Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Þ́UNGIR DÓMAR
Hæstiréttur dæmdi í gær liðlega
fertugan karlmann í fimm og ½ árs
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
stjúpdóttur sinni sem stóðu í tólf
ár. Aðeins einu sinni áður hefur
verið felldur jafnþungur dómur í
máli af þessu tagi. Þá hefur Hér-
aðsdómur Reykjavíkur dæmt hálf-
fertugan karlmann í fimm ára
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
sex drengjum og brot á barna-
verndarlögum.
Vilja verjast hryðjuverkum
Hollendingurinn Gijs de Vries
hefur verið skipaður í nýtt embætti
yfirmanns hryðjuverkavarna Evr-
ópusambandsins. Þetta var ákveðið
á fundi leiðtoga ESB í Brussel í
gær. Þeir náðu einnig samkomulagi
um ráðstafanir til að auka samstarf
lögreglu og leyniþjónustu í nafni
efldra hryðjuverkavarna um alla
álfuna.
Vöruðu við hættu á hruni
Eftirlitsaðilar Landsvirkjunar
sendu verktakafyrirtækinu Imp-
regilo og undirverktökum skriflega
athugasemd um hættu sem stafaði
af grjóthruni viku áður en banaslys
varð í gljúfrinu undir Fremri-
Kárahnjúk. Öryggistrúnaðarmaður
Arnarfells segist einnig margoft
hafa kvartað vegna hrunhættu í
gljúfrinu áður en banaslysið varð.
Portúgal óskar eftir aðstoð
Portúgalar hafa beðið Atlants-
hafsbandalagið um leggja til
AWACS-eftirlitsflugvélar í
tengslum við öryggisviðbúnað á
Evrópumótinu í knattspyrnu.
Lægra verð sjávarafurða
Vísitala sjávarafurðaverðs hefur
lækkað um 3,5% í ísl. kr. talið frá
því í desember til loka febrúar.
Mælt í SDR er hins vegar um ör-
litla hækkun að ræða. Sé litið aftur
til 1. september 2001, er lækkunin í
einstökum afurðaflokkum á bilinu
13 til 23%. Formaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva, segir þetta þyngja
rekstur sjávarútvegsfyrirtækja
verulega.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 44
Viðskipti 11/12 Minningar 44/52
Erlent 16/21 Umræðan 53/58
Heima 22 Kirkjustarf 57
Höfuðborgin 24 Bréf 62
Akureyri 25/26 Dagbók 64/65
Suðurnes 26/27 Staksteinar 64
Austurland 29 Sport 66/69
Landið 30/31 Leikhús 70
Listir 3235/30 Fólk 70/77
Daglegt líf 36/39 Bíó 74/77
Forystugrein 40 Ljósvakamiðlar 78
Þjónusta 43 Veður 79
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablað frá nemendum
Háskólans í Reykjavík.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Tískuveldið Karen Millen
Arnaldur Indriðason
í Þýskalandi
Dómaraparið Stefán og Gunnar
Eftirminnileg tímabil í lífi
ólíkra einstaklinga
Íslenskur arkitekt í New York
Geisladiskarekkar
Fljúgandi stólar og logandi
hellur
Áhrif frá Coco Chanel
Lífrænt ræktað
Á SUNNUDAGINN
Sunnudagur 28.03.04
ARNALDUR INDRIÐASON RITHÖFUNDUR ER Í ÞÝSKALANDI ÞAR SEM BÆKUR HANS NJÓTA MIKILLA VINSÆLDA
HIN EINA
SANNA
KAREN
MILLEN
Nokkrir ólíkir Íslendingar á mismunandi aldri staldra við og deila eftirminnilegu tímabili í lífi sínu
EIGANDI skammbyssunnar,
sem voðaskot hljóp úr mánu-
daginn 15. mars síðastliðinn
og varð Ásgeiri Jónsteinssyni
12 ára að bana, hefur gefið
skýrslu hjá lögreglunni á Sel-
fossi og kannast við að eiga
umrædda byssu. Byssan var
keypt erlendis fyrir nokkrum
árum og flutt ólöglega til
landsins samkvæmt upplýs-
ingum sýslumannsins á Sel-
fossi. Ekkert leyfi er fyrir
vopninu.
Lögreglan á Selfossi sem
rannsakar málið bíður nú nið-
urstöðu úr rannsóknum,
krufningu og tæknirannsókn
á byssunni.
Viðurkennir
eign á
ólöglegri
skammbyssu
HÆSTIRÉTTUR hnekkti í gær
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá
27. júní 2003 í meiðyrðamáli sem
Bjarni F. Einarsson, umsækjandi
um kennarastarf í fornleifafræði við
Háskóla Íslands, höfðaði gegn
þremur dómnefndarmönnum sem
meta áttu hæfi hans. Hin átöldu um-
mæli voru í þeim hluta dómnefnd-
arálits sem fjallaði um umsækjand-
ann og sagði áfrýjandi, Bjarni, að
þar fram kæmu ýmis órökstudd um-
mæli sem hefðu vegið að æru hans
og persónu.
Hin átöldu ummæli í áliti dóm-
nefndar voru annars vegar: „Þar
slær hann [Bjarni] fram fullyrðing-
um sem ekki eru byggðar á neinum
rökum, en það er hreint og beint
ábyrgðarleysi“ og „Tilgangi rann-
sóknarinnar var því ekki náð og illa
var farið með almannafé.“
Um fyrri ummælin segir Hæsti-
réttur að þau hafi verið röng og
meiðandi fyrir Bjarna og til þess
fallin að skerða fræðimannsheiður
hans. Um síðari umælin segir
Hæstiréttur að þau hafi falið í sér
siðferðisdóm, sem væri meiðandi
fyrir Bjarna, enda tilhæfulaus og
óviðurkvæmileg í dómnefndaráliti.
Ummælin voru því dæmd ómerk
og dómnefndarmenn dæmdir til að
greiða Bjarna 100 þúsund krónur
auk 500 þúsund króna í málskostn-
að.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Garð-
ar Gíslason og Pétur Kr. Hafstein.
Lögmaður Bjarna var Jakob R.
Möller hrl. og lögmaður dómnefnd-
armanna Hörður F. Harðarson hrl.
Umsækjandi um kennarastöðu við Háskóla Íslands vinnur
meiðyrðamál í Hæstarétti gegn dómnefndarmönnum
Ummæli dómnefndar-
innar talin meiðandi
ÓLAFUR Ingi Jónsson, forvörður
hjá Morkinskinnu, segir það hafið
yfir allan vafa að mynd, sem
eignuð var Jóhannesi Kjarval og
til stóð að bjóða upp í næstu viku
hjá Bruun Rasmussen í Kaup-
mannahöfn, sé fölsuð.
Ólafur Ingi skoðaði myndina
undir innrauðu og útfjólubláu
ljósi í húsnæði forvörsludeildar
danska Þjóðminjasafnsins í Kaup-
mannahöfn í gær. Sagði hann að
nokkur atriði gæfu til kynna að
ný mynd hefði verið máluð yfir
eldra verk. Til dæmis væri aug-
sýnilegt að málað hefði verið yfir
undirliggjandi sprungur. Mynd-
málið væri ólíkt stíl Kjarvals,
enda væri myndin afar ófag-
mannlega unnin, og undirskriftin
kæmi ekki heim og saman við
verk hans. Undir útfjólubláu ljósi
væri litur myndarinnar enn-
fremur mjög dökkur og einsleitur
og án flúrljómunar, sem benti til
þess að málningin væri ekki göm-
ul. Að sögn Ólafs Inga stendur til
að skoða myndina með röntgen-
tækni innan skamms, en þá ætti
upprunalega verkið að koma í
ljós undir yfirmálningunni. Hann
hyggst einnig taka sýni úr máln-
ingunni til að efnagreina bindi-
efnið í henni og bera saman við
gögn Raunvísindastofnunar Há-
skóla Íslands er tengjast hinu
umfangsmikla fölsunarmáli á Ís-
landi.
Eftirlíking af slökustu gerð
„Það er mjög dapurlegt að
þessi mynd hafi komist í umferð,
bæði á Íslandi og í Danmörku,“
sagði Ólafur Ingi. „Það er ekki
hægt að tala um snilli í neinum
skilningi í sambandi við þetta
verk, ekkert sem lýtur að heið-
arlegri glímu við listina. Þetta er
augljós eftirlíking og það af slök-
ustu gerð.“
Eins og áður hefur komið fram
í Morgunblaðinu telur Ólafur Ingi
að myndin, sem átti að bjóða upp
hjá Bruun Rasmussen í lok mán-
aðarins undir heitinu Pige med
harpe, sé eftirlíking af málverk-
inu Landslag leikið á píanó eftir
Kjarval, en það er í eigu Lista-
safns Íslands. Hætt var við sölu
myndarinnar eftir að grunsemdir
vöknuðu um að hún væri fölsuð,
en Bruun Rasmussen er eitt virt-
asta uppboðshús Danmerkur.
Eigandinn er Dani, sem ekki vill
láta nafns síns getið, en sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
hefði keypt myndina á uppboði
hjá Galleríi Borg í maí árið 1994,
en þar var hún boðin upp undir
heitinu Vorkoma. Kvaðst hann
mjög áfram um að komist yrði til
botns í málinu.
Morgunblaðið/Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Ólafur Ingi Jónsson forvörður skoðar myndina í húsnæði forvörsludeildar
danska Þjóðminjasafnsins í Kaupmannahöfn í gær.
Myndin án nokkurs vafa fölsuð
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.