Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 23

Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 23
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 23 ERUM AÐ FRAMLEIÐA STÓRGLÆSILEG OG VÖNDUÐ SUMARHÚS - ORLOFSHÚS Í ÝMSUM STÆRÐUM. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR HEIMIR GUÐMUNDSSON, byggingameistari, í símum: 892 3742 og 483 3693 eða á www.tresmidjan.is TRÉSMIÐJA HEIMIS GUÐMUNDSSONAR - ÞORLÁKSHÖFN  HÖFUM TIL SÝNIS Á STAÐNUM HÚS Á ÝMSUM BYGGINGARSTIGUM-HÖFUM EINNIG FULLBÚIN SUMARHÚS TIL SÝNINGAR.  HEF TIL SÖLU SUMARHÚSASLÓÐIR, EF ÓSKAÐ ER, Á FRÁBÆRUM STAÐ ÞAR SEM ER HITAVEITA, RAFMAGN, STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU, SUND OG GOLFVÖLL.  TÖKUM EINNIG AÐ OKKUR VIÐHALD OG BREYTINGAR Á ELDRI HÚSUM, SETJUM NIÐUR HEITA POTTA OG SMÍÐUM PALLA OG SKJÓLVEGGI. BRUNAVARNIR Suðurnesja og Öryggismiðstöð Íslands hafa gert með sér þjónustusamning og skipt með sér verkum. Öryggismiðstöðin tekur yfir vöktun og tækniþjónustu vegna þeirra öryggiskerfa sem Brunavarnir Suðurnesja hafa séð um en Brunavarnir Suðurnesja taka að sér útkalls- og viðbragðs- þjónustu fyrir Öryggisþjónustuna á Suðurnesjum. Sigmundur Eyþórsson, slökkvi- liðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, segir að stofnunin hafi rekið vakt- miðstöð öryggiskerfa frá því um 1990. Reksturinn hafi verið farsæll og öryggiskerfin margoft sannað gildi sitt. Hann segir að á þessum tíma hafi orðið mikil breyting á þessum markaði, öryggisfyrirtækin hafi eflst og tækninni fleygt fram og hafi samkeppnisstaða Bruna- varna Suðurnesja sem opinberrar stofnunar veikst á síðustu árum. Hann fagnar því að nú hafi náðst samkomulag við Öryggismiðstöð Íslands um verkaskipti. Markmiðið með þeim sé að veita samfélaginu sem besta öryggisþjónustu. Vöktun þeirra 170 öryggiskerfa sem Brunavarnir Suðurnesja önn- uðust er að flytjast til vaktmið- stöðvar Öryggismiðstöðvarinnar. Starfsmenn Brunavarna taka í staðinn að sér alla útkalls- og við- bragðsþjónustu fyrir Öryggismið- stöðina á Suðurnesjum, það er að segja viðbragð við öllum boðum, vaktgæslu fyrirtækja og svæðis- gæslu. Sigmundur segir að þetta séu eðlileg verkefni slökkviliðsins og að það eflist um leið. Nefnir hann sem dæmi að útkallsstyrkur liðsins aukist á vissum tímum sól- arhringsins því ekki þurfi lengur að hafa menn bundna á stöðinni. Á fjórða hundrað kerfi Með þeirri viðbót sem Öryggis- miðstöð Íslands fær með samn- ingnum við Brunavarnir Suður- nesja annast vaktmiðstöð fyrirtækisins á fjórða hundrað ör- yggiskerfi á Suðurnesjum. „Við höfum sinnt þessum markaði af áhuga og höfum verið langstærsta öryggisfyrirtækið á Suðurnesjum,“ segir Reynir S. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri öryggissviðs Örygg- isgæslu Íslands. Starfsemi fyrir- tækisins hefur aukist jafnt og þétt á svæðinu en í vetur hefur inn- brotakerfum í heimahúsum fjölgað mjög. Tengir Reynir það þeim inn- brotafaraldri sem geisað hefur síð- ustu mánuði. Öryggismiðstöð Íslands tekur við vöktun öryggiskerfa Brunavarna Suðurnesja samkvæmt þjónustusamningi Slökkviliðið ann- ast útkallsþjónustu Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Sérhæfing: Reynir S. Ólafsson og Sigmundur Eyþórsson hafa náð sam- komulagi um þjónustusamning Öryggismiðstöðvar Íslands og Brunavarna. Garður | „Þetta er fólkið sem held- ur uppi fiskvinnslunni, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr,“ segir Sigurður Jónsson, bæjar- stjóri í Garði, en tæplega 10% íbúa sveitarfélagsins eru með erlent rík- isfang. Í Garði búa 128 erlendir ríkisborgarar, þar af 90 Pólverjar. Í sveitarfélögunum fimm á Suð- urnesjum bjuggu liðlega 760 er- lendir ríkisborgarar um síðustu áramót, samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Eru það 4,5% íbúanna en meðaltalið yfir landið er 3,5%. Flestir bjuggu í Reykja- nesbæ, 354, en það er aðeins 3,2% íbúafjöldans þar. Í Grindavík voru 120 erlendir ríkisborgarar, sem er 4,9% íbúanna, 128 í Garði, sem er 9,9% íbúa þar, 105 í Sandgerði, sem er 7,6% íbúafjöldans og 54 í Vatnsleysustrandarhreppi en það er 5,8% íbúa sveitarfélagsins. Þessir erlendu íbúar Suðurnesja koma frá 49 þjóðlöndum. Flestir eru frá Póllandi, alls 309. Liðlega sextíu Bandaríkjamenn búa í sveit- arfélögunum fimm og tæplega sex- tíu Taílendingar og Danir og 46 Filippseyingar. Sumir ílendast Sigurður Jónsson, bæjarstjóri í Garði, segir að það sé ekki nýtt að fjöldi erlendra ríkisborgara búi á staðnum. Fyrir fáeinum árum hafi hlutfallið verið rúm 8%. Hann segir að margir hafi komið til að vinna í fiski og í raun haldi þetta fólk uppi fiskvinnslunni á staðnum. Þá þyki það gott starfsfólk. Vekur Sigurður athygli á því að á sama tíma og fengið sé fólk frá útlöndum í þessa vinnu séu yfir þrjátíu manns á at- vinnuleysisskrá í Garðinum. Sigurður telur að margir Pól- verjanna komi til tímabundinnar dvalar hér og snúi heim aftur. Aðr- ir ílendist. Nokkur dæmi er um að þeir hafi keypt sér hús í Garðinum og farið í aðra vinnu. „Þetta er traust fólk og mjög góðir íbúar,“ segir Sigurður. Hann segir að helsti gallinn sé hvað útlendingarnir taki lítinn þátt í samfélaginu. Þeir hafi mest fé- lagsskap hver af öðrum. Þá hamli tungumálaerfiðleikar samskiptum. Þó sé nokkuð um að þeir séu komnir með börn í skóla og þeim gangi vel. 10% íbúa í Garði með erlent ríkisfang „Heldur uppi fiskvinnslunni“ +  "   57"! (! ! $!           (.#6./(   ! !  ! 3* " %&      !'  '  ' 3 (    * 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.