Morgunblaðið - 12.03.2004, Blaðsíða 23
Grafarvogur | Það var kátt í
Korpuskóla þegar kennarar og
nemendur héldu saman þemaviku
á dögunum, en viðfangsefni dag-
anna var þjóðsögur og ævintýri.
Börnin gáfu hugarfluginu lausan
tauminn og brugðu á leik bæði
með ýmislegt föndur og verkefna-
vinnu tengda ævintýrum og þjóð-
sögum.
Í skólanum má nú sjá Jón og
tröllskessuna, hellinn hennar
Flumbru úr Ástarsögu úr fjöll-
unum, álfa, tröll, og Lag-
arfljótsorminn. Þjóðsögur voru
færðar í nútímalegt horf og nýjar
samdar.
Í lok vikunnar var síðan skóla-
skemmtun þar sem nemendur og
foreldrar komu saman, sáu leik-
sýningar, skoðuðu vinnu nemenda
frá þemadögum, tóku þátt í ýms-
um verkefnum og fóru á kaffihús.
Unnið með ævintýrin í Korpuskóla.
Þjóðsögur og æv-
intýri í Korpuskóla
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 23
Ferðamálastyrkur | Hafnarfjarð-
arbær og samstarfsaðilar hans Hóp-
bílar, Fjörukrá og Íshestar fengu
nýlega eina milljón í styrk frá
Ferðamálaráði Íslands. Um er að
ræða samstarf í markaðsmálum er-
lendis og leggja Hafnarfjarðarbær
og samstarfsaðilar til tvær milljónir
á móti og er framlag bæjarins þar af
hálf milljón.
Auglýst var eftir samstarfsaðilum
á fjórum erlendum markaðs-
svæðum. Hafnarfjarðarbær og sam-
starfsaðilar hans hlutu styrk til
markaðssetningar í Þýskalandi.
Sjaldgæft er að ferðamálaráð styrki
sveitarfélög vegna markaðs-
setningar erlendis og því felst í
styrknum mikil viðurkenning á
styrkleika ferðamála hjá Hafn-
arfjarðarbæ.
Kópavogur | Á morgun, laugardag,
standa allar dyr opnar í Mennta-
skólanum í Kópavogi. Þar verður af-
ar fjölbreytt starfsemi skólans
kynnt, en um 1300 nemendur stunda
nám við skólann í mismunandi deild-
um og er þar um að ræða bæði dag-
skóla- og kvöldskólanám.
Námsframboð skólans verður þar
kynnt á glæsilegan hátt, nemendur
bjóða upp á kökur og kaffi í frönsku
kaffihúsi, framreiðslunemar eld-
steikja pönnukökur, íþróttakenn-
arar mæla púls og hjartslátt og sýna
ýmsar leiðir í heilsueflingu.
Leiðsöguskólinn og Ferða-
málaskólinn kynna nám vegna mót-
töku ferðamanna, tölvufyrirtæki
kynna tölvur og not þeirra í kennslu,
bóknámsbrautir skólans eru fjöl-
margar. Sjókokkar, meistaranám,
skrifstofubrautir og margt fleira
verður kynnt. Einnig verður hægt
að kynnast félagslífi nemendanna
sem taka virkan þátt í MK-deginum.
Opið hús í MK
Kátir matreiðslunemar í MK.
byggingar umræddra svæða. þar má
telja 400 milljóna króna tekjur sem
m.a. er ráðstafað til byggingar á
hjúkrunarheimili og gagngerra end-
urbóta á Sundlaug Seltjarnarness.
Rúmum 80 milljónum króna er óráð-
stafað á tímabilinu. Er það gert í var-
úðarskyni, til að mæta sveiflum í
rekstri eða nýjum framkvæmdum svo
sem við skólamannvirki bæjarins.
Að sögn Jónmundar Guðmarsson-
ar bæjarstjóra undirstrikar áætlunin
álit sérfræðinga um trausta fjárhags-
stöðu bæjarsjóðs, sem farið hefur
batnandi milli ára. „Áætlunin ber
Seltjarnarnes | Langtímafjárhags-
áætlun Seltjarnarnesbæjar 2005 til
2007 var samþykkt á fundi bæjar-
stjórnar á miðvikudag. Þar er lögð
áhersla á áframhaldandi skilvirkni í
rekstri, markvissa niðurgreiðslu
langtímalána og metnaðarfulla þjón-
ustu við íbúa á hagkvæmum skatt-
kjörum. Hvorki er gert ráð fyrir
hækkun álagningar á tímabilinu né
töku nýrra langtímalána. Þvert á móti
er að sögn bæjaryfirvalda stefnt að
því að halda álögum á íbúa lágum en
þjónustu við bæjarbúa samkeppnis-
færri og fjárhagsstöðu sterkri.
Peningaleg staða Seltjarnarnes-
bæjar hefur stöðugt styrkst frá árinu
2001 og lækkaði meðal annars nettó-
skuld samstæðunnar á hvern íbúa úr
102 þúsundum króna í árslok 2001 í 94
þúsund í árslok 2002.
Forsendur rekstrargjalda taka mið
af rauntölum bæjarsjóðs síðustu ár og
fyrirliggjandi gögnum á þróun efna-
hagsmála á næstu árum. Áætlunin
gerir ekki ráð fyrir íbúafjölgun þar
sem deiliskipulag vegna Hrólfsskála-
mels og Suðurstrandar liggur ekki
fyrir á þessu stigi. Hins vegar er gert
ráð fyrir hóflegum tekjum vegna upp-
vitni um nýja framfarasókn í þjónustu
við íbúa og framkvæmdum á næstu
árum,“ segir Jónmundur og bætir við
að gangi áætlunin eftir verði á næstu
þremur árum varið rúmlega einum
milljarði króna til nýframkvæmda á
sviði fræðslumála, íþrótta-, heilsuefl-
ingar og öldrunarþjónustu. „Að auki
er gert ráð fyrir fjárveitingum til ým-
issa annarra umbótamála, svo sem
lagningu ljósleiðara inn á hvert heim-
ili, endurbóta á Nesstofu og umhverfi
hennar, lokafrágangi á fráveitumál-
um bæjarins, veglegu gatnagerðar-
átaki og fegrun bæjarins.“
Langtímafjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar 2005–2007 samþykkt
Peningaleg staða styrkist stöðugt