Morgunblaðið - 26.03.2004, Side 24

Morgunblaðið - 26.03.2004, Side 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 24 FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Höfuðborgarsvæðið | Óskýrður munur á heildarlaunum karla og kvenna sem starfa hjá Reykjavíkur- borg er 15%, en 19% þegar undan eru skildir grunnskólakennarar, að því er fram kemur í samanburðarkönnun á launum karla og kvenna hjá Kópa- vogsbæ. Launamunur kynjanna reyndist mestur í Reykjavík þegar saman eru borin nokkur sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu. Í Kópavogsbæ er munurinn um 5%, en 9% þegar grunnskólakennarar eru undanskild- ir, í Hafnarfirði er munurinn 8% og 12%, og í Mosfellsbæ 6% og 12%. Munurinn á Reykjavík og Kópavogi, sem er minnstur, er því 10 prósentu- stig. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, segist ánægður með stöðu jafnréttismála í Kópavogi eins og þau koma fram í könnuninni. „Það væri mikið vanþakklæti ef við værum ekki sáttir við stöðuna, því það kemur í ljós að við erum í algerum sérflokki.“ Niðurstöður jákvæðar fyrir Kópavog Skýrsluhöfundar segja niðurstöð- urnar mjög jákvæðar fyrir Kópa- vogsbæ, og Sigðurður tekur undir það. „Meðaltalið úr hinum ýmsu könnunum sem við höfum séð er um 8%, þar erum við með 9%, og Reykja- vík með 19%,“ segir Sigurður. Í tilkynningu frá bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að könnunin sýni að konur og karlar sem vinna hjá Kópavogsbæ njóti ekki sömu launakjara þrátt fyrir yfirlýsta stefnu bæjarins um launajafnrétti. Bæjarfélagið verði að vinna mark- visst að því að jafna launamun karla og kvenna. „Samfylkingin telur nauðsynlegt að kanna stöðuna reglulega eins og jafnréttisáætlunin segir til um og grípa til markvissra aðgerða nú þegar til að vinna bug á launamun kynjanna hjá Kópavogsbæ,“ segir í fréttatil- kynningu flokksins. Um er að ræða fyrstu samanburð- arkönnunina á launum karla og kvenna hjá Kópavogsbæ. Um gerð könnunarinnar sá Viðskiptaráðgjöf IBM og er miðað við launatölur frá nóvember 2002. Launamunur kynjanna mest- ur í Reykjavík  !" #$%&        !  " #$      # % '()#* +  , - .$)/$ +  , 00& + "#0 & + 1$ . +      "  *3 $3 $  4 *3 $3 $  Reykjavík | Reykjavíkurráð ung- menna fundaði með fulltrúum borgarstjórnar í Ráðhúsi Reykja- víkur í gær og ræddu fulltrúar ungmenna ýmis mál sem á þeim brunnu við borgarfulltrúana. Ungmennaráðið lagði fram fjöl- margar tillögur, þar á meðal um vinnureglur nemendaráða, sér- kennslu fyrir bráðger börn, að- stöðu til íþróttaiðkunar, lífsleikni- kennslu, lýsingu í Elliðaárdalnum o.fl. Erla María Markúsdóttir mælti fyrir tillögu um aukna lífsleikni- kennslu í grunnskólum. Hún sagði að rétt væri að byrja enn fyrr að kenna lífsleikni en gert er í dag og sagði kennsluna ekki nægilega markvissa. Fræða þyrfti nemendur um fleira en fíkniefni og ábyrgt kynlíf, t.d. átraskanir og fjármál. Sérkennsla fyrir bráðger börn Gunnar Torfi Ólafsson lagði til fyrir hönd nemenda að sérkennsla fyrir bráðger börn yrði bætt stór- lega. Hann benti á að óeðlilegt yrði að teljast að bráðger börn þyrftu að borga 12.000 kr. á önn fyrir þátttöku í verkefninu Bráðger börn, enda dytti að sjálfsögðu eng- um í hug að láta þau börn borga sem þurfa á annars konar sér- kennslu að halda. Einnig benti Gunnar á lélegt samræmi í hæð borða og stóla fyrir nemendur, og bauð borgarfulltrúum að prófa nokkra stóla sem nemendur höfðu með í för. Erla María Jónsdóttir lagði aftur á móti áherslu á að íþróttaaðstaða í Breiðholtinu yrði bætt. Hún skýrði fundarmönnum frá því að ómögu- legt væri fyrir allar íþróttagreinar að fá inni í íþróttahúsum hverf- isins, og í raun væru þau uppbókuð fyrir hefðbundnar boltaíþróttir og því ekkert pláss fyrir aðrar íþrótt- ir, eins og fimleika, frjálsar íþrótt- ir, tennis, badminton, blak o.fl. Unglingaráð fundar með borgarfulltrúum Þurfa fræðslu um fleira en fíkniefni Morgunblaðið/Ásdís Málin rædd: Þórólfur Árnason borgarstjóri og Gunnar Torfi Ólafsson nem- andi ræddu málefni ungs fólks í Reykjavík fyrir fundinn í Ráðhúsinu í gær. Í pontu: Átta nemendur komu í pontu og fluttu tillögur sínar. Opnunartími: Mánudaga-föstudaga frá kl. 8:30-18:00 Veislubakkar á tilboðsverði, verð frá 399 kr. Skútuvogi 4 - www.gg.is Allir velkomnir Duni í miklu úrvali á góðu verði Duni dúkarúllur 1,5mx25m á tilboðsverði 3.299 kr. Mikið úrval af Mónu páskaeggjum (einnig Mónuegg fyrir sykursjúka & fyrir þá sem hafa mjólkuróþol) Gripið & Greitt - Allt fyrir veisluna á sama stað Móna glöð í bragði Opið Laugardag frá kl. 10:00-16:00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.