Morgunblaðið - 12.03.2004, Blaðsíða 51
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
N
M
1
1
5
5
0
•
sia
.is
Flug
og m
ynd
á næ
stu le
igu
Skafmiði fylgir hverri mynd
100 stórborgarferðir!
100.000 vinningar!
Nýkrýndir bikarmeistarar Gróttu
í áhaldafimleikum og handknattleik.
Meistaraflokkur kvenna bikarmeistari í áhaldafimleikum 28. febrúar 2004
5. þrep kvenna bikarmeistari í áhaldafimleikum 7. mars 2004
4. flokkur kvenna bikarmeistari í handknattleik 29. febrúar 2004
2. flokkur kvenna bikarmeistari í handknattleik 29. febrúar 2004
Æskulýðs- og íþróttaráð Seltjarnarness
Til hamingju stúlkur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 51
FRÉTTIR
OPNAÐ hefur verið 1928 vöruhús
að Auðbrekku 1 Kópavogi (á
horni Auðbrekku og Skelja-
brekku) þar sem á boðstólum eru
húsgögn, gjafavörur, vefn-
aðarvara o.fl. Markmið vöruhúss-
ins er að bjóða fallegar vörur á
lágu verði og er vöruhúsið hann-
að að þeirri fyrirmynd. Stærð
vöruhússins er u.þ.b. 1.000 fer-
metrar.
Verslunin 1928 er einnig á
horni Laugavegs og Klapparstígs
og hefur verið rekið í 9 ár. Vöru-
húsið er rekið af sömu aðilum
með öðruvísi áherslum þ.e. meira
vöruúrval og lægri verð sem
byggist á því að fyrirtækið er með
verktaka til að framleiða vöru í
Asíu sem jafnframt er dreift til
annarra viðskiptavina til end-
ursölu á Íslandi og í Danmörku.
1928 vöruhús getur einnig boðið
upp á sérpantanir og tilboð í ein-
stakar vörusendingar sem ekki
eru alla jafnan á boðstólum í
vöruhúsinu, segir í fréttatilkynn-
ingu.
1928 vöruhúss er opið frá kl.
13–18 alla virka daga.
1928 vöruhús
opnað í Kópavogi
ALLIR skólar á háskólastigi halda
sameiginlega kynningu á námsfram-
boði sínu sunnudaginn 14. mars kl.
11–17, á svæði Háskóla Íslands, í
fimm byggingum. Alls taka tíu skólar
þátt í kynningunni, Háskólinn á Ak-
ureyri, Háskóli Íslands, Háskólinn í
Reykjavík, Hólaskóli – háskólinn á
Hólum, Kennaraháskóli Íslands,
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri,
Listaháskóli Íslands, Tækniháskóli
Íslands,Viðskiptaháskólinn á Bifröst
og Garðyrkjuskólinn.
Kynning háskólanna hefur verið
árviss viðburður um árabil og er hún
fyrst og fremst hugsuð sem þjónusta
við tilvonandi nemendur, sem þannig
geta á einum stað nálgast upplýsingar
um alla þá möguleika sem í boði eru.
Kennarar og nemendur verða á
staðnum, ásamt námsráðgjöfum,
þannig að þetta er einstakt tækifæri
til þess að fá greið svör frá fyrstu
hendi um nám og námsleiðir.
Kynningin fer fram í Aðalbygg-
ingu, Lögbergi, Odda, Norræna hús-
inu og Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.
Nánari upplýsingar um kynn-
inguna, skólana sem að henni standa
og námsframboð háskólanna má
finna á vefsíðunni http://www.haskol-
ar.is/
Allir háskólar
landsins kynna
námsframboð sitt
Námsstefna Félag náms– og
starfsráðgjafa í samvinnu við Evr-
ópumiðstöð náms– og starfs-
ráðgjafar heldur námsstefnu, undir
heitinu „Making a Bigger Diffe-
rence“.
Námsstefnan fer fram á Grand hót-
el, í dag, föstudaginn 12. mars kl.
9–17 og á morgun, laugardaginn 13.
mars kl. 10–16.15. Á námsstefnunni
er lögð áhersla á að náms- og
starfsráðgjafar meti eigin færni-
þætti í starfi, gæði þjónustunnar og
skilgreini faglega og persónulega
hæfni.
Aðalfyrirlesari verður Lynne Bez-
anson, framkvæmdastjóri Canadian
Career Development Foundation
(CCDF) og meðlimur The National
Steering Committee for the Can-
adian Standards and Guidelines for
Career Practitioners. Þá mun Guð-
björg Vilhjálmsdóttir flytja erindi
undir spurningunni „Hvernig auka
rannsóknir gæði í náms- og starfs-
ráðgjöf?“ Á námstefnunni verða
starfandi vinnuhópar sem munu
taka fyrir þau efni sem rædd verða
og kynna þeir niðurstöður.
Fyrirlestur um samvinnu sveitar-
félaga í dag, föstudag kl. 12.05–
13.15 í Odda stofu 101. Stofnun
stjórnsýslufræða og stjórnmála við
Háskóla Íslands stendur fyrir opn-
um fyrirlestri um samvinnu sveita-
félaga í tilefni af meistarapróf-
sritgerð Róberts Ragnarssonar um
efnið. Róbert hefur lokið BA og
MA-prófi í stjórnmálafræði frá Há-
skóla Íslands. Hluta námsins tók
hann við Háskólann í Árósum þar
sem hann sérhæfði sig í sveit-
arstjórnarmálum. Hann er verkefn-
isstjóri átaks félagsmálaráðherra
til eflingar sveitarstjórnarstigsins.
Í inngangserindi mun Róbert
kynna niðurstöður rannsóknar
sinnar á samvinnu sveitarfélaga á
Íslandi. Hann fer ennfremur yfir
reynslu Finna af samstarfi sveitar-
félaga o.fl. Að loknu erindinu mun
Jón Gauti Jónsson viðskiptafræð-
ingur og ráðgjafi hjá ParX-
viðskiptaráðgjöf IBM fjalla um nið-
urstöður Róberts. Fundarstjóri
verður Gunnar Helgi Kristinsson
prófessor.
Fyrirlestur hjá Líffræðistofnun
verður í dag, föstudaginn 12. mars
kl. 12.20, í stofu 132, Náttúrufræði-
húsi Háskólans. Erindi heldur Sig-
ríður Valgeirsdóttir.
Í fyrirlestrinum verður fjallað al-
mennt um DNA örflögur og notk-
unarsvið þeirra. Einnig verður sagt
frá starfsemi Nimblegen Systems,
en fyrirtækið sérhæfir sig í rann-
sóknum og smíði á DNA örflögum
og framkvæmir þjónusturann-
sóknir á þessu sviði.
Málfundur í tengslum við sósíal-
íska verkalýðsblaðið Militant,
föstudaginn 12. mars, ber yf-
irskriftina: Haití, uppreisn hægri-
sinna, Venezúela, vörn fyrir full-
veldið. Fjallað verður um hvers
vegna það sem er að gerast á Haití
og Venezúela er svo ólíkt og hvað
er í húfi fyrir vinnandi fólk í þess-
um löndum.
Fundurinn hefst kl. 19.30 í Path-
finder-bóksölunni, Skólavörðustíg
6b, Reykjavík (gengið inn sundið
og aftur fyrir húsið).
Í DAG
Málþing um japanskt mál og
menningarfærni Heimspekideild
H.Í., Íslensk-japanska félagið og
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur,
í samvinnu við sendiráð Japans á
Íslandi og Scandinavia-Japan
Sasakawa Foundation, standa fyrir
málþingi um japanskt mál og
menningarfærni. Málþingið verður
á morgun, laugardaginn 13. mars
kl. 14, í stofu 101 í Odda. Að mál-
þingi loknu verða veitingar í boði
japanska sendiráðsins. Dagskráin
fer fram á ensku.
Markmiðið með málþinginu er tví-
þætt: í fyrsta lagi að beina sjónum
að tengslum tungumáls og menn-
ingarinnar í víðari skilningi. Í öðru
lagi að styðja við og efla nám í jap-
önsku máli og menningu sem hófst
við Heimspekideild H.Í. haustið
2003.
Keppnispör úr dansskóla Jóns
Péturs og Köru halda danssýn-
ingu á morgun, laugardaginn 13
mars kl. 13.30 í Ásgarði í Glæsibæ,
Ásgarður er salurinn undir versl-
unarmiðstöðinni. Pörin eru á aldr-
inum 10 –16 ára og í hópnum eru
m.a Norðurlandameistarar og Ís-
landsmeistarar og hafa þau öll ver-
ið eða eru að fara að keppa erlend-
is á þessu dansári. Þau munu sýna
standard dansa og latin. Aðalþjálf-
arar þeirra eru danskennararnir
Jón Pétur Úlfljótsson og Kara
Arngrímsdóttir.
Dansararnir bjóða upp á kaffi og
meðlæti, og er aðgangseyrir 1.000
kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir
börn 6–11 ára.
Samfylkingin í Breiðholti fundar
um skipulags- og samgöngumál
Hverfafélag Samfylkingarinnar í
Breiðholti í Reykjavík heldur fund
á morgun, laugardag 13. mars kl.
12 í Félags- og þjónustumiðstöð-
inni Árskógum 4 í Suður-Mjódd. Á
fundinum verður fjallað um mál-
efni hverfisins og borgarinnar í
heild, með áherslu á skipulags- og
samgöngumál á svæðinu. Frum-
mælandi verður Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, formaður skipulags-
og byggingarnefndar Reykjavíkur
og borgarfulltrúi.
Skólamálaþing Kennarasam-
bands Íslands 2004 verður hald-
ið á tveimur stöðum, á Hótel Loft-
leiðum í Reykjavík laugardaginn
13. mars og í Menntaskólanum á
Akureyri laugardaginn 20. mars.
Yfirskrift þingsins er: „Breytt
samfélag - Breyttur skóli“. Þingið
er opið öllum félagsmönnum Kenn-
arasambands Íslands og öðru
áhugafólki um kennslu- og skóla-
mál.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra flytur ávarp í
upphafi þingsins á Hótel Loftleið-
um. Aðalfyrirlesari verður Guðrún
Pétursdóttir, félagsfræðingur.
Efni fyrirlestrarins er: „Hvernig á
að bregðast við margbreytileik-
anum? Fjölmenningarleg menntun
til góðs fyrir alla nemendur“. Á
þinginu verður fjallað um fjöl-
menningarlega kennsluhætti á öll-
um skólastigum.
Frestur til að skrá sig á skóla-
málaþingið á Akureyri rennur út
mánudaginn 15. mars.
Sveitakeppni Grunnskóla í
Kópavogi í skák verður á morg-
un, laugardaginn 13. mars kl. 13.
Teflt verður í félagsheimili Tafl-
félags Kópavogs, Hamraborg 5
þriðju hæð.
Teflt verður í yngri flokki fyrir
nemendur 1.–7. bekkjar og eldri
flokki fyrir nemendur 8.–10. bekkj-
ar. Verðlaun eru í boði fyrir efstu
sætin auk bókaverðlauna fyrir
bestan árangur á hverju borði.
Skráning fer fram í netfanginu
hallib@mmedia.is og fer skráning
fram í dag, föstudag.
Á MORGUN