekki í hug að leggja nið-
ur laufásinn næst og gefa
þannig frá sér hugsanlegan
viðbótarslag á lauf. Hann
spilaði sér því „hlutlaust“ út
á hjarta! Carruthers trúði
ekki sínum eigin augum.
Hann henti laufi heima og
trompaði í blindum. Og síðar
meir fóru hin þrjú laufin nið-
ur í frítígul. Tólf slagir, 1660
í NS og 19 IMPar til Kan-
adamanna.
Þetta spil gleymist ekki í
bráð.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þær kr. 2.725. Þær eru Dagný
Haraldsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Selma Ramdani.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Rf6 4. Bxc6 dxc6 5. d3 g6
6. h3 Bg7 7. Rc3 e5 8.
Rxe5 Rxe4 9. Rxe4 Bxe5
10. 0–0 c4 11. He1 Be6 12.
Bg5 Dd4 13. Df3 h6 14. c3
Dxd3 15. He3 Dc2 16.
Rf6+ Kd8
17. Bh4 g5
18. Hxe5
gxh4 19. Re4
Kc7 20. Df4
Kb6 21.
De3+ Kc7
22. Df4 Kb6
23. a4 a5 24.
De3+ Kc7
25. Df4 Kb6
Staðan
kom upp í
þýska meist-
aramótinu
sem lauk
fyrir
skömmu. Ro-
bert Rabiega
(2.527) hafði hvítt gegn
Gerhard Schebler (2.480).
26. Hb5+! cxb5 26. … Ka7
hefði einnig leitt til ósig-
urs eftir 27. Dc7 cxb5 28.
axb5 a4 29. Rc5. 27. Dd6+
Ka7 28. axb5 a4 29. Dc5+
Kb8 30. Dd6+ Ka7 31.
Dc5+ Kb8 32. b6 og svart-
ur gafst upp enda fokið í
flest skjól eftir 32. … Ha6
33. De5+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Ást og umhyggja
Barnavörur
www.chicco.com
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Hveitigraspressa
verð kr. 4.300
Hægt að nota sem
ávaxtapressu líka