Morgunblaðið - 21.03.2004, Síða 68
AUÐLESIÐ EFNI
68 SUNNUDAGUR 21. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BALDVIN Þorsteinsson EA 10 komst á flot aðfara-
nótt miðvikudags eftir umfangsmiklar björgunar-
aðgerðir í Meðallandsfjörum undangengna viku.
Þegar ljóst var orðið að skipið var laust af strandstað
réðu björgunarmenn sér vart fyrir kæti. Flestir voru
orðnir þreyttir eftir mikla vinnu, en þessi frækilega
björgunaraðgerð tókst án þess að fólk slasaðist.
Gert verður við Baldvin Þorsteinsson í Noregi.
Kostnaður við björgunina hefur enn ekki verið tekinn
saman, að sögn Gunnars Felixsonar, forstjóra
Tryggingamiðstöðvarinnar. Gunnar segir þó ljóst að
kostnaðurinn nemi tugum milljóna króna.
Landhelgisgæslan/JónPáll ÁsgeirsDráttarskipið Normand Mariner með fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson EA í togi.
Björgun Baldvins
ÁSTHILDUR Helgadóttir, fyrirliði
landsliðs í knattspyrnu, er með slitið
krossband í hægra hné og leikur ekki
meira á þessu ári. Hvorki með
íslenska landsliðinu né félagi sínu í
Svíþjóð, Malmö FF. Hún varð fyrir
þessu áfalli í landsleiknum gegn
Skotum í Egilshöllinni á laugardaginn,
þegar brotið var á henni snemma í
síðari hálfleik. Íslendingar lögðu
Skota, 5:1.
Á mánudaginn reið annað áfall yfir
hjá Ásthildi þegar hún fékk blóðtappa
í hægri kálfa sem tefur enn fyrir bata
og þar með er ljóst að hún fer ekki í
aðgerð á hnénu fyrr en í sumar, auk
þess sem hún verður að taka lyf til að
þynna blóðið um nokkurn tíma.
Ásthildur sagði við Morgunblaðið
að krossbandið væri slitið, það hefði
verið staðfest. „Ég var með boltann
þegar einn skosku leikmannanna fór
aftan í mig, ég fékk högg á kálfann og
fann síðan þegar eitthvað gaf sig. Það
fer ekki á milli mála að þetta ár er
búið hjá mér, hvað fótboltann varðar.“
Slysið varð á versta tíma fyrir alla
aðila. Ásthildur var búin að festa sig í
sessi hjá Malmö FF, einu af sterkustu
félagsliðum í Evrópu, sem leikur gegn
Frankfurt í undanúrslitum
UEFA-bikarsins í lok þessa mánaðar.
Enn fremur eru stór verkefni
framundan hjá íslenska landsliðinu
sem á ágæta möguleika á að komast
áfram í Evrópukeppni landsliða en án
Ásthildar er ljóst að það verður
þungur róður.
„Já, ef hægt er að tala um góðan
eða slæman tíma fyrir svona meiðsl
þá verður þetta víst að teljast vera á
versta tíma því það var mjög
spennandi tímabil framundan hjá
mér, með Malmö og landsliðinu. En
ég mun einbeita mér að náminu í
Svíþjóð og endurhæfingunni, og reyni
að styrkja mig eins vel og ég get,“
sagði Ásthildur Helgadóttir.
Morgunblaðið/Golli
Ásthildur Helgadóttir í landsleiknum gegn Skotum í Egilshöll.
Ásthildur úr leik í ár
SÖGULEG úrslit urðu í Gettu betur – spurningakeppni framhaldsskólanna – á
fimmtudaginn. Þá sigraði Borgarholtsskóli Menntaskólann í Reykjavík með
31 stigi gegn 28. MR hefur unnið ellefu ár í röð. Með þessu er
Borgarholtsskóli kominn í úrslit. Í liðinu sem batt enda á ellefu ára
sigurgöngu MR eru Björgólfur Guðbjörnsson, Steinþór Helgi Arnfinnsson og
Baldvin Már Baldvinsson. Þeir félagar hafa lýst því yfir að þeir ætli alla leið og
muni vinna keppnina. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar ljóst varð að
Borgarholtsskóli hafði sigrað.
Borgarholtsskóli vann MR
Ljósmynd/borgari.is
FORSETI og varaforseti Taívans urðu
fyrir skotárás á föstudag en
særðust ekki lífshættulega. Árásin
var gerð daginn áður en
forsetakosningar fóru fram í
landinu.
Chen Shui-bian forseti fékk skot í
magann og Annette Lu varaforseti
varð fyrir skoti í hné. Skotið var á
þau þegar þeim var ekið um götur
bæjarins Tainan á sunnanverðri
eyjunni.
Embættismenn sögðu að
forsetakosningunum yrði ekki
frestað þrátt fyrir tilræðið. Lien
Chan, forsetaefni stjórnar-
andstöðunnar, fordæmdi
skotárásina.
Síðustu skoðanakannanir bentu
til þess að fylgi Liens Chans og
forsetans væri hnífjafnt. Auk þess
að kjósa forseta gátu Taívanar tekið
þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um
tvær tillögur stjórnarinnar. Annars
vegar var spurt hvort efla ætti varnir
gegn hugsanlegri eldflaugaárás
Kínverja og hins vegar hvort reyna
ætti að hefja beinar viðræður við
kínversku kommúnistastjórnina.
Chen forseti er hlynntur því að
Taívan lýsi yfir sjálfstæði. Stjórn
kommúnista í Peking lítur á Taívan
sem hérað í Kína. Hún hefur hótað
að leysa deiluna um stöðu Taívans
með hervaldi.
Forseta Taívans sýnt
banatilræði
AP
Chen Shui-bian, forseti Taívans,
fékk byssuskot í magann þegar hon-
um var sýnt banatilræði á föstudag.