Morgunblaðið - 12.03.2004, Blaðsíða 24
AKUREYRI
24 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi, Fjarðarkaupum
og Yggdrasil, Kárastíg 1.
Rauðsmára-
Phytoestrogen
Fyrir konur á
breytingarskeiðinu
AÐEINS ein ríkisstofnun er ein-
göngu með starfsmenn á Eyjafjarð-
arsvæðinu en ekki á höfuðborgar-
svæðinu, Yfirkjötmat ríkisins. Í
öðrum tilfellum eru flestar aðeins
með starfsmenn á borgarsvæðinu og
í nokkrum tilvikum bæði þar og í
Eyjafirði. Þetta kemur fram í sam-
antekt Halldórs R. Gíslasonar verk-
efnisstjóra fyrir Atvinnuþróunar-
félag Eyjafjarðar.
Um er að ræða samanburðar-
skýrslu um fjölda opinberra starfa á
höfuðborgarsvæðinu og Eyjafjarð-
arsvæðinu. Störf á vegum íslenska
ríkisins eru 17.581 skv. skýrslunni,
en ekki voru taldar með stofnanir
sem að stórum hluta eru fjármagn-
aðar af sveitarfélögum, t.d. Sinfón-
íuhljómsveit Íslands eða ríkisfyrir-
tæki sem eru hlutafélög, eins og
Landssíminn og Landsvirkjun og
ekki heldur sendiskrifstofur erlend-
is. Meirihluti þessara starfa er á höf-
uðborgarsvæðinu, 12.662 eða um
72% af heildarfjölda, en þar búa
62,4% landsmanna. Í Eyjafirði eru
1.153 ríkisstörf, 6,6% af heild en þar
búa 7,6% landsmanna. Þannig er
munur á íbúafjölda staðanna ríflega
áttfaldur, en munur á opinberum
störfum tæplega ellefufaldur. Ef
jafna ætti þennan mun er í skýrsl-
unni bent á að fækka þyrfti ríkis-
störfum á höfuðborgarsvæðinu um
3.180, jafngildi 26 Seðlabanka, eða
fjölga ríkisstörfum í Eyjafirði um
387, sem jafngilda tveimur stofnun-
um á borð við Háskólann á Akureyri.
Þau 1.153 opinberu störf sem til
staðar eru í Eyjafirði skiptast á milli
33 ríkisstofnana. Dreifing starfanna
er afar lítil, um 850 þeirra eru á heil-
brigðisstofnunum, framhaldsskólum
og í Háskólanum á Akureyri. Á veg-
um forsætis- og utanríkisráðuneytis
eru engin störf í Eyjafirði og það
sama gildir um Hagstofu Íslands.
Opinber störf eru á vegum annarra
ráðuneyta og stofnana í Eyjafirði.
Þenslan í opinbera geiranum
Valur Knútsson, formaður stjórn-
ar AfE, sagði að síðustu misseri
hefði markvisst verið unnið að því að
markaðssetja Akureyri og Eyjafjörð
sem ákjósanlegan stað til búsetu
sem og til að staðsetja fyrirtæki.
Hann sagði greinilegt að þensla á at-
vinnumarkaði væri ekki hvað síst í
opinbera geiranum, „og þangað
verðum við að horfa varðandi fjölgun
starfa í byggðarlaginu,“ sagði hann.
Í máli Halldórs R. Gíslasonar, höf-
undar skýrslunnar kom fram að 92%
allra starfa á vegum rannsókna-
stofnana atvinnuveganna eru á höf-
uðborgarsvæðinu, 3,5% í Eyjafirði
og eins benti hann á að um 90% op-
inberra starfa í sjávarútvegi væru
syðra, um 4% í Eyjafirði. Þarna væri
lítið samræmi, einkum í ljósi þess að
Akureyri væri kvótahæsti staður
landsins og Eyjafjörður eitt öflug-
asta sjávarútvegssvæði við Norður-
Atlantshaf. Benti hann á að þessum
málum væri á annan veg farið t.d. í
Noregi og Skotlandi, þar sem höf-
uðstöðvar sjávarútvegsstofnana
væru á þeim stöðum þar sem útgerð
og fiskvinnsla væri hvað öflugust.
Með niðurstöðu skýrslunnar að
leiðarljósi telja forsvarsmenn AfE
því að helstu möguleikarnir til að
fjölga opinberum störfum á Eyja-
fjarðarsvæðinu séu á sviði rann-
sókna sem tengjast sjávarútvegi og
matvælavinnslu. Þekking á sjávarút-
vegi sé mikil á svæðinu og aukning
ríkisstarfa á því sviði myndi bæði
styrkja atvinnugreinarnar og auka
áhrif þeirra starfa á greinina í heild.
Störf við eftirlit með öðrum matvæl-
um og rannsóknum myndi einnig
henta vel í ljósi mikilvægis svæðisins
sem matvælaframleiðslusvæðis fyrir
landið. Halldór benti einnig á að
störf í umhverfis- og skipulagsmál-
um gætu fallið vel að svæðinu.
Í byggðaáætlun sem gildir fyrir
tímabili 2002 til 2005 er sérstök til-
laga um að efla Eyjafjarðarsvæðið.
„Framlag ríkisvaldsins verði efling
Akureyrar sem skólabæjar á fram-
haldsskóla- og háskólastigi, flutning-
ur starfa og verkefna í opinberri
þjónustu til Akureyrar, m.a. á sviði
sjávarútvegs og stuðningur við efl-
ingu ferðaþjónustu og þekkingar-
starfsemi á svæðinu,“ segir í áætl-
uninni. Fulltrúar félagsins benda á
að nær tvö ár séu frá því tillögurnar
voru samþykktar og að í ljósi þess að
Eyjafjarðarsvæðið sé sérstakt
áhersluverkefni í byggðaáætlun sé
rétt að benda á að mikil tækifæri séu
fyrir hendi til að styrkja svæðið með
fjölgun opinberra starfa. Það sýni
skýrslan berlega, en ákvarðanir liggi
hins vegar hjá stjórnvöldum.
Hlutfallslega mun færri opinber störf í Eyjafirði en á höfuðborgarsvæðinu
Styrkja má svæðið með
fjölgun opinberra starfa
Ísland og Vesturheimur | Gagnkvæm
tengsl Íslands og Vesturheims er yfirskrift
kynningarfundar sem efnt verður til á morg-
un, laugardaginn 13. mars, kl. 11 í Deiglunni,
Kaupvangsstræti.
Almar Grímsson formaður Þjóðræknis-
félagsins gerir grein fyrir starfsemi þess, Val-
geir Þorvaldsson og Wincie Jóhannsdóttir
segja frá Vesturfarasetrinu, Ásta Sól Krist-
jánsdóttir, kynnir Snorraverkefnið, tilboð
ungs fólks frá Íslandi til starfsdvalar í Vestur-
heimi og Jónas Þór segir frá ferðum sem
hann skipuleggur til Norður-Ameríku og
námskeiðum um landnám Íslendinga í
Vesturheimi. Þá verður kynning á kvikmynd
Sveins Sveinssonar um landnám Íslendinga í
Norður-Dakota og Anna Sigríður Helgadóttir
syngur.
Á fundinum verður undirritaður samningur
milli Þjóðræknisfélags Íslendinga og Vestur-
farasetursins á Hofsósi.
Hádegistónleikar | Björn Steinar Sólbergs-
son organisti heldur hádegistónleika í Akur-
eyrarkirkju á morgun, laugardaginn 13. mars,
kl. 12. Á efnisskránni eru verk eftir Johannes
Brahms og Felix Mendelssohn-Bartholdy.
Einnig syngur Sigrún Arna Arngrímsdóttir,
mezzósópran sálmalög við texta Jörg Zink.
Lesari er Guðmundur Árnason.
Léttur hádegisverður er í Safnaðarheim-
ilinu eftir tónleikana.
„Segðu mér hvert“ er svo heiti á fyrirlestri
Maríu Eiríksdóttur um þýska guðfræðinginn
og rithöfundinn Jörg Zink sem hefst kl. 13.
Snorri í 02gallery | Snorri Ásmundsson
opnar sýningu í 02gallery á Akureyri á morg-
un kl. 16.30. Snorri stundaði nám við Mynd-
listaskólann á Akureyri frá unga aldri. Hann
hefur haldið 10 einkasýningar og tekið þátt í
þó nokkrum samsýningum hérlendis og er-
lendis. Snorri rak The International Gallery of
Snorri Ásmundsson á Akureyri, en rekur nú
ásamt fleirum galleríið Kling og bang í
Reykjavík. Verkin á sýningunni eru til sölu.
Snorri er um þessar mundir að hefja fjár-
mögnun að kosningabaráttu sinni, en hann
hefur tilkynnt um framboð sitt til embættis
forseta Íslands.
Samfylkingin | Samfylkingardagar verða á
Akureyri nú um helgina. Þá standa forystu-
menn flokksins á landsvísu og í kjördæminu
fyrir umfangsmiklu málefna- og félagsstarfi
jafnaðarmanna. Alþingismenn heimsækja
framhaldsskóla og háskólann í dag og ræða við
nemendur og kennara og kynna framtíðarsýn
Samfylkingarinnar í menntamálum.
Á morgun kl. 11 verður fundur í Lárusar-
húsi, Eiðsvallagötu 18, um stefnumótun
flokksins í heilbrigðismálum. Í þetta sinn verð-
ur augum sérstaklega beint að verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga í þessum málaflokki.
LAUFEY Petra Magnúsdóttir, annar tveggja
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í skólanefnd Ak-
ureyrar, tók ekki þátt í afgreiðslu nefndarinn-
ar, þegar meirihluti skólanefndar samþykkti
tillögu þess efnis að starfsemi leikskólans
Klappir verði flutt í leikskólann í Tröllagili frá
og með næsta hausti. „Ég lenti í minnihluta í
meirihlutanum og sá því ekki ástæðu til að
taka þátt í atkvæðagreiðslunni,“ sagði Laufey
Petra í samtali við Morgunblaðið.
Hún sagði að ákvörðunin um flutning á
starfsemi Klappa hefði verið tekin í meirihluta
bæjarstjórnar og því hefði það aðeins verið
Spurð um áframhaldandi setu í skólanefnd
sagðist Laufey Petra vonast eftir því að starfa
þar áfram. „Ég vona að það verði ekki vanda-
mál en svona er lýðræðið, maður getur lent í
minnihluta í sínum meirihluta.“ Eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær ríkir mikil
óánægja meðal starfsmanna á leikskólanum
Klöppum og foreldra barna þar með þá
ákvörðun að flytja starfsemi skólans í leikskól-
ann í Tröllagili. Óánægjan snýr að því hversu
fyrirvarinn sé stuttur, auk þess sem gert hafi
verið ráð fyrir því að starfsemin yrði áfram á
Brekkunni.
formsatriði að skólanefnd fjallaði um málið.
Því var kallaður til varamaður, Sigrún Björk
Jakobsdóttir bæjarfulltrúi, til að afgreiða
þennan 1. lið fundar skólanefndar. Sigrún
Björk vék svo af fundi og Laufey Petra tók
sæti sitt. Hún sagði að þar sem Klappir væru
eini leikskólinn í þessu skólahverfi hefði það
verið sín afstaða að bíða ætti með að loka hon-
um þar til nýr leikskóli væri risinn í hverfinu.
„Og sem betur fer ríkir skoðanafrelsi í flokkn-
um og maður fær tækifæri til að hafa sínar
skoðanir þó að þær séu ekki á sömu línu og
annarra og það er jákvætt.“
Varamaður kallaður á fund til þess að afgreiða einn lið á nefndarfundi
Skoðanafrelsi í flokknum
UMHVERFISRÁÐ samþykkti á fundi sínum í
vikunni að leggja til við bæjarstjórn að geng-
ið yrði til samninga við SS Byggi um upp-
byggingu á Sjallareitnum svokallaða, sunnan
veitingastaðarins Sjallans. Samningur taki
m.a. til hvernig Akureyrarbær komi að upp-
kaupum eigna og gerð deiliskipulags svæðis-
ins. Í samningi skal einnig hafður tímarammi
á verkefninu í ljósi þess að hér er um að ræða
framkvæmdir á viðkvæmum stað og mikil-
vægt að þær raski sem minnst umhverfi mið-
bæjarins, eins og segir í bókun umhverfis-
ráðs.
Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri
SS Byggis, sagði að hugmyndin væri að
byggja upp verslunarkjarna og 40–60 íbúðir
á þessu svæði. Hann sagði að samkvæmt nú-
gildandi skipulagi væri þarna gert ráð fyrir
5–6 hæða húsum og yrði því hægt að bjóða
upp á frábært útsýni til allra átta. Sigurður
sagðist hafa áhuga á því að auglýsa eftir til-
lögum að skipulagi og uppbyggingu svæðis-
ins, þannig að hægt yrði að velja bestu tillög-
urnar, sem jafnframt hentuðu best við
uppbyggingu miðbæjarins. Hann vonast til að
hægt verði að hefja framkvæmdir eftir um
eitt ár en sagði að þarna væri um ræða 2–3
ára verkefni.
Sigurður sagði að þótt málið væri ekki
lengra komið, hefði hann þegar orðið var við
áhuga fólks á að eignast íbúðir á Sjalla-
reitnum. „Það er líka mikilvægt fyrir miðbæ-
inn að fjölga þar íbúum,“ sagði Sigurður.
Sjallareiturinn afmarkast af Glerárgötu,
Strandgötu, Geislagötu og Gránufélagsgötu.
Á þessu svæði eru nokkur hús, bæði atvinnu-
og íbúðarhús, sem öll þurfa að víkja fyrir
væntanlegum framkvæmdum.
Á myndinni horfir Sigurður Sigurðsson,
framkvæmdastjóri SS Byggis, yfir Sjallareit-
inn, af þaki íbúðar sinnar í háhýsinu við
Strandgötu. Húsin sunnan Sjallans, milli
Geislagötu og Glerárgötu þurfa að víkja fyrir
væntanlegum framkvæmdum en húsaröðin
við Strandgötu t.h. á myndinni verður á sín-
um stað.
Umhverfisráð vill semja við SS Byggi um uppbyggingu í miðbænum
Hugmynd um verslunarkjarna
og tugi íbúða í Sjallareitnum
Morgunblaðið/Kristján
Guðrún í Kompunni | Guðrún Pál-
ína Guðmundsdóttir opnar sýningu í
Kompunni, Kaupvangsstræti 23, á
morgun kl. 16. „Sýningin er fjöl-
tæknilegt portret unnið með rýmið í
huga og ber yfirskriftina Alla känn-
er alla,“ segir í tilkynningu. Guðrún
Pálína hefur verið búsett á Akureyri
í 10 ár og unnið að ýmiskonar menn-
ingarmálum, t.d. starfrækt Galleri
+. Kompan er opin frá kl. 14 til 17,
en sýningunni lýkur 31. mars.