Morgunblaðið - 12.03.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.03.2004, Blaðsíða 25
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 25 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Með kveðju. Hákon, sími 898 9396, lögg. fasteignasali. EINBÝLI Í MOSFELLSBÆ ÓSKAST Mér hefur verið falið að leita eftir 140-160 fm einbýlishúsi á einni hæð. Um er að ræða fjársterka aðila sem eru tilbúnir að veita ríf- legan afhendingartíma sé þess óskað. Verð- hugmynd allt að 21 millj. Áhugasamir vin- samlegast hafið samband og ég mun fús- lega veita nánari upplýsingar. Keflavík | „Það var nú bara leiði sem knúði okkur til að halda svona pæjupartí,“ sögðu veislustjórarnir Guðný Kristjánsdóttir og Brynja Aðalbergsdóttir í samtali við Morg- unblaðið en þær buðu 50 pæjum til veislu sl. laugardag sem öllum bauðst að taka með sér eina pæju. „Í einni heimsókn Brynju til mín fórum við að ræða að það væri bara ekkert að gerast. Ég var í fæðing- arorlofi og hitti fáa svo við ákváðum að ganga strax í málið í stað þess að tala endalaust um hlut- ina,“ bætti Guðný við. Það voru hátt í 100 prúðbúnar pæjur sem mættu í Frumleikhúsið í Keflavík sl. laugardagskvöld en engin þeirra vissi hvað til stóð, nema hvað auglýst hafði verið að partíið yrði kjörinn kynningarvett- vangur fyrir þær pæjur sem ættu handverk í fórum sínum. Nokkrar þeirra gripu með sér sýnishorn eða skildu eftir nafnspjaldið sitt fyrir þær pæjur sem kynnu að hafa áhuga. Þegar á leið varð gestum ljóst að það ætti að gera meira en að skoða handverk og ræða saman um lífsins gagn og nauðsynjar. Pæjum var boðið í sal og við tók dagskrá sem einkenndist af fjölbreytni, í takt við mjög fjölbreyttan gestahóp. Ólöf Elíasdóttir, hundaræktandi í Garði, sýndi hundana sína fjóra, sem margir hverjir eru Íslandsmeist- arar og alþjóðlegir meistarar. Þá stigu tveir magadansarar frá Kramhúsinu á svið, reifuðu sögu magadansins, dönsuðu og fengu gesti til að dansa með, en Púlsinn- ævintýrahús í Sandgerði er að fara í samstarf við Kramhúsið um kennslu magadans. Síðar um kvöld- ið flutti Una Steinsdóttir, móðir, eiginkona og kona í stjórn- unarstöðu, gamansaman pistil með alvarlegu ívafi um stöðu konunnar og skyldur. Una fékk góð viðbrögð frá kynsystrum sínum enda ein- kenndist pistillinn af djúphugs- uðum fróðleik frá konu til konu. Engum karlmönnum var hleypt inn í partíið nema hvað í lokin steig hljómsveitin Breiðbandið á svið og það leyndi sér ekki að hún átti marga aðdáendur í salnum. „Þið er- uð æðislegir,“ gall við og við úr salnum, enda er mottó hljómlist- armannaanna, sem eru þrír karl- menn á fertugsaldri, að skemmta fólki með gamansömum textum úr daglega lífinu. Undir lok veisluhalda skoruðu Guðný og Brynja á aðrar tvær kon- ur að halda sams konar partí að ári og sögðust boðnar og búnar að að- stoða við undirbúning. Pæjupartí sem einkenndist af fróðleik frá konu til konu Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Móðir, eiginkona og kona í stjórnunarstöðu: Una Steinsdóttir, útibússtjóri Íslandsbanka í Keflavík, flutti gam- ansaman pistil í kvennaveislunni um stöðu kvenna og skyldur, sem vakti mikla athygli kynsystra hennar. Leiði varð tilefni veislu Keflavík | Tveir listar eru komnir fram vegna kjörs til stjórnar Spari- sjóðsins í Keflavík á aðalfundi sem haldinn er í dag. Í gær var verið að reyna að ná sam- komulagi til að komast hjá kosn- ingum. Stofnfjárfestar kjósa á aðalfundi þrjá menn í stjórn Sparisjóðsins í Keflavík en sveitar- stjórnirnar tilnefna tvo til viðbótar. Í byrjun vikunnar lagði einn stofnfjáreigandi fram ósk um hlutfallskosningu við stjórnar- kjör og síðan kom fram listi með nöfnum þriggja manna. Stjórn Sparisjóðsins lagði þá fram sinn lista, einnig með þremur mönnum. Benedikt Sigurðsson, sem verið hefur formaður stjórnar undanfarin ár, gefur ekki kost á sér áfram. Í staðinn býður stjórnin fram Þor- stein Erlingsson, útgerðarmann í Keflavík, en hann hefur verið í stjórninni sem fulltrúi Reykjanes- bæjar. Með honum á framboðslista eru Karl Njálsson, út- gerðarmanni í Garði, og Eðvarð Júlíusson í Grinda- vík, formaður stjórnar Lífeyris- sjóðs Suðurnesja, en þeir eru báðir í frá- farandi stjórn. Á lista mótfram- boðsins eru Ey- steinn Jónsson í Keflavík, aðstoðarmaður landbún- aðarráðherra, Reynir Ólafsson, við- skiptafræðingur í Keflavík og Sig- urður Garðarsson, verkfræðingur í Keflavík. Benedikt Sigurðsson, fráfarandi formaður, sagðist í gær vonast til að unnt yrði að komast hjá kosningum á aðalfundinum. Óskynsamlegt væri að skipta stofnfjárfestum upp í tvær fylkingar og ekki til hagsbóta fyrir Sparisjóðinn. Aðalfundur Sparisjóðsins er í dag Bjóða fram gegn sitjandi stjórn Keflavík | Íslandmót ung- linga í badminton verður haldið í Íþróttahúsi Keflavík- ur við Sunnubraut um helgina. Mótið er það fjöl- mennasta frá upphafi. Árni Sigfússon bæjarstjóri setur mótið klukkan 16 í dag. Leikið verður fram á kvöld, síðan byrjað snemma á laug- ardag og leikið fram á kvöld og aftur á sunnudag. Úrslita- leikirnir hefjast eftir hádegi á sunnudag. Mótið er fyrir unglinga í aldursflokkunum U-13 til U-19 ára. Þátttakendur eru 274 og er mótið fjölmennasta Íslandsmót sem haldið hefur verið í badminton hér á landi. Leiknir verða 670 leikir í ein- liðaleik, tvíliðaleik og tvennd- arleik. Badmintondeild Keflavíkur sér um mótshaldið í samvinnu við Badmintonsamband Ís- lands. Er þetta í sjötta sinn sem Íslandsmót unglinga er haldið í Keflavík, síðast var það haldið þar fyrir tveimur ár- um. Sesselja Birgisdóttir, for- maður badmintondeildar Keflavíkur, segir að aðstaðan sé óvíða betri og svo hafi tek- ist vel til þegar mótin hafi verið haldin í Keflavík. Mikil vinna er við að und- irbúa svona stórt mót en Sesselja segir að allir leggist á eitt, stjórnarmenn jafnt sem foreldrar badmintoniðkenda, til þess að mótið heppnist sem best. Hún hvetur bæjarbúa til að líta inn í íþróttamiðstöðinni um helgina til að fylgjast með skemmtilegri keppni. Íslandsmót unglinga Fjölmenn- asta badmin- tonmótið Njarðvík | Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karlmenn á þrítugs- aldri í skilorðsbundið fangelsi, annan í fjóra mánuði og hinn í þrjá, fyrir að ráðast á tvo karlmenn á dansleik í fé- lagsheimilinu Stapa í Njarðvík árið 2001. Þeir börðu mennina meðal ann- ars í höfuðið með bjórglösum og flösk- um. Dómarnir eru skilorðsbundnir vegna þess hve mikill dráttur varð á að ákæra væri gefin út. Rannsókn málsins var að mestu lokið í byrjun mars 2002 en ákæra var ekki gefin út fyrr en 3. október 2003. Annar árásarmannanna var dæmd- ur til að greiða öðru fórnarlambinu rúmar 89 þúsund krónur í skaðabæt- ur en hinn árásarmaðurinn var dæmdur til að greiða hinu 50 þúsund krónur í bætur. Sakborningarnir voru einnig dæmdir til að greiða máls- kostnað, 140 þúsund krónur hvor. Dæmdir fyrir líkamsárás í Stapa  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.