Morgunblaðið - 27.02.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KB KAUPIR Í NOREGI
KB banki hefur keypt norska
verðbréfafyrirtækið A. Sundvall
ASA en tilgangurinn með kaupunum
er að efla starfsemi KB banka í Nor-
egi og komast í hóp leiðandi fjárfest-
ingarbanka á Norðurlöndunum. Eft-
ir kaupin á KB banki tvö
fjármálafyrirtæki í Noregi en fyrir
átti bankinn Kaupthing Norge A.S.
Eftirlaunaaldur hækki
Sagt er í nýrri skýrslu fyrir Efna-
hags- og framfarastofnunina,
OECD, að iðnríkin verði að grípa til
þess ráðs að hækka eftirlaunaaldur
til að fá fleiri aldraða út á vinnu-
markaðinn. Ekki dugi að hvetja fólk
til að vinna lengur með því að bjóða
því undanþágur frá tekjuskatti.
Fleiri í samfélagsþjónustu
Á síðustu árum hefur þeim ein-
staklingum sem veitt er leyfi til að
afplána refsingu með samfélags-
þjónustu fjölgað verulega. Í árslok
2001 voru þeir 26 en ári síðar þrefalt
fleiri eða 78. Alls hófu 738 ein-
staklingar samfélagsþjónustu á
árinu 2002 í stað óskilorðsbundinnar
refsingar eða vararefsingar fésekta.
Samtöl Annans hleruð?
Clare Short, fyrrverandi ráðherra
í stjórn Tony Blairs í Bretlandi, seg-
ist hafa séð leyniskýrslur um samtöl
Kofi Annans, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, er hún var
ráðherra. Talsmaður Annans sagði
að ef rétt reyndist væri um brot á al-
þjóðalögum að ræða.
Enginn samningafundur
Allt útlit er fyrir að 40 af liðlega 80
starfsmönnum Heimahjúkrunar
mæti ekki til vinnu eftir helgi en þá
taka uppsagnir þeirra gildi. Samn-
ingafundur sem vera átti í gær var
afboðaður og segja starfsmenn
stefna í neyðarástand í heima-
hjúkrun á höfuðborgarsvæðinu.
Wernersbörn með 8,4%
Systkinin Karl, Steingrímur og
Ingunn Wernersbörn hafa aukið
hlut sinn í Íslandsbanka úr 5,4% í
8,4% eftir kaup á 3% hlut í bank-
anum í gær og í fyrradag.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 35/40
Viðskipti 12/14 Staksteinar 46
Erlent 15/17 Bréf 44
Höfuðborgin 20 Skák 57
Akureyri 22 Dagbók 46/47
Suðurnes 23 Kirkjustarf 41
Landið 24 Leikhús 52
Listir 26/27 Fólk 52/57
Umræðan 28/34 Bíó 54/57
Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 58
Viðhorf 34 Veður 59
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Dagskrá vikunnar. Blaðinu er
dreift á landsbyggðinni.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Á SUNNUDAGINN
LÍTIL loðnuveiði var í gær og fyrri-
nótt en um 30 loðnuveiðiskip, ís-
lensk og færeysk, voru í gærkvöldi
á veiðisvæðinu suður af Hornafirði.
Erfitt er að eiga við loðnuna sem
er dreifð og ekki nógu mikill kraft-
ur í veiðinni að sögn Jóns Axels-
sonar, skipstjóra á Júpiter ÞH, sem
var á leiðinni á miðin eftir að hafa
landað fullfermi, eða 1.300 tonnum
á Þórshöfn.
Skipin fóru að kasta síðdegis í
gær og fram eftir kvöldi en fengu
lítið í hverju kasti. „Þetta er frekar
dreift. Það er ekki mikið af loðnu
hérna,“ sagði Þorsteinn Sím-
onarson, skipstjóri á Þorsteini EA, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, en hann var þá kominn með
um það bil 500 tonn.
Guðmundur Sveinbjörnsson,
skipstjóri á Ásgrími Halldórssyni
SF, sagði í gær að léleg veiði hefði
verið í fyrrinótt og flest skipin látið
reka. Hann sagði að mikið af loðnu
væri að sjá á þessu svæði, en þó
væri ekki kominn neinn alvöru-
kraftur í veiðarnar.
Á Hornafirði er verið að frysta
loðnu, bæði á Rússlands- og Jap-
ansmarkað. Loðnuaflinn frá ára-
mótum er nú kominn í um 200 þús-
und tonn.
Loðnuskipin suðaustur af Stokksnesi í fyrradag. Fremst er Vilhelm Þorsteinsson EA að draga nótina.
Treg veiði á loðnumiðunum
Gunnlaugur Guðmundsson í
viðtali Árna Þórarinssonar
Þrjár Maríur
Dagur í lífi flugfreyju
Hlutir sem skipta máli
Árshátíðartíska
Farðaðir karlmenn
Stjörnuspáin
Krossgátan
AÐGENGI nemenda að Verslunar-
skóla Íslands var þrengt í gær eftir
klukkan þrjú á daginn. Þurfa nem-
endur að ganga fram hjá vaktmanni
og gefa skýringar á ferðum sínum
sé þess óskað. Gripið var til þessa
ráðs eftir að vaktmaður stóð þjóf að
verki á þriðjudaginn var þar sem
hann reyndi að stela skjávarpa.
Þegar hann ætlaði að stöðva mann-
inn kom til átaka sem enduðu með
því að vaktmaðurinn rifbeinsbrotn-
aði.
Málið upplýstist í fyrradag og
skilaði þjófurinn öðrum skjávarpa,
sem hann hafði áður stolið úr Versl-
unarskólanum, í gær. Eftirlit í skól-
anum hefur verið aukið og hafa
margir skólar og stofnanir einnig
reynt að festa verðmætan búnað
tryggilegar. Það hefur þó ekki alltaf
dugað því þjófarnir eru búnir tólum
til að klippa eða skera á festingar.
Drengurinn sem reyndi að stela
skjávarpanum á þriðjudag var með
stóra klippitöng í fórum sínum.
Stolnar vörur á lágu verði
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, varar fólk
við að kaupa fartölvur, skjávarpa
eða flatskjái sem því býðst á óeðli-
lega lágu verði. Líklegt sé að um
stolna muni sé að ræða.
Mikið hefur borið á því undan-
farnar vikur að reynt sé að stela
þessum raftækjum úr fyrirtækjum,
stofnunum og skólum. Hörður segir
nýja muni eftirsóknarverðasta hjá
þjófunum og nú sé algengt að reynt
sé að stela flötum tölvuskjám. Ítrek-
að sé farið inn í sum fyrirtækin og
undanfarna daga hafi innbrot í skóla
verið algeng. Þetta sé þó ekki alltaf
framkvæmt í skjóli myrkurs því
sumir reyna að fela sig í skjóli
fjöldans og valsa um stofnanir og
fyrirtæki í leit að fjármunum til að
hafa á brott með sér. Mörg þessara
mála hafa hins vegar verið upplýst
fljótt.
Vaktmaðurinn stóð þjófinn að verki í skólanum
Aðgengi að Verslun-
arskólanum þrengt
ÁRNI Steinsson, vaktmaður í Versl-
unarskóla Íslands, kom að ungum
manni þar sem hann ætlaði að stela
skjávarpa úr skólanum á þriðjudag.
Var hann með töng til að losa tækið
frá festingunum. Árni segist hafa
staðið í dyrunum þar sem dreng-
urinn var inni og varnað honum út-
göngu. „Hann reyndi sitt ýtrasta til
að koma mér frá,“ segir Árni og
kom til átaka á milli þeirra. Það end-
aði með því að Árni féll á borð og rif-
beinsbrotnaði. Hann var fluttur með
sjúkrabíl á spítala til aðhlynningar
og greindist rifbeinsbrotinn. Lög-
reglan hafði síðan uppi á þjófinum
eftir hádegi í gær. Kom í ljós að sami
drengur hafði stolið öðrum skjá-
varpa áður úr skólanum.
Árni heldur að drengurinn hafi
ekki ætlað að meiða sig, honum hafi
frekar brugðið þegar hann var stað-
inn að verki. Ásetningur hans í að
stela skjávarpanum hafi hins vegar
verið einlægur enda búinn til þess.
Hafði stolið áð-
ur úr skólanum