Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Alltaf ód‡rast á netinuÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
22
35
0
10
/2
00
3
Nýr Netsmellur
Ódýrastir til Evrópu
Verð frá 14.490 kr.
FÉLAG íslenskra bókaútgefenda stendur um
þessar mundir fyrir árlegum bókamarkaði í
Perlunni og í Hafnarstræti 91–93 á Akureyri.
Þar má finna kynstrin öll af bókum og blöðum,
allt frá teiknimyndasögum og barnabókum til
háalvarlegra rita um heiminn, skáldsagna og
ættfræðibóka á kostagóðu tilboðsverði almenn-
ingi til handa.
Þau Katrín Björgvinsdóttir, Björgvin Gylfason
og Erla Hrönn Gylfadóttir voru stödd í Perlunni
ásamt Rannveigu Sif Kjartansdóttur, vinkonu
Erlu Hrannar, og leituðu að áhugaverðum
barnabókum í safnið. Ekki var þeim erfitt um vik
og var fangið fljótt að fyllast af gömlum barna-
bókum úr ævintýraflokki Enid Blyton og
drengjabókunum um Frank og Jóa. Uppáhalds-
bækur Björgvins eru þó Harry Potter og Erla
heldur upp á Strandanornirnar. Katrín segir
alltaf gaman að koma á bókamarkaði og skoða
bækurnar, nóg sé að sjá og gaman að skoða. „Það
hefur samt gefist lítill tími til lesturs undanfarið,
hann mætti vera meiri,“ segir Katrín, enda held-
ur hún mjög upp á bækur. Aðspurð kváðust þau
öll ánægð með úrvalið á bókamarkaðnum.
Bókamarkaður bókaútgefenda í Perlunni og á Akureyri
Með fangið fullt af bókum
Morgunblaðið/Kristján
Fjöldi fólks lagði leið sína á bókamarkað Félags íslenskra bókaútgefenda á Akureyri enda margt
að skoða. Markaðurinn þar í bæ er opinn daglega milli kl. 10 og 19 til 7. mars.
Morgunblaðið/Svavar
Katrín Björgvinsdóttir, Björgvin Gylfason, Erla
Hrönn Gylfadóttir og Rannveig Sif Kjartansdóttir.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
karlmann í 18 mánaða fangelsi fyr-
ir kynferðisbrot gegn barnungri
stúlku. Stytti Hæstiréttur refsi-
dóm Héraðsdóms Vestfjarða yfir
manninum, sem hafði áður dæmt
manninn til þriggja ára fangels-
isvistar.
Talið sannað að maðurinn
áreitti stúlkuna
Brotin sem maðurinn var
ákærður fyrir voru framin á tíma-
bilinu frá 1997 til og með 2001
þegar stúlkan var á aldrinum 7 til
11 ára. Hæstiréttur segir í dómi
sínum að þótt ekki væri í ákæru
greint frá fjölda þeirra brota sem
maðurinn átti að hafa framið gegn
stúlkunni né nákvæmlega hvar
brotin hafi verið framin hafi rétt-
urinn ekki talið alveg næga ástæðu
til að vísa ákæru frá héraðsdómi,
sem sakfelldi manninn.
Túlkaði Hæstiréttur ónákvæmni
í ákæruskjali manninum í hag og
segir að vörn hans hafi ekki verið
áfátt af þeim sökum. Taldi rétt-
urinn sannað að maðurinn hafi
áreitt stúlkuna á tímabilinu frá
árinu 1999 til og með 2001 með því
að káfa og þukla á brjóstum og
kynfærum hennar og nokkrum
sinnum sett fingur inn í kynfæri
hennar.
Gegn eindreginni neitun mann-
nsins hafi hins vegar ekki verið
unnt að telja að ákæruvaldinu hafi
tekist að færa fram nægar sann-
anir um aðrar sakargiftir sem á
hann voru bornar og hin dæmda
refsing því stytt.
Greiði hálfa milljón
króna í miskabætur
Voru stúlkunni dæmdar 500.000
krónur í miskabætur og var mann-
inum gert að greiða tæplega 600
þúsund krónur í málsvarnarlaun
verjanda síns á báðum dómsstig-
um og þóknun réttargæslumanns
stúlkunnar.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Markús Sigurbjörnsson,
Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur
Claessen, Hrafn Bragason og Pét-
ur Kr. Hafstein.
Refsing fyrir kynferðis-
brot stytt um helming
INNFLYTJENDUR og framleið-
endur á grænmeti hér á landi, sem
Morgunblaðið náði tali af og vildu
tjá sig undir nafni, skýra verð-
hækkun á nokkrum tegundum
grænmetis frá febrúar, sem fram
kemur í nýrri könnun Samkeppn-
isstofnunar, aðallega með minna
framboði og aukinni eftirspurn.
Meðal annars hafi uppskera á
grænmeti og ávöxtum verið rýr í
Evrópu í hitabylgju síðasta sumars
og haustið síðan verið rigningar-
samt. Þetta hafi rýrt gæðin og
dregið úr framboðinu.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hækkaði meðalverð á
mörgum tegundum grænmetis um
14–51% frá febrúar árið 2003 til
sama tíma í ár. Á sama tíma hækk-
aði neysluvísitalan um 2,3% og
matvöruliður vísitölunnar lækkaði
um 0,2%. Mesta hækkun grænmet-
is var á innfluttum agúrkum, eða
51%, íslenskar agúrkur hækkuðu
um þriðjung og hið sama má segja
um innfluttar paprikur. Tómatar,
kínakál og ísbergssalat hækkuðu
minna í verði, hvítkál stóð í stað og
lítils háttar lækkun varð á gulrót-
um, sveppum og íslenskum tómöt-
um.
Helgi Jóhannesson, garðyrkju-
bóndi á Flúðum og stjórnarformað-
ur Sambands garðyrkjubænda,
segir að innlendir framleiðendur
geti í raun ágætlega vel unað við
niðurstöður Samkeppnisstofnunar.
Innfluttar agúrkur hafi t.d. hækkað
mun meira heldur en íslenskar.
Helgi segir að meiri eftirspurn sé
eftir íslenskum gúrkum en innflutt-
um yfir vetrartímann, en í vetur
hafi framboðið verið minna og ekki
tekist að anna eftirspurninni. Einn-
ig hafi margir bændur flutt sig yfir
í framleiðslu á tómötum en það geti
svo breyst aftur í vor. Verðhækkun
megi að hluta til skýra með þessu.
Annað árferði en 2002
Sigurður Árni Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Búrs, sem flytur m.a.
inn grænmeti og ávexti fyrir versl-
anir Kaupáss, segir að frá því í
haust hafi innkaupsverð hækkað
allnokkuð. Skýringin sé m.a. óvenju
heitt sumar í Evrópu, sem hafi haft
slæm áhrif á uppskeruna, og síðan
hafi tekið við votviðrasamt haust í
S-Evrópu. Þetta hafi verið allt ann-
að árferði heldur en sumar og haust
árið 2002, þegar framboð hafi verið
mikið og verðið lægra.
„Síðan er hefð fyrir því að ávextir
og grænmeti hækki í verði þegar
nær dregur jólum. Þetta gerðist
einnig nú og kostnaðarverð okkar
fór að meðaltali hækkandi eftir því
sem leið á veturinn, sérstaklega í
grænmetinu,“ segir Sigurður.
Morgunblaðið leitaði til tals-
manna fleiri innflytjenda grænmet-
is en þeir vildu af ýmsum ástæðum
ekki tjá sig um verðkönnun Sam-
keppnisstofnunar.
Innflytjendur og framleiðendur hafa skýringu á verðhækkun á grænmeti
Hitar og haustrigning
drógu úr framboðinu
Í SUMAR flýgur þýska flug-
félagið LTU þriðja árið í röð til
Egilsstaða, með viðkomu í
Keflavík.
2.200 sæti eru í boði og verða
ríflega 300 þeirra tryggð fjár-
hagslega af sveitarfélögum,
stofnunum og fyrirtækjum á
Austurlandi.
Austur-Hérað og Byggða-
stofnun tryggja 200 sæti og
Fjarðabyggð, Hornafjörður,
Norður-Hérað, Þróunarfélag
Austurlands og Hitaveita Eg-
ilsstaða og Fella tryggja nokk-
ur sæti hver aðili.
Um 150 sæti eru þegar seld
hjá Ferðaskrifstofu Austur-
lands, sem heldur utan um
beina flugið austur.
Fyrsta flug LTU þetta árið
til Egilsstaða er 18. júní nk. og
verður flogið á hverjum föstu-
degi fram til 10. september. Í
haust verður fyrirkomulag og
áframhald flugsins endurskoð-
að m.t.t. hvernig gengið hefur
að selja í flugið hérlendis og er-
lendis.
LTU
flýgur til
Egils-
staða
SSS féllst í gær ekki á kröfu
Nýherja um skaðabætur frá
íslenska ríkinu vegna útboðs
á nýjum fjárhagskerfum fyrir
ríkissjóð og stofnanir hans.
Samið var við Skýrr um verk-
ið.
Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að þótt
nokkrir hnökrar hefðu verið á
því mati, sem val ríkisins á
samningsaðila byggðist á,
hefði ekki verið sýnt fram á
að ríkið hefði farið út fyrir
það svigrúm sem verði að
ætla því til heildarmats á
gæðum tilboða.
Hafi þar skipt verulegu
máli að samkvæmt mati rík-
isins var verð þeirrar lausnar
sem Nýherji bauð 31,5%
hærra en boð það sem tekið
var.
Hæstaréttardómararnir
sem dæmdu voru Guðrún Er-
lendsdóttir, Garðar Gíslason,
Hrafn Bragason, Ólafur
Börkur Þorvaldsson og Pétur
Kr. Hafstein.
Hafnaði
kröfu
Nýherja