Morgunblaðið - 12.03.2004, Side 30

Morgunblaðið - 12.03.2004, Side 30
LISTIR 30 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSKI dansflokkurinn er þessa dagana á sýningarferðalagi í Þýska- landi. Í gærkvöld var sýning í borginni Saarlouis og á morgun verður sýning í Ludwigshafen. Flokkur- inn sýnir þrjú verk í ferðinni, Æfing í paradís eft- ir belgíska danshöf- undinn Stijn Celis, sem frum- sýnt var á Stóra sviði Borgar- leikhússins hinn 27. febrúar sl., Elsa eftir Láru Stef- ánsdóttur en dans- flokkurinn hefur sýnt það verk mjög víða á undanförnum árum og fót- boltaverkið The Match eftir Lon- neke Van Leth sem frumsýnt var í október sl., og var sýnt á dans- listahátíðinni Hollands í Den Haag á síðasta ári. Ferðin er á vegum þýsku umboðs- skrifstofunnar Norddeutsche Konz- ertdirektion sem dansflokkurinn gerði samstarfssamning við árið 2002. Íslenski dansflokk- urinn í sýn- ingarferð Úr The Match eftir Lonneke Van Leth. Öfugu megin uppí Síðustu sýningar á leikritinu Öf- ugu megin uppí sem frumsýnt var á Stóra sviði Borgarleikhússins á síð- asta leikári verða á laugardagskvöld og sunnudagskvöld. Leikarar eru Eggert Þorleifsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Björn Ingi Hilm- arsson og Ellert A. Ingimundarson. Leikstjóri er María Sigurðardóttir. Síðustu sýningar ARNAR Jónsson leikari hefur frá því í desember sýnt leikrit Þorvaldar Þorsteinssonar, Sveinsstykki, í Loft- kastalanum. Hann flytur sig nú um set og sýnir Sveinsstykki í Gamla bíói og verður fyrsta sýning í kvöld, föstu- dagskvöld. Arnar deilir þar húsum með Fígaró og hans fólki á næstunni. Arnar minnist með leik sínum í Sveinsstykki fjörutíu ára starfsaf- mælis síns sem atvinnumaður í leik- listinni og hlaut einróma lof gagnrýn- enda fyrir. Leikstjóri er Þorleifur Örn Arnarsson og leikmyndahönnuð- ur er Stígur Steinþórsson. Lýsingu hannaði Björn B. Guðmundsson.Sýn- ingafjöldi er takmarkaður en önnur sýning verður á laugardag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Arnar Jónsson í Sveinsstykki. Sveinsstykki í Gamla bíói ORGELLEIKARARNIR Aðal- heiður Þorsteinsdóttir, Bjartur Logi Guðnason, Jón Bjarnason, Jónas Þórir Þór- isson og Sigrún Magna Þór- steinsdóttir hafa sótt námskeið á vegum Tónskóla Þjóðkirkjunnar síðan í desem- ber. Afrakstur- inn af því er hægt að heyra á tónleikum í Langholtskirkju kl. 12 í dag. Þau flytja verk eftir Buxtehude, Bru- hns,Weckmann og Scheidemann Námskeiðið var í formi fyr- irlestra með tón- dæmum og hóp- tíma í orgelleik og var markmið einkum að kynna þá barrokktón- list sem kennd er við Norður- Þýskaland og var samin á árunum 1630–1730 á svæðinu í kring um Hamborg. Leiðbeinandi var Eyþór Ingi Jónsson organisti á Akureyri. Hann hefur verið í námi við Tón- listarháskólanum í Piteå í Svíþjóð og hefur sérhæft sig í flutningi tónlistar barrokktímans. Uppskera orgelleikara Sigrún Magna Þórsteinsdóttir Jón Bjarnason LEIKFÉLAG Kópavogs frumsýnir í kvöld kl. 20 Smúrtsinn eftir Boris Vian. Hér segir frá duPont-fjölskyld- unni sem hrekst úr einum stað í ann- an á flótta undan óþekkri ógn og þarf í hvert sinn að sætta sig við krappari kjör, meiri þrengsli, minni gæði. Einn af öðrum heltast fjölskyldu- meðlimir úr lestinni og hvar sem þau koma bíður smúrtsinn þeirra í ein- hverju horninu. Hlutverkin eru í höndum Helga Róberts Þórissonar, Huldar Óskars- dóttur, Lovísu Árnadóttur, Ágústu Evu Erlendsdóttur, Gísla Björns Heimissonar og Snorra Engilberts- sonar. Skúli Rúnar Hilmarsson sá um lýsingu, Sara Valný Sigurjóns- dóttir og Þórunn Eva Hallsdóttir um búninga. Leikstjóri er Hörður Sig- urðarson en Friðrik Rafnsson þýddi verkið. Sýningar eru í Hjáleigunni, Fé- lagsheimili Kópavogs. Önnur sýning er sunnudag kl. 20. Smúrtsinn frum- sýndur í Kópavogi Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikritið Smúrtsinn. Borgar- skjalasafnið, í samvinnu við Sögu- félag og Sagnfræð- ingafélag Ís- lands efnir til ráðstefnu í Kornhlöð- unni, Banka- stræti, kl. 14 á morgun. Ráðstefnan hefur yfir- skriftina „Skjölin lifna við“ og er haldin í tilefni þess að í ár eru 50 ár liðin frá stofnun Borgarskjala- safns Reykjavíkur. Dagskráin byggist á sex fyr- irlestrum sem tengjast Borgar- skjalasafninu á einn eða annan hátt. Þór Whitehead fjallar um samskipti breska hernámsliðsins og bæjaryfirvalda í síðari heims- styrjöld. Fjallað verður um þátt Bjarna Benediktssonar borgar- stjóra, sem hafði forystu um varnarsamstarf Íslendinga við vesturveldin í utanríkisráðherrat- íð sinni að styrjöld lokinni. Andr- és Erlingsson fjallar um hvernig hann nýtti í rannsóknum sínum skjalasafn um byggingarsögu Reykjavíkur sem Borgarskjala- safn hefur að geyma, þá sérstak- lega brunabótavirðingabækur frá 1874–1915. Stefán Pálsson veltir upp spurningunni hvert sé best að flýja þegar heimsendir er yfirvof- andi? Eggert Þór Bernharðsson fjallar um æskufólk Reykjavíkur eftir síðari heimsstyrjöld og tog- streituna sem skapaðist milli yngri og eldri kynslóðar þegar höfuðstaðurinn var að vaxa. Lýður Björnsson rifjar upp minningar úr Borgarskjalasafn- inu síðastliðin 37 ár, sem hann hefur verið viðloðandi það. Að lokum mun Svanhildur Bogadótt- ir fjalla um hlutverk Borgar- skjalasafns í gegnum árin og stöðu þess á 50 ára afmæli. Að- gangur er ókeypis að fyrirlestr- unum. Borgarskjalasafn 50 ára Svanhildur Bogadóttir Lýður Björnsson Þór Whitehead Skjölin lifna við ♦♦♦ ♦♦♦ FRÚ Vigdís Finnbogadóttir opnar sýninguna Íslensk málverk í einkasöfnum í Danmörku á Norð- urbryggju í Kaupmannahöfn kl. 14 á laugardag. Á sýningunni eru m.a. verk eftir Savar Guðnason, Jón Stefánsson, Júlíönu Sveins- dóttur, Nínu Tryggvadóttur, Jó- hannes Kjarval, Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Scheving, Þórarin B. Þorláksson, Guðmund Thor- steinsson (Mugg), Gunnlaug Blön- dal, Kristínu Jónsdóttur, Jón Engilberts, Finn Jónsson, Eggert Guðmundsson, Jóhann Briem, Jó- hannes Geir, Braga Ásgeirsson og Tryggva Ólafsson. Fyrrverandi sendiherra Dana á Íslandi, Klaus Otto Kappel, hafði frumkvæði að sýningunni og var unnið mikið starf við að hafa uppi á verkum íslensku málaranna, sem leyndust víða. Bera Nordal, fyrrverandi forstöðumaður Lista- safns Íslands, var fengin til að hafa yfirumsjón með sýningunni og valdi á hana 91 verk eftir 26 listamenn. Við upphaf 20. aldar lærðu margir hinna gömlu meistara ís- lenskrar myndlistar við Kon- unglega Listaháskólann í Kaup- mannahöfn. Þar komust þeir í kynni við evrópska samtímalist og urðu fyrir varanlegum áhrif- um sem þeir síðan heimfærðu yfir á íslenskan veruleika. Danskt myndlistarumhverfi hefur því haft mikil áhrif á þróun íslenskr- ar myndlistar og mörg lykilverk í íslenskri myndlistarsögu voru sköpuð, sýnd og keypt í Kaup- mannahöfn. Flestir listamannanna mörkuðu síðar djúp spor í ís- lenska listvitund og eru fjölmörg verk þeirra löngu orðin klassísk í íslenskri listasögu. Fjöldi verka var hins vegar keyptur í Dan- mörku og hefur ekki komið fyrir almannasjónir fyrr en nú. Sýningin á Norðurbryggju stendur til 18. apríl og verður svo opnuð á ný 22. maí í Gerðarsafni í Kópavogi. Íslensk list á Norðurbryggju Verk eftir Jón Stefánsson má sjá á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. SÝNING á smíðisgripum eftir Pétur Tryggva Hjálm- arsson verður opnuð í sal Hönnunarsafns Íslands við Garðatorg kl. 18 í dag, föstudag. Pétur Tryggvi er kunnur fyrir kirkjusilfur sitt, en hann hefur sérsmíðað gripi, oblátubuðka, kaleika o.fl., fyrir Reynivallakirkju í Kjós, Þingvallakirkju, Áskirkju í Reykjavík, Húsavíkurkirkju og Vídalínskirkju í Garða- bæ. Einhverja þessara gripa getur að líta á sýningunni. Í Danmörku er Pétur Tryggvi hins vegar þekktastur fyrir stóra ,,korpus“ hluti úr silfri, sem formaðir eru al- farið með handverkfærum að fornum sið. Hann er einn af sextán meðlimum samtakanna Danske sölvsmede, sem er eins konar akademía silfursmiða þar í landi, og eini Íslendingurinn í hópnum. Með þessum samtökum hefur Pétur Tryggvi sýnt bæði í Danmörku og annars staðar í Evrópu. Fyrir utan ,,korpus“ hluti og kirkjugripi verða á sýn- ingunni í Garðabæ skartgripir sem Pétur Tryggvi hefur nýverið gert. Þar notar hann ekki einasta góðmálma og dýra steina, heldur einnig önnur og ,,óæðri“ efni til áhersluauka. Flestir smíðisgripir Péturs Tryggva, jafnt ,,korpus“ hlutir sem skartgripir, verða til sölu. Sýningin er opin kl. 14–18 alla daga nema mánudaga og lýkur hinn 31. mars. Skólum og hópum áhugafólks býðst að skoða sýningu Péturs Tryggva á öðrum tím- um. Smíðisgripir Péturs Tryggva í Hönnunarsafninu Morgunblaðið/jt Pétur Tryggvi við vinnu sína.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.