Morgunblaðið - 12.03.2004, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 57
Veisluþjónusta;
ferminga- og brúðkaupsveislur.
Funda- og ráðstefnusalir af öllum stærðum.
www.broadway. i s - broadway@broadway. i s
Sýningin sem er að gera
allt vitlaust á Hornafirði
Hljómsveitin Fjörmenn
og Glærurnar slá í gegn.
„Með allt
áhreinu”
Föstudaginn 19. mars
Öll laugardagskvöld!
Le’Sing (Syngjandi þjónar) alla laugardaga.
Sýning sem hefur slegið rækilega í gegn.
kynnir
Sími 533 1100 - broadway@broadway.is
www.broadway.is
Fegurðardrotting
Reykjavíkur
Góður matur og glæsileg
krýning á fegurstu stúlku Reykjavíkur
23. apríl
St
af
ræ
na
hu
gm
yn
da
sm
ið
ja
n
/4
29
8
Stórsýning
frá leikhúsborginni London. 2. og 3. apríl.
Forsala miða hafin.
Þessari sýningu má enginn missa af.
Verð: Sýning 2.500 krónur
Verð: Matur og sýning 6.400 krónur í forsölu.
Matseðill:
Indversk sjávarréttasúpa m/kúmen og kókostónuð .
Kjöttvenna; balsamickryddaður
lambavöðvi og púrtvínslegin
svínalund með camembert-grapesósu
og karamellueplum .
Súkkulaðiturn m/engifertónaðri kirsuberjasósu.
Yfir 70 sýningar stutt í 10.000 gestinn sem
verður leystur út með veglegum gjöfum.
Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa.
Opið 9.00-01.00 virka daga og 9.00-05.30 um helgar
Grensásvegi 7, sími 517 3530
Frægasti dansari Norðurlanda
Lia aftur á Bóhem
Frítt inn til kl. 24.00
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Í KVÖLD FÖSTUDAGSKVÖLD KL. 19:30 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAUGARDAGINN 13. MARS KL. 17:00 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAUGARDALSHÖLL
Hljómsveitarstjóri ::: Martin Yates
Tónlist Bítlanna í útsetningu Martins Yates
MIÐASALA Í SÍMA 545 2500 / WWW.SINFONIA.IS
Leikfélagið
Snúður og Snælda
sýnir
Rapp og rennilásar
gamanleikur með söngvum
eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur.
Leikstjóri: Bjarni Ingvarsson.
Sýningar í Ásgarði í Glæsibæ.
8. sýn. fös. 12. mars kl. 14.00
9. sýn. sun. 14. mars kl. 15.00
Ath. aukasýning
10. sýn. mið. 17. mars kl. 13.30
11. sýn. fös. 19. mars kl. 14.00
Miðar seldir við innganginn
Miðapantanir í símum
588 2111 skrifstofa FEB,
568 9082 og 551 2203.
sýnir í Tjarnarbíói
SIRKUS
Leikstjóri: Viðar Eggertsson
3. sýn. lau. 13. mars
4. sýn. sun. 14. mars
5. sýn. lau. 20 mars
6. sýn. fim. 25. mars
Sýningar hefjast kl. 20
Miðapantanir: s. 551 2525
midasala@hugleikur.is
LAUGARDALSHÖLL 29 APRÍL 2004
Mi›asala í verslunum Og Vodafone
í Kringlunni og Smáralind
Á netinu www.midi.is
LÁRA Martin fer sínar eigin leiðir í
kvikmyndagerðinni, og er ekki síst
umhugað um að rýna í hefðina og af-
hjúpa bæði kreddur hennar og
sjarma. Í Aðalhlutverk: Rosa Furr er
jöðruð menning færð inn í miðlæga
kvikmyndahefð fyrri tíma, og röddum
sem á þeim tíma voru algerlega þagg-
aðar niður leyft spreyta sig í hlut-
verkum hetja og andhetja. Þannig
leikur blökkukona t.d. rómantísku
kvenhetjuna og pattaraleg kvenper-
sóna er aðalhetja og „elskhugi“ sög-
unnar.
Í myndinni, sem gerð er í stíl þöglu
kvikmynda þriðja áratugarins, vindur
fram farsakenndri sögu, þar sem
þjónustustúlkan knáa Emma West
(Diane Wanak) þarf að leggja á flótta
undan útsendurum mafíuforingja,
eftir að hafa orðið vitni að morði á
ekkert alltof siðprúðum siðapostula.
Hún finnur skjól í leikhúsi og verður
samstundis ástfangin af dívu hússins,
hinni forkunnarfögru Rosu Furr
(Desiree Rogers). Brátt verður ljóst
að hvað sem er getur gerst í þessu
svokallaða leikhúsi, ekki síst eftir að
háskakvendið Angla Redd (Þórdís
Claessen) skerst í leikinn.
Leikhúsið verður hér bæði
skemmtilegt og viðeigandi sögusvið
fyrir þann kynusla og þau lögmál
fljótandi kyngerva sem ráða ríkjum í
sögunni, enda eru kynhlutverk, þegar
öllu er á botninn hvolft, nokkurs kon-
ar leikhlutverk sem við flest hver
göngumst upp í til þess að sanna okk-
ur sem „alvöru“ konur eða karlmenn.
Í Rosu Furr leika persónur á mörk-
um þessarar niðurnjörvuðu flokkun-
ar, flestar persónurnar hafa eitthvað
dálítið kvenlegt og karllegt við sig í
senn, og búningar og ólík leikhlutverk
stokka síðan allt saman upp.
Á sama tíma er leikið með formið af
stakri sköpunargleði, enda má sega
að Rosa Furr sé bæði útúrsnúningur
á stíl þöglu myndanna og óður til
þeirra. Mikil alúð er lögð við það að
endurskapa anda þessa horfna kvik-
myndaforms, tilþrifamikinn leikstíl-
inn, túlkandi tónlistina, fjölleika-
stemninguna og hröðunaráhrifin í
tökutækninni. Textaspjöldin sem
varða frásögnina fá áhorfendur svo
sannarlega til að skella upp úr, en
textinn skrifaður sem sannfærandi
frásagnartexti í anda þöglu mynd-
anna en slagar þó alltaf út í nútíma-
legan og kvikindislegan húmor inn á
milli. Leikarar setja síðan punktinn
yfir i-ið, og fara þær Diane Wanak og
Þórdís Claessen á kostum í ýkju-
kenndum þöglumyndastílnum. Með
þessari sérstöku nálgun sinni tekst
Láru Martin eiginlega að fara hring
með viðfangsefnið sem er hér í athug-
un, því umfram annað er Aðalhlut-
verk: Rosa Furr, bráðfyndin og
skemmtileg þögul gamanmynd.
Þögull kynusli
KVIKMYNDIR
Regnboginn – Hinsegin bíódagar
Leikstjóri: Lára Martin. Aðalhlutverk:
Diane Wanak, Desiree Rogers og Þórdís
Claessen. Lengd: 40 mín. Gadfly Films.
Bandaríkin, 2002.
AÐALHLUTVERK: ROSA FURR / STARR-
ING: ROSA FURR Heiða Jóhannsdóttir
UPPSELT er á tónleika írska tónlist-
armannsins Damiens Rice sem fram
fara á Nasa næstkomandi föstudag.
Að sögn Kára Sturlusonar tónleika-
haldara seldust miðarnir upp á ein-
um degi, alls 600 talsins. „Ég hafði
lúmskan grun um að svona myndi
fara enda nýtur Rice töluverðrar
hylli hér á landi og platan hans O hef-
ur fengið góðar viðtökur.“
Þá staðfestir Kári í samtali við
Morgunblaðið að búið sé að finna
upphitunaratriði fyrir Rice. Hingað
komi til lands sérstaklega út af tón-
leikunum Oddur Rúnarsson sem er í
hljómsveitinni Lamb og muni troða
upp á undan Rice ásamt félaga sínum
Joseph Adams. Saman kalla þeir sig
Lucky Four og hafa að sögn Kára
verið að troða upp undanfarið í Bret-
landi og á Írlandi við góðar und-
irtektir. „Þeir eru ágætir kunningjar
Oddur og Damien og því fannst okk-
ur tilvalið að fá þá með, til að gera
kvöldið ennþá stærra og eft-
irminnilegra.“
Tónleikarnir fara sem fyrr segir
fram á Nasa næsta föstudag, 19.
mars. Húsið opnað kl. 22.
Mikill áhugi er fyrir komu Damiens
Rice til landsins.
Uppselt
á Damien
Rice
Jennifer Aniston lætur sig dreyma
um að gerast poppstjarna. Brad Pitt
er maður sem leggur lag sitt við að
gera drauma eiginkonu sinnar að
veruleika og hefur því fjárfest í for-
láta hljóðveri handa sinni heittelsk-
uðu. Vinur þeirra, sem við skulum
kalla Kjaftaskjóðu, lak þessum
leyndu draumum Vinarins í götublöð
heimsins. „Hún er alltaf að syngja
og notar hvert tækifæri til að taka
lagið í karókí. Nú er hún farin að æfa
sig heima hjá sér og er að hugsa um
að gera barnaplötu.“ …
Jennifer Lopez og Nicole Kidman
hafa fallist á að fara með aðal-
hlutverkin í nýjum söngleik sem
stendur til að kvikmynda undir nafn-
inu American Darlings, að því er
Variety segir frá. Í myndinni munu
þær stöllur leika liðsmenn í kvenna-
sveiflubandi sem storka karla-
veldinu og leggja skemmtanaheim-
inn undir sig þegar karlarnir eru
sendir í stríðið. Kidman verður einn
framleiðenda myndarinnar og þær
Lopez munu báðar taka lagið. Það er
annars af Lopez að frétta að hún á
víst að eiga í ástarsambandi við róm-
anska ástarsöngvarann Marc
Anthony …
FÓLK Ífréttum
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.