Morgunblaðið - 22.02.2004, Qupperneq 76
76 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
Frábær gamanmynd frá höfundi
Meet the Parents
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6, 8 OG 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.50, 3.50, 6, 8 og 10.10.
FRUMSÝNING
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
Sýnd kl. 4, 6 og 8.Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Mögnuð mynd með
Óskarsverðlaunahöfunum Ben
Kingsley og
Jennifer Connelly
Sýnd kl. 5.50. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8, 9.15 og 10.30.
Sýnd kl. 2.50 og 8.10.
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16.
Kvikmyndir.com
HJ MBL
„Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S.
Fréttablaðið
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Diane Keaton tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir leik sinn
í myndinni
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 3. ísl. tal.
Skjóni fer á fjall
Kynnir
Stórbrotin
ogmargverðlaunað
stórmynd með
Óskarsverðlaunahafanum,
Nicole Kidman, Golden
Globe og BAFTA
verðlaunahafanum Renée
Zellweger og Jude Law.
Kvikmyndir.com
JOSH Homme söngvari og for-
sprakki rokksveitarinnar Queens
of the Stone Age hefur borið til
baka sögusagnir um að sveitin
væri hætt í viðtali við nme.com.
Fóru sögusagnirnar af stað
eftir að bassaleikarinn Nick Oliv-
eri sagði skilið við sveitina með
látum í síðustu viku. Lýsti Oliveri
þá yfir að sveitin væri dauð enda
hefði hún frá upphafi verið barn
þeirra æskuvina, hans og
Homme. Á Homme að hafa verið
búinn að fá sig fullsaddan á
partístandinu á Oliveri þar til
sauð upp úr á milli þeirra.
Þótt hann viðurkenni að þetta
sé eitthvað það erfiðasta sem
hann hefur gengið í gegnum þá
fullyrðir Homme staðfastlega að
Drottningarnar muni lifa áfram
og muni hefja vinnu að fjórðu
plötu sinni með vorinu, Oliveri-
lausir.
Drottn-
ingin lifir!
Reuters
Hættur! Farinn! Nick Oliveri.
„ÞETTA var erfiður morgunn,“
sagði Andri Snær Magnason rithöf-
undur í stuttu viðtali á mbl.is fyrir
tveimur dögum eftir að frétt birtist
á fréttavef Morgunblaðsins, þess
efnis að bandaríska fyrirtækið Cel-
estis bjóði almenningi upp á að láta
skjóta ösku þeirri sem eftir verður
þegar líkamsleifar eru brenndar út
í geiminn. En nýlundan hjá fyrir-
tækinu er sú að með þessu getur
fólk pantað sitt eigið stjörnuhrap,
því askan brennur upp þegar hún
hrapar aftur til jarðar.
Andri Snær hafði semsagt nóg að
gera við að meðtaka og lesa mikinn
fjölda tölvuskeyta sem honum
barst í framhaldi fréttarinnar, en
þessi stjörnuhraps-bissness-aðferð
kemur allmikið við sögu í bók hans
LoveStar sem kom út 2002, en þar
heitir aðferðin LoveDeath.
Gömul hugmynd
En starfsmönnum á mbl.is barst
einnig fjöldi tölvuskeyta vegna
fyrrnefnds viðtals og þar var m.a
minnt á þá staðreynd að jarðnesk-
um leifum dr. Timothy nokkurs
Leary, var skotið út í geiminn árið
1996. Leary þessi var prófessor við
Harvard og einn helsti talsmaður
hippakynslóðarinnar. Eins var bent
á að fyrrnefnt fyrirtæki, Celestis,
hafi sent fyrstu sendinguna af
öskusýnum einstaklinga út í geim-
inn árið 1997.
Heila búka þarf
í stjörnuhrap
Andri Snær segist vel vita að
hugmyndir um að láta skjóta sér
dánum eða ösku sinni út í geiminn,
séu ekki nýjar af nálinni en að hug-
myndir hans um geimútfarir í bók-
inni LoveStar hafi verið töluvert
stórtækari en hjá bandaríska fyr-
irtækinu sem býður slík geimskot.
„Þeir ætla aðeins að senda 1 til 8
grömm af ösku út í geiminn á tákn-
rænan hátt, en ég hafði fallegra
stjörnuhrap í huga og það þarf heil-
an búk í það.“
Andri Snær benti þó á að í Love-
Star valdi geimútfarir heimsendi og
því sé þar um uggvænlega þróun að
ræða. „Ég ætlaði því kannski aldrei
að fara út í raunverulegan bissness
með þetta. Ég var þó alltaf með það
í huga að stofna fyrirtæki í kringum
þessa hugmynd, taka á móti fyrstu
pöntunum og komast í heimsfrétt-
irnar í því skyni að auglýsa bókina,“
sagði Andri Snær.
Þeir sem vilja kynna sér málin
betur um hugmyndir og staðreynd-
ir um útfarir í geimnum, geta skoð-
að neðangreindar slóðir á Netinu.
Saklaus frétt á mbl.is vekur mikil viðbrögð
Útfarir í geimnum
ekki nýjar af nálinni
Andri Snær Magnason rithöfundur.
www.twd.net/ird/for-
ecast/1956funeral.html
www.celestis.com
www.leary.com/LastTrip/
index.html
khk@mbl.is