Morgunblaðið - 12.03.2004, Blaðsíða 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 45
urinn. Afi var eins og klettur þegar
hann hugsaði um ömmu og Önnu í
veikindum sínum. Alla tíð lét hann
sig skipta máli hvað þú varst að gera
og spurði hvernig þú og þínir hefðuð
það. Veiðin var helsta áhugamál afa
og þegar maður kom í heimsókn í
Fagrahvamminn var alltaf gaman að
hlusta á veiðisögur eða stelast út í
skúr til að kíkja á veiðidótið eða
maðkana sem hann geymdi í kassa.
Það var eins og að koma inn í
ævintýraheim að heimsækja afa og
ömmu í Blesugróf. Okkur eru minn-
isstæðar ferðir okkar niður í Blesu-
gróf með mömmu og pabba á Merc-
ury Comet eða stórum brúnum
Peugeot, hversu brekkan var brött
og fjallið hátt sem stóð þar við húsið.
Hversu mikið stórfljót og hár gróður
umlukti húsið þeirra. Í augum barna
er svona ævintýraheimur dýrmæt
gjöf að fá að njóta.
Það var alltaf gaman að koma í
heimsókn í Fagrahvamm og heim-
sækja afa og ömmu. Þaðan kom mað-
ur alltaf saddur út. Afi og amma
smurðu ofan í okkur bræðurna brauð
með miklu smjöri og rúllupylsu og
alltaf fékk maður brauðsneið með
sér í nesti heim. Oft spáðum við
bræðurnir í því af hverju afi væri
með svona stóra ístru. Þegar við
spurðum hann sagði hann okkur að
hann væri með lamb í maganum.
Okkur Þorgeiri, Helgu og Gunnari
er minnisstæð veiðiferð upp að Hlíð-
arvatni á Snæfellsnesi sumarið 2002
þar sem hann lék á als oddi. Á leið-
inni upp eftir og í gegnum Borgar-
fjörðinn og við Snæfellsnesið sagði
hann okkur bæði veiðisögur sem og
sögur af kvennaförum frá því í gamla
daga. Þegar að vatninu var komið
settum við út stangirnar rétt hjá afa
og vorum í rólegheitum að draga inn.
Við vorum ekki hálfnuð þegar hann
var búinn að draga inn og rokinn
eitthvert annað til að athuga hvort
að það veiddist betur þar. Svona
gekk þetta í nokkur skipti, alltaf
fylgdum við honum eftir og alltaf var
hann rokinn eitthvert annað eftir
smá stund. Að lokum hættum við að
nenna að fylgja honum eftir heldur
leyfðum honum að ráfa í burtu. Svo
sjáum við eftir nokkur köst að afi
gamli er kominn langt í burtu frá
okkur og það rétt glitti í hann. Þegar
við náðum svo loks í hann var hann
það örmagna af þreytu að hann
komst ekki til baka. Svona var afi í
hnotskurn í sambandi við veiðina,
það þrjóskur að hann lét ekki ald-
urinn koma í veg fyrir að finna besta
veiðistaðinn við vatnið.
Síðustu árin bjó afi á Hrafnistu.
Þar var alltaf gott að koma og ræða
við hann um það sem dreif á hans
daga. Oftar en ekki mátti finna hann
í gleðskap með samferðamönnum
sínum á Hrafnistu að horfa á íþróttir
á Sýn og ræða um gömlu góðu dag-
ana. Ég (Þorgeir) og Helga viljum
sérstaklega minnast afa þegar sonur
okkar Magnús Ingvar Þorgeirsson
fæddist hinn 18. ágúst síðastliðinn.
Afi var manna spenntastur að fá að
vita þegar hann kom í heiminn og
linnti hann ekki látum fyrr en ég
sótti hann upp á Hrafnistu og lofaði
honum að halda á Magnúsi Ingvari.
Elsku afi, við geymum minn-
inguna um þig í hjörtum okkar og
vonum að þú komist í veiði þegar þú
vilt á þeim stað sem þú hvílir á nú.
Við biðjum þess að guð gefi fjöl-
skyldunni og sérstaklega Önnu styrk
til að hjálpa sér í sorginni.
Þorgeir og fjölskylda,
Gunnar og Jóna og Ásgeir.
Fleiri minningargreinar um Þor-
geir J. Einarsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ATVINNA ÓSKAST
Véltæknifræðingur
með víðtæka reynslu, m.a í vöruþróun,
markaðssetningu erlendis og framleiðslu-
stýringu, óskar eftir starfi.
Upplýsingar í síma 694 9830.
Holræsahreinsun ehf.
óskar eftir starfsmönnum með meiraprófs-
réttindi. Upplýsingar veita Rögnvaldur og Gísli
í síma 565 1882.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Kópavogsbúar
Opið hús
Sjálfstæðisfélag Kópavogs býður Kópavogsbúum
í opið hús á laugardagsmorgnum milli kl. 10.00
og 12.00 í Hlíðasmára 19.
Þar gefst Kópavogsbúum kostur á að hitta alþingis-
menn, bæjarfulltrúa, nefndarfólk og aðra
trúnaðarmenn flokksins, skiptast á skoðunum og
koma málum á framfæri.
Á morgun, laugardaginn 13.mars, verður
Halla Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður
leikskólanefndar, gestur í opnu húsi.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Málþing NLFÍ
haldið á Hótel Loftleiðum
um Erfðabreyttar afurðir.
Lesið fyrirlestrana á:
www. heilsuvernd.is
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Hafnarstræti 97, verslhús 1A, 01-0104, Akureyri (214-6976), þingl.
eig. Bravo ehf, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, mið-
vikudaginn 17. mars 2004 kl. 10:30.
Hafnarstræti 97, verslhús 1C, 01-0105, Akureyri (214-6977), þingl.
eig. Bravo ehf, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, mið-
vikudaginn 17. mars 2004 kl. 10:40.
Hafnarstræti 97, verslhús 1E, 01-0106, Akureyri (214-6978), þingl.
eig. Bravo ehf., gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna,
miðvikudaginn 17. mars 2004 kl. 10:50.
Hafnarstræti 97, verslhús 2A, 01-0204, Akureyri (214-6982), þingl.
eig. Bravo ehf., gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna,
miðvikudaginn 17. mars 2004 kl. 11:00.
Hafnarstræti 97, verslhús 2E, 01-0207, Akureyri (214-6985), þingl.
eig. Bravo ehf., gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna,
miðvikudaginn 17. mars 2004 kl. 11:10.
Hafnarstræti 97, verslhús 2F, 01-0208, Akureyri (214-6986), þingl.
eig. Bravo ehf., gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna,
miðvikudaginn 17. mars 2004 kl. 11:20.
Hólakot, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Örnólfur Eiríksson, gerðarbeið-
andi Lánasjóður landbúnaðarins, þriðjudaginn 16. mars 2004
kl. 14:00.
Melgerði 2, parhús 02-0101, Akureyri (215-2281), þingl. eig. Margrét
J. Þorsteinsdóttir og Snorri Ragnar Bragason, gerðarbeiðendur
Byko hf., Íbúðalánasjóður, Jónar Transport hf., sýslumaðurinn á
Akureyri og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, miðvikudaginn 17.
mars 2004 kl. 11:50.
Norðurgata 17A, íb. 01-0201, Akureyri, þingl. eig. Þuríður María
Hauksdóttir og Sigurgeir Söebech, gerðarbeiðendur Akureyrarkaup-
staður, Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf. og Sparisjóður Norðlend-
inga, miðvikudaginn 17. mars 2004 kl. 13:30.
Norðurvegur 1, eignarhl., Hrísey, þingl. eig. Hafdís Pálsdóttir, gerð-
arbeiðandi Akureyrarkaupstaður, fimmtudaginn 18. mars 2004
kl. 10:10.
Skíðabraut 4, verslun 01-0102, Dalvíkurbyggð (215-5177), þingl.
eig. Kristín Rósa Hjálmarsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf.,
Landssími Íslands hf., Ljósin ehf. og Ölgerðin Egill Skallagrímsson
ehf., fimmtudaginn 18. mars 2004 kl. 11:45.
Tjarnarlundur 14J, 01-0403, Akureyri (215-1281), þingl. eig. þrb.
Magnúsar Más Þorvaldssonar og Dagnýjar Sigríðar Sigurjónsdóttur,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 17. mars 2004
kl. 14:30.
Torfufell land, íb. 01-0101, Eyjafjarðarsveit (215-9765), þingl. eig.
Rósa Hallgrímsdóttir og Hallgrímur Hallgrímsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. mars 2004 kl. 14:40.
Urðargil 24, Akureyri, þingl. eig. Hrafnhildur S. Björnsdóttir, gerðar-
beiðendur Akureyrarkaupstaður og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
17. mars 2004 kl. 15:00.
Vættagil 32, parhús 04-0101, Akureyri, þingl. eig. Fanney Sigrún
Ingvadóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður Norður-
lands, Lífeyrissjóður verslunarmanna og sýslumaðurinn á Akureyri,
miðvikudaginn 17. mars 2004 kl. 15:30.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
11. mars 2004.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
TIL SÖLU
Fjórar lóðir til sölu
í landi Vaðness. Kjarrivaxið. Heitt og kalt vatn
komið að lóðamörkum.
Uppl. í síma 486 4448 eða 893 5248 - Kjartan.
SUMARHÚS/LÓÐIR
Heilsársorlofshús til leigu
Stéttarfélög - starfsmannafélög!
Leiga allt árið eða sumarleiga, 60 fm nýl. glæsi-
legt orlofshús í Vaðnesi, Grímsnesi. Hitaveita,
8 m. pottur á verönd, 3 svefnherb., sjónvarp og
allur húsbúnaður. S. 555 0991 og 894 3755.
TILKYNNINGAR
Mosfellsbær
Tillaga
að deiliskipulagi íbúðarsvæðis vestan
Höfðahverfis og breyting á stofnana-
svæði í Höfðahverfi í Mosfellsbæ
Á fundi bæjarstjórnar þann 3. mars 2004
var samþykkt kynning á tillögu að deili-
skipulagi íbúðarsvæðis vestan Höfða-
hverfis og breyting á stofnanasvæði í
Höfðahverfi í Mosfellsbæ í samræmi við.
25. gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/
1997, með síðari breytingum.
Svæðið afmarkast af Hlíðargolfvelli til
norðurs, Höfðahverfi til austurs, Baugs-
hlíð til suðurs og Blikastaðarlandi til vest-
urs. Jafnframt breytist stofnanasvæði
vestast í Höfðahverfi í íbúðarsvæði. Alls er
gert ráð fyrir að á svæðið komi íbúðar-
byggð með 121 íbúð í fjölbýli og sérbýli.
Tillagan verður til sýnis í afgreiðslu bæjar-
skrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2,
fyrstu hæð, frá 12. mars til 13. apríl nk.
Jafnframt verður hægt að skoða tillöguna
á heimasíðu Mosfellsbæjar
www.mos.is/framkvæmdir/deiliskipulag.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu
hafa borist skipulagsnefnd Mosfellsbæjar
fyrir 24. apríl nk.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkir tillög-
unni.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
Í kvöld kl. 20.30 heldur Óskar
Guðmundsson erindi, Trúarlíf
Íslendinga á miðöldum í húsi
félagsins í Ingólfsstræti 22.
Hugræktarnámskeið Guðspeki-
félagsins heldur áfram fimmtu-
daginn 18. mars kl. 20.30 í um-
sjá Jóns Ellerts Benediktssonar
„Agni-jóga”.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
Í kvöld kl. 20.00
Bæn og lofgjörð í umsjón
Elsabetar og Miriam.
Allir velkomnir.
I.O.O.F. 12 1843127½ Bh
I.O.O.F. 1 1843128 8½.II
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Strandgötu
52, Eskifirði, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Hafnargata 2, Eskifirði (217-0225), þingl. eig. Réttingaverkst. Jóns
Trausta ehf. og Samherji hf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun, mánu-
daginn 15. mars 2004 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Eskifirði,
11. mars 2004.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Tjarnargata 10B, 0501, Reykjavík, þingl. eig. Eric Tryggvi Ólafsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. mars 2004
kl. 15:00.
Urðarstígur 8, 0301, Reykjavík , þingl. eig. Gestur Páll Reynisson,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 16. mars 2004
kl. 14:30.
Vesturgata 12, 0301, Reykjavík, þingl. eig. Hilmar Þorsteinn Hilmars-
son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 16. mars
2004 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
11. mars 2004.
ATVINNA
mbl.is