Morgunblaðið - 12.03.2004, Blaðsíða 27
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 27
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
OROBLU
ráðgjafi
aðstoðar
við val á
sokkabuxum
í dag kl. 13-17
í Lyf og heilsu
Austurveri,
kl. 14-17
í Lyf og heilsu
Melhaga,
á morgun
kl. 12-17 í
Lyf og heilsu
Kringlu og
kl. 12-16 í
Lyf og heilsu
Firði
Hafnarfirði.
Sokkabuxur
fylgja öllum
Oroblu
vörum sem
kaupauki
4 4 4
a l i n a n . i s
FRAMUNDAN
Pílutjöld ehf
Faxafeni 12
108 Reykjavík
s. 553 0095
www.pilu.is
• Gardínustangir
• Felligardínur
• Bambusgardínur
• Sólskyggni
Smíðum og
saumum eftir máli.
Allt fyrir gluggann
Stuttur afgreiðslutími
Sjón er sögu ríkari hjá okkur!
Frábært úrval
Bláu húsin v/Faxafen • 568 2662
Bláu húsin
v. Faxafen
s: 581 1065
Velkomin á
nýjan stað
R
E
S
T
A
U
R
A
N
T
•
C
A
F
E
Ólafsfjörður | Biskupinn yfir Íslandi, Karl Sig-
urbjörnsson, var á ferð í Ólafsfirði fyrir nokkrum
dögum, ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Guðjóns-
dóttur. Biskupsheimsóknin tókst mjög vel í alla
staði.
Karl var mjög ánægður með heimsóknina og
glaður yfir því hve marga hann hitti við messuna
um kvöldið og hvað mikið af börnum og ungling-
um mætti en hann talaði til þeirra sérstaklega og
gaf þeim kross að gjöf. Þau sungu tvö lög úr
sunnudagastundunum og tókst það vel. Þau sem
messuna sóttu voru flest sammála um að þau hefðu
átt góða stund og gott hefði verið að hlýða á bisk-
up. Tilgangur með vísitasíu biskups er að skoða
safnaðarlífið, hver er staða og þjónusta þjóðkirkj-
unnar í samfélaginu og hver er framtíðarsýnin.
Hann var einnig með helgistund á Hornbrekku
eftir hádegi á miðvikudeginum þar sem organist-
inn spilaði og kórinn söng. Hann heimsótti Kvía-
bekkjarkirkju fyrr um morguninn og var með
helgistund þar.
Karl sagði meðal annars að hann ætti góðar
minningar frá Ólafsfirði frá því hann kom hingað
fyrst, þá rúmlega tvítugur. Það var kringum 1970
er hann heimsótti Einar bróður sinn, sem þá var
sóknarprestur Ólafsfirðinga.
Biskup átti fund með sóknarnefnd og var sá fund-
ur mjög gagnlegur þar sem ýmis mál Ólafsfjarð-
arkirkju voru rædd. Hann ræddi einnig um Kvía-
bekkjarkirkju, sem er gömul timburkirkja í
sveitinni. Kom þar fram að tvennt væri í stöðunni
varðandi kirkjuna, annars vegar að gera hana upp
og hins vegar að taka hana ofan og búa til minn-
isvarða um hana.
Það kom vel í ljós af hans hálfu að Ólafsfirðingar
verða sjálfir að fjármagna það ef þeir vilja gera
kirkjuna upp, því ekki munu neinir opinberir sjóðir
eða styrkir fjármagna það, enda þarf Ólafsfjarð-
arkirkja á öllu því fé að halda sem fæst úr opinber-
um sjóðum. Þetta er því það verkefni sem þarf að
ræða á opinberum vettvangi hér í Ólafsfirð og gott
er að varpa þeirri spurningu fram hér hvað Ólafs-
firðingar vilja gera. Ef til vill séu einhverjir brott-
fluttir Ólafsfirðingar sem vilja taka það að sér að
mynda átthagafélag um kirkjuna og útvega fjár-
magn til viðgerðar.
Biskup kynnti sér safnaðarstarf
Verður kirkjan á Kvíabekk
rifin eða endurbætt?
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Karl Sigurbjörnsson á tali við einn elsta núlifandi Ólafs-
firðinginn, Petru Rögnvaldsdóttur, sem er 95 ára.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Karl Sigurbjörnsson í ræðustól á Hornbrekku, dval-
arheimili aldraðra í Ólafsfirði.
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.