Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 73
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 73
Lífrænt ræktaðar vörur
Kárastíg 1, 101 Reykjavík, sími 562 4082.
SÍÐUSTU Múlatónleikar voru í
Kaffileikhúsinu vorið 2002. Áður
hafði Múlinn verið víða til húsa á
Kaffi Reykjavík, Sóloni Íslandusi og
Jómfrúnni þar sem hann hóf göngu
sína undir forustu manna á borð við
Jón Kaldal, Tómas R. Einarsson,
Pétur Grétarsson og Ólaf Jónsson,
vel studdur af Jakobi smurbrauðs-
jómfrú og undir verndarvæng þess
er hann dró nafn af: Jóns Múla
Árnasonar.
Sem betur fer hefur djasslífið ís-
lenska ekki fallið í dróma þótt Múl-
inn gerði það um stund. Djasshátíð
Reykjavíkur hefur verið haldin ár-
lega, Jazzvakning staðið fyrir stöku
stórtónleikum, sumardjass verið á
Jómfrúartorginu og í vetur hafa
ýmsir staðir boðið uppá djass
óreglulega og Kaffi List reglulega
– meira að segja tvisvar í viku, á
fimmtudag- og laugardags-
kvöldum. Allt er þetta góðra gjalda
vert en Múlinn hefur samt mik-
ilvægu hlutverki að gegna. Því
sama og Ronnie Scott klúbburinn í
London og Copenhagen Jazz House
í Höfn svo dæmi séu nefnd. Hlut-
verk hans er að bjóða uppá alvöru
tónleika þar sem fólk kemur til þess
að hlusta og tónlistin er vel und-
irbúin og metnaðarfull. Á veitinga-
húsum er allteins gert ráð fyrir að
menn rekist inn af tilviljun, fái sér í
glas og tónlist í kaupbæti, sem einn-
ig er góðra gjalda vert.
Það er vel við hæfi að Múlinn
haldi tónleika sína í Gyllta sal Hótel
Borgar, en þar léku fyrstu íslensku
djassleikararnir í bland við breska
á árunum fyrir stríð. Þar er líka
flygill Múlans sem hann fékk í arf
eftir Heita pottinn í Duushúsi. Einn
örfárra nothæfra flygla í reykvísku
veitingahúsi.
Töfrasólóar og fjölstíla gáski
Fyrsta Múlakvöldið var haldið á
sunnudaginn þar sem lék Tríó Jóels
Pálssonar skipað þeim Jóel á tenór-
saxófón, Davíð Þór Jónssyni píanó,
Tómasi R. Einarssyni bassa og
Helga Svavari Helgasyni tromm-
um. Jóel og Tómas eru í hópi þeirr-
ar kynslóðar er ber hita og þunga
íslensks djasslífs og var við hæfi að
þeir höfðu í liði sínu fulltrúa þeirra
er erfa munu djasslandið: Davíð
Þór og Helga Svavar. Þarna bland-
aðist vel reynsla og þroski, æsku-
fjör og ævintýraþrá. Efnisskráin
var nær öll verk Jóels og Tómasar
er oft hafa heyrst áður; allt til Ís-
landsblúss þeirra TRE og Grunna-
víkur-Jóns. Það skipti engu máli því
tónlistin var ný sem aldrei fyrr og
töfrasólóar Jóels og fjölstíla gáski
Davíðs Þórs nutu sín vel við kraft-
mikinn hryn Tómasar og óvenju yf-
irvegaðan trommuleik Helga Svav-
ars. Það var greinilegt að
tónleikagestir nutu þessara tón-
leika og jafnvel mátti heyra þá
hlusta.
Klassískur bandarískur djass
Í kvöld, sunnudagskvöldið, býður
Múlinn í samvinnu við bandaríska
sendiráðið í Reykjavík uppá tón-
leika blökkusöngkonunnar Ericku
Ovette og gítarleikarans Paul
Pieper sem leika og syngja klass-
ískan djass, allt frá Bessie Smith til
Söru Vaughan.
Eru tónleikarnir liður í kynningu
á menningu bandarískra blökku-
manna er bandarísk sendiráð gang-
ast fyrir í febrúarmánuði. Aðgang-
ur er ókeypis.
Meðal annars sem væntanlegt er
á dagskrá Múlans er frumflutn-
ingur á svítu eftir Árna Ísleifsson:
Portrait of a Woman, Bíbopp hljóm-
sveit Óskars Guðjónssonar í anda
Paul Motian og ný tónlist eftir
Hauk Gröndal og Ólaf Jónsson er
þeir leika með Kjartani Valdimars-
syni, Morten Lundsby og Eric
Qvick.
Bandaríska djasssöngkonan Ericka Ovette
Bandaríska söngkonan Ericka Ovette syngur í Múlanum í kvöld.
Múlinn rís
úr djúpinu
Djassklúbburinn Múlinn er vaknaður til
lífsins eftir langan Þyrnirósarsvefn og er
til húsa á Hótel Borg á sunnudagskvöld-
um. Vernharður Linnet fylgdist með er
kvartett Jóels Pálssonar reið á vaðið.
syngur á Hótel Borg í kvöld