Morgunblaðið - 26.03.2004, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 11
ÚR VERINU
SVEITARSTJÓRN
Súðavíkurhrepps hefur
samþykkt samhljóða
viljayfirlýsingu um
stofnun fyrirtækis um
rækjuveiðar- og vinnslu
í Súðavík. Nafn hins
nýja fyrirtækis verður
Frosti hf. og verða hlut-
hafarnir tveir, Súðavík-
urhreppur og Hrað-
frystihúsið-Gunnvör hf.
Frá þessu er greint á fréttavef BB í
gær. Þar segir ennfremur: „Í vilja-
yfirlýsingunni kemur fram að HG
leggur fram eignir tengdar rekstri
rækjuverksmiðjunnar. Þær eignir
eru eftirtaldar: Varanlegur rækju-
kvóti 1.956 tonn sem metinn er á rúm-
ar 586,7 milljónir króna eða um 300
krónur á hvert kg. Rækjuveiðiskipið
Andey ÍS ásamt fylgihlutum. Mat-
verð skipsins er rúmar 137 milljónir
króna. Fasteignir og lóðir í Súðavík
sem metnar eru á 130 milljónir króna
og vélar og framleiðslutæki sem met-
in eru á tæplega 99 milljónir króna.
Samtals verður því verðmæti fasta-
fjármuna hins nýja félags tæpar 953
milljónir króna. Eignunum fylgja
langtímaskuldir að því marki að eigið
fjárframlag HG verður 220 milljónir
króna. Auk þess mun HG veita hinu
nýja félagi víkjandi lán að upphæð 60
milljónir króna.
Þá verða afurða- og rekstrarvöru-
birgðir tengdar rækjuvinnslu seldar
hinu nýja félagi á kostnaðarverði.
Súðavíkurhreppur leggur fram
hlutafé að upphæð 180 milljónir
króna og eignast þannig 45% í félag-
inu.
Þá er þess getið í viljayfirlýsing-
unni að skip HG veiði fyrir Frosta hf.
þann kvóta sem Andey kemst ekki yf-
ir að veiða á sama verði
og greitt er fyrir afla
Andeyjar. Skip HG
veiða eigin rækjukvóta
og leggja upp í verk-
smiðju Frosta á sama
verði og almennt gerist í
viðskiptum.
Vörumerkið „Frosti“
fylgir ekki með inn í hið
nýja félag, en félaginu
verður heimil notkun þess samkvæmt
nánara samkomulagi. Þá verður gert
hluthafasamkomulag á milli aðila þar
sem m.a. verður kveðið á um stjórn-
skipulag félagsins, meiri háttar
ákvarðanir um fjárfestingar og sölu
eigna og annað sem talið er nauðsyn-
legt að fjalla um í samkomulagi aðila.
Í framhaldi af samþykktinni lét
sveitarstjórnin bóka eftirfarandi:
„Markmið sveitarstjórnar með svo
mikilli aðkomu sveitarfélagsins, er að
tryggja atvinnu og efla rækjuvinnslu
og útgerð í Súðavík enn frekar.“
Á fundinum kynntu Ómar Jónsson
sveitarstjóri og Guðmundur Kjart-
ansson endurskoðandi hreppsins
rekstraryfirlit rækjuverksmiðju og
rækjuveiða HG fyrir árin 2000–2003
og einnig rekstraráætlun hins nýja
félags fyrir árin 2004–2008 ásamt
stofnefnahagsreikningi. Ómar Jóns-
son sveitarstjóri sagði að gert væri
ráð fyrir að vinna úr um 5.000 tonnum
af hráefni hjá Frosta og að velta þess
yrði um einn milljarður króna á ári í
fyrstu. Ómar sagði að fyrirtækið yrði
formlega stofnað á næstu dögum og
væntanlega myndi hið nýja félag
hefja starfsemi um miðjan apríl.
Hann sagði reiknað með því að fyr-
irtækinu yrði stjórnað í nánu sam-
starfi við HG og sami framkvæmda-
stjóri yrði yfir báðum fyrirtækjunum.
Nýtt fyrirtæki
í rækju stofnað
á Súðavík
Hraðfrystihúsið Gunnvör og Súða-
víkurhreppur einu hluthafarnir
VERÐMÆTI Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hefur lækkað að undan-
förnu og er nú 8,2 milljarðar króna að
mati Greiningardeildar Íslandsbanka.
Miðað við útistandandi hluti í SH er
verðmatsgengi SH 5,5. Verðmatsgeng-
ið er 3,5% lægra en gengi í síðustu við-
skiptum með bréf SH í Kauphöll Ís-
lands. Greining ÍSB mælir hvorki með
kaupum né sölu á hlutabréfum í SH
miðað við núverandi gengi á markaði
og ráðleggur fjárfestum að markaðs-
vega bréf félagsins í eignasöfnum sem
taka mið af samsetningu hlutabréfa í
Kauphöll Íslands.
Í frétt Greiningar ISB segir að af-
koma SH á síðasta ári hafi valdið von-
brigðum. „Rekstur OTO gekk illa og
afkoma stærstu dótturfélaga, Icelandic
USA og Coldwater Seafood í Bret-
landi, var lakari en vonir stóðu til. Á
hinn bóginn hefur afkoma verksmiðj-
unnar í Redditch farið batnandi og
skilaði hún hagnaði á síðari helmingi
ársins eins og vonir höfðu staðið til.
Niðurfærsla hlutabréfa í Scandsea og
söluhagnaður hlutabréfa í Pescanova
einkenndu afkomu liðins árs.
SH keypti rækjufyrirtækið Ocean to
Ocean (OTO) í Bandaríkjunum í fyrra.
Áhrif þeirrar fjárfestingar og kaup á
verksmiðju sem framleiðir kælda til-
búna rétti í Bretlandi árið 2002 skýra
8% vöxt tekna SH á síðasta ári, þrátt
fyrir lækkun dollarans sem er mikil-
vægasti gjaldmiðillinn í tekjum SH. Á
þessu ári gerir Greining ÍSB ráð fyrir
að tekjur SH vaxi um 9,6% sem skýrist
af áhrifum af OTO. Starfsemi OTO og
verksmiðjunnar í Redditch er í örari
vexti en önnur starfsemi SH og verður
vöxtur SH samkvæmt spá Greiningar
ÍSB örastur í Bandaríkjunum og Bret-
landi á komandi árum. Árið 2005 er
áætlað að tekjur SH aukist um 6,6%.
Draga mun úr vextinum á komandi ár-
um og verður árlegur vöxtur til fram-
tíðar, samkvæmt spá Greiningar ÍSB,
4%.
Á næstu fjórum árum áætlar Grein-
ing ÍSB að álagning (vörusala – kostn-
aðarverð seldra vara) verði svipuð og á
liðnu ári eða 10,1 ¿ 10,3% af vörusölu.
Gert er ráð fyrir að álagning hækki
smámsaman í 10,6% fyrir lok spátíma-
bilsins en í þeirri spá felast væntingar
um bætta afkomu OTO og verksmiðj-
unnar í Redditch.
Hagnaður SH fyrir afskriftir á
þessu ári er áætlaður 2,8% af veltu sem
er sama EBITDA-framlegðarhlutfall
og í fyrra. Spá Greiningar ÍSB gengur
út á að EBITDA-framlegð í rekstri SH
hækki á næstu þremur árum í 3,4% og
verði til framtíðar. Vænst er hlutfalls-
legrar lækkunar annars rekstrar-
kostnaðar en að launakostnaður hækki
hlutfallslega lítið eitt.
Í framhaldi af kaupum SÍF á 23%
hlut í SH er að mati Greiningar ÍSB
líklegt að látið verði reyna á samein-
ingu SH og SÍF eða samstarf sem fæli
í sér sameiningu dótturfélaga á
ákveðnum markaðssvæðum.
Síðustu mánuði hefur eignarhald
SH verið félaginu til trafala en skort
hefur kjölfestufjárfesta til framtíðar. Í
þessu verðmati er litið á starfsemi SH
eins og hún er í dag og ekki tekin af-
staða til sameiningar við SÍF eða önn-
ur fyrirtæki.
Gerð er 14,0% nafnávöxtunarkrafa
til eigin fjár SH,“ segir í hinu nýja
verðmati.
Verðmatsgengi SH
lækkar um 3,5%
UM HUNDRAÐ manns sóttu opinn
borgarafund um skipulagsmál
Reykjavíkurborgar sem haldinn var
í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í
gær. Þar var fjallað um öll helstu
skipulagsmál sem liggja fyrir borg-
inni, þar á meðal skipulag Hafn-
arsvæðisins og Mýrargötusvæðisins,
lagningu Sundabrautar, færslu
Hringbrautar og fleiri smærri mál.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, for-
maður skipulags- og bygginga-
nefndar, fjallaði um málin, en Eirík-
ur Hjálmarsson, aðstoðarmaður
borgarstjóra, stýrði fundi. Sagði
Steinunn Valdís ólíkar hugmyndir
um hentugri útfærslu Sundabrautar
milli Reykjavíkurborgar og Vega-
gerðarinnar, en Vegagerðin legðist
gegn valkosti borgarinnar, ytri leið-
inni, vegna þess að hann væri dýrari.
Sagði hún borgina hallast að ytri
leiðinni vegna þess að þar væri um
að ræða umhverfisvænni valkost auk
þess sem betri tenging myndaðist
við miðbæinn. Þá sagði Steinunn
hugmyndir um lögn Hringbrautar í
stokk óraunhæfar og ekki mögu-
legar vegna kostnaðar.
Eftir framsögu Steinunnar Val-
dísar tóku til máls Elísabet Gísla-
dóttir, formaður Íbúasamtaka Graf-
arvogs, Gísli Þór Sigurþórsson,
formaður Íbúasamtaka Vest-
urbæjar, Páll Ásgeir Davíðsson, lög-
fræðingur í átakshópi Samtaka um
betri byggð og Höfuðborgarsamtak-
anna, og Sigurður G. Steinþórsson,
gullsmíðameistari og kaupmaður við
Laugaveg. Fögnuðu allir fram-
sögumenn áformum um þéttingu
byggðar, sérstaklega í hugmyndum
að nýju skipulagi Mýrargötusvæð-
isins, en þó var lýst eftir uppruna-
legum tilgangi Sundabrautar og
þess óskað að að honum yrði aftur
horfið, meðal annars með skjótari
tengingu út á Kjalarnes.
Að loknum framsögum sátu
fulltrúar borgaryfirvalda fyrir svör-
um og spurðu fundarmenn að mestu
leyti almennra spurninga um skipu-
lagsmál, framtíðarsýn og almanna-
varnir. Sagði þó einn fundarmanna
samgönguyfirvöld ríkisins halda
skipulagsyfirvöldum Reykjavík-
urborgar í gíslingu, þar sem ríkið
ætti stofnbrautir og héldi utan um
allar fjárveitingar til vegafram-
kvæmda.
Borgarafundur um skipulagsmál Reykjavíkur í Ráðhúsinu
Morgunblaðið/Sverrir
Vegagerðin og Reykjavík-
urborg deila um kostnað
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA, Jón
Kristjánsson, heimsótti Hugarafl í
Heilsugæslunni við Drápuhlíð í
gær og þáði þar kaffi og með því.
Hugarafl er nýstofnað félag ein-
staklinga sem átt hafa við geðræn
vandamál að stríða en eru nú á
batavegi og berst félagið m.a. fyr-
ir því að þeir sem þurfa að nota
geðheilbrigðisþjónustu geti haft
áhrif á hana með ýmsum hætti og
miðlað þar með af reynslu sinni.
Að sögn Bergþórs G. Böðv-
arssonar hjá Hugarafli tók ráð-
herra vel í hugmyndir Hugarafls
um stofnun Hlutverkaseturs, þ.e.
kaffihúss sem yrði samtvinnað
margskonar starfsemi á borð við
útgáfustarfsemi, fræðslu, vinnu
við tenglakerfi, margs konar rann-
sóknarvinnu og starfsþjálfun
o.s.frv. Segir Bergþór menn hafa
verið sammála um að slík starf-
semi væri best komin í miðbæ
Reykjavíkur.
Í dag kl. 9 hefst ráðstefna fé-
lagsmálaráðuneytisins um málefni
fatlaðra á Hótel Nordica en hún
ber yfirskriftina Góðar fyr-
irmyndir. Þar er lögð áhersla á
það sem vel hefur verið gert í
þágu fatlaðra.
Morgunblaðið/Jim Smart
Garðar og Berglind, sem starfa með Hugarafli, tóku á móti heilbrigð-
isráðherra í gær. Ráðherra kynnti sér starfsemi Hugarafls.
Heilbrigðisráðherra
heimsækir Hugarafl
„ÞAÐ er rætt og rætt en engar af-
stöður eða neitt ákveðið á borðinu enn
sem komið er.“ Þannig lýsir Finnbogi
Sigurðsson, formaður Félags grunn-
skólakennara, stöðu kjaraviðræðna
félagsins og samninganefndar Launa-
nefndar sveitarfélaga.
Haldinn var formlegur samninga-
fundur í húsnæði ríkissáttasemjara í
gær og er boðað til næsta fundar á
mánudaginn. Kjarasamningur grunn-
skólans er laus frá og með næstkom-
andi fimmtudegi 1. apríl.
Birgir Björn Sigurjónsson, formað-
ur samninganefndar Launanefndar
sveitarfélaga, segir lítið að fregna af
gangi viðræðnanna. „Þetta voru
ágætar viðræður en það liggja engar
niðurstöður fyrir,“ segir hann.
Að sögn Finnboga eru viðræðurnar
í svipuðum farvegi og hann átti von á.
„Það þýðir að það er í raun ekkert
uppi á borði, hvorki til eða frá.“
Samninganefndirnar hafa m.a. ver-
ið að ræða saman um breytingar á
vinnutíma og fleira en stærstu
áherslumálin s.s. launabreytingar
hafa enn ekki komið til umræðu.
Kjarasamningur
grunnskólans rennur
út í næstu viku
„Það er
í raun ekk-
ert uppi
á borði“
TVÍTUGUR karlmaður var handtek-
inn af lögreglunni í Keflavík rétt fyrir
klukkan sjö í gærkvöldi en á honum
fundust tvö grömm af marijúana. Við
húsleit heima hjá manninum fundust
18 grömm af efninu til viðbótar. Var
honum sleppt að lokinni yfirheyrslu
og telst málið upplýst.
Fundu 20 grömm
af marijúana
♦♦♦