Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 50
ÍÞRÓTTIR
50 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
ÞJÁLFARI FC Porto, Jose Mourinho, segir við BBC að hann skilji
vel að Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United hafi
verið sár og reiður eftir 2:1 tap í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar. Eftir leikinn lét Ferguson óánægju sína
í ljós er hann gekk að Mourinho og taldi að markvörðurinn Vitor
Baia hefði leikið vel er Roy Keane steig ofan á hann á 87. mínútu
og fékk að launum rautt spjald.
„Ég get vel skilið að Ferguson hafi verið ósáttur við leik sinna
manna. Í hans liði eru margir af snjöllustu knattspyrnumönnum
veraldar, en þeir voru sundurspilaðir af liði sem kostar aðeins
10% af því sem Manchester United kostar,“ sagði Mourinho en
hann gaf í skyn að Ferguson hafi ekki viljað taka í höndina á sér
eftir leikinn. „Ferguson sagði við mig að Vito hefði gert meira úr
atvikinu og hjálpað til að fá Keane af leikvelli með rautt spjald.
Ég svaraði honum og sagðist vilja sjá atvikið aftur áður en ég
segði eitthvað um dóminn,“ segir Mourinho en bætir því við að
Porto hefði átt að gera betur gegn enska liðinu miðað við yfir-
burðina sem liðið hafði að þessu sinni. „Kannski eigum við eftir að
naga okkur í handarbökin eftir tvær vikur þar sem að við nýttum
ekki færin sem við fengum í leiknum.“
Mourinho gerir grín
að Ferguson
RAGNAR Óskarsson, landsliðsmaður í hand-
knattleik, skoraði 10 mörk í fyrrakvöld þeg-
ar Dunkerque vann góðan útisigur á Créteil,
28:25, í frönsku 1. deildinni í handknattleik.
Ragnar gerði þrjú markanna úr vítaköstum.
Dunkerque styrkti með sigrinum stöðu
sína í frönsku deildinni en þar er liðið í bar-
áttu um efstu sætin og er nú í fimmta sæti.
Montpellier er með örugga forystu, 43 stig,
en Chambéry er með 38, Créteil 37, Ivry 35
og Dunkerque 35 stig.
Með frammistöðu sinni er Ragnar orðinn
stigahæsti leikmaður frönsku 1. deildarinnar
hjá vefnum Handzone, með meðaleinkunnina
14,2 fyrir frammistöðu sína í vetur. Stéphane
Stoecklin hjá Chambéry er annar með 13,6 í
meðaleinkunn. Ragnar er jafnframt orðinn
annar markahæsti leikmaður deildarinnar,
hefur skorað 105 mörk, en Volker Michel
hefur skorað 107 mörk fyrir Sélestat.
Skoraði tíu mörk
gegn Créteil
MIKE Manciel og Whitney Rob-
inson, leikmenn úrvalsdeildarliðs
Hauka í körfuknattleik, gefa íslensk-
um körfuknattleiksmönnum ekki
háa einkunn í grein í Detroit Free
Press í gær. Þeir eru hins vegar
mjög hrifnir af landi og þjóð og seg-
ir Manciel meðal annars að hann
hafi varla getað beðið eftir að kom-
ast hingað aftur eftir jólafrí í Banda-
ríkjunum. „Þar eru allt of margir
svo gríðarlega uppteknir af því að
gera ekki neitt,“ segir Manciel.
„Körfuboltinn er hins vegar ekki
merkilegur nema með góðu kryddi
frá Bandaríkjunum,“ segir Manciel
eftir að hafa hrósað matargerð
landsmanna, sérstaklega lambakjöt-
inu og ferskum fiskinum, en notkun
krydds er nokkuð önnur en í hans
heimahögum.
„Liðin fá bandaríska leikmenn til
að skora og vinna leiki. Liðin standa
í raun og falla með frammistöðu
bandarísku leikmannanna. Góðir ís-
lenskir leikmenn eru vandfundnir,“
segir hann.
„Góður íslenskur leikmaður er
eins og rúsínan í pylsuendanum.
Þeir ná því eiginlega ekki að þetta
er samkeppni og virðast frekar vera
í körfu til að hafa gaman af. Þeir ná
ekki að berja sig saman og leika
góða vörn,“ segir Robinson. En þeir
félagar eru sammála um að hér á
landi séu frábærar skyttur.
Manciel sagðist ekki hafa vitað
neitt um Ísland þegar hann ákvað að
koma til Hauka. „Ég forvitnaðist um
landið á Netinu og fann mikið af
myndum af hestum og mold-
arvegum. Svo þegar ég kom þá var
þetta ekkert ósvipað og heima,
hljóðlátt og rólegt. Eitt er þó tals-
vert öðruvísi á Íslandi og það er allt
þetta hraun. Það er hraun eins langt
og augað eygir,“ segir hann og bæt-
ir við að Íslendingar séu yndislegt
fólk.
Hann stefnir að því að komast í
sterkari deild í Evrópu.
Góðir leikmenn vandfundnir
Það hefði einhvern tímann þóttsaga til næsta bæjar að Snæfell
ynni á einum mánuði öll Suðurnesja-
liðin og KR og sæti í
efsta sæti deildar-
innar fyrir lokaum-
ferðirnar. Njarðvík-
ingar skoruðu fyrstu
tvö stigin í leiknum og komust þar
með yfir í leiknum í eina skiptið. Eft-
ir það gengu þeir á vegg, þar sem
vörn Snæfells var, en grunnurinn að
velgengni Snæfells í vetur er mjög
góður varnarleikur. Eftir sjö og
hálfa mínútu höfðu gestirnir einung-
is skorað 6 stig og náðu á köflum
ekki einu sinni skoti á körfuna.
Hólmarar náðu mest sautján stiga
mun í öðrum leikhluta og svo aftur í
þeim þriðja.
Í liði Snæfells átti Hlynur Bær-
ingsson frábæran leik í fyrri hálfleik
og þó sérstaklega í fyrsta leikhluta,
með 9 stig og átta fráköst. Dondrell
Whitmore er einn besti varnarleik-
maður deildarinnar í dag, en hann
hélt Brenton Birmingham í sjö stig-
um í leiknum. Edward Dotson bætir
leik sinn með hverjum leiknum sem
líður og er liðinu mjög mikilvægur.
Sigurður Á. Þorvaldsson átti fína
kafla og svo komu Hafþór Ingi
Gunnarsson og Andrés M. Heiðars-
son með góðar innkomur í leikinn.
Corey Dickerson, þrátt fyrir að vera
stigahæstur maður liðsins, hefur oft
leikið betur.
Hjá gestunum átti Brandon
Woudstra afbragðs góðan leik bæði í
vörn og sókn. Páll Kristinsson átti
góðar rispur en týndist á milli.
Friðrik Stefánsson átti erfitt upp-
dráttar gegn stóru mönnunum hjá
Snæfelli. Halldór Karlsson kom með
mikinn kraft í leik Njarðvíkur en var
fullákafur á köflum. Brenton Birm-
ingham náði sér ekki á strik að þessu
sinni og munar um minna.
Tindastóll slapp fyrir horn
Leikur Tindastóls og ÍR var mjögkaflaskiptur, í fyrsta leikhluta
tóku gestirnir öll völd, gengu í gegn-
um hripleka vörn
heimamanna og eftir
nokkrar mínútur var
staðan orðin 2:12, en
eftir leikhlé heima-
manna náðu varnarmennirnir örlítið
áttum og skytturnar fóru að hitta, en
gestirnir héldu ágætri forystu við lok
leikhlutans, 17:25.
Annan leikhluta áttu heimamenn-
irnir og nú voru það þeir sem réðu
ferðinni og unnu þennan leikhluta
30:8. Í hálfleik var staðan 47:33 og
virtist nú áhorfendum sem fátt gæti
komið í veg fyrir góðan sigur. Þetta
virtust leikmenn Tindastóls halda
líka því eftir leikhlé voru þeir miklu
rólegri og hafa sjálfsagt haldið að
sigur væri í höfn en því fór víðsfjarri.
ÍR-ingar börðust af krafti og söxuðu
niður forskotið og um miðjan síðasta
leikhluta var munurinn kominn nið-
ur í sjö stig og gestirnir sáu að sigur
var mögulegur.
Þegar tæp mínúta var til leiksloka
og munur þrjú stig, lenti þeim Boyd
og Ásgeiri Hlöðverssyni saman und-
ir körfu gestanna og lá við að uppúr
syði, en dómararnir og leikmenn
komu í veg fyrir að menn gerðu eitt-
hvað sem ekki á að sjást á leikvelli.
Boyd skoraði úr öðru skotinu og
staðan 81:77. Eiríkur Önundarson
minnkaði muninn í eitt stig en Cook
skoraði síðustu körfuna og vörn Stól-
anna hélt og þeir sluppu með skrekk-
inn.
Sigurgangan
heldur áfram
SIGURGANGA Snæfells heldur áfram í körfuknattleiknum en í gær-
kvöldi voru það Njarðvíkingar sem lágu í Hólminum, 85:71. Efsta
sætið enn tryggt og styttist í að deildarmeistaratitlinum verði fagn-
að á Snæfellsnesi í fyrsta sinn en tvær umferðir eru eftir og dugar
einn sigur til að fagna titlinum. Tindastóll vann ÍR 83:80.
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
Björn
Björnsson
skrifar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeild:
Grindavík: UMFG - Hamar..................19.15
1. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur - Stjarnan ...19.15
Akureyri: Þór A. - Valur .......................19.15
KNATTSPYRNA
Deilabikarkeppni karla
Efri deild, B-riðill:
Egilshöll: Valur - Keflavík....................18.30
Reykjaneshöllin: ÍA - FH..........................20
Egilshöll: ÍBV - Fram...........................20.30
Í KVÖLD
GUNNAR Einarsson, körfu-
knattleiksmaður úr Keflavík og
fyrirliði liðsins, lék sinn 500. móts-
leik fyrir félagið í gærkvöld þegar
það mætti KR í úrvalsdeildinni.
Gunnar er fjórði leikmaður Kefla-
víkur sem nær þessum áfanga en
á undan honum voru það Guðjón
Skúlason, Jón Kr. Gíslason og
Falur Harðarson.
JOSHUA Murray, leikmaður KR
í körfunni, hefur verið frá keppni í
nokkra leiki vegna meiðsla en
verður með liðinu á lokasprettin-
um og verður væntanlega með í
næsta leik, á móti Hamri í Hvera-
gerði á sunnudaginn.
SVO gæti farið að Ólympíu-
meistarinn í 5.000 metra hlaupi,
Gabriela Szabo frá Rúmeníu, taki
ekki þátt á heimsmeistaramótinu
innanhúss sem fram fer í Búda-
pest í Ungverjalandi í næstu viku.
Szabo lauk ekki keppni í 3.000
metra hlaupi á móti sem fram fór í
Birmingham á Englandi í síðustu
viku en ekki er vitað hvað varð
þess valdandi að hún hætti keppni.
FULLTRÚAR fjármálaeftirlits-
ins á Ítalíu fóru í heimsókn í höf-
uðstöðvar ítalska knattspyrnusam-
bandsins, FIGC, í gær og á sama
tíma var einnig farið inn í höf-
uðstöðvar stjórnar ítölsku deild-
arkeppninnar og félagsliða í efstu
og næstefstu deild þar í landi.
FIGC var gert að láta af hendi
gögn frá árunum 1999–2003 en
grunur leikur á að mörg félagslið
hafi komist upp með að gefa upp
ranga mynd af fjárhagsstöðu sinni
á undanförnum árum til þess að fá
keppnisleyfi sín endurnýjuð.
LIÐIN sem fulltrúar fjármála-
eftirlitsins heimsóttu í dag eru
Evrópumeistararnir AC Milan,
Inter frá Mílanó, meistaralið sl.
árs Juventus, Sampdoria og
Ancona.
FÓLK
KÖRFUKNATTLEIKUR
KR – Keflavík 91:100
DHL-höllin, Reykjavík, úrvalsdeild karla,
Intersport-deildin, fimmtudaginn 26. febr-
úar 2004.
Gangur leiksins: 4:0, 4:4, 9:6, 13:19, 19:30,
19:34, 27:42, 36:49, 42:49, 44:54, 48:54, 50:60,
53:60, 53:70, 58:74, 66:74, 68:76, 73:76, 77:83,
82.90, 88:97, 91:97, 91:100.
Stig KR: Ingvaldur Magni Hafsteinsson 18,
Steinar Kaldal 18, Jesper Sörensen 17,
Baldur Ólafsson 13, Magnús Helgason 11,
Skarphéðinn Ingason 8, Hjalti Kristinsson
4, Ólafur Már Ægisson 2.
Fráköst: 26 í vörn – 9 í sókn.
Stig Keflavíkur: Derrick Allen 23, Hjörtur
Hjartarson 23, Nick Bradford 21, Fannar
Ólafsson 9, Magnús Gunnarsson 6, Gunnar
Stefánsson 5, Gunnar Einarsson 5, Arnar
Freyr Jónsson 4, Jón N. Hafsteinsson 2,
Sverrir Þór Sverrisson 2.
Fráköst: 24 í vörn – 9 í sókn.
Villur: KR 19 – Keflavík 21.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Einar
Þór Skarphéðinsson.
Áhorfendur: Um 175.
Haukar – Þór Þ. 80:76
Ásvellir, Hafnarfirði:
Gangur leiksins: 2:0, 4:4, 13:7, 20:15, 20:20,
25:23, 29:24, 29:31, 40:31, 40:33, 40:35, 46:38,
52:40, 56:49, 56:54, 60:54, 64:58, 67:61, 73:70,
78:74, 78:76, 80:76.
Stig Hauka: Michael Manciel 25, Sævar
Haraldsson 19, Predrag Bojovic 11, Kristinn
Jónasson 8, Whitney Robinson 8, Sigurður
Þ. Einarsson 5, Þórður Gunnþórsson 4.
Fráköst: 21 í vörn – 13 í sókn.
Stig Þórs: Nate Brown 33, Robert Hodgson
16, Leon Brisport 15, Grétar Erlendsson 8,
Finnur Andrésson 4.
Fráköst: 21 í vörn – 6 í sókn.
Villur: Haukar 18 – Þór 16.
Dómarar: Erlingur Snær Erlingsson og
Georg Gísli Andersen. Sæmilegir.
Áhorfendur: Rúmlega 100.
Snæfell – Njarðvík 85:71
Íþróttamiðstöðin Stykkishólmi:
Gangur leiksins: 0:2, 8:4, 15:6, 17:7, 17:13,
22:13, 25:15, 32:15, 32:22, 36:26, 38:30, 45:32,
49:34, 51:40, 59:42, 61:48, 63:50, 65:52, 67:58,
71:60, 75:62, 81:69, 85:71.
Stig Snæfells: Corey Dickerson 24, Edward
Dotson 17, Hlynur Bæringsson 12, Dondrell
Whitmore 11, Sigurður Þorvaldsson 10,
Hafþór Ingi Gunnarsson 6, Andrés M. Heið-
arsson 5.
Fráköst: 26 í vörn – 15 í sókn.
Stig Njarðvíkur: Brandon Woudstra 31,
Páll Kristinsson 16, Friðrik Stefánsson 10,
Brenton Birmingham 7, Halldór Karlsson 5,
Ólafur A. Ingvason 2.
Fráköst: 23 í vörn – 9 í sókn.
Villur: Snæfell 16 – Njarðvík 23.
Dómarar: Eggert Aðalsteinsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson, dálítið mistækir.
Áhorfendur: 345
Tindastóll – ÍR 83:80
Íþróttahúsið Sauðárkróki:
Gangur leiksins: 2:0, 2:12, 15:23, 17:25,
33:25, 44:33, 47:33, 52:33, 55:41, 60:43, 63:48,
67:56, 74:64, 77:72, 79:77, 81:79, 83:80.
Stig Tindastóls: Nick Boyd 32, Clifton Cook
15, Friðrik Hreinsson 10, Axel Kárason 10,
Svavar A. Birgisson 9, Helgi R. Viggósson 4,
Óli Barðdal 3.
Fráköst: 27 í vörn – 12 í sókn.
Stig ÍR: Eugene Christoper 32, Eiríkur Ön-
undarson 17, Fannar Helgason 13, Ólafur
Þórisson 6, Ásgeir Hlöðversson 5, Ómar
Sævarsson 5, Kevin Grandberg 2.
Fráköst: 28 í vörn – 12 í sókn.
Villur: Tindastóll 18 – ÍR 17.
Dómarar: Aðalsteinn Hjartarson og Gunnar
Fr. Steinsson, dæmdu vel.
KFÍ – Breiðablik 95:88
Íþróttahúsið Ísafirði:
Gangur leiksins: 7:2, 14:16, 23:22, 25:30,
33:39, 33:46, 41:49, 47:49, 57:56, 62:61, 67:69,
73:75, 77:77, 82:81, 92:86, 95:88.
Stig KFÍ: Troy Wiley 33, JaJa Bey 21, Pétur
Már Sigurðsson 17, Bethuel Fletcher 14,
Baldur I. Jónasson 8, Haraldur J. Jóhann-
esson 2.
Fráköst: 28 í vörn – 12 í sókn.
Stig Breiðabliks: Mirko Virijevic 28, Kyle
Williams 19, Pálmi F. Sigurgeirsson 16,
Uros Pilipovis 9, Loftur Þ. Einarsson 6,
Ágúst Angantýsson 5, Ólafur H. Guðnason,
3, Þórarinn Ö. Andrésson 2.
Fráköst: 23 í vörn – 18 í sókn.
Villur: KFÍ 16 – Breiðablik 25.
Staðan:
Snæfell 20 17 3 1715:1603 34
Grindavík 19 15 4 1706:1615 30
Keflavík 20 14 6 1965:1750 28
Njarðvík 20 12 8 1803:1708 24
Haukar 20 12 8 1604:1579 24
Tindastóll 20 11 9 1853:1768 22
KR 20 10 10 1826:1771 20
Hamar 19 9 10 1584:1623 18
ÍR 20 6 14 1734:1812 12
KFÍ 20 5 15 1817:2050 10
Breiðablik 20 4 16 1640:1768 8
Þór Þorl. 20 4 16 1659:1859 8
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Boston – Milwaukee ........................... 104:106
Toronto – Washington............................ 74:76
New Orleans – LA Clippers .................. 99:93
Minnesota – New Jersey ....................... 81:68
Memphis – Golden State........................ 92:99
Chicago – Detroit.................................. 88:107
Houston – Cleveland .............................. 90:84
Denver – LA Lakers .......................... 111:112
Phoenix – New York............................. 113:95
Seattle – Utah.......................................... 92:93
Eftir framlengingu.
KNATTSPYRNA
UEFA-bikarinn
32-liða úrslit, fyrri leikir:
Spartak Moskva – Mallorca...................... 0:3
– Samuel Eto 67., Gonzalez Rodriguez 81.,
Jesus Perera 85. – 15.000.
Vålerenga – Newcastle ............................. 1:1
Runar Normann 54. – Craig Bellamy 39. –
17.039.
Gaziantepspor – Roma.............................. 1:0
Yusuf Simsek 19. – 18.000.
Groclin Grodzisk – Bordeaux .................. 0:1
– Marouane Chamakh 90. Rautt spjald:
Eduardo Costa (Bordeaux) 30. – 5.000.
Marseille – Dnipro ..................................... 1:0
Didieer Drogba 55. víti. – 15.500.
Galatasaray – Villarreal ........................... 2:2
Murat Erdogan 26., Cesar Luis Prates 51. –
Sonny Anderson 6., Juan Riguelme 22.
Rautt spjald: Sergio Ballesteros (Villarreal)
63. – 55.000.
Parma – Genclerbirligi ............................. 0:1
– Josip Skoko 58. – 3.000.
Perugia – PSV Eindhoven........................ 0:0
10.000.
Auxerre – Panathinaikos.......................... 0:0
Rautt spjald: Olivier Kapo (Auxerre) 66. –
15.000.
Bröndby – Barcelona................................. 0:1
– Gaucho Ronaldinho 62. – 26.031.
Club Brugge – Debrecen .......................... 1:0
Rune Lange 40. – 21.400.
Celtic – Teplice........................................... 3:0
Henrik Larsson 3., 90. Chris Sutton 12. –
48.947.
Liverpool – Levski Sofia ........................... 2:0
Steven Gerrard 67., Harry Kewell 70. –
39.149.
Sochaux – Inter Mílanó ............................. 2:2
Pierre-Alain Frau 60., 81. – Christian Vieri
8., Alvaro Recoba 61. – 19.551
Valencia – Besiktas.................................... 3:2
Mohamed Sissoko 24., Fabian Canobbio 42.,
David Navarro 90. – Daniel Pancu 17., 39. –
15.000.
Benfica – Rosenborg ................................. 1:0
Zlatko Zahovic 60.
Fylkir og ÍA fengu
síðustu titlana
Fylkir og ÍA hrepptu tvo síðustu titlana sem
keppt var um á Íslandsmótinu í innanhúss-
knattspyrnu en leikið var til úrslita í tveimur
flokkum um síðustu helgi.
Fylkir sigraði HK, 2:1, í úrslitaleiknum í 4.
flokki kvenna og ÍA vann Njarðvík, 3:1, í úr-
slitaleiknum í 5. flokki karla. Úrslitakeppnin
í báðum flokkum var leikin í Austurbergi í
Efra-Breiðholti.
Met hjá
Gumm-
ersbach
MET verður sett í þýska
handknattleiknum á morg-
unn þegar Gummersbach fær
Magdeburg í heimsókn í
Kölnarena. Alls hafa verið
seldir 19.154 miðar á leikinn
og hafa aldrei verið seldir
fleiri aðgöngumiðar á leik í 1.
deildinni í þýska handknatt-
leiknum og reyndar er því
haldið fram að aldrei hafi
fleiri keypt sér aðgöngumiða
á deildarleik í handknattleik
í heiminum. Fyrra met var
einnig sett í Kölnarena þegar
Kiel sótti Gummersbach
heim 30. nóvember 2001. Þá
sóttu 18.576 áhorfendur leik-
inn. Sigfús Sigurðsson lands-
liðsmaður leikur með Magde-
burg og Alfreð Gíslason
þjálfar liðið eins og kunnugt
er og ljóst að þeir eiga eftir
að taka þátt í gríðarlegum
stemmningsleik.