Morgunblaðið - 27.02.2004, Síða 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 21
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
38
33
0
2/
20
04
50% AFSLÁTTUR
Íslenski dansflokkurinn í Borgarleikhúsinu
Lúna - Mögnuð og rómantísk sýning um ástina og lífið
www.landsbanki.is
sími 560 6000
Íslenski dansflokkurinn sýnir tvö verk í Borgarleikhúsinu. Hið fyrra er „Lúna“ eftir
Láru Stefánsdóttur við tónlist eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Cyrano, sem hann hlaut
Grímuverðlaunin fyrir í júní 2003. Hin geysivinsæla hljómsveit Rússibanar leikur
tónlistina á sviðinu. Síðara verkið er „Æfing í Paradís“ (Practice Paradise) eftir
belgíska danshöfundinn Stijn Celis við tónlist eftir Frederick Chopin.
19 dansarar og tónlistarmenn koma fram í þessari stórsýningu á stóra sviði
Borgarleikhússins.
ATH: Aðeins 6 sýningar: 27. feb., 4., 18., 21. og 28. mars og 4. apríl.
Landsbanki Íslands er stoltur af að vera traustur bakhjarl Íslenska dansflokksins.
Félagar í Vörðunni og Námunni fá 50%
afslátt á sýningar Íslenska dansflokksins.
Dalvíkurbyggð | Karlakórarnir á Eyjafjarð-
arsvæðinu komu saman í Dalvíkurkirkju um
síðustu helgi og héldu tónleika. Fyrst sungu
þeir hver um sig og síðan allir saman, alls um
hundrað manns. Þeir eru Karlakór Akureyrar
– Geysir, stjórnandi Erla Þórólfsdóttir; Karla-
kór Eyjafjarðar undir stjórn Petru Bjarkar
Pálsdóttur; og
Karlakór Dalvíkur, stjórnandi Guðmundur
Óli Gunnarsson. Undirleikari var Aladár Rácz.
Kórarnir enduðu á laginu Brennið þið vitar
eftir Pál Ísólfsson við texta Davíðs Stef-
ánssonar og þá léku þau undir fjórhent Aladár
og Erla. Var það mál manna að hér hefði verið
á ferðinni magnaður söngur sem hljómaði vel.
Hundrað
karla kór
Morgunblaðið/Guðmundur Ingi
Glæsilegir: Um 100 karlar úr þremur kórum sungu saman á tónleikum á Dalvík.
PÁLMI Gunnarsson stýrir flugu-
kastkennslu á vegum Stangaveiði-
félags Akureyrar næstkomandi
mánudags- og
þriðjudagskvöld.
Námskeiðið er
ætlað veiðimönn-
um sem vilja
bæta leikni sína í
meðferð flugustangar og línu. Pálmi
útskýrir þau lögmál sem eru að
verki og sýnir hvernig nota á flugu-
stöngina rétt. Námskeiðið er ætlað
félögum í Stangaveiðifélagi Ak-
ureyrar en er ekki fyrir byrjendur í
fluguköstum. Aðeins 15 manns kom-
ast að á þetta fyrsta kastnámskeið
félagsins. Þátttökugjald er ekkert
og fer skráning fram daglega í síma
865 1772 milli kl. 16 og 17 fram á
mánudag. Kastkennslan hjá Pálma
og félögum fer fram í íþróttahúsi
Oddeyrarskóla frá kl. 20–22 mánu-
dagskvöldið 1. mars og þriðjudags-
kvöldið 2. mars.
Pálmi kennir
fluguköst
ÁKVEÐIÐ hefur verið að bjóða upp
á sjálfstyrkingarnámskeið fyrir börn
og unglinga á Akureyri á næstunni á
vegum Vímulausrar æsku/
Foreldrahúss í samstarfi við fé-
lagssvið Akureyrarbæjar.
Umsjón með námskeiðunum hef-
ur Stefanía Elísabet Hallbjörns-
dóttir félagsráðgjafi. Námskeiðin
eru fyrir unglinga á aldrinum 13–15
ára, hvert námskeið er tíu skipti og
kennt einu sinni í viku. Fyrsta nám-
skeiðið verður haldið í Glerárkirkju
og byrjar 11. mars nk. og er fyrir
13–14 ára stúlkur. Fjöldi þátttak-
enda á hverju námskeiði verður átta.
Markmiðið með námskeiðinu er
að efla sjálfstraust, þekkingu á til-
finningum, félagsleg tengsl, sam-
skiptahæfni og sjálfsþekkingu.
Allar nánari upplýsingar og
skráning eru hjá Stefaníu í síma 893
6164 milli 17 og 19 virka daga. Einn-
ig má senda tölvupóst á netfangið
stefania@akmennt.is.
Sjálfstyrkingar-
námskeið fyrir
börn og unglinga
TENGLAR
..............................................
www.foreldrahus.is.
LEIKFÉLAG Hörgdæla frumsýnir
gamanleikinn Klerka í klípu eftir
Philip King í kvöld, föstudagskvöld,
kl. 20.30 á Melum í Hörgárdal. Æv-
ar Kvaran þýddi verkið en með
helstu hlutverk fara Þóroddur
Sveinsson, Fanney Valsdóttir, Sig-
mar Bragason, Sesselja Ingólfs-
dóttir og Ásta Júlía Aðalsteinsdótt-
ir. Þetta er fyrsta sýning
leikfélagsins á Melum eftir að mikl-
um endurbótum á húsinu lauk.
Leikarar í sýningunni eru níu og
samanstendur hópurinn af reyndari
leikurum og nokkrum nýliðum, en
alls vinna um 20–30 manns við sýn-
inguna.
Hér er á ferðinni ærslafullur
farsi sem gerist á prestssetri í litlu
þorpi á Englandi. Presturinn á
staðnum bregður sér af bæ eina
kvöldstund og þar með upphefst
mikill misskilningur sem í blandast
eiginkona, liðþjálfi, biskup,
þorpsbúar og fleiri.
Verkið var skrifað um miðja síð-
ustu öld og er enn verið að sýna það
víða í Bretlandi við góðan orðstír.
Leikstjóri er Saga Jónsdóttir.
Um leikmyndarhönnun sá Þórarinn
Blöndal og hönnun lýsingar Ingvar
Björnsson.
Næsta sýning verður á laugar-
dagskvöld kl. 20.30. Síðan á föstu-
dags- og laugardagskvöldum í
mars.
Klerkar í
klípu í
Hörgárdal
♦♦♦
♦♦♦