Morgunblaðið - 27.02.2004, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 27.02.2004, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 47 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík MEÐ MORGUNKAFFINU Við viljum bara fá að skoða trúlofunarhringana …! FRÉTTIR BORIST hefur eftirfarandi frá Guð- rúnu Önnu Kjartansdóttur, sem er félagsmaður í Fjölskylduvernd, í framhaldi af umfjöllun um barna- verndarmál í Morgunblaðinu sl. þriðjudag þar sem hún óskar eftir að gera athugasemdir við málflutning Guðrúnar Frímannsdóttur vegna starfshátta starfsmanna Barna- verndar Reykjavíkur. „Starfshættir í umgengnismálum í ólestri? Lögmaður Barnaverndar Reykja- víkur, Anna S. Örlygsdóttir, hefur meinað almenningi um aðgang að verkferlum yfir könnun máls og verkferlum yfir gerð greinargerða sem lagðar eru fyrir Barnaverndar- nefnd. Lögmaður Barnaverndar Reykjavíkur telur verkferla undan- þegna upplýsingarétti. Er það laun- ungarmál hvernig starfa skal að vinnslu mála? Barnaverndarstofa segir í bréfi sínu dags.12. júní 2002 til undirrit- aðrar. „Barnaverndarstofa telur að það falli ekki innan valdsviðs og ramma stofnunarinnar að fjalla um vinnu- brögð við framgang umsagna sem gerðar eru á grundvelli ákvæða barnalaga nr. 20/1992. Samkvæmt 7. gr. Barnaverndarlaga nr. 80/2002 hefur Barnaverndarstofa m.a. með höndum leiðbeiningar um túlkun og framkvæmd barnaverndarlaga og ennfremur hefur stofan eftirlit með störfum barnaverndanefnda samkv. Barnaverndarlögum. Ljóst er að um- sögn barnaverndarnefndar í um- gengnisdeilu er ætíð fengin að beiðni sýslumanns með vísan í ákvæði barnalaga. Telur Barnaverndarstofa það hlutverk sýslumanns að móta hvaða upplýsingar hann óskar frá barnaverndarnefnd í hverju máli. Jafnframt er ljóst að aðilar eigi óskoraðan andmælarétt áður en sýslumaður taki endanlega ákvörðun og aðilar geti því komið að öllum at- hugasemdum bæði um form og efni umsagnar. Þá komi það í hlut sýslu- manns að meta hvort skilyrði séu til að unnt sé að taka tillit til hennar við niðurstöðu málsins.“ Félagsmálaráðuneytinu er sent bréf þar sem spurt er hver teljist eft- irlitsaðili, taki til athugunar og leið- réttinga meinta ámælisverða starfs- hætti starfsmanna barnaverndar Reykjavíkur. Af því tilefni segir í svari ráðuneytissins dags 24. októ- ber 2002 til undirritaðarar: „Sýslu- maður fer með úrskurðarvald í um- gengnismálum sbr. 6. mgr. 37. gr. Barnalaga. Með því er málið alfarið á ábyrgð sýslumanns samkvæmt barnalögum, tekur ráðuneytið undir þau sjónarmið, sem fram koma í gögnum málsins af hálfu Barna- verndarstofu og Barnaverndar Reykjavíkur að það fellur í hlut sýslumanns að meta og bera ábyrgð á að umsögn barnaverndarnefnda í umgengnismáli uppfylli nauðsynleg skilyrði. Málið er þannig alfarið á ábyrgð sýslumanns samkvæmt lög- um. Getur sýslumaður tekið ábyrgð á starfsháttum starfsmanna Barna- verndar Reykjavíkur? Í bréfi félagsmálaráðuneytis dags. 16. janúar til undirritaðrar segir: „Umsögn barnaverndarnefndar af því tagi sem hér um ræðir er gerð á grundvelli barnalaga. Að því er varð- ar málsmeðferð barnaverndar í slík- um málum verður sá þáttur ekki tek- inn sérstaklega út úr málinu og felldur undir ákvæði barnaverndar- laga sbr. 5. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Þar að auki er Barnavernd- arnefnd Reykjavíkur ekki stofnun er lýtur boðvaldi eða almennu eftirlits- hlutverki félagsmálaráðuneytisins eins og t.a.m. gildir um stofnanir ráðuneytisins. Félagsmálaráðu- neytið hefur ekki heimild til að fjalla um vinnubrögð barnaverndarnefnd- ar í máli því sem hér er til umfjöll- unar.“ Haft er eftir Guðrúnu Frímanns- dóttur, framkvæmdastjóra Barna- verndar Reykjavíkur, í Morgun- blaðinu 24. febrúar sl. um starfshætti við gerð greinargerða: „Rituð er greinargerð um aðstæður foreldra og þeim boðið að lesa drög yfir og leiðrétta áður en hún er yfirfarin af lögfræðingi og framkvæmdastjóra Barnaverndar Reykjavíkur. Að sögn Guðrúnar er greinargerð tilbúin fimm sólarhringum áður en Barna- verndarnefnd fjallar um viðkomandi mál. Þá er fólki ævinlega boðið að mæta á fund nefndarinnar og tjá sig um það sem fram kemur í greinar- gerðinni og einnig að koma með við- bótarupplýsingar sé þess þörf.“ Ýmsum brögðum er beitt af hendi starfsmanna Barnaverndar Reykja- víkur. T.d. sendi undirrituð Barna- verndarnefnd Reykjavíkur faxbréf kl. átta 26.2. 2002 og ræddi einnig við Guðrúnu Frímannsdóttur í síma á sama tíma. Bréfið hljóðaði svo: „Undirrituð óskar eftir að fyrir- töku umgengnismáls (dóttur minn- ar) sem taka á fyrir klukkan 10.15 26.2. 2002 verði frestað vegna skamms fyrirvara á fundarboði. Undirritaðri hefur ekki tekist að ná sambandi við lögmann sinn eftir að greinargerð barnaverndarnefndar var afhent henni klukkan fimm 25.2. 2002. Undirrituð telur nauðsyn að lögmaður sinn verði viðstaddur fund barnaverndarnefndar og fundartími verði ákveðinn í samráði við hann.“ Undirritaðri var ekki gefinn kost- ur á að lesa drög að greinargerð til leiðréttingar, 17 klukkustunda fyrir- vari á fundarboði var óviðunandi vegna fjölda athugasemda sem þurfti að gera vegna vinnslu málsins. Látið var svo líta út fyrir barna- verndarnefnd að undirritaðri hafi verið boðið að koma á fund nefnd- arinnar 12. mars 2002. Hvorki und- irritaðri né lögmanni hennar var til- kynnt fundarboð á þann fund nefndarinnar. Svo leit út fyrir barna- verndarnefnd að undirrituð hafi ekki haft áhuga á að mæta á fund nefnd- arinnar. Á þennan hátt komu starfs- menn málinu frá sér til sýslumanns- embættisins. Vert væri að færi fram könnun á hversu mörgum málsaðilum eru send skrifleg boð á fund barnavernd- arnefndar. Einnig hversu margar konur annars vegar og hversu marg- ir menn hins vegar mæta á fund barnaverndarnefndar í meðförum umgengnismála. Ekkert aðhald né eftirlit er til staðar með starfsháttum starfs- manna Barnaverndar Reykjavíkur í umgengnismálum. Framkvæmda- stjóri Barnaverndar Reykjavíkur lætur kvartanir málsaðila sem vind um eyrun þjóta. Málsaðilar ganga á milli stofnana og embættismanna ár- um saman í von um að finna einhvern sem taki á málum. Svo virðist sem framkvæmdastjóri og lögmaður Barnaverndar Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur sinni ekki því aðhaldshlutverki sem þeim ætti að bera vegna vinnslu mála. Verk- ferlum er haldið leyndum svo máls- aðilar eigi ekki auðvelt um vik að verjast starfsháttum starfsmanna og enginn telur sér skylt að skoða meinta ámælisverða starfshætti starfsmanna barnaverndarnefnda í meðförum umgengnismála.“ Athugasemd vegna Barnaverndar Reykjavíkur Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-16 Föt fyrir allar konur STJÖRNUSPÁ Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Þú ert góðum gáfum gædd/ur og hefur mikið aðdráttarafl. Þú ert sérlega næm/ur fyrir umhverfi þínu og hefur þörf fyrir að prófa ólíka hluti. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ert sérlega tilfinningarík/ ur í dag og ert því tilbúin/n til að verja skoðanir þínar í trú- málum og heimspeki með kjafti og klóm. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert í óvenjugóðum tengslum við þinn innri mann í dag og gætir jafnvel orðið fyrir einhvers konar vitund- arvakningu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Í dag geta vinir orðið elsk- endur og elskendur vinir. Þú getur líka orðið skotin/n í ein- hverjum sem þú þekkir lítið. Gerðu ekki of mikið úr þessu. Það mun líða hjá fyrr en var- ir. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Sambönd sem hefjast í dag verða ástríðufull og eft- irminnileg. Láttu það eftir þér að upplifa eitthvað spenn- andi. Það er alltaf gaman að eiga góðar minningar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Listsköpun þín mun einkenn- ast af heitum tilfinningum í dag. Það eru mikil tilþrif í öllu sem þú gerir. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það gæti komið þér á óvart hvað einhver er tilbúin/n að leggja mikið á sig til að hjálpa þér í dag. Líttu á þetta sem áminningu um það hvað þú átt góða að. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Samskipti þín við aðra verða sérlega tilfinningaþrungin í dag. Samskiptin við okkar nánustu reynast oft ruglings- legustu og mest krefjandi verkefni okkar í lífinu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú vilt gera breytingar bæði í vinnunni og á heimilinu. Drífðu endilega í því. Breyt- ingarnar geta jafnvel orðið til þess að auka tekjur þínar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú munt hugsanlega falla kylliflöt/flatur fyrir ein- hverjum í dag. Íhugaðu hvort sá/sú sem þú hrífst af sé ekki í raun tákngervingur bældra þátta í sjálfri/sjálfum þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú finnur til mikillar hlýju í garð einhvers í fjölskyldunni. Þetta er af hinu góða. Fjöl- skyldan minnir okkur á það hver við erum og hvaðan við komum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú laðast sterkt að ein- hverjum í dag. Aðdráttaraflið mun minnka þegar frá líður en þú munt áfram meta vin- áttu viðkomandi og leggja rækt við hana. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú átt erfitt með að standast freistingarnar sem á vegi þín- um verða í dag. Þér finnst þú bara verða að fá það sem þig langar í og það strax. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FRÁ GRÆNLANDI Komir þú á Grænlands grund, ef gerir ferð svo langa, þér vil ég kenna að þekkja sprund, sem þar á buxum ganga. Allar hafa þær hárið nett, af hvirfli í topp umsnúið, vafið fast, svo fari slétt, fallega um er búið. Konur silki- bera -bönd blá um toppinn fríða. Láttu þær fyrir líf og önd, lagsi, kyrrar bíða. – – – Sigurður Breiðfjörð LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 27. febr- úar, verður sjötugur Reynir G. Karlsson, fv. æskulýðs- og íþróttafulltrúi, Rauða- læk 65, Reykjavík. Reynir verður fjarverandi á afmæl- isdaginn, með nánustu ætt- ingjum sínum. SUMIR segja að ekki sé skynsamlegt að vekja á veikum tveimur með fjórlit til hliðar í hálit, því alltaf sé hætta á að hliðarliturinn týnist. Hér er sorgleg saga af týndum hjartalit úr 9. umferð Flugleiðamótsins: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠KD8654 ♥7432 ♦G6 ♣8 Vestur Austur ♠109 ♠G732 ♥65 ♥G10 ♦Á1092 ♦D753 ♣109653 ♣KG4 Suður ♠Á ♥ÁKD98 ♦K84 ♣ÁD72 Bretarnir Simon Gillis og Fred Moen fóru flatt á spilinu eftir tveggja tígla „multi“-opnun norðurs: Vestur Norður Austur Suður – 2 tíglar * Pass 2 grönd Pass 3 lauf Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu Pass 4 grönd Pass 5 tíglar Pass 5 hjörtu Pass 5 grönd Pass 6 grönd Pass Pass Pass Það er í tísku í Bretlandi og Bandaríkjunum að nota tvo tígla til að sýna veikari gerðina af veikum tveimur í hálit (3–7 punkta), en opna á tveimur hjörtum og spöðum með 8–11 punkta og sexlit. Opnun Moens í norður á tveimur tíglum var þeirrar gerðar, sýndi „veika veika tvo“ í hálit. Gillis spurði með tveimur gröndum og fékk upp há- marksopnun með þremur laufum. Hann spurði aftur, nú um litinn, og norður sagðist eiga spaða með þremur hjörtum. Þá var spurt um lykilspil og drottn- inguna í trompi og loks var slemman valin – sex grönd. Út kom spaði og Gillis horfði döprum augum á hin umkomulausu spil makkers. Þau hefðu nýst vel í hjarta- samningi, en voru ekki slags virði í grandi. Sex grönd fóru fjóra niður, sem er grátlegt þegar sex hjörtu standa á borðinu. Fleiri pör lentu í ógöng- um eftir opnun á multi eða veikum tveimur. Það væri þó óábyrgt að alhæfa of mikið út frá þessu eina spili. Ef norður byrjar á tveimur spöðum er ekki að sjá að nein vandræði skapist ef suður hefur vit á að melda hjartalitinn strax, frekar en spyrja með tveimur grönd- um, eins og margir gerðu. Hitt er erfiðara ef byrjað er á multi með 6–4 í hálitunum, því þá þarf svarhönd að spyrja um sexlitinn og getur því illa sýnt eigin spil. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Da5 4. d4 Rf6 5. Rf3 Bf5 6. Bd2 c6 7. Bc4 e6 8. De2 Bb4 9. a3 Rbd7 10. h3 Rd5 11. g4 Bg6 12. 0–0 Bxc3 13. bxc3 0–0 14. Bd3 Dc7 15. Rg5 Rf4 16. Df3 Rxd3 17. cxd3 e5 18. dxe5 Rxe5 19. Dg3 Hfe8 20. d4 Dd7 21. dxe5 Dxd2 22. f4 Had8 23. Hf2 Dd3 24. Dxd3 Bxd3 25. Hd1 h6 Staðan kom upp í Meistaramóti Tafl- félagsins Hellis sem lauk fyrir skömmu. Stefán Freyr Guð- mundsson (1.920) hafði hvítt gegn Jó- SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. hanni Helga Sigurðssyni (1.970). 26. Rxf7! Kxf7 27. Hfd2 hvítur vinnur nú peð og stuttu síðar skákina. 27. … Hd5 28. Hxd3 Ha5 29. He3 Hxa3 30. f5 Ha5 31. e6+ Kf8 32. Hd7 He7 33. Hed3 Hd5 og svartur gafst upp um leið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.