Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FORSETI Túrkmenistan, Túrkmenbasi
hinn mikli, er sannur landsfaðir. Nú hyggst
hann skrifa bók um góða hegðun. Henni
verður bætt við námskrána í skólum lands-
ins, sem þegar er þéttskipuð „heimspeki-
legum“ ritum landsföðurins. Bókin mun bera
þann lýsandi titil „Uppeldi“ og á að byggjast
á hefðbundnum vísdómi og hefðum túrk-
mensku þjóðarinnar, sem öld fram af öld hef-
ur mótað afdráttarlausar reglur um rétta
breytni og félagsmótun, sagði Túrkmenbasi í
viðtali við túrkmenska ríkissjónvarpið. Þeg-
ar hafa verið stofnaðar sérstakar há-
skóladeildir til að kenna stúdentum að meta
þau verk sem Túrkmenbasi hefur þegar
skrifað, eins og til dæmis Rukhnama, sem á
íslensku gæti heitið „Andlegur leiðarvísir“,
og „Það böl sem ógnar samfélagi voru“, en
síðarnefnda bókin hefur að geyma kveðskap
um þá ógn sem landsfaðirinn telur stafa af
agaleysi, hroka og ístöðuleysi.
Viðkoman langa
PALESTÍNSKUR hælisleitandi yfirgaf nú í
vikunni viðkomusalinn á alþjóðaflugvell-
inum í Prag, en þar hefur hann dvalið und-
anfarið hálft ár. Nú hefur honum verið veitt
húsaskjól í flóttamannamiðstöð. Sálrænt
ástand mannsins var „merkilega gott“ eftir
svona langa dvöl í einskismannslandi, sagði
Martin Rozumek, talsmaður tékkneskra
samtaka sem aðstoða flóttafólk. Palest-
ínumaðurinn Ibrahim Zijad, sem er þrítug-
ur, kom vegabréfslaus til Prag með flugi
frá Istanbúl 2. ágúst sl. Tékknesk innflytj-
endayfirvöld sendu manninn aftur til Tyrk-
lands, og þarlend yfirvöld sendu hann á ný
til Prag þar sem hann bjóst fyrir í viðkomu-
salnum. Starfsfólk tékkneska flugfélagsins,
CSA, sá honum fyrir mat og drykk.
Manni getur leiðst
ÓNAFNGREINDUR starfsmaður á al-
þjóðaflugvellinum í Denver í Bandaríkjunum
hefur hlotið tiltal fyrir að renna sjálfum sér í
gegnum farangursgegnumlýsingartækið
sem hann vann við. Atvikið mun hafa átt sér
stað fyrir um þrem mánuðum, og er líkum að
því leitt, að manninum hafi leiðst í vinnunni
og verið að þessu sér til upplyftingar. En
bandarískum samgönguöryggisyfirvöldum
fannst þetta ekki par sniðugt, þótt þau við-
urkenni að engum flugfarþegum hafi stafað
hætta af leik mannsins.
Ástsjúkur Ítali
ÁSTSJÚKUR Ítali reyndi að drepa konuna
sem ekki endurgalt tilfinningar hans með
því að koma sniglaeitri fyrir víðs vegar í
íbúðinni hennar, að því er lögregla í Tórínó
greindi frá. „Ég hreifst af visku hennar,
fremur en fegurð,“ sagði hinn ástsjúki
Matteo Porzio, sem var samstarfsmaður
konunnar. „En hún fyrirleit mig!“ Hann
braust inn í íbúð hennar og setti eitrið út í
jógúrt, sultu, salt og vatnskönnu. Konan og
unnusti hennar fylltust grunsemdum þegar
þau sáu litla, bláa bletti í matnum – og fót-
spor á gólfinu – og höfðu samband við lög-
regluna.
Féll fram af svölum
HÁSKÓLASTÚDENT í Ottawa í Kanada
lét lífið um síðustu helgi þegar hann féll fram
af svölum á elleftu hæð. Hann var að keppa
við félaga sína um hver gæti spýtt hráka
lengst, og tók gott tilhlaup að svalahandrið-
inu en svo slysalega vildi til, að hann féll yfir
handriðið og fram af svölunum.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Um rétta breytni
Reuters
ALAN Greenspan, seðlabankastjóri í
Bandaríkjunum, fægði gleraugun sín er
hann kom fyrir fjárlaganefnd þingsins á
miðvikudaginn.
Þörf á skarpri sjón
BRESKA leyniþjón-
ustan njósnaði um
Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, í að-
draganda Íraks-
stríðsins, að því er
fyrrverandi ráðherra í
ríkisstjórn Tonys
Blairs fullyrti í gær.
Ásakanir ráðherrans
fyrrverandi, Clare
Short, hafa vakið mik-
inn úlfaþyt í Bretlandi
og auka þrýsting á
Blair forsætisráðherra
sem sett hefur ámæli
fyrir að hafa tekið
þátt í herförinni gegn
Írak.
Clare Short var
ráðherra þróunarmála
í stjórn Blairs en
sagði af sér í kjölfar
árásarinnar á Írak í fyrra. Hún
var spurð að því í viðtali í breska
útvarpinu, BBC, hvort breskir
erindrekar hefðu hlerað samtöl
sem Annan átti við ýmsa ráð-
gjafa sína og fyrirmenni. „Já, svo
sannarlega,“ svaraði hún. „Svo-
leiðis lagað er stundað og að því
er varðar skrifstofu Kofis þá hef-
ur það verið stundað um langa
hríð.“
Las útprent af samtölum
Sagðist Short jafnvel hafa lesið
útprent af samtölum sem Annan
átti. „Raunar man ég til þess að
hafa verið að ræða við Kofi fyrir
stríð og hugsað með mér „ónei,
þetta samtal verður tekið upp og
prentað upp og fólk mun heyra
væru augljóst brot á lög-
um.
Hætt við lögsókn
vegna leka
Ummæli Short koma
degi eftir að málarekstri
var hætt gegn Katharine
Gun, fyrrverandi þýð-
anda hjá bresku leyni-
þjónustunni, en hún hafði
verið sökuð um að leka
leynilegum tölvubréfum
frá bandarískum leyni-
þjónustumönnum til
breska blaðsins The Ob-
server þar sem svo virt-
ist sem beðið væri um
aðstoð breskra við að
hlera sendinefndir ým-
issa þjóða hjá SÞ.
Bresk stjórnvöld neita því
að pólitískar ástæður liggi
að baki því að ákveðið var
að hætta við málsókn gegn Gun.
Ýmsir hafa hins vegar velt því
fyrir sér hvort ráðherrar í stjórn
Blairs hafi óttast að ýmislegt
kæmi fram við réttarhöld yfir
Gun sem valda myndi breskum
stjórnvöldum vanda. Hafa verj-
endur Gun m.a. velt því upp að
hugsanlega hafi málarekstrinum
verið hætt vegna þess að þeir
höfðu farið fram á að gert yrði
opinbert lögfræðiálit sem dóms-
málaráðherrann, Goldsmith lá-
varður, veitti ríkisstjórninni um
lagalegt réttmæti árásar gegn
Írak.
Breska stjórnin hefur ítrekað
neitað öllum óskum um að álit
Goldsmith lávarðar verði gert op-
inbert.
þær væru sannar. „Mér finnast
ummæli Clare Short í morgun al-
gerlega óábyrg, en hins vegar
fyllilega í samræmi við fyrri
hegðun hennar,“ sagði hann.
Þegar Blair var spurður að því
hvort Short yrði hugsanlega sótt
til saka eða hvort hún myndi
sæta refsingu af hálfu Verka-
mannaflokksins sem þingmaður
flokksins tók Blair því ekki ólík-
lega en sagði að hann myndi
þurfa að hugleiða betur ummæli
hennar.
Talsmaður Kofis Annan, Fred
Eckhard, sagðist ekki hafa hug-
mynd um það hvort staðhæfingar
Short ættu við rök að styðjast.
Ljóst væri hins vegar að hleranir
eins og þær sem hún hefði lýst
hvað hann og ég sögðum“,“ sagði
Short síðan.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, vildi lítið ræða um
fullyrðingar Short á mánaðarleg-
um blaðamannafundi sínum í gær
en sagði þær „afar óábyrgar“.
„Hvorki við né fyrri ríkisstjórnir
höfum viljað tjá okkur um mál-
efni er tengjast leyniþjónustunni,
nema til að leggja áherslu á að
bresk stjórnvöld hegða sér alltaf
í samræmi við bæði bresk lög og
alþjóðalög,“ sagði hann.
Hleranir ólöglegar
Blair neitaði semsé ekki ásök-
unum Short en sagði blaðamönn-
um hins vegar að ekki væri hægt
að taka það sem merki um að
Fullyrðir að njósnað
hafi verið um Annan
Tony Blair segir fullyrðingar Clare Short „afar óábyrgar“
London. AFP, AP.
Clare Short bandar frá sér fréttamönnum, sem ólmir vildu spyrja hana frekar um fullyrð-
ingar hennar, í miðborg London í gær. Fast var líka sótt að Blair á fréttamannafundi.
UPPREISNARMENNIRNIR
sem hafa náð á sitt vald norður-
hluta Haítí og hóta að ráðast til
atlögu í höfuðborginni, Port-au-
Prince, eru úr ýmsum áttum. Það
sem sameinar þá er hatrið á Jean
Bertrand Aristide forseta, sem
þeir vilja að láti af völdum.
Sumir helstu leiðtogar uppreisn-
armannanna voru áður fyrr svarn-
ir óvinir, en nú hafa þeir snúið
bökum saman í baráttunni gegn
Aristide. Uppreisnin hófst í byrj-
un febrúar í borginni Gonaives í
norðurhluta landsins. Þegar upp-
reisnin breiddist út gengu útlægir
hermenn í lið með uppreisn-
armönnum.
Leiðtogi þeirra sem hófu upp-
reisnina í Gonaives er Butteur
Metayer, 33 ára fyrrverandi
framámaður í „Mannætuhernum“,
alræmdu gengi í borginni, sem þar
til nýverið fylgdi Aristide að mál-
um. Í september sakaði Metayer
forsetann um að hafa látið drepa
bróður sinn, tók völdin í genginu,
gaf því nafnið Andspyrnufylkingin,
og „frelsaði“ Gonaives 5. febrúar.
Dagana á eftir féllu margir bæir
og þorp í norðurhlutanum í hend-
ur manna Metayers, og þeim
barst liðsauki hvaðanæva að, m.a.
frá mönnum sem þjónað höfðu í
haítíska hernum í tíð Raouls
Cedras, sem sat að völdum á Haítí
1991–94, eftir að hafa hrakið Ar-
istide, sem hafði verið kjörinn for-
seti, frá völdum.
Hermennirnir fyrrverandi komu
til Haítí frá Dóminíska lýðveldinu,
þar sem þeir höfðu dvalið í útlegð
frá því að haítíski herinn var
leystur upp 1995. Leiðtogi þessara
útlaga er Louis Jodel Chamblain,
sem fór í útlegð 1994. Chamblain
þessi er grunaður um aðild að fjöl-
mörgum voðaverkum, m.a. fjölda-
morðum 1987.
Engin hugmyndafræði
Annar leiðtogi uppreisnarinnar
nú er Guy Philippe, sem verður 36
ára á morgun og langar umfram
annað til að halda upp á afmælið
sitt með því að hertaka höfuðborg-
ina, en hann var háttsettur í ör-
yggissveitum Renes Prevals, sem
var kosinn forseti Haítí 1995.
Stjórn Prevals skar upp herör
gegn fyrrverandi hermönnum
Cedras og reyndi að hafa uppi á
þeim – þ.á m. Chamblain.
Philippe og Chamblain voru því
svarnir óvinir, en nú hafa þeir tek-
ið höndum saman gegn Aristide.
Fréttaskýrandi breska ríkis-
útvarpsins, BBC, segir erfitt að
koma auga á að einhver pólitísk
hugmyndafræði reki uppreisn-
armennina áfram. Þeir virðist
fyrst og fremst þrá að taka völdin.
Svarnir óvin-
ir snúa bök-
um saman
GUY Philippe, einn leiðtoga uppreisnarmannanna á Haítí, lætur
fægja skóna sína á bílastæðinu fyrir utan hótelið sem hann býr á í
Cap Haitien, næststærstu borg Haítí, sem uppreisnarmenn undir
forystu Philippes tóku á sitt vald á sunnudaginn.
Reuters
Skórnir fægðir